Morgunblaðið - 06.09.2001, Side 34
34 FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
ÁTAKS ER ÞÖRF VIÐ
SLYSAVARNIR BARNA
STYRKUR ÍSLENSKRAR
KNATTSPYRNU
Skin og skúrir skiptast á hjá ís-lenska karlalandsliðinu í knatt-spyrnu eins og knattspyrnuunn-
endur og aðrir íþróttaáhugamenn hafa
getað fylgst með undanfarna daga.
Í gærkveldi voru skúrirnar allsráð-
andi þegar landslið Norður-Íra lagði ís-
lenska landsliðið að velli í Belfast á
Norður-Írlandi með þremur mörkum
gegn engu. En aðeins fjórum sólar-
hringum áður hafði íslenska landsliðið
sigrað eitt sterkasta landslið heims,
landslið Tékka, á Laugardalsvelli með
þremur mörkum gegn einu.
Í knattspyrnuheiminum eins og ann-
ars staðar getur því verið stutt á milli
gleði og sorgar.
Það hefur vart farið fram hjá nokkr-
um manni að íslenska karlalandsliðið í
knattspyrnu hefur staðið í stórræðum
að undanförnu og tugir þúsunda Ís-
lendinga hafa af áhuga og innlifun
fylgst með gengi liðsins.
Þegar vel gengur hjá íslenskum
keppnismönnum, hvort sem er í ein-
staklingsíþróttum eins og skíðaíþrótt-
inni, sundíþróttinni og frjálsum íþrótt-
um eða í hópíþróttum eins og
knattspyrnu og handknattleik, er það
jafnan svo að væntingar íslensku þjóð-
arinnar verða fljótt óhóflega miklar og
gerðar eru mjög miklar kröfur til
keppnisfólksins um árangur. En eins
og Friðrik Ólafsson stórmeistari sagði
fyrir mörgum áratugum þegar hann
var í hópi bestu skákmanna heims og
kom heim eftir mót sem hann hafði
ekki unnið: Það er ekki alltaf hægt að
vinna. Landsmenn verða að átta sig á
þessum veruleika.
Frá því á laugardaginn var hafa um-
ræður manna á meðal mikið snúist um
það að íslenska liðið ætti kannski raun-
hæfan möguleika á því að ná öðru sæt-
inu í sínum riðli og þar af leiðandi gæti
liðið jafnvel tryggt sér sæti í úrslita-
keppni HM í knattspyrnu á næsta ári
sem fram fer í Japan og Kóreu.
Úrslitin í gærkveldi gerðu þessar
vonir og væntingar hins vegar að engu
á örskotsstundu, eða fyrstu 15 mínút-
um síðari hálfleiksins í Belfast, og nið-
urstaðan varð sú að Ísland á enga
möguleika á öðru sæti en því fjórða í
sínum riðli.
Þannig hafa margir orðið fyrir mikl-
um vonbrigðum eftir leikinn í Belfast
og þá eins og svo oft gerist það að fólk
snýr baki við keppnismönnunum sem
þurfa í raun meir á stuðningi og tiltrú
að halda, þegar móti blæs, en þegar allt
gengur þeim í haginn.
Á stundum vonbrigðanna má heldur
ekki gleyma því sem vel hefur verið
gert. Íslenska landsliðið í knattspyrnu
hefur verið að sækja í sig veðrið og
bæta árangur sinn, leik og samvinnu á
undanförnum misserum. Það hefur
sýnt miklar framfarir.
Þjóðin fylltist gleði og stolti síðast-
liðinn laugardag þegar íslenska lands-
liðið vann einn sinn glæstasta sigur.
Leikurinn gegn Tékkum var glæsilegur
vitnisburður um hvers íslenska lands-
liðið er megnugt á góðum degi, þegar
flest gengur upp.
Full ástæða er til þess að óska lands-
liðinu til hamingju með þennan frá-
bæra árangur og þá ekki síður lands-
liðsþjálfaranum, Atla Eðvaldssyni, sem
í leiknum gegn Tékkum virtist hafa
tekist að laða fram það besta í hverjum
leikmanni og skapa frábæra liðsheild,
þar sem hver einstaklingur fékk að
njóta sín, en samvinna og samstillt átak
voru samt sem áður ávallt í fyrirrúmi.
Sigur íslenska landsliðsins var mjög
sannfærandi og það sem var enn
ánægjulegra var að hér var augljóslega
um sigur liðsheildarinnar að ræða.
Samhent liðið náði oft á tíðum frá-
bærum leikköflum þar sem leikgleði,
gott samspil og eftirfylgni réð ríkjum
og skilaði í höfn þessum frábæra sigri
sem lengi verður í minnum hafður.
Örugglega mun lengur en tapleikurinn
gegn Norður-Írum í gærkveldi.
Það er óumdeilt að frammistaða ís-
lenska landsliðsins í knattspyrnu hefur
verið mjög góð undanfarin misseri og
frábær sl. laugardag. Styrkur íslenskr-
ar knattspyrnu er orðinn eftirtektar-
verður þegar hann er metinn í alþjóð-
legu samhengi. Liðið og liðsstjórnin
mega vera stolt af eigin árangri og
þjóðin öll.
Þær upplýsingar, sem komu fram ímáli Brynjólfs Mogensen, sviðs-
stjóra slysa- og bráðasviðs Landspítala
– háskólasjúkrahúss, á ráðstefnu Ár-
vekni, átaksverkefnis um slysavarnir
barna og unglinga, og greint var frá hér
í Morgunblaðinu í fyrradag hljóta að
vekja menn til umhugsunar.
Það getur ekki talist viðunandi að
slysatíðni barna og unglinga sé umtals-
vert hærri hér á landi en gengur og ger-
ist á hinum Norðurlöndunum.
Hvers vegna í ósköpunum ættum við
ekki að geta gert jafn vel í slysavörnum
barna okkar og unglinga og grannar
okkar?
Brynjólfur kann að hafa eitthvað til
síns máls þegar hann segir skýringuna
að einhverju leyti vera fólgna í þjóð-
areðlinu. Foreldrar líti ekki nógu mikið
eftir börnunum og slysavarnir barna og
unglinga séu ekki nægilega ríkur þáttur
í menntakerfinu. Þótt þetta kunni að
vera skýringin að einhverju leyti er það
engin afsökun fyrir því að hér slasist
mun fleiri börn og unglingar ár hvert en
annars staðar á Norðurlöndum.
Samkvæmt upplýsingum Brynjólfs
Mogensen hefur dregið úr slysatíðni
barna á Íslandi frá því sem var fyrir tíu
árum en betur má ef duga skal.
Það er því verðugt og sjálfsagt mark-
mið að stefna að því að draga úr slysum
barna og unglinga um 25% á næstu 10
árum eins og Sigurður Guðmundsson
landlæknir sagði á ráðstefnunni að gæti
verið raunhæft markmið. Það er mark-
mið sem foreldrar og aðrir uppalendur,
menntakerfi, íþróttahreyfing, lögregla
og Umferðarráð og aðrir sem koma að
uppeldi og fræðslu barna og unglinga
um slysavarnir ættu að sameinast um að
ná. Þannig gæti þjóðin að tíu árum liðn-
um sagt við æsku þessa lands að hún
hefði fengið að gjöf þann sjálfsagða rétt
að alast upp í leik og starfi í jafn öruggu
umhverfi og jafnaldrar hennar á Norð-
urlöndum.
MÁLÞING um tölvur og tungumál
var sótt af tæplega eitt hundrað
manns. Það var liður í viku símennt-
unar, sem menntamálaráðuneytið
stendur fyrir og Mennt sér um
framkvæmd á.
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra sagði í erindi sínu að veg-
ur tölvutækninnar hefði vaxið mun
hraðar innan skólakerfisins en
vænst hefði verið, en í nýrri nám-
skrá hefði verið lögð aukin áhersla á
upplýsingatækni og tungumál. Sem
dæmi um þetta nefndi hann að í vet-
ur yrði gerð tilraun með notkun
smáskilaboða farsíma við kennslu.
100 í fjarnámi á Vestfjörðum
nú, níu fyrir þremur árum
Ráðherra minntist þess þegar
hann heimsótti níu konur á Ísafirði
sem hófu fjarnám í hjúkrunarfræði
við Háskólann á Akureyri árið 1998.
„Sögðu þær, að án þessa námsfram-
boðs hefðu þær líklega allar flutt frá
staðnum þá um haustið til að
mennta sig meira,“ sagði ráðherra.
Hann sagði að nú þremur árum
seinna væru um 100 nemendur á
Vestfjörðum innritaðir í fjarnám í
háskólum landsins.
Björn sagði að af hálfu mennta-
málaráðuneytisins væri unnið að
því að skapa sem best rafrænt
þekkingar- og vinnuumhverfi. Unn-
ið væri að því að stofna hlutafélag
um nýtt upplýsingakerfi fyrir bóka-
söfn í samstarfi við sveitarfélög.
Samið hefði verið um aðgang að raf-
rænum gagnasöfnum, sem eru opin
öllum landsmönnum. Þá væri unnið
að því að treysta stöðu íslenskrar
tungu í hinum stafræna heimi og að
samningum við Microsoft um frek-
ari þýðingu á hugbúnaði. Loks væri
verið að kanna hvaða leiðir væru
bestar til að tryggja sem hagkvæm-
asta fjarskiptaþjónustu fyrir
menntastofnanir.
Allir íslenskir háskólar
bjóða upp á fjarkennslu
Þorsteinn Gunnarsson, rektor
Háskólans á Akureyri, sagði að allir
háskólar landsins byðu nú í ein-
hverjum mæli upp á fjarnám. Nú
stunda 230 nemendur víðsvegar um
landið fjarnám við Háskólann á Ak-
ureyri.
Þorsteinn sagði að haustið 2004
myndu 20 skólar í Finnlandi hefja
samstarf um sýndarskóla, þar sem
nemendur gætu raðað námi sínu
saman óháð því í hvaða skóla ein-
ingarnar væru teknar. Hann sagði
að í framtíðinni gætu háskólanemar
líklega valið um hvort þeir vildu ein-
göngu stunda staðbundið nám, ein-
göngu fjarnám eða blöndu af hvoru
tveggja.
„Íslenskir háskólar munu í fram-
tíðinni stórauka kennslu á ensku og
öðrum erlendum tungumálum,“
sagði Þorsteinn. Hann benti á að nú
væru rúmlega 100 námskeið kennd
við HÍ á ensku og að á Akureyri
væri heil fræðigrein, tölvunarfræði
til BS-prófs, kennd á ensku. Ís-
lenskir háskólar myndu því í fram-
tíðinni sækja enn frekar fram á al-
þjóðlegum markaði.
Páll Kr. Pálsson, forstjóri 3p
Fjárhúss, sagði að alþjóðavæðing
íslenskra fyrirtækja hefði stórauk-
ist á síðustu 15–20 árum, fyrir 20 ár-
um hefðu starfsstöðvar íslenskra
fyrirtækja erlendis verið á bilinu
20–30. Í dag væru þær nærri 400
talsins á u.þ.b. tuttugu sviðum í
tæplega áttatíu löndum.
Páll sagði mikilvægt að til að efla
enn frekar þessa útrás yrði að auka
veg menntunar, einkum á sviði
tungumála og tölvukunnáttu.
„Þrátt fyrir alþjóðavæðingu heims-
ins skiptir enn miklu máli að geta
tjáð sig á tungumáli þess sem mað-
ur á í viðskiptum við,“ sagði hann.
„Það sama á við um tölvuþekk-
inguna, við þurfum að fylgjast vel
með öllu því nýjasta sem þ
gerast og leggja metnað o
færa tölvulæsi hraðar og
afli inn í grunn- og leikskól
Hann sagðist telja að N
eftir að gerbreyta menntu
tíðinni. Hann benti á að m
inn fyrir nettengda menntu
lega um 80% í Bandaríkjun
þróunin hefði einnig veri
Evrópu. „Kostnaður við m
is yfir Netið er talinn um 5
en miðlun námsefnis við he
kennslufyrirkomulag,“ sa
Aðspurður hvort íslenski
urinn væri nógu stór hvað
á Netinu varðaði sagðist
að helstu tækifærin í fra
myndu felast í að bjóða ú
um að sækja íslensk n
„Þannig gæti maður séð fy
við ættum möguleika á a
upp hér sjávarútvegshásk
fyrst og fremst teygði sig y
og endurmenntun fólks á þ
Fötlun tengd aðgan
upplýsingum í framt
Eyþór Eðvarðsson h
sagði að samfélagið vær
Málþing um Ísland og umheiminn, tungumá
Tæplega eitt hundrað manns sátu málþingið í gær, þar sem leitast var við að svara því hvert
Mikilvægt að b
upp fyrir fram
Í heimi samskipta og upplýsingar er
tölvu- og tungumálakunnátta talin sí
mikilvægara tæki til að Ísland geti te
virkan þátt í samfélagi þjóðanna, e
framtíðinni er talið að fötlun verði sk
greind út frá aðgangi að upplýsingu
Þetta kom fram á málþingi á viku sím
unar sem Nína Björk Jónsdóttir só
Björn Bjarnason menntamálaráðherra sagði erfitt að spá um h
notkun upplýsingatækni muni þróast í skólastarfi, nú standi t.
gera tilraun með notkun SMS-skilaboða við kennslu.