Morgunblaðið - 06.09.2001, Page 18
LANDIÐ
18 FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTÁN unglingar ásamt
tveimur umsjónarmönnum úr ung-
lingadeild Slysavarnarfélagsins
Bjargar á Hellissandi eru nýkomn-
ir heim úr góðri heimsókn til Ír-
lands. Unglingadeildin heitir Drek-
inn og eru félagarnir frá
Hellissandi og Rifi. Þessi deild hef-
ur starfað vel undanfarin ár.
Krakkarnir úr elstu bekkjum
grunnskólans gerast flestir félagar
og er með því vel séð fyrir end-
urnýjun starfskrafta og öflugri
starfsemi. Starf deildarinnar mið-
ast við að þjálfa upp björgunar-
sveitarfólk framtíðarinnar.
Tilefnið að þessari ferð var að
fyrir tveimur árum heimsóttu
þrettán ungmenni frá Athlone á Ír-
landi Hellissand. Unglingadeildin
Drekinn tók á móti þeim og kynnti
þeim starfsemi sína og Björgunar-
sveitarinnar Bjargar. Þau skoðuðu
sig um á Snæfellsnesi og farið á
Landsmót unglingadeilda sem var
haldið í Skálavík á Vestfjörðum.
Írarnir komu til Íslands á vegum
ungmennaskipta Ungs fólks í Evr-
ópu. Nú kom það í hlut ungmenna í
Athlone að taka á móti félögum úr
Drekanum á Hellissandi. Ferða-
lagið til Athlone tók um sólahring.
Mótttökurnar voru mjög góðar.
Næstu fjórtán dagar voru svo dag-
ar með fræðslu- og skemmtileg-
heitum, farið var á kanóum í
þriggja daga ferð niður Shannon
og blakti íslenski fáninn í fremsta
bátnum. Krakkarnir urðu þreyttir
við róðurinn og gripu til þess ráðs í
lokin á hrópa RÓ RÓ eins og þau
væru í kappróðri heima á Rifi á
sjómannadaginn. Gestgjafarnir
fóru með hópinn til ýmissa áhuga-
verðra staða. Umsjónarmenn og
fararstjórar hópsins voru þau Guð-
rún H. Elíasdóttir og Hlynur Haf-
steinsson.
Morgunblaðið/Hrefna MagnúsdóttirUpphaf ferðar á kanóunum.
Vel
heppnuð
ferð til
Írlands
Hellissandur
SÍLDARVINNSLAN hf. hefur tekið
togarann Hjalteyri EA sem er í eigu
Samherja hf. á leigu. Hjalteyrin
mun afla hráefnis fyrir landvinnslu
fyrirtækisins og kemur í stað Bjarts
NK en eins og kunnugt er urðu
töluverðar skemmdir á Bjarti er
eldur kom upp í vélarrúmi hans nú
á dögunum og verður hann frá
veiðum í nokkrar vikur. Áhöfn
Bjarts verður á Hjalteyrinni sem er
þegar farin til veiða.
Morgunblaðið/Ágúst
Hjalteyrin EA við bryggju í Neskaupstað.
Hjalteyri EA í stað Bjarts
Neskaupstaður
ÖRN Hauksson á Stiklum í Mý-
vatnssveit var að búast á vatn í
haustblíðu mánudagsins, hann
sagðist ætla rétt að prófa að leggja
nokkur net og sjá til hvort eitthvað
fengist. Frekar lítil veiði hefur ver-
ið að undanförnu.
Ýtt úr vör
Mývatnssveit
UNDANFARIÐ eitt og hálft ár hafa
margar eignir skipt um eigendur og
mikil eftirspurn verið eftir sumar-
húsalóðum undir sunnanverðum
Snæfellsjökli. Eins og áður hefur
komið fram í fjölmiðlum keypti Sig-
urjón Sighvatsson kvikmyndafram-
leiðandi jörðina Laugarbrekku á
Hellnum á síðasta ári. Sama ár
keypti Verslunarmannafélag
Reykjavíkur jörðina Stóra-Kamb í
Breiðuvík. Fyrir skömmu keypti
Kristján Tómas Ragnarsson, bækl-
unarlæknir í New York, jörðina
Hnausa í Breiðuvík og alveg nýlega
urðu eigendaskipti á einu húsanna í
Snæfellsássamfélaginu á Brekku-
bæjarlandi.
Á síðasta ári úthlutaði Snæfells-
bær ellefu nýjum sumarhúsalóðum á
svokallaðri Sölvaslóð á Arnarstapa.
Ólafur Guðmundsson byggingar-
fulltrúi sagði að þótt búið væri að út-
hluta öllum lóðunum væri ekki búið
að ganga frá öllum lóðasamningum
og því væru byggingaframkvæmdir
aðeins hafnar við tvær lóðir. Nokkur
eigendaskipti hafa einnig verið á
sumarhúsum í eldri sumarhúsa-
hverfum á Stapa en þau eru tvö og
kallast Jaðarmóar og Lækjarbakk-
ar. Því má með sanni segja að mikil
eftirspurn sé eftir frístundahúsnæði
á ekki stærra svæði.
Morgunblaðið/Guðrún Bergmann
Séð yfir Jaðarmóahverfið á Arnarstapa.
Blómleg fast-
eignaviðskipti
Hellnar/Snæfellsbær