Morgunblaðið - 06.09.2001, Síða 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 27
TÓNLEIKAR Bjarkar
í London urðu á dög-
unum breska dag-
blaðinu Financial
Times að umfjöll-
unarefni, en blaðið
segir að söngkonunni
sé enn eftir langan
feril lýst sem fram-
andlegri norrænni
veru.
Tónleikaferð Bjark-
ar er farin til kynn-
ingar á nýútgefinni
plötu hennar Vespert-
ine, og hefur söng-
konan kosið að líkja
þessari tónlist sinni
við nútíma kamm-
ermúsík. Að mati Fin-
ancial Times kann
það þó að virðast full
djarft að bera tónlist-
ina saman við klass-
íska tónlist – sér-
staklega þegar haft
sé í huga að Björk
noti hljóðnema, sem
klassískir söngvarar
hefðu ekki gert.
„Fágað andrúmsloftið
virkaði vel og nýju
lögin hennar búa yfir einlægni,
sem hörpuleikari tónleikanna
færir í fast form,“ segir þó í dómi
gagnrýnandans.
Erfitt að setja Björk
á fastan bás
Blaðið gerir auk þess plötu-
snúða-dúettinn Matmas, sem leik-
ur undir hjá söngkonunni, að um-
talsefni og segir sérkennilegt
andrúmsloft framandlegra hljóma
hans hafa átt vel við klæðnað
söngkonunnar – glitrandi útgáfu
af svanakjólnum sem hún klædd-
ist við óskarsverðlaunaafhend-
inguna á síðasta ári. „Lögin voru
hins vegar einlæg og oft yndisleg.
Hörpuútgáfa af lagi hennar „Ven-
us as a boy“ var meðal hápunkta
tónleikanna, sem og hörpuleikur
við þjóðlagið „Palmstroke.““ Það
var þó flutningur á óútgefnu lagi,
„It́s In Our Hands,“ sem gagnrýn-
anda Financial Times fannst
skara fram úr, en verkið er ýmist
flutt með handaklappi eða hljóð-
færaleik, sem vel sýni fram á
hversu erfitt sé að setja Björk á
fastan bás innan tónlistarinnar.
Financial Times um tónleika Bjarkar
Einlæg og ynd-
isleg tónlist
Flutningur Bjarkar var einlægur að
mati Financial Times.
HESTAR, knapar, leikarar og tón-
listarmenn munu fylla Skautahöllina
næstu daga á leiksýningunni Hesta-
galdrar, sem sett hefur verið upp í
tengslum við sýninguna Heimilið og
Islandica 2001 sem stendur yfir í
Laugardalshöll um þessar mundir.
Hestagaldur er nokkurs konar
skrautsýning þar sem fléttast saman
söngur, leikur, dans og fjölleikalist.
Íslenski hesturinn leikur þar stórt
hlutverk en auk hans kemur fram
flokkur lista- og hestamanna.
Meðal þeirra eru Sigurbjörn
Bárðarson hestamaður, leikararnir
Benedikt Erlingsson, Helgi Björns-
son og Jóhann Sigurðarson auk Láru
Stefánsdóttur dansara. Gunnar
Þórðarson sér um tónlistina, en hann
hefur samið sérstaka stemmningar-
tónlist fyrir sýninguna.
Að sögn Benedikts Erlingssonar
hefur hópurinn lagst á eitt undan-
farna daga við að búa til ævintýra-
lega sýningu, sem á sér engin for-
dæmi hér á landi.
„Að baki þessu framtaki liggja í
raun hugsjónir um að skapa nokkurs
konar íslenskt fjölleikahús. Fjöl-
leikahúsið hefur alla tíð verið í sterk-
um tengslum við alþýðumenningu,
það varð til á markaðstorgum Evr-
ópu á 17. öld, þar sem tilgangurinn
var að skapa ævintýralega stemmn-
ingu sem laðaði fólk að. Þaðan er sú
hugmynd komin að efna til sýning-
arinnar í tengslum við vörusýn-
inguna Heimilið og Islandica í Laug-
ardalshöllinni. Þá sækjum við okkur
innblástur til íslensks þjóðsagnaarfs,
þar sem hesturinn hefur jafnan verið
tengdur einhvers konar dulúðlegum
öflum. En um leið er byggt á kunn-
áttu í reiðmennsku sem verið hefur
tilefni mannamóta á Landsmóti
hestamanna um árabil,“ segir Bene-
dikt. „Á sýningunni verð ég í hlut-
verki nokkurs konar allsherjartrúðs
og leik m.a. nokkur góð áhættuat-
riði,“ bætir hann við.
Jafnframt því sem íslenskar þjóð-
sögur vakna til lífsins verður á sýn-
ingunni fjöldi áhættuatriða sem
reyna á samband hests og manns.
Meðal annars verður háður elting-
arleikur meðfram 30 metra löngum
eldvegg. Þá munu eldgleypar leika
listir sínar og leikarar svífa í lausu
lofti. Einn af hápunktum sýningar-
innar verður tangódans hests og
manns, en þar mun Sigurbjörn Bárð-
arson fá hest sinn til að stíga dans við
Láru Stefánsdóttur.
Sýningar verða í Skautahöllinni í
Laugardal í kvöld, föstudag og laug-
ardag kl. 20.30 og sunnudag kl. 17.
Alíslensk fjölleikasýn-
ing í Skautahöllinni
Morgunblaðið/Ásdís
Andrúmsloft þjóðsagna, fjölleika og lista mun ríkja á sýningunni.