Morgunblaðið - 06.09.2001, Síða 16

Morgunblaðið - 06.09.2001, Síða 16
SUÐURNES 16 FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ GUNNHILDUR Gunnarsdóttir og Guðmundur Sigurbergsson hafa komið sér upp sælureit í Fjörukoti, skammt sunnan Sand- gerðis. Þar dvelja þau öllum stundum og hafa dregið að sér ýmsa skemmtilega muni. „Ég keypti þennan kofa fyrir þremur árum. Það voru allar rúður brotnar og húsið nánast ónýtt. Hann stóð svona en fyrir ári fékk Guðmundur áhugann, fór að framkvæma og hefur ekki stoppað síðan,“ segir Gunn- hildur. Þau Guðmundur búa í Keflavík en dvelja sífellt meira í Fjörukoti. Þau hafa gert húsið upp og komið í það rafmagni og hita. Í sumar hefur Guðmundur verið að útbúa stóra laut með jarð- hýsi. Honum áskotnaðist gamall olíutankur sem átti að farga. „Mér datt í hug að nýta hann til þess að gera hér jarðhús,“ segir Guðmundur. Hann opnaði tank- inn og kom honum fyrir á hlið- inni niðri í gríðarstórri laut sem hann gróf sunnan við bústaðinn og tyrfði yfir allt saman. Tank- urinn verður skemmtilegt jarð- hús þegar búið verður að ganga frá framhlið hans, niðri í laut- inni sem veitir skjól fyrir næð- ingnum. Bátur í nausti Guðmundur hefur dregið fjölda skemmtilegra hluta að sér. Hann hefur flutt mikla rekaviðardrumba frá Stafnesi og komið fyrir sem girðingum og skemmtilegri umgjörð um bú- staðinn og lóðina. Þá hefur hann fengið gömul verkfæri og báta, meðal annars áburðardreifara og dráttarspil. Við Fjörukot stendur til dæm- is sexæringurinn Lukkugefinn í nausti. Hann er yfir 100 ára og var gerður út frá söndunum við Sandgerði. Hefur Guðmundur hug á að taka bátinn inn á verk- stæði í vetur og koma honum í sína upprunalegu mynd. Hann fékk raunar gefins annan bát, Breiðfirðing að gerð, sem er nú inni á verkstæði en Guðmundur ætlar einnig að koma honum fyrir í Fjörukoti. Þarna verða því tveir bátar í nausti, ásamt spilbúnaði, eins og þeim hafi verið komið þar fyrir eftir síð- ustu vertíð. Stutt heim Gunnhildur og Guðmundur segja að Fjörukot sé þeirra paradís og frábært sé að dvelja þar. Gunnhildur segir að það sé kostur hvað stutt sé heim, hægt sé að skreppa eftir vinnu og jafnvel að sækja börnin eða fara með þau ef þau séu í einhverju öðru. „Það er yndislegt að vera hérna og börnin una sér líka vel,“ segir hún. Gunnhildur segir þó að enginn uni sér eins vel í Fjörukoti og Guðmundur. Það liggi við að hann sé fluttur þangað. Guð- mundur tekur undir það og seg- ist sækja í kyrrðina og fuglalífið. Svo séu ekki nema átta mínútur í BYKO í Keflavík ef eitthvað vantar til framkvæmdanna. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Gunnhildur Gunnarsdóttir og Guðmundur Sigurbergsson í sinni paradís, Fjörukoti í Sandgerði. Báturinn Lukkugefinn stendur í nausti og á bak við er laut og jarðhús sem þau eru að útbúa. Kyrrðin og fuglalífið Sandgerði Hjón úr Keflavík hafa komið sér upp sælureit við sumarhúsið Fjörukot FERÐAÞJÓNUSTA Suðurnesja hefur veitt Skógræktarfélagi Suður- nesja styrk. Eigandinn, Helga Ingi- mundardóttir, afhenti Halldóri Magnússyni, formanni Skógræktar- félagsins, gjöfina við athöfn við Vatnsholt í Keflavík. Er þetta þriðja árið í röð sem hvalaskoðunin afhendir skógrækt- inni gjöf. Fyrstu tvö árin gaf fyrir- tækið peninga til að kaupa tré og gróðursetti Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, fyrstu þrjú trén við Rósaselsvötn. Ferðaþjónusta Suðurnesja rekur hvalaskoðunarferðir frá Keflavík með skipinu Moby Dick. Leggur Helga til hliðar ákveðna upphæð fyr- ir hvern gest sem kemur í hvalaskoð- unarferðir og gefur Skógræktar- félaginu. Í þetta skipti gefur Helga ákveðinn hluta launa starfsmanns. Hún segir að erfiðara sé orðið að fá sjálfboðaliða í skógræktarstarfið og þörfin hafi verið mest á þessu sviði nú. Helga segist hafa áhuga á skóg- rækt en hafi því miður ekki mikinn tíma til að sinna því áhugamáli sjálf. En hún þekki vel þörfina vegna starfa sinna sem leiðsögumaður um svæðið. Víða séu sár í jarðvegi sem ekki þurfi að vera. Halldór Magnússon tekur við gjöf úr hendi Helgu Ingimund- ardóttur. Hvala- skoðun styrkir skógrækt Keflavík EKKI er venjulegt að tjaldstæðið í Grindavík sé kjaftfullt á þessum tíma árs. Það gerðist þó að þessu sinni, um mánaðamótin. Um 40 tjöld voru á svæðinu. Að vísu kemur fyrir að tjaldbúar fylli tjaldstæðið yfir sumartímann og þá eru það svipaðir ferðalangar og í þetta skiptið, það er að segja full rúta af tjaldbúum. Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson Tjaldbúar taka saman tjöldin að morgni dags. Rúta fyllti tjaldsvæðið Grindavík ÚRVAL listaverka í eigu Reykja- nesbæjar er um þessar mundir til sýnis á tveimur stöðum í bænum, í Miðstöð símenntunar og á efri hæð Glóðarinnar. Reykjanesbær á þó nokkurt safn listaverka. Vegna aðstöðuleysis hef- ur safnið ekki verið sýnt áður þótt einstök verk hafi verið sýnileg í hin- um ýmsu stofnunum bæjarins. Í tilefni Ljósanætur safnaði Lista- safnsnefnd saman úrvali mynda og sýnir í tvennu lagi. Olíuverk í eigu safnsins eru til sýnis í Miðstöð sí- menntunar á Skólavegi 1. Þar er opið frá klukkan 8 til 17 virka daga. Graf- ík- og vatnslitamyndir eru sýndar á efri hæð Glóðarinnar, en þar er opið alla daga frá kl. 15 til 23. Sýning- arnar standa til 23. september næst- komandi. Í fréttatilkynningu frá menning- arfulltrúa er athygli bæjarbúa vakin á sýningunum og þeir hvattir til að koma við og líta á listaverkaeign sína. Listaverkaeignin sýnd Reykjanesbær

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.