Morgunblaðið - 06.09.2001, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 06.09.2001, Qupperneq 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 29 VALDIMAR Hilmars- son, ungur íslenskur barítonsöngvari sem nú stundar nám í Guildhall School of Music and Drama í London, söng í sumar með The British Youth Opera í óperettunni The Yeomen of the Guard eftir Gilbert og Sullivan. Í dagblaðinu The Times á dögunum birtist gagnrýni á sýn- ingu óperunnar, og er sérstaklega vikið að góðri frammistöðu Valdimars í hlutverki Wilfreds Shadbolts. „Ég fór í inntökupróf fyrir Brit- ish Youth Opera og mér var boðið þetta áhugaverða hlutverk, sem ég ákvað að taka. Æfingar hefjast þeg- ar skólarnir eru búnir á vorin og sýningarnar eru á sumrin. Síðasta sýningin var á sunnudaginn.“ British Youth Opera er sjálfstæð stofnun og óháð tónlistarskólunum í landinu. Hlutverk hennar er þó að vera vettvangur fyrir ungt söngfólk og söngnema á efstu stigum náms. Fjölmargir nemar alls staðar af Bretlandseyjum sækja um þátttöku í British Youth Opera, en aðeins fá- ir komast að í hvert sinn. Valdimar segir að yfirleitt séu tvær óperur settar upp á sumri, til að gefa sem flestum tækifæri, en að þessu sinni hafi verið ákveðið að setja bara upp eina óperu, en að hafa tvöfalda áhöfn söngvara. „Þetta er talsvert erfitt, því að þetta er óperettu- form og talsverður texti og samtöl og mikill leikur.“ Svo virðist sem það erfiði hafi ekki legið þungt á Valdimari, því gagnrýnandi The Tim- es nefnir sérstaklega að hann og mótleik- kona hans sænsk hafi verið ótrúlega örugg og eldklár í snörpum samtölum sín- um. „Við þurftum að leggja svolítið meira á okkur en aðrir þarna, því í verkinu er sungið og talað með Essex-hreim, sem talið er að hafi verið ráðandi á þeim tíma og stað sem verkið gerist. En þetta gerði manni mjög gott.“ Valdimar á eftir tvö ár í námi í óperudeild Guildhall skólans. Annar Íslendingur, Guðrún Jóhanna Ólafs- dóttir, stundar þar nám með hon- um, og fleiri Íslendingar hafa verið þar á liðnum árum, meðal annarra Ólafur Kjartan Sigurðarson nýráð- inn óperusöngvari við Íslensku óp- eruna. „Söng og lék með Essex-hreim“ Valdimar Hilmarsson Valdimar Hilmarsson í óperettu eftir Gilbert og Sullivan HUBERT Seelow, prófessor í norrænum fræðum við háskól- ann í Erlangen, heldur opinber- an fyrirlestur í boði heimspeki- deildar Háskóla Íslands í stofu 201 í Árnagarði í dag kl. 17:15. Fyrirlesturinn nefnist „Hab- ent sua fata libelli“. Heitir Völs- unga saga Völsunga saga? Á meðal þeirra handrita sem Brynjólfur biskup Sveinsson sendi Danakonungi að gjöf árið 1656 var skinnbókin Nks 1824 b 4to, sem geymir Völsunga sögu, Ragnars sögu loðbrókar og Krákumál. Handrit þetta þótti mjög merkilegt þegar á 17. öld, ekki síst rúnakvæði Brynhildar Buðladóttur í Völsunga sögu, og vitnaði Brynjólfur biskup einatt til þess texta. Ekki kallaði hann Völsunga sögu þó Völsunga sögu, enda stendur sá titill hvergi í handritinu. Fjallar fyrirlesturinn um feril þessa handrits, not fræðimanna af því á ýmsum tímum svo og nýlegar tilraunir til notkunar tölvutækni við að lesa fyrstu blaðsíðu handritsins, sem orðin er afar máð og torráðin. Fyrirlesturinn verður fluttur á íslensku og er öllum opinn. Fyrirlest- ur um fer- il handrits NÚ stendur yfir málverkasýning Friðriks Bridde í Tjarnarsal Ráð- húss Reykjavíkur. Þetta er hans fyrsta sýning og sýnir hann olíumál- verk og fjölda teikninga. Friðrik hefur teiknað og fengist við að myndskreyta bækur o.fl. Nú er það málverkið sem á hug hans og sýnir hann nú nítján málverk. Sýningin stendur til 17. septem- ber og er aðgangur ókeypis. Friðrik Bridde í Ráðhúsinu Félagið Íslensk grafík Sýningunni Andlegt fóður frá Færeyjum, í sal félagsins Íslensk grafík, Tryggvagötu 17, lýkur á sunnudag. Þar gefur að líta stein- þrykksverk frá Grafíska verkstæð- inu í Þórshöfn á Færeyjum. Sýning er opin frá fimmtudegi til sunnudags kl. 14–18. Gallerí@hlemmur.is Sýningu Guðrúnar Veru Hjartar- dóttur lýkur á sunnudag. Sýningin ber yfirskriftina Rætur og inniheld- ur þrjá fígúratífa skúlptúra. Sýningin er opin fimmtudag til sunnudag kl. 14–18. Sýningu lýkur ♦ ♦ ♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.