Morgunblaðið - 06.09.2001, Qupperneq 25
ERLENT
kr. 10.500.-
Skólavörðustíg 7, RVÍK, Sími 551-5814
Stærsta töskuverslun landsins
Hágæðatöskur
á góðu verði
kr. 7.300.-
kr. 6.800.-
kr. 10.500.-
kr. 7.500.-
kr. 11.500.-
kr. 12.500.-
líka sem bakpoki
líka sem bakpoki
stærð inní vél
VINNA við að saga burt fremsta
hluta rússneska kjarnorkukafbáts-
ins Kúrsks, sem sökk í Barentshafi í
ágúst í fyrra, stöðvaðist í gær vegna
bilana. Búist er við, að það dragist
fram í október, að bátnum verði náð
upp en aðgerðinni átti að vera lokið
21. september.
Vladímír Navrotskí, talsmaður
rússneska norðurflotans, sagði, að
einn af köplunum, sem notaðir væru
til að stjórna neðansjávarsöginni,
hefði slitnað í fyrradag og væri nú
verið að gera við hann. Átti viðgerð-
inni að ljúka um miðjan dag í gær.
Sagði hann, að hugsanlega tæki það
þrjá eða fjóra daga að saga burt
fremsta hluta bátsins en ekki tvo
eins og ætlað hefði verið. Er sögin að
sögn mikil listasmíð en hún á að
komast í gegnum tvöfaldan og sér-
staklega styrktan byrðinginn.
Þegar söguninni lýkur verður
Kúrsk, sem er 20.000 tonn, dreginn
upp í flotkví og vonast er til, að það
takist áður en vetur gengur í garð í
Barentshafi.
Vladímír Pútín, forseti Rússlands,
leggur mikla áherslu á björgunarað-
gerðina en mörgum fannst hann á
sínum tíma sýna ættingjum þeirra,
sem fórust með Kúrsk, mikið skiln-
ings- og skeytingarleysi. Reyndi
hann að bæta úr því með því að lofa,
að bátnum yrði náð upp fyrir lok
þessa árs.
Athygli vekur hve mikil leynd hef-
ur verið yfir björgunaraðgerðinni og
vegna þess telja sumir, að það sem
vaki fyrst og fremst fyrir Rússum sé
að koma í veg fyrir, að NATO komist
að leyndarmálum bátsins. Í honum
eru til dæmis Granít-eldflaugar og
ný og fullkomin stýrikerfi fyrir þær.
Rússnesk herskip hafa umkringt
hafsvæðið yfir Kúrsk og fréttir
herma, að sjávarbotninn hafi verið
girtur af með djúpsjávartundurdufl-
um.
Valerí Dorogín, sem sæti á í op-
inberri nefnd um Kúrsk-slysið, sagði
þó í gær, að köfurum hefði tekist að
ná mestu af leynilegum gögnum um
borð í fyrrahaust.
Tilraunir til að ná Kúrsk upp
Sögunin tefst
vegna bilana
Severomorsk. AFP.
Reuters
Kúrsk við bryggju í maí 2000.
UM 20.000 slökkviliðsmenn
börðust í gær við skógarelda í
átta ríkjum í vestanverðum
Bandaríkjunum. Svo virtist
sem þeir væru að ná tökum á
eldi, sem ógnaði bænum Weav-
erville í Kaliforníu en þaðan
voru íbúarnir, um 1.000 manns,
fluttir á þriðjudag. Baráttan við
eldinn, sem geisaði á 27 stöðum
í ríkjunum átta, kostaði tvo
menn lífið á mánudag en þá
rákust saman í loft tvær tank-
flugvélar, sem notaðar voru við
slökkvistarfið. Fórust báðir
flugmennirnir og tveir nýir eld-
ar kviknuðu þar sem vélarnar
komu niður.
Fretelin-sig-
ur á A-Tímor
FRETELIN, flokkurinn, sem
barðist mest gegn yfirráðum
Indónesa og fyrir sjálfstæði
Austur-Tímors, vann yfir-
burðasigur í þingkosningunum
fyrir viku og í gær virtist hann
öruggur með 58 sæti af 88 á
þingi. Var þá búið að telja 95%
atkvæða. Fékk flokkurinn yfir
80% atkvæða í Baucau, annarri
stærstu borg landsins, en búist
er við, að niðurstaðan í Dili,
höfuðborginni, verði ljós í dag.
Kjörsóknin í landinu var um
91% og konur skipuðu 21 af
þeim 75 sætum, sem ljóst var
orðið með.
Lævi blandið
loft á Fiji
HER og lögregla á Fiji-eyjum
voru með mikinn viðbúnað í
gær þegar tölur úr þingkosn-
ingunum í síðustu viku bentu
til, að flokkur
Mahendra
Chaudhry,
fyrrverandi
forsætisráð-
herra, myndi
bera sigur úr
býtum.
Frumbyggjar
á Fiji-eyjum
með George
Speight í
broddi fylkingar steyptu
Chaudhry, sem er af indversku
bergi brotinn, af stóli á síðasta
ári og óttast er, að þeir sætti sig
ekki við, að hann komist aftur
til valda. Af 800.000 íbúum á
Fiji eru frumbyggjarnir 51% en
fólk, sem þangað kom eða var
flutt frá Indlandi, 44%.
Speight, sem stjórnaði bylting-
unni í fyrra, var nú kjörinn á
þing en sest þar ekki í bráð þar
sem hann er í fangelsi og bíður
þess að verða dæmdur fyrir
landráð.
Áfram
réttað yfir
Jaruzelski
DÓMSTÓLL í Póllandi hafnaði
í gær þeim óskum Wojciech
Jaruzelskis, fyrrverandi leið-
toga kommúnista, að kæru
gegn honum vegna morða á 44
verkamönnum árið 1970 yrði
vísað frá. Réttarhöldin yfir
honum munu því halda áfram á
morgun. Er hann sakaður um
að hafa skipað hernum að
skjóta á verkamenn, sem mót-
mæltu verðhækkunum í land-
inu 17. desember 1970.
STUTT
Barist
við skóg-
arelda
Speight
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 25
GENGI
GJALDMIÐLA mbl.is