Morgunblaðið - 06.09.2001, Side 50

Morgunblaðið - 06.09.2001, Side 50
MINNINGAR 50 FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Eva María Elsku hjartans ástin mín, barnið mitt, ljósið mitt og mín besta vin- kona. Þú sem lýstir upp hvern minn dag með nálægð þinni, kærleika þín- um og snertingu. Þú varst mín bjart- asta von og miklu miklu meira. Þú ert sálufélagi minn og ferðafélagi í gegnum eilífðina. En þú hefur verið kölluð í burtu frá okkur sem elsk- uðum þig svo ofurheitt. Ástin mín, ég er þér þakklát að hafa valið mig sem mömmu, stundum vissum við reynd- ar varla hvor var mamman. Ég er þér þakklát fyrir að opna augu mín fyrir svo ótalmörgu í kringum okkar daglega líf saman. Ég var iðulega að springa af stolti af þér. Þú hafðir ein- staklega næma skynjun fyrir öllu þínu umhverfi hvar sem þú varst og þú slóst alltaf í réttum takti. Þú varst svo margt fyrir svo ótal- marga, á þínum tæplega 25 árum snertir þú hjarta og sál fjölda vina og ástvina. Þú sem áttir eftir að upplifa svo ótalmargt með okkur öllum. Söknuður minn og sorg rista svo djúpt í hjarta mitt og sál að engin orð fá lýst. Drottinn Guð gefur líf og tekur líf, honum er ég þakklát fyrir að gefa mér þig, mín undurfagra sál. Minn- inguna um þína björtu, hreinu og tæru sál á ég að eilífu í hjarta mínu, minninguna um brosið þitt breiða og knúsið þitt heita. Ég veit að þú leiðir pabba. Þar til við hittumst á ný. Ég bið Drottin Guð okkar að lyfta þér upp í ljósið bjartasta og til eilífr- ar blessunar og gleði. Mamma. Sigurður Minn einlægasti, nánasti og kær- asti vinur, vinur minn í raun og ást mín. Þung eru skrefin sem Guð leggur á mig og Jón Stefán, ekkert megnar að fylla tómarúmið í hjarta okkar. Vegir Drottins Guðs eru órannsak- anlegir og ég skil ekki hvers vegna hann tók ykkur Evu Maríu frá okk- ur. En, ástin mín, nú leiðist þið tvö um elífðina og vakið yfir okkur tveim leiðast í jarðlífinu. Við munum um síðir hittast öll að nýju. Ég þakka þér þína tæru hreinu óskilyrtu ást til mín í þau 28 ár sem við áttum saman. Ég þakka þér þá óbifanlegu trú sem þú hafðir á mér og það hvað þú hvattir mig stöðugt til dáða sama hvert verkið var. Þú varst sá sem alltaf hlustaðir og gafst einlæg ráð, þú varst líka sá sem fékkst mig til að hlæja mest og inni- lega. Saman gengum við þú og ég í gegnum súrt og sætt, en við vorum lánsöm og áttum ávallt mikinn styrk til að gefa hvort öðru í gleði og sorg. Ég er þakklát fyrir að hafa átt þig og ég sakna þín sárt, en minningar mín- ar um þig eru greyptar í sál mína og hjarta og sefa sorgir mínar. Ástin mín, ég kveð þig hinstu kveðju og bið Drottin Guð að taka þig í faðm sér og tendra þitt skær- asta ljós. Ég veit að þú leiðir Evu Maríu barnið okkar. Þar til við hittumst á ný. Þín Margrét. Elsku Siggi og Eva María. Ég sit og skrifa ykkur þessar línur SIGURÐUR JÓNSSON OG EVA MARÍA SIGURÐARDÓTTIR ✝ Feðginin Sigurð-ur Jónsson, f. 2. febrúar 1951, og Eva María Sigurðardótt- ir, f. 23. september 1976, létust af slys- förum 19. ágúst síð- astliðinn og fór útför þeirra fram frá Hjallakirkju í Kópa- vogi 28. ágúst. til að kveðja ykkur. Ég er alveg fros- inn og galtómur. Ískaldri gusu var skvett framan í okkur. Þú Siggi minn og Eva mín ásamt tveim öðrum góð- um mönnum eruð dáin. Dáin? Hvernig má það vera? Ég skil þetta bara alls ekki. Smám saman hellist þó raunveruleikinn yfir og ég átta mig á því hversu lítilfjörleg við mannfólkið erum í þessum stóra al- heimi sem við lifum í og hversu tím- inn okkar hér á jörðu er dýrmætur. Okkar góði Drottinn gefur, okkar góði Drottinn tekur. Mér gaf Drott- inn það að fá að hafa þekkt ykkur, hafa verið með ykkur og tengst ykk- ur fjölskylduböndum sem sannar- lega voru traust. Ég man ekki eftir mér öðruvísi en að þú, elsku Siggi minn, hafir alltaf verið í kringum mig enda var ég rétt þriggja ára þegar þú og Magga systir byrjuðuð ykkar líf saman. Þú varst ekki bara mágur minn, þú varst svo miklu meira. Þeg- ar ég var ungur fékk ég svo oft að vera með ykkur og hjá ykkur og þá varstu eins og pabbi minn. Alltaf varstu mér mikilvægur leiðbeinandi og skiptu málefnin engu, þú hafðir alltaf góð ráð. Eftir að ég þroskaðist og varð fullorðinn þróaðist samband okkar enn betur og við urðum miklir félagar. Þú fylgdir mér úr hlaði, horfðir á litla pollann vaxa og verða að manni og bara það að þú hafir sagt mér að þú værir stoltur af mér og lagt blessun þína yfir ýmsar ákvarðanir mínar segir mér að ég hafi breytt rétt. Og þér, elsku Eva mín og ástkær frænka, var ég svo lánsamur að hafa fengið að fylgjast með frá fyrstu hendi og taka smáþátt í uppvexti þínum og vonandi skilað af mér einhverjum góðum lífsins gild- um til þín. Nógu mikið gafst þú mér, krúsan mín, alveg frá fyrstu árum þínum og fram til dagsins í dag. Þú hafðir endalausan kærleika að gefa og fallega brosið þitt er greypt í huga minn. Við vorum miklir vinir og ég á endalausan bunka af fallegum minn- ingum um þig. Elsku vinir mínir. Síðasta skiptið sem við áttum saman er ómetanleg stund í mínu hjarta. Það var kvöldið áður en þið lögðuð af stað í ykkar hinstu ferð. Magga systir hafði óvart rekist í GSM-símann sinn og hringt eina hringingu í mig um morguninn. Ég hringdi til baka og eftir smá spjall ákváðum við að grilla saman heima hjá ykkur um kvöldið. Ég hlakkaði til allan daginn sem var ansi annasamur og tíminn leið hratt. Eva, þú komst við í vinnunni hjá mér til að heilsa uppá frænda þinn, enda ný- komin frá París og við höfðum ekki sést síðan í afmælinu mínu í júní. Ég var ekki við en þú hringdir í mig og við grínuðumst aðeins eins og svo oft áður. Síðar um kvöldið þegar við Helga komum til ykkar þá fékk ég eitt stærsta og hlýjasta knús frá þér sem ég man eftir og þau hafa nú allt- af verið rosaleg. Saman áttum við öll yndislega kvöldstund, Magga systir var svo ánægð að hafa alla fjölskyld- una sína saman á ný eftir langa fjar- veru Evu í útlöndum. Ég og Helga vorum svo glöð að fá að vera með ykkur öllum fjórum saman í einu og leið svo vel í návist ykkar. Það var rætt um heima og geima, sagðar sög- ur og hlegið mikið fram á kvöld. Þessi síðasta minning um ykkur, elskurnar mínar, er mér ómetanleg og hjálpar til við að sætta sig við ör- lög ykkar. Hvíl í friði og megi Drott- inn vernda ykkur. Magga mín, Nonni minn og Sirrý mín. Við Helga gefum ykkur alla þá ást og umhyggju sem hjarta okkar hefur að geyma og biðjum Guð að blessa ykkur í sorg ykkar. Ellert Kristján Stefánsson. Það var mánudaginn 20. ágúst að mér barst sú harmafregn að Eva María og Siggi væru látin. Ég var slegin, hjartað sló örar og tárin brut- ust fram í augu mér. Mér varð strax hugsað til elsku Margrétar og Nonna, þvílíkt skarð sem höggvið er í þeirra líf. Ástvinamissir er mjög erfiður og það þekki ég af eigin raun. Eva María og Siggi voru yndisleg- ar persónur, bæði mjög lífleg og skemmtileg með mikla útgeislun. Ég varð þeirra gæfu njótandi að fá að kynnast þeim. Evu Maríu passaði ég og Nonna reyndar líka. Þá bjuggu þau í Hraunbænum þar sem ég bý einmitt núna. Við brölluðum margt þegar ég var að passa, lékum, lásum og fórum á róló. Þegar Siggi og Margrét ráku sjoppuna á Njálsgötunni hjólaði ég stundum þangað og fékk að hjálpa til við afgreiðslu. Seinna vann ég svo hjá þeim í barnafataverslun sem þau áttu. Einnig sá ég um rekstur á sjoppunni þeirra í Breiðholtinu með- an þau fóru í sumarfrí sumarið 1991. Þannig kynntist ég Sigga sem vinnu- veitanda, þ.e.a.s. sá hann í öðru ljósi en í fjölskyldunni. Það var gott að vinna fyrir Sigga. Hann var góður vinnuveitandi, ákveðinn en sann- gjarn. Ég hitti Evu Maríu og Sigga oft í veislum á „Langó“. En síðustu árin hittumst við ekki eins oft. Eva María var líka svo mikill heimshornaflakk- ari að undanfarin ár var hún lítið heima. Ég hitti Sigga í fjölskyldu- boði á „Langó“ viku áður en hann lést. Mig óraði ekki fyrir því að það væru síðasta samverustund okkar á jörðu. Evu Maríu sá ég síðastliðið haust þegar hún kom í heimsókn til okkar í Hraunbæinn til að sjá frum- burðinn okkar. Sú stund var yndisleg og ég minnist þess hve litla drengn- um mínum leið vel í fanginu á Evu Maríu. Með þessum orðum kveð ég ykk- ur, elsku Eva María og Siggi. Guð blessi minningu ykkar. Elsku Mar- grét frænka, Nonni minn og aðrir ástvinir, Guð gefi ykkur styrk á sorg- artímum. Elín Björg Guðjónsdóttir. Elsku Eva mín. Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður. Kærleikurinn öfundar ekki. Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp. Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin, hann reiðist ekki, er ekki langrækinn. Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni, en samgleðst sannleikanum. Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt. (Kor., 4–7.) Þessi orð lýsa þér betur en nokkuð annað. Takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér og kennt. Elsku Margrét og Nonni, nánustu ættingjar og vin- ir, sorg okkar allra er mikil en ykkar þó mest. Þín vinkona, Valgerður. Elsku Eva María. Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm er verður að hlíta þeim lögum að beygja sig undir þann allsherjardóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu gengin á guðanna fund, það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingr. frá Grímsstöðum.) Takk fyrir allt og allt. Við vottum Margréti, Nonna, $      !        ; (9  ')+ *+,, <    )        $    %   2 '  34 , )"! ! )"!, ! ! 1", ! (- !! !&"    !&,&"   +4)"! ! 2!2.!'      !         =;8 ( 9>=; *+,,?@*   /:     &  '! 5 )    3 '            5 ) '   %   34 '  3+44 =% - & 5  '7& ! ( + - ! 1"&- & =% @'- & (2. &"  2!2.! 2!2!2.!' 0   ()#( ) , *+,,    &  '!  5 )      3          $       2 '  344 (0!+ -&"   + -&"  !!+ -&"  +4+ - ! !3 + -&" ' $        ,8 ,); *+,, " !  -!-  5  /A   / ) #    1 '   &",&"    5!, ! + .$!0&"  1  .,&"   !1' !B" ! + - !, ! -- &"  2!2.!' /"  !     ?*8 )+ *+,, @   )     5 "   %  6 '  3144 !!!)"!&"  -C!&  ! ' 0    "  !  ? *  ,@; *+,, 7 3 AD -       ! #    1 '  !&  !&"   &"  ! ! $%  -5!&" '

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.