Morgunblaðið - 06.09.2001, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 35
MEÐAL þeirra 140 ræð-ismanna sem sátufimmtu ráðstefnu ut-anríkisráðuneytisins
fyrir kjörræðismenn Íslands í vik-
unni voru þeir Eduardo Rihan A.
frá Mexíkó, J. Brent Haymond frá
Bandaríkjunum og Bertil Falck
frá Svíþjóð.
Kjörræðismenn Íslands, en það
eru ólaunaðir ræðismenn Íslands,
hafa það almenna hlutverk að
vera útverðir íslensku þjóðarinnar
í útlöndum. Þá hafa þeir náið sam-
starf við sendiráð í sínum ríkjum
og hafa, að sögn Hannesar Heim-
issonar, skrifstofustjóra í utanrík-
isráðuneytinu, nýst þjóðinni vel,
m.a. á sviði viðskipta og menning-
armála.
Ráðstefnunni lauk á þriðjudag-
inn með ávarpi Halldórs Ásgríms-
sonar utanríkisráðherra á Grand
Hótel Reykjavík.
Þjóðræknimálin
í öndvegi
J. Brent Haymond er kjörræð-
ismaður Íslands í Utah í Banda-
ríkjunum og hefur verið það frá
árinu 1997. Inntur eftir því hvers
vegna hann hafi orðið kjörræð-
ismaður segir hann að hann hafi á
sínum tíma setið á fulltrúaþingi
Utah og að þáverandi ræðismaður
Íslands hafi komið að máli við
hann og spurt hvort hann hefði
áhuga á að taka við af sér. Hann
hafði mikinn áhuga á því, enda
kveðst hann eiga rætur að rekja
til Íslands þar sem amma hans,
foreldrar hennar og systkini komu
sem innflytjendur til Utah árið
1885.
Haymond hefur á þessum árum,
að sögn kunnugra, reynst mörgum
Íslendingum vel á sviði þjóðrækni-
mála.
„Þetta er í annað skiptið sem ég
kem til landsins en ég kom í
fyrsta skipti síðasta sumar og
dvaldi þá í tvær vikur,“ segir hann
og bætir við að ástæða þess hafi
verið koma félaga í Íslendinga-
félaginu í Utah til landsins til að
vera viðstaddir opnun sýningar
um ferðir Íslendinga til Utah.
Sýningin var opnuð í Frændgarði
sem er hluti af Vesturfarasetrinu
á Hofsósi. „Sýningin var til heið-
urs innflytjendum og þá settum
við einnig upp minnisvarða í Vest-
mannaeyjum,“ segir Haymond og
bætir við að hann hafi heillast af
náttúru landsins.
Ráðstefnan á Grand Hótel er
fyrsta ráðstefnan sem Haymond
sækir fyrir kjörræðismenn og seg-
ir hann hana mikilvæga til að
skoða heildarmyndina þegar komi
að landi og þjóð, hvað menn séu
að fást við hverju sinni og hvert
þeir stefna. Aðspurður hvert hans
hlutverk er sem kjörræðismaður í
Utah segir hann að starf sitt sé
aðallega fólgið í því að kynna Ís-
land í Bandaríkjunum og vera
þeim Íslendingum sem koma til
Utah innan handar. Meðal þess
sem er síðan framundan eru vetr-
arólympíuleikarnir í Utah á næsta
ári þar sem hann kveðst munu
starfa sem fulltrúi íslensku þjóð-
arinnar ásamt keppendum.
Haymond starfar, auk þess að
vera kjörræðismaður, að margvís-
legum verkefnum í Kína sem lúta
að ferðaiðnaði og fiski. Þá rekur
hann eigið fyrirtæki og hefur m.a.
byggt tvö raforkuver frá stofnun
þess.
„Áhuginn liggur mikið á sviði
orkumála og ég er um þessar
mundir að vinna, ásamt samstarfs-
manni mínum, í Kína að mann-
virkjagerð ýmiss konar. Mér
finnst Ísland hafa margt jákvætt
til að kynna heiminum eins og í
tengslum við umhverfið og orku-
mál,“ segir hann og hyggst
ótrauður stefna að slíkri kynningu
fyrir Íslands hönd.
Hafa þýtt og gefið út yfir 50
íslenskar bækur
Svíinn Bertil Falck er eigandi
fyrirtækisins Bok & Bibliotek í
Gautaborg en hann hefur átt mik-
inn þátt í því að koma íslenskum
bókmenntum á framfæri þar í
landi. Falck hefur verið kjörræð-
ismaður Íslands frá árinu 1993 og
segir hann það vera mikinn heið-
ur.
„Frá því að ég stofnaði fyr-
irtæki mitt árið 1985 höfum við
haldið árlegar bókamessur í
Gautaborg. Bókamessan í ár hefst
13. september og stendur fram til
16. september. Þetta er stærsta
bókahátíð í Norður-Evrópu,“ segir
Falck. Alls hafa að hans sögn um
5.000 skandinavískir rithöfundar
og aðrir fulltrúar menningarlífsins
tekið þátt í bókamessunni frá upp-
hafi.
„Mikill fjöldi blaða- og frétta-
manna sækir bókamessuna ár
hvert og ljóst er að þetta er kjörið
tækifæri til að koma Íslandi á
framfæri.“ Aðaltengilið Falck við
íslenskar bókmenntir segir hann
vera Önnu Einarsdóttur hjá Máli
og menningu og ber henni vel sög-
una. „Frá því að fyrirtækið var
stofnað höfum við þýtt og gefið út
meira en 50 íslenskar bækur.“
Falck segir að áður en bóka-
messan hóf göngu sína hafi Svíar
einna helst vitað af rithöfundinum
og nóbelskáldinu Halldóri Lax-
ness en eftir að bókamessurnar
hófust hafi það gjörbreyst. Hann
segir flesta rithöfunda íslensku
þjóðarinnar hafa tengst bóka-
messunni á einhvern hátt.
Inntur eftir því hvort Svíar hafi
mikinn áhuga á Íslandi og íslensk-
um bókmenntum kveðst hann vita
að landar sínir hafa mjög mikinn
áhuga á Íslandi og sífellt meiri
áhugi sé að vakna á íslenskum
bókmenntum. Markaðssetningin
muni því halda áfram.
„Sem ræðismaður hef ég sér-
staka skrifstofu í fyrirtækinu
mínu þar sem ég hjálpa fólki sem
kann að þurfa aðstoð mína, t.d. í
sambandi við vegabréf,“ segir
hann og bætir við að starfið geti
stundum verið nokkuð tímafrekt
þar sem í kringum 1.600 Íslend-
ingar búi í Gautaborg.
Hann segir Íslendinga duglega
að vekja athygli á landi sínu nú á
dögum og segir ráðstefnuna bera
glöggt vitni um það.
Unnið að margvíslegum
verkefnum í sjávarútvegi
Kjörræðismaður Íslands í
Mexíkóborg er Eduardo Rihan A.
en hann hefur verið ræðismaður í
sjö ár og ber því vel söguna.
Hann segir ástæðuna afar ein-
falda fyrir því að hann tók ræð-
ismannsstarfið að sér. Hann
kveðst hafa í mörg ár verið í for-
svari fyrir Evróputengsl mexí-
kanskra fyrirtækja og vegna þess
ferðaðist hann víða um Evrópu.
Þá sé sendiherra Mexíkó í Noregi
góður vinur hans og hann hafi á
sínum tíma látið hann vita af því
að Íslendingar hygðust ekki
hafa sendiráð í Mexíkó en
þyrftu engu að síður einhvern
góðan talsmann til að kynna sig.
Umræddur sendiherra hvatti
Rihan A. til að taka við kjörræð-
ismannsstarfinu sem hann og
gerði.
Sama ár, eða árið 1994, kom
hann hingað til lands til að
skoða landið og kynna sér ís-
lensk málefni. „Ég var mjög
heppinn því að gestgjafi minn
var Rolf Johansen og hann
sýndi mér landið og ég var
mjög hrifinn.“
Rihan A. hefur unnið að
margvíslegum samstarfsverkefn-
um með íslenskum og mexíkönsk-
um fyrirtækjum í sjávarútvegi.
Um þessar mundir kveðst hann
vera að vinna að útflutningi á
rækjum veiddum í Mexíkóflóa.
„Mér tókst nýverið að hjálpa ís-
lenska fyrirtækinu SÍF með kynn-
ingu og markaðssetningu í Mexíkó
á íslenskum saltfiski sem er í mik-
illi samkeppni við þann norska,“
segir hann.
Hann segir starf sitt fyrst og
fremst vera að gæta hagsmuna ís-
lenskra fyrirtækja í Mexíkó og
vera til staðar fyrir þá Íslendinga
sem eru í vandræðum en þeir eru
að hans sögn mjög fáir þar sem
einungis ellefu Íslendingar séu
búsettir í Mexíkóborg.
Líkt og allir kjörræðismenn fær
Rihan A. ekkert borgað fyrir starf
sitt en hann segir það ekki skipta
máli, hann hafi bæði tíma til að
sinna starfinu og mikinn áhuga.
Þess má síðan geta að ásamt því
að vera ræðismaður rekur hann
sitt eigið fyrirtæki í Mexíkóborg.
Aðspurður hvort Mexíkanar séu
hrifnir af því að ferðast til Íslands
segir hann að enn sé það viðhorf
ríkjandi að heimamönnum finnist
það vera of langt í burtu. Hann
segir fáa heimamenn hafa heim-
sótt Reykjavík en að hann sé að
vinna í að breyta því viðhorfi með
því að fá ráðleggingar frá ferða-
málafulltrúm hér á landi.
„Þið hafið svo mikið upp á að
bjóða, sérstaklega þegar kemur að
náttúrunni. Þetta er í fyrsta skipti
sem ég kem með konuna mína
hingað til lands og hún hefur fallið
fyrir landi og þjóð,“ segir hann og
bætir við að hún eigi eftir að vera
honum mikil hjálp þegar þau snúa
aftur til heimalands síns við kynn-
ingu á ferðaþjónustu á Íslandi.
Morgunblaðið/Sverrir
Frá ráðstefnu utanríkisráðuneytisins fyrir kjörræðismenn Íslands. Fremst á myndinni eru f.v.: Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra, Hannes Heimisson, skrifstofustjóri utanríkisráðuneytisins, og Hjördís Gunn-
arsdóttir, starfsmaður utanríkisráðuneytisins.
Hafa eflt tengslin í at-
vinnulífi og menningu
J. Brent Haymond Bertil Falck Eduardo Rihan A.
Kjörræðismenn Ís-
lands, en það eru ólaun-
aðir ræðismenn Ís-
lands, hafa það
almenna hlutverk að
vera útverðir íslensku
þjóðarinnar í útlöndum.
Hrönn Indriðadóttir
tók þrjá kjörræð-
ismenn tali.
hronni@mbl.is
þar er að
okkar í að
af meira
lana.“
Netið ætti
un í fram-
markaður-
un yxi ár-
num og að
ið hröð í
iðlun efn-
50% lægri
efðbundið
agði Páll.
markað-
menntun
Páll telja
amtíðinni
útlending-
námskeið.
yrir sér að
að byggja
kóla sem
yfir Netið
því sviði.“
ngi að
tíðinni
hjá IMG
ri nú að
breytast yfir í þekkingarsamfélag
þar sem aðgangur að samskipta-
tækni skipti miklu máli. Hann sagði
geymslutíma þekkingar vera 36
mánuði og því skipti endurmenntun
sífellt meira máli.
Skuggahliðin væri sú að þeir sem
ekki ættu tölvur og farsíma ein-
angruðust. Björk Vilhelmsdóttir,
formaður BHM, sagðist vera ný-
komin af stórri ráðstefnu um mál-
efni fatlaðra þar sem komist var að
þeirri niðurstöðu að í framtíðinni
yrði fötlun ekki lengur skilgreind
sem heilbrigðisástand einstaklings-
ins, heldur hvort hann hefði aðgang
að upplýsingum og gæti tekið þátt í
þeim hraða sem krafist er af fólki í
nútímasamfélagi.
Una Eyþórsdóttir, starfsmanna-
stjóri hjá Flugleiðum, sagði að
mannauður skipti mestu máli þegar
fyrirtæki þyrftu að halda velli í
heimi breytinga og samkeppni. Hún
sagði þá fjármuni sem fyrirtæki
notuðu til þjálfunar starfsmanna
sem hlutfall af launum ágætt mæli-
tæki á hversu mikið væri fjárfest í
mannauði. Í könnun sem gerð var
árið 1998 var þetta hlutfall 3,2% í
Evrópu og 2% í Bandaríkjunum. Í
könnun sem Gallup gerði hér í des-
ember síðastliðnum og sextíu ís-
lensk fyrirtæki tóku þátt í kom
fram að 37,8% fyrirtækjanna lögðu
1–1,99% af launakostnaði í þjálfun
starfsmanna og 35,1% þeirra minna
en 1%. Þó lögðu 27% fyrirtækjanna
2–4,99% í málaflokkinn og 10,8%
þeirra 5% eða meira.
Una sagði einnig mikilvægt að
framlög til menntamála yrðu aukin
hér á landi og þá sérstaklega til há-
skólamenntunar. „Ef við byggjum
upp fólkið okkar byggjum við upp
framtíðina,“ sagði Una.
Guðrún Magnúsdóttir, forstjóri
ESTeam AB, sem er þýðingafyrir-
tæki í Grikklandi, sagði eins og Una
að nauðsynlegt væri að auka fram-
lög til menntamála og þá sérstak-
lega til tungumálakennslu. Hún
sagði að mikilvægt væri að upplýs-
ingar um Ísland og íslensk málefni
sem nýttust útlendingum á Netinu
væru fáanlegar á ensku. Hægt væri
að nota þýðingahugbúnað til að
draga úr kostnaði við þýðingar.
Arthúr Björgvin Bollason, sögu-
setrinu á Hvolsvelli, sagði það sína
reynslu að undirstaða árangurs í
tungumálanámi væri að nemandinn
hefði gott vald á sínu eigin móður-
máli og taldi hann að þar þyrfti að
gera átak. Einnig sagðist hann hafa
efasemdir um að næg rækt væri
lögð við kennslu erlendra tungu-
mála.
ál og tölvukunnáttu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
stefnir í tungumála- og tölvukennslu.
byggja
mtíðina
góð
ífellt
ekið
n í
kil-
um.
ennt-
tti.
hvernig
d. til að
ninabjork@mbl.is