Morgunblaðið - 06.09.2001, Page 24
ERLENT
24 FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞRÍR vestrænir stjórnarerindrekar,
vonsviknir yfir skorti á upplýsingum
um réttarhald yfir átta erlendum
hjálparstarfsmönnum sem talebana-
stjórnin í Afganistan sakar um að
hafa lagt stund á kristniboð, fengu
ekki að hitta í gær forseta dómstóls-
ins sem réttar yfir mönnunum.
Noor Mohammed Saqib, forseti
hæstaréttar taleban-stjórnarinnar,
neitaði að hitta erindrekana og lét
færa þeim þau skilaboð að hann
myndi láta kalla eftir þeim ef hann
teldi einhverja þörf á að ræða við þá.
Eftir Saqib var haft í gær, að vel
kæmi til greina að áttmenningarnir
yrðu látnir sæta dauðarefsingu.
„Við munum refsa þeim í samræmi
við lög íslams, annað hvort með fang-
elsi eða hengingu,“ hafði fréttastofan
Afghan Islamic Press (AIP), sem hef-
ur bækistöðvar í Pakistan, eftir Saq-
ib. „Við munum refsa þeim í sam-
ræmi við ákvæði þeirra laga sem þeir
hafa brotið. Hafi þeir brotið lögin og
lögboðin refsing sé henging munum
við láta þá sæta þeirri refsingu,“
sagði hann.
Dagurinn í gær var annar dagur
réttarhalds yfir hjálparstarfsmönn-
unum, sem eru tveir Bandaríkja-
menn, tveir Ástralar og fjórir Þjóð-
verjar. Réttarhaldið er lokað og
engar upplýsingar hafa fengizt um
hvernig það fer fram eða hve lengi
það kunni að standa.
„Við erum erindrekar heimaríkja
sakborninganna og okkur finnst við
hafa rétt til að vita hvaða sökum þeir
eru bornir og hvaða ferli er beitt til að
rétta yfir þeim, og ekki sízt þó til að
komast að því hvort sakborningarnir
eru upplýstir um það sem fram fer
við réttarhaldið eður ei,“ hefur AFP
eftir einum stjórnarerindrekanna.
Hjálparstarfsmennirnir átta voru
handteknir í byrjun ágúst ásamt 16
afgönskum samstarfsmönnum sín-
um. Ekki er vitað til þess að hinir
handteknu hafi hlotið nokkra lög-
fræðiráðgjöf síðan. Réttað er yfir út-
lendingunum átta og Afgönunum 16
hvorum í sínu lagi, en réttarhaldið yf-
ir þeim síðarnefndu er ekki hafið
ennþá.
Vitað er að samkvæmt þeim ísl-
amslögum sem talebanar beita liggur
dauðarefsing við því að múslimi taki
þátt í að reyna að snúa múslima til
annarrar trúar. Óvíst er hins vegar í
hvaða sporum dómarar talebana álíta
kristna útlendinga standa gagnvart
lögum þeirra.
Vestrænir erindrekar fá ekki upplýsingar um réttarhald
yfir hjálparstarfsmönnum í Afganistan
Nokkrar líkur tald-
ar á dauðadómum
Kabúl. AP, AFP.
MIKIÐ hefur gengið á í bæjum og
borgum í Bólivíu undanfarna
daga enda hafa íbúarnir verið
önnum kafnir við að búa sig und-
ir manntalið. Það fór fram í gær
en í þessu fátæka Suður-
Ameríkuríki fer manntal fram
með nokkuð óvenjulegum hætti;
þjóðlífið er lagt niður og út-
göngubann sett.
Af þessum sökum hafa íbúarnir
slegist um brauð í bakaríum og
til átaka hefur komið á mynd-
bandaleigum því menn þurfa bæði
á næringu og afþreyingu að halda
þegar þeim er gert að halda sig
innan dyra í heilan sólarhring.
Og í gær rann síðan stóri dag-
urinn upp þegar 125.000 manns
tóku að ganga hús úr húsi í því
skyni að fá fram hversu margir
búa í Bólivíu. Manntal fór þar síð-
ast fram fyrir níu árum en talið
er að útgöngubannið og stöðvun
efnahagslífsins kosti þjóðarbúið
um þrjá milljarða króna.
Carlos Garafulic, yfirmaður
bólivísku hagstofunnar, upplýsti
að íbúunum væri ekki einvörð-
ungu bannað að fara af heimilum
sínum fyrr en teljendurnir hefðu
barið dyra; þeim væri einnig gert
að halda kyrru fyrir eftir að
manntal hefði farið fram í híbýl-
um þeirra til að tryggja að áreið-
anlegar tölur fengjust.
Síðast tók sex mánuði að vinna
úr gögnum manntalsins og reynd-
ust íbúarnir þá 6,42 milljónir.
Hald manna er að manntalið nú
leiði í ljós að íbúar Bólivíu séu 8,3
til 8,5 milljónir að tölu.
Hausar taldir í Bólivíu
La Paz. AP.
FRANSKA lögreglan byrjaði í gær á að brjóta niður 33
metra háa styttu af stofnanda sértrúarsafnaðar, sem
vill sameina allt mannkyn og bjarga heiminum með því
að söngla „om“. Talsmaður safnaðarins sagði í gær, að
það væri ekkert trúfrelsi í Frakklandi en yfirvöld
segja, að söfnuðurinn, Riddarar gullna lótusblómsins,
stundi heilaþvott og sé í raun hættulegur. Stofnandi
hans, Gilbert Bourdin, sem nú er látinn, er tignaður
sem guð en hann vildi berjast gegn „illum og ójarð-
neskum öflum“ með því að söngla „om“, fyrsta orðið,
sem hraut af vörum guðs að því er Bourdin sagði. Er
hann lést átti hann yfir höfði sér ákæru fyrir nauðgun.
Reuters
Styttubrot í Frakklandi