Morgunblaðið - 06.09.2001, Page 26
ERLENT
26 FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
DOMUS
KRINGLUNNI
AKUREYRI
NÝ SENDING AF KVENSKÓM
frá og
Jenny 67704
Jenny 61660 Jenny 63837
Ara 40287
Mikið úrval - Verð frá kr. 5.995 - 12.995
„HVAÐ er svona gott við Íhalds-
flokkinn?“ spurði Maurice Saatchi
lávarður í grein í síðasta Sunday
Telegraph og bendir á að flokkurinn
þurfi ekki á svörum að halda, heldur
spurningum. Sá sem verði kosinn
verði að geta svarað þessari spurn-
ingu á nægilega sannfærandi hátt –
og þá með áherslu á efnahagsstefn-
una, hinn sanna hornstein – til að
vinna aftur kjósendur, sem hröktust
frá flokknum 1997 og sneru ekki
aftur í kosningunum í júní. Þetta er
einfalda svarið við erfiðleikum
breska Íhaldsflokksins. Flókna
staðan er að flokkurinn er illilega
klofinn í grundvallarmálum eins og
afstöðunni til Evrópusambandsins,
ESB, og frambjóðendurnir virðast
varla úr sama flokki.
Kosningabaráttan í leiðtogakjör-
inu, sem lýkur 11. september hefur
verið sú harðasta og ósvífnasta sem
elstu flokksmenn muna. Það er tek-
ist á með kjafti og klóm, þótt fram-
bjóðendurnir sjálfir, hinn lang-
reyndi þingmaður og fyrrum
fjármálaráðherra Kenneth Clarke,
61 árs, og þingmaðurinn Iain Dunc-
an Smith, 47 ára, sem á pappírnum
hefur ekki lengra lífshlaup en ungur
maður, séu ensk kurteisi uppmáluð.
Það er enn of snemmt að spá í hver
áhrif það hafi á flokkinn að annar
þessara verði kosinn. Hitt er alveg
ljóst að ef flokkurinn leggur ekki
meiri vinnu en hingað til í að endur-
uppgötva sjálfan sig þá dugir ekk-
ert annað en meiriháttar klaufa-
skapur hjá stjórn Verkamanna-
flokksins til að Íhaldsflokkurinn
eigi minnstu möguleika á meirihluta
í næstu kosningum.
Nýgræðingurinn og sá reyndi
Það hefur skinið af framkomu tví-
menninganna hvað Clarke er
reyndur og hvað Duncan Smith, eða
IDS eins og stuðningsmenn hans
kalla hann, er óreyndur.
Clarke er eins og fiskur í vatni í
sviðsljósinu, gerir að gamni sínu, er
firna hnyttinn í tilsvörum og hefur
alltaf skýrar skoðanir á öllu.
Stuðningsmenn IDS fullyrða að
hann hafi gott skopskyn, sem skipt-
ir miklu máli hér í landi hnyttn-
innar, en honum láti ekki vel að
birta hana. Stutt reynsla hans af
stjórnmálum sé bætt upp af bak-
grunni hans í hernum og það sé
kostur að hann sé óflekkaður af
hneyklismálunum sem einkenndu
síðustu stjórnarár Íhaldsflokksins.
Tvímenningarnir höfða einnig til
ólíkra afla í flokknum, sem meðal
annars sést á því að stuðningsmenn
Duncan Smiths eru þau William
Hague fráfarandi flokksleiðtogi og
Margaret Thatcher, sem í hugum
stuðningsmanna er í gyðjutölu, þótt
hún komi úr öðrum og verri stað í
huga andstæðinganna. John Major,
fyrrum forsætisráðherra og leiðtogi
milli þeirra Thatcher og Hague,
styður Clarke. Að baki hins fyrr-
nefnda eru öflin, sem berjast gegn
Evrópu og vilja jafnvel að Englend-
ingar segi sig úr ESB. Líka sterk-
lega þjóðernissinnuð öfl, eins og
best kom í ljós er stuðningsmaður
hans í Wales varð að víkja vegna
tengsla við Breska þjóðernisflokk-
inn. Margir óttast að verði Duncan
Smith kosinn muni þessi öfl verða
óþægilega áberandi og stugga kjós-
endum frá í stað þess að laða þá að.
Að baki Clarke er víðsýnni,
vinstrisinnaðri og Evrópuvinsam-
legri flokkshlutinn. Sem stjórnar-
formaður British American Tobacco
hefur hann sætt gagnrýni fyrir
vafasöm umsvif BAT, en það virðist
ekki trufla íhaldsmenn.
Ýmsir óttast að sökum Evrópu-
sinnis Clarkes muni þeir Evrópu-
fælnu flýja flokkinn. Sumir ganga
svo langt að tala um hugsanlegan
klofning. Sögulega séð er það þó
varla girnileg leið, því síðast þegar
flokkurinn klofnaði, á fyrri hluta 19.
aldar, kostaði það hann 30 ár í
stjórnarandstöðu. Hvort þetta
sögulega fordæmi er enn gilt er
annað mál, en Frjálslyndi demó-
krataflokkurinn er meira en fús til
að taka sætið sem annar stærsti
flokkurinn.
Næsti formaður – og þarnæsti
Undanfarið hafa breskir fjöl-
miðlar leitt að því líkum að Duncan
Smith eigi meirihlutan vísan hjá
þeim um 300 þúsund flokksmönn-
um, sem hafa kosningarétt. Í skoð-
anakönnun í The Times nýlega
hafði hann tryggan meirihluta.
Við nánari athugun kom þó í ljós
að stuðningsmenn Duncan Smiths
höfðu látið þá sem gerðu könnunina
fá nöfn, svo úrtakið var tæplega
hlutlaust. Almennt virðist Duncan
Smith þó eiga meiri möguleika, en
góð skil kjörseðla, sem voru sendir
út fyrir nokkru, gætu kannski verið
Clarke í hag.
Þó Saatchi sé hugleikið að flokks-
menn velti upp spurningum fremur
en að leita svara þá hlýtur sú spurn-
ing þó að vera áleitnust hvor þeirra
Clarke og Duncan Smith sé líklegri
til að höfða til þeirra sex milljóna
kjósenda, sem hurfu frá Íhalds-
flokknum til Verkamannaflokksins í
kosningunum 1997 og hafa ekki sést
síðan. Kosningarýnendur álíta að
þau rúmlega 30 prósent, sem hafa
stutt flokkinn í undanförnum tvenn-
um kosningum, séu þeir, sem kjósi
flokkinn sama hvað tautar og raul-
ar, svo nýi leiðtoginn þarf lítið að
hafa fyrir að ná til þeirra. Sterkustu
rökin fyrir Clarke eru að hann virð-
ist mun líklegri til að hrífa með sér
lausafylgið en Duncan Smith, sem
líkist ekki aðeins hinum sköllótta
Hague í útliti, „þú líkist pabba
Hagues“, sagði einn gárunginn við
hann, heldur er stefna hans firna lík
þeirri sem Hague rekur.
Þótt meginathyglin beinist að
frammistöðu tvímenninganna og
þýðingu hennar fyrir framvindu
flokksins horfa þó sumir lengra. Í
úttekt í Guardian á mánudaginn
ályktaði Roy Hattersley fyrrum
varaformaður Verkamannaflokks-
ins að Michael Portillo, sem ekki
komst í leiðtogaúrslitin, hefði fallið
á eigin atkvæði, sem hann hefði með
vilja skenkt Clarke. Hver sem yrði
næsti formaður yrði nefnilega ann-
ar skammtímakosturinn. Næstu
kosningar töpuðust örugglega og þá
væri Portillo í góðri stöðu, aðeins 53
ára, til að koma aftur sem leiðtog-
inn, sem var langt til hægri, sveifl-
aðist til vinstri og gæti sýnt fram á
að það væri líka skynsamleg sveifla
fyrir flokkinn. En hvort trúa á
Verkamannaflokknum til að spá um
framvinduna í Íhaldsflokknum er
annað mál.
Kosningabaráttan í leiðtogakjöri breska Íhaldsflokksins hörð og ósvífin
Klofningur eða
endurnýjun í augsýn?
Reuters
Frambjóðendur í leiðtogakosningu breska Íhaldsflokksins ræða saman fyrir sjónvarpseinvígi 22. fyrra mán-
aðar. Kenneth Clarke er til vinstri og gegnt honum situr Iain Duncan Smith. Frambjóðendurnir hnakkrifust við
þetta tækifæri og raunar þykir baráttan fyrir leiðtogakjörið ein sú subbulegasta í manna minnum.
Ágreiningur um
afstöðuna til
Evrópu-samrunans
er svo djúpstæður
innan breska Íhalds-
flokksins að sumir
telja nánast
óhjákvæmilegt að
flokkurinn klofni,
skrifar Sigrún
Davíðsdóttir.
Svo fer þó vart.
sd@uti.is
DRAUMURINN um mannaða
geimferð til Mars er enn við lýði
og er þá gert ráð fyrir að um fjöl-
þjóðlegt átak verði að ræða. En
slík ferð tæki margfalt lengri
tíma en ferðir til tunglsins og eitt
af því sem menn óttast er misklíð
milli leiðangursmanna, að sögn
tímaritsins Nature.
Árin 1999 til 2000 voru gerðar
tilraunir með þrjá hópa í rann-
sóknarstöð í læknisfræði, IBMP, í
Moskvu. Hóparnir voru látnir
dvelja í líkani af Mír-geimstöðinni
til að kanna hvernig þeim gengi
að sætta sig við tilbreyting-
arleysið og nána sambúðina við
nokkra aðra einstaklinga í þröng-
um vistarverum og einangrun.
Fjögurra manna rússneskur hóp-
ur var í stöðinni í 240 daga en þá
bættust tveir hópar við í 110 daga
hvor. Í þeim voru m.a. Kan-
adamaður, Þjóðverji og Japani.
Reynslan var ekki að öllu leyti
góð, til deilna kom milli þátttak-
enda og jafnvel slagsmála milli
tveggja Rússa í fögnuði sem hald-
inn var á gamlárskvöld. Hann var
haldinn í eldhúsinu en þar voru
ekki eftirlitsmyndavélar. Annar
óeirðaseggurinn reyndi síðan að
faðma og kyssa kanadíska þátt-
takandann sem var eina konan í
hópunum þremur.
Stjórnendur tilraunarinnar
ákváðu nú að loka dyrum milli
vistarvera hópanna; Japaninn
gafst upp á vistinni en kanadíski
þátttakandinn, sem var lítt hrif-
inn af kossaflensinu og leit á það
sem kynferðislega áreitni, hefur
nú kært Geimferðastofnun Kan-
ada, IBMP og vísindalegan ráðu-
naut tilraunarinnar vegna máls-
ins.
Geimferðarannsóknir
Sakaði Rússa
um áreitni