Morgunblaðið - 06.09.2001, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 06.09.2001, Blaðsíða 33
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 33 45. starfsár Social Foxtrot - það nýjasta Þú verður fær um að dansa við 90% af öllum lögum sem leikin eru á venjulegum dansleik eftir 10 tíma Línudans Auðveldir og skemmtilegir. Bók fylgir með lýsingu á dönsunum 6 tíma námskeið Gömlu dansarnir 10 tíma námskeið og þú lærir þá alla. Break Ásgeir, margfaldur Íslandsmeistari, og Gummi kenna.6 tíma námskeið. Upprifjunartímar Einn tími á sunnudögum. Einn dans tekinn fyrir í hvert skipti. 10 tíma námskeið. Salsa Dansinnsem fer sigurför um heiminn. 6 tíma námskeið Freestyle - Hip Hop Erla Haraldsdóttir kennir 10 tíma námsskeið.. Dans ársins Kennsla hefst 10. september Samkvæmisdansar - barnadansar Áratuga reynsla okkar og þekking tryggir þér bestu fáanlegu kennslu. 14 vikna námskeið fyrir fullorðna 14 vikna námskeið fyrir börn. Dansleikur í lokin. Keppnisdansar Svanhildur Sigurðardóttir og Ingibjörg Róbertsdóttir frábærir þjálfarar í keppnisdönsum. 14 vikna námskeið - Mæting 1x, 2x eða 3x í viku Brúðarvalsinn Kenndur í einkatíma. Innritun fer fram í síma 551 3129 milli kl. 15 og 22 daglega til 9.september. Geymið auglýsinguna DANS - HOLL ANDLEG OG LÍKAMLEG ÍÞRÓTT FYRIR ALLA - LL LE LÍ LE Í TT F I LL EINS og flestu fólki þykir mér vænt um æskustöðvar mínar. Ég er fædd og uppalin í Reykjavík. Hef búið og starfað ýmist í næsta nágrenni miðborgar- innar eða í henni og hafði lækingastofu í áratugi á Túngötu 3. Æskustöðvarnar eru því bundnar þessum borgarhluta, sem er mér einkar kær. Miðbær æskuáranna var fallegur, iðandi af mannlífi, allt frá starf- semi bundna hafnar- svæðinu og margri starfsemi annarri. Glæsilegar versl- anir af öllu tagi settu með vissum hætti stórborgarbrag á þetta litla bæjarfélag, sem var í senn aðlaðandi og skemmtilegt. En þetta er „veröld sem var“. Enda þótt enginn hafi búist við, að allt héldist í horfinu og ekkert breytt- ist með stækkandi borg og mikilli mannfjölgun, held ég þó, að engan hafi órað fyrir þeim gífurlegu breyt- ingum, sem urðu, og hröktu nær alla fyrri starfsemi úr miðborginni. Í staðinn komu svo, eins og kunn- ugt er bjórkrár, sem eru okkur á margan hátt framandi, að ekki sé tal- að um ósköpin – súlustaðina svo- nefndu, sem margir hafa skrifað um og telja að setji smánarblett á borg- ina. Sem gömlum Reykvíkingi hefur mér beinlínis runnið til rifja að sjá miðborgina gjörbreytast svona, því þetta er ekki eðlileg þróun heldur hörmuleg afturför. Það virtist þó eitthvað vera að rofa til á síðari árum og það er vissulega vert að geta þess, sem vel er gert því sitthvað hefur færst í betra horf og ber að meta það og þakka, eins og allt, sem vel er gert. Í því sambandi er ánægjulegt að minnast þess, að það var m.a. margt ungt fólk, sem barðist fyrir því að varðveita gamlar byggingar og önnur menningarverð- mæti, en of mörg gömul hús var þá búið að rífa. Það þarf naumast að nafngreina Torfusamtökin, allir þekkja þau. Maður var því farinn að gera sér vonir um, að miðborgin ætti sér við- reisnar von, hún væri að rísa úr öskustónni, ef svo má taka til orða og ná aftur einhverju af fyrri reisn. Það kom því eins og þruma úr heiðskíru lofti, nánast eins og reiðarslag, þegar farið var að ræða um að ráð- ast á Suðurgötuna, eina fallegustu og jafnframt elstu götu borgarinnar, með fögrum görðum og grasblettum, sem hafa sett skemmtilegan svip á þetta borgarhverfi. Tilkynnt var að nú stæði til að rífa upp norðurhluta Suðurgötu allt norður að Túngötu að henni meðtalinni og koma þar fyrir ógnarstóru bílastæði neðanjarðar. Þessi furðulega hugmynd er svo fjar- stæðukennd, að maður trúir því varla, að nokkrum heilvita manni skuli detta þessi ósökp í hug varðandi þennan stað. Ef þessi hugmynd teng- ist að einhverju leyti fyrirhugaðri hótelbyggingu á horni Túngötu og Aðalstrætis, sem vandséð er hvaða erindi á þangað, er enn hægt að hætta við slíka byggingu. Nær væri að byggja þarna, eins og raunar hefur verið bent á, einhverja byggingu, sem tengist þeim miklu sögu- og menn- ingarverðmætum, sem komið hafa í ljós við fornleifauppgröftinn í Aðal- stræti. Þarna eru hvorki meira né minna en menjar um fyrstu manna- byggð á landi hér. Það hefur líka ver- ið bent á, að það sé algert einsdæmi, að nokkur þjóð geti bent á slíkan stað. Þarna er svo að auki vagga Reykjavíkur. Okkur ber því beinlínis skylda til að hlúa að þessum stað og næsta nágrennis, sem er hluti þessa sögufræga svæðis og koma í veg fyrir að óbætanlegar skemmdir verði unn- ar á þessu svæði, sem neðanjarðar- bílageymsla óhjákvæmilega yrði. Í ágætum greinum, sem Einar Bragi rithöfundur hefur skrifað í Morgunblaðið miðborginni til varnar, hefur hann einnig bent á þær miklu hættur, sem yrðu samfara gífurlega vaxandi umferð, sem fylgdi í kjölfar slíks bílageymsluhúss, en umferðin um Suðurgötu er þegar allt of mikil. Sem íbúi við götuna þekkir hann þetta öðrum betur af eigin raun. Allr- ar athygli verðar eru hugmyndir hans um, að þessum borgarhluta verði skilað aftur því, sem frá honum var tekið og nefnir í því sambandi Dillonshús og hús, sem áður voru við Suðurgötu og sem enn er hægt að koma þar fyrir. Þeim fylgdu þá gróð- urreitir, sem voru í kringum þau. Það eru áreiðanlega fleiri en ég, sem geta tekið undir þetta heilshugar. Það væri svo ekki ónýtt að fá aftur fallega garðinn, sem var fyrir austan Tún- götu 6 og jafnvel gamla Bæjarfógeta- garðinn. Fram að þessu hafa það nær eingöngu verið borgarstarfsmenn, sem hafa verið talsmenn þessarar neðanjarðarbílageymslu. Það er ekki við þá að sakast, því þeir eru að sjálf- sögðu eingöngu málpípur borgar- fulltrúanna. Það eru borgarfulltrú- arnir, sem við höfum kosið og veitt umboð til að stjórna borginni með hagsmuni okkar að leiðarljósi. Það hlýtur því að verða krafa okkar borg- arbúa að fá að vita undanbragðalaust hvaða afstöðu borgarfulltrúar, hvar í flokki sem þeir standa, hafi til þessa bílageymslumáls, sem mörgum okk- ar finnst beinlínis aðför að miðborg- inni. Hverjir styðja þetta mál og hverjir eru á móti því? Þessum fulltrúum hlýtur einnig að vera ljóst, að okkur skattgreiðendum er ekki sama hvernig fjármunum okkar er varið. Öllum ber saman um, að þessi neðanjarðarbílageymsla myndi kosta offjár og er þá minnst á hundruð milljóna, en hver upphæðin yrði, þeg- ar upp er staðið veit enginn, því allt virðist hér fara langt fram úr áætlun, eins og dæmin sanna. Það er engu lík- ara en verið sé að storka okkur skatt- greiðendum með svona fjáraustri. Það ber dómgreind borgarfulltrú- anna ekki sérlega fagurt vitni ef þeir greina ekki á milli hvaða verkefni þurfa að hafa forgang, hver geta eitt- hvað beðið og loks verkefni eða hug- mynd að verkefnum, sem ber alger- lega að leggja á hilluna, eins og þetta bílageymsluhús neðanjarðar í hjarta borgarinnar. Það eru borgarstjórnarkosningar á næsta leiti, strax á næsta vori, eins og kunnugt er. Fyrir þann tíma þurf- um við að vita hvert hugur væntan- legra borgarfulltrúa í öllum flokkum stefnir í máli eins og þessu bíla- geymslumáli, því það kemur til með að ráða vali okkar á þeim fulltrúum, sem við treystum til að stjórna mál- um okkar. Þótt ýmsir hafi tjáð hug sinn varð- andi skipulag og verndun þessa sögu- fræga svæðis í miðborg Reykjavíkur, sem tengt er fyrstu mannabyggð hér- lendis, þá þyrftu fleiri að láta í sér heyra. Nátturverndarsinnar hafa mikið látið í sér heyra á undanförnum mánuðum og misserum og hefur mál- flutningur þeirra verið nokkuð um- deildur, eins og vænta mátti. Það vekur furðu margra að ekkert skuli heyrast frá þessu fólki varðandi þennan umrædda sögufræga stað. Er Reykjavík þeim óviðkomandi? Því er erfitt að trúa. Sem gömlum Reykvíkingi finnst mér það vera skylda mín að leggja orð í belg og reyna að forða miðborg- inni frá þeirri eyðileggingu sem bíla- geymsluhús á þessu sögufræga svæði óhjákvæmilega yrði, eyðileggingu, sem yrði ekki aftur tekin. En Reykja- vík er höfuðborg okkar allra og henni þurfum við öll að hlúa að eftir bestu getu. Enn um miðborgina Ragnheiður Guðmundsdóttir Reykjavík Sem gömlum Reykvík- ingi hefur mér beinlínis runnið til rifja, segir Ragnheiður Guð- mundsdóttir, að sjá miðborgina gjörbreyt- ast svona, því þetta er ekki eðlileg þróun held- ur hörmuleg afturför. Höfundur er læknir. Fullkomnaðu verkið með þakrennukerfi þakrennukerfi BLIKKÁS EHF. SKEMMUVEGUR 36 200 KÓPAVOGUR SÍMI 557 2000 - FAX 557 4111 Fagm enns ka í fyrir rúmi Söluaðilar um land allt Styrkir og verndar NAGLASTYRKIR Mörkinni 3, sími 588 0640 G læ si le g hú sg ög n Sérpantanir Opið virka daga frá kl. 12-18. www.leir.is Mikið úrval af brjóstahöldurum verð frá kr. 700 Mömmubrjósta- haldarar kr. 1900 Úrval af náttfatnaði fyrir börn og fullorðna Nýbýlavegi 12, sími 554 4433
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.