Morgunblaðið - 06.09.2001, Síða 58
DAGBÓK
58 FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
NÝLEGA kom fram í
grein um virkjanamál í
Morgunblaðinu að litlu
skipti hvort íbúar á Aust-
urlandi yrðu 8 eða 10 þús-
und. En málið snýst ekki
um það heldur hvort þar
verða 10 þúsund íbúar eða
enginn. Kannski örfáir auk
erlends fiskvinnslufólks.
Hvernig litist mönnum á
það ef tilkynnt væri einn
góðan veðurdag að á næstu
þrem til fjórum árum yrði
eitt hverfi Reykjavíkur,
t.d. vesturbærinn, lagt nið-
ur og fólk fengi engar bæt-
ur fyrir eignirnar. Íbúarnir
yrðu að tvístrast til ann-
arra staða og bjarga sér
sem best með nýja bústaði
og lífsviðurværi? Fyrir ut-
an að missa tengsl við um-
hverfi sitt og kunningja.
Mér finnst einhvern veg-
inn að margir sem harðast
berjast gegn virkjunum
hljóti að vera mjög öruggir
með sína eigin afkomu og
vilji halda öllum óbyggðum
sem eins konar sparistöð-
um fyrir sig og sína, að
þeir séu örlítið merkilegri
og meira rétt hugsandi en
þeir sem berjast fyrir eigin
búseturétti í dreifbýlinu.
Að þeim finnist að þeim
mun fleiri sem fái aðgang
að hálendinu því minna
spennandi verði það. Einu
sinni í umræðuþætti um
hálendisvegi kvartaði einn
fjallakappi yfir því að kom-
in væri brú yfir verstu ána
á Kili. Eins og brúin væri
eitthvað fyrir honum og
hann gæti ekki sullast yfir
ána eftir sem áður.
Og svo er það stóra
spurningin: Geta Íslend-
ingar lifað af því í framtíð-
inni að byggja Kringlur
fyrir sig?
Ragnhildur
Kristjánsdóttir.
Meðmæli með góðu
barnaheimili
FYRIR rúmu ári þurfti lít-
ill drengur, sem ég bý svo
vel að eiga, að komast út á
meðal fólks og vegna sér-
stakra meðmæla sem ég
fékk var honum útvegað
pláss á litlu barnaheimili
sem nokkrar dagmæður
ráku í sameiningu undir
nafninu Olgukot. Nokkru
eftir að drengurinn byrjaði
þar fluttu þær í nýtt og
betra húsnæði og má nú
segja að Olgukot sé orðið
fullkominn leikskóli og að-
staða þar öll hin besta. En
þótt aðstaðan sé vissulega
afar góð þótti mér þó ætíð
mest um vert hversu hlýju
og notalegu viðmóti dreng-
urinn mætti ævinlega. Þótt
hann hafi nú stigið næsta
skref í skólakerfinu langar
mig að votta þakklæti mitt
þeim góðu konum sem
hlúðu að honum og þrosk-
uðu þetta rúma ár með því
að mæla sérstaklega með
Olgukoti við aðra foreldra.
Illugi Jökulsson.
Fyrirspurn
ÉG heyrði um daginn af
stúlku sem var búin með
tveggja og hálfs árs nám í
hjúkrun í Danmörku. Hún
fær ekki að ljúka náminu
hérna heima því við erum
með hjúkrunarnám á há-
skólastigi! Hún þarf þá að
byrja aftur frá grunni. Er
þetta brandari eða hvað?
Fram að þessu hafa hjúkr-
unarfræðingar sem eru frá
hinum Norðurlöndunum
fengið vinnu á Íslandi.
Hefur það kannske breyst?
Einn hissa.
Sammála nemanda
Í VELVAKANDA sl. laug-
ardag skrifar nemandi í
Garðabæ um ólæti og ung-
linga í Garðabæ. Ég vil
koma því á framfæri að
Seltjarnarnes er ekki
betra. Undanfarin áramót
hafa skemmdir vegna óláta
um áramót í bæjarfélaginu
verið á bilinu 1–2 milljónir,
hef ég það eftir viðgerðar-
mönnum í bænum. Um síð-
ustu áramót voru 14 rúður
brotnar, hurðir skemmdar
og árið þar á undan var
sprengd upp bakhlið sund-
laugarinnar. Eins hefur
trjágróður verið skemmd-
ur og stuðningsspýtur við
hann einnig.
Ég hef heyrt að Sel-
tjarnarnes sé einn af þeim
verstu en Garðabær sé þó
verri. Og eiga þetta þó að
vera fyrirmyndarbæir. Ég
er sammála nemanda um
að það sé eins og friðhelgi
sé yfir þessum bæjarfélög-
um þegar fjölmiðlar eru
annars vegar.
Seltirningur.
Tapað/fundið
Ferðataska í óskilum
LÍTIL, dökkgræn ferða-
taska með handfangi og
hjólum fannst í Rauðagerði
sl. mánudag. Upplýsingar í
síma 588 5590 eða
691 9730.
GSM-sími týndist
við Rimaskóla
GSM-sími týndist á göngu-
stíg milli Rimaskóla og
Smárarima. Finnandi hafi
samband í síma 567 5213.
Dýrahald
Páfagaukur týndist
í Skipasundi
PÁFAGAUKUR, marglit-
ur gári, flaug að heiman
frá Skipasundi 81 um miðj-
an dag sl. laugardag. Þeir
sem hafa orðið fuglsins
varir hafi samband í síma
861 8373.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Óbyggðirnar
sparistaður?
Víkverji skrifar...
EIN skemmtilegasta heimasíðansem haldið er úti á Netinu er
Íslenski lögfræðivefurinn, www.is-
log.is. Vefurinn hefur að geyma fjöl-
breyttar upplýsingar um lögfræði.
Bæði er þaðan hægt að komast á
vefi sem vísa á lög og reglugerðir en
þar er einnig hægt að fá svör við alls
kyns spurningum um lögfræði. Það
hefur ekki legið það orð á lögfræð-
inni að hún sé sérstaklega skemmti-
leg aflestrar en Íslenski lögfræði-
vefurinn hefur ekki bara að geyma
þurra lögfræði. Inni á milli eru
bráðskemmtilegar greinar. Þessu til
sönnunar má t.d. nefna frétt af vefn-
um sem birtist í ágústmánuði. Þar
er sagt frá klappstýrum hjá ruðn-
ingsliðinu Philadelphia Eagles.
„Tvær klappstýrur hjá ruðnings-
liðinu Philadelphia Eagles hafa lagt
fram kæru þess efnis að leikmenn
annarra liða hafi njósnað um þær
þegar þær voru sem klappstýrur að
skipta um föt fyrir leiki.
Búningsherbergi klappstýra Arn-
anna er við hliðina á búningsher-
bergi gestaliðsins og eru dyr sem
tengja bæði herbergin. Margsinnis
voru leikmenn gestaliðanna búnir að
bora göt á hurðina og skrapa máln-
ingu af gluggum til að kíkja á hinar
íturvöxnu klappstýrur. Samkvæmt
kærunni komust klappstýrurnar að
þessu þegar frétt var birt um málið
í dagblaðinu The New York Times í
janúar sl. Segir jafnframt í kæru að
möguleikinn á að fá að sjá klapp-
stýrurnar naktar væri eitt af sér-
stökum fríðindum við að koma og
keppa við Ernina. „Það var almenn
þekking meðal allra sem komu að
bandarísku ruðningsdeildinni NFL,
en á sama tíma varðveitt leyndar-
mál sem aðeins mátti fréttast á milli
leikmanna og starfsmanna liðanna,“
stóð ennfremur í kærunni. Klapp-
stýrurnar tvær fara fram á 75.000
dollara í skaðabætur frá hverju ein-
asta liði í deildinni fyrir utan sitt
eigið, en konurnar hafa verið klapp-
stýrur hjá Örnunum frá því 1986.“
x x x
AÐ undanförnu hefur verið mikiðum innbrot á höfuðborgar-
svæðinu. Sem betur fer hefur lög-
reglu tekist að upplýsa talsverðan
hluta af innbrotunum. Um helgina
birtist frétt í Morgunblaðinu um að
tveir menn hefðu verið handteknir
vegna fjölda innbrota. Í fórum
þeirra fundust m.a. tölvur, borðbún-
aður, farsímar, hljómtæki, vopn og
fleira.
Ekki er víst að þeir sem stunda
innbrot geri sér grein fyrir því tjóni
sem þeir valda. Ekki er nóg með að
þeir valda fólki miklu fjárhagstjóni
og óþægindum vegna hluta sem eru
teknir ófrjálsri hendi. Ekki má held-
ur gleyma þeirri angist sem þjóf-
arnir valda saklausu fólki. Margt
fólk óttast mjög að verða fyrir
þjófnaði og er með stöðugar áhyggj-
ur af eignum sínum. Víkverji minn-
ist þess að hafa fyrir nokkrum árum
horft á sjónvarpsþátt í Bretlandi
þar sem þeir sem stundað höfðu
þjófnað og fórnarlömb þjófnaða
voru leidd saman til að ræða um
þessi mál. Greinilegt var að þjóf-
arnir höfðu lítið eða ekkert velt fyrir
sér þeirri angist sem þeir ullu sak-
lausu fólki.
Það eru oftar en ekki fíkniefna-
neytendur sem leiðast út í þjófnað
til að fjármagna neysluna. Sumir
telja að lögleiðing fíkniefna leysi
þennan vanda en Víkverji er ekki
trúaður á það. Varla þýðir lögleiðing
fíkniefna að þeir sem misnota efnin
fái þau gefins.
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 víðáttumikla svæðið, 8
skips, 9 afdrep, 10 veið-
arfæri, 11 glitra, 13 út, 15
húsgagns, 18 bleytukrap,
21 kvenkynfruma, 22
gljúfrin, 23 gyðja, 24
tómlegt.
LÓÐRÉTT:
2 landsmenn, 3 borga, 4
brjóstnál, 5 starfið, 6 fisk-
um, 7 kjáni, 12 fólk, 14
pinni, 15 beygja, 16 væsk-
illinn, 17 létu fara, 18
mannsnafn, 19 dreggjar,
20 brún.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 bulla, 4 fúnar, 7 mökks, 8 lemja, 9 afl, 11 agns,
13 grói, 14 álkur, 15 fjöl, 17 ómar, 20 sag, 22 tolla, 23
angur, 24 ragur, 25 músar.
Lóðrétt: 1 bumba, 2 lúkan, 3 ansa, 4 fíll, 5 námur, 6 ró-
aði, 10 fokka, 12 sál, 13 gró, 15 fætur, 16 öflug, 18
magns, 19 rýrar, 20 saur, 21 garm.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Goðafoss kemur og fer í
dag, Mánafoss kemur í
dag, Trinket og Arn-
arfell fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Olga og Sjóli koma í
dag. Ocean Tiger og
Mango fara í dag.
Fréttir
Félag frímerkjasafn-
ara. Opið hús laug-
ardaga kl. 13:30-17.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9-12
baðþjónusta, opin
handavinnustofan, bók-
band og öskjugerð, kl.
9:45-10 helgistund, kl.
10:15 leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13-16:30 opin
smíðastofan, kl. 10-16
púttvöllur opinn. Allar
upplýsingar í síma 535-
2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8-
16 hárgreiðsla, kl. 8:30-
14:30 böðun, kl. 9-9:45
leikfimi, kl. 9-12 mynd-
list, kl. 9-16 handavinna
og fótaaðgerð.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18-20. Kl. 9-12
aðstoð við böðun, kl. 9-
16:45 hárgreiðslustofan
opin, kl. 9-13 handa-
vinnustofan opin, kl.
14:30-15:30 söngstund
Félagsstarf aldraðra
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 9 fótaaðgerð, kl.
10 hársnyrting, kl. 11
leikfimi, kl. 13 föndur
og handavinna.
Félagsstarfið Furu-
gerði 1. Vetrardag-
skráin er hafin. Bók-
band verður á mánu-,
þriðju- og mið-
vikudögum. Útskurður
og smíði verður á
fimmtu- og föstudögum.
Leirlistar- og gler-
skurðarnámskeið verða
á fimmtudögum. Al-
menn handavinna byrj-
ar um miðjan sept-
ember og verður mánu-
og miðvikudaga. Leik-
fimin verður á mánu- og
miðvikudögum kl. 11.
Frjáls spilamennska
verður á þriðjudögum.
Hárgreiðslustofan s.
553-6046 og fótaaðgerð-
arstofan s. 588-2232.
Upplýsingar og skrán-
ing í s. 553-6040. Allir
velkomnir.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Fótaaðgerðir
mánu- og fimmtudaga-
Uppl. í síma 565-6775.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Félagsmiðstöðin er opin
frá kl. 13-17.
Innritun á mynd-
listarnámskeið hjá
Rebekku.
Dagsferð 13. sept. Inn-
ritun og upplýsingar í
Hraunseli.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Fimmtudag-
ur: Brids kl. 13. Opið
hús verður laugardag-
inn 8. september kl.
13:30. í Ásgarði
Glæsibæ þar sem
félagsstarfið verður
kynnt. Söngur, dans-
sýning, leikstarfsemi og
fl. Haustfagnaður FEB
og ferðakynning
Heimsferða verða hald-
in föstud. 14. sept. Hús-
ið opnað kl. 18:30,
veislustjóri Sigurður
Guðmundsson, matur,
Ekkókórinn syngur,
leikarar úr Snúð og
Snældu skemmta,
ferðakynningar, happ-
drætti, Hjördís Geirs og
Guðmundur Haukur sjá
um dansinn. Haustlita-
ferð til Þingvalla 22.
september kvöldverður
og dansleikur í Básnum.
Leiðsögn Pálína Jóns-
dóttir og Ólöf Þórarins-
dóttir. Skráning hafin.
Farið verður til Kan-
aríeyja 20. nóvember.
Upplýsingar og skrán-
ing á skrifstofunni kl.
10-16 s. 588-2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9-16:30
glerskurðarnámskeið,
kl. 9-13 hárgreiðsla, kl.
9-16 böðun, kl. 10 leik-
fimi, kl. 15:15 dans.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund- og leikfimiæf-
ingar í Breiðholtslaug
kl. 9:30, kl. 10:30 helgi-
stund, umsjón Lilja G.
Hallgrímsdóttir djákni,
frá hádegi vinnustofur
og spilasalur opinn á
morgun hefjast kóræf-
ingar hjá Gerðubergs-
skór stjórnandi Kári
Friðriksson, nýir félag-
ar velkomnir. Mánudag-
inn 10. sept. kl. 13
ferðakynning frá
Ferðaskrifstofunni Sól,
Kýpur, m.a. happdrætti
„Gaman saman“, um-
sjón Edda Bald-
ursdóttir og Árni Norð-
fjörð, allir velkomnir.
Upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í
síma 575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnnustofan op-
in leiðbeinandi á staðn-
um kl. 9-15, kl. 9:05 og
9:50 leikfimi. Dansað
verður í Gjábakka í
kvöld frá kl. 20-22, Sig-
valdi stjórnar. Kynning
á starfsemi í félags-
heimilinu Gjábakka frá
sept. til des. kl. 14.
FEBK, Hananú og
ýmsir áhugamannahóp-
ar kynna sína starfs-
semi einnig skráning og
kynning á fyrirhug-
uðum námskeiðum fer
þar fram. Meðal nýj-
unga er kínversk leik-
fimi undir stjórn Guð-
nýjar Helgadóttur og
skapandi skrif. Allir vel-
komnir. Kaffi og heima-
bakað meðlæti.
Hraunbær 105. Kl. 9
opin vinnustofa, búta-
saumur, kortagerð og
perlusaumur, kl. 9:45
boccia, kl. 14 félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 13
handavinna, kl. 14
félagsvist.
Norðurbrún 1. Kl. 9-
16:45 tréskurður og op-
in vinnustofa, kl. 10-11
ganga. Leirnámskeið
hefst fimmtudaginn 5.
október, frá kl. 10-15.
Innritun stendur yfir,
takmarkaður fjöldi.
Upplýsingar í síma 568-
6960.
Mosfellingar - Kjalnes-
ingar og Kjósverjar 60
ára og eldri. Gönguferð-
ir á miðvikudögum, frá
Hlaðhömrum: Ganga 1:
létt ganga kl. 16 til
16:30. Gönguhópur 2:
kl. 16:30.
Vesturgata 7. Kl. 9
Fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9:15-12 að-
stoð við böðun, kl. 9:15–
15.30 handavinna, kl. 10
boccia, kl. 13-14 leik-
fimi. Ferðakynning til
Kýpur. Föstudaginn 7.
sept. kl. 15 kynnir Árni
Norðfjörð skemmt-
anastjóri og fleiri, haust
og vetrarferðir á vegum
ferðaskrifstofunnar Sól-
ar. Happdrætti, gildir
sem innborgun í ferð.
Dansað við lagaval
Sigvalda.
Pönnukökur með rjóma
í kaffitímanum. Allir
velkomnir.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan,
hárgreiðsla, kl. 9:30
morgunstund og hand-
mennt, kl. 10 boccia og
fótaaðgerðir, kl. 13
frjálst spil, kl.14 leik-
fimi. Öll starfsemi í
stöðinni er hafin og
skráning í eftirfarandi
námskeið stendur yfir,
bókband, bútasaumur,
glerbræðsla, gler-
skurður, körfugerð,
leirmótun og smíði.
Vitatorgskórinn byrjar
æfingar 5. september
kl. 15:30, nýir félagar
velkomnir.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids að
Gullsmára 13 alla mánu-
daga og fimmtudaga.
Skráning kl. 12:45. Spil
hefst kl. 13. Bridsdeild
FEBK í Gullsmára.
Ga-fundir spilafíkla eru
kl. 18:15 á mánudögum í
Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20:30 á
fimmtud. í fræðsludeild
SÁÁ Síðumúla 3-5 og í
Kirkju Óháða safnaðar-
ins við Háteigsveg á
laugard. kl. 10:30.
Félag kennara á eft-
irlaunum. Fyrsti
skemmti- og fræðslu-
fundur haustsins verður
í Kennarahúsinu við
Laufásveg laugardag-
inn 8. september og
hefst kl. 14. Félagsvist,
sagt frá Norrænu móti
kennara á eftirlaunum í
Finnlandi í júlí sl.
Kynnt verkefnið: Nýtt
sjálfboðastarf á vegum
Rauða Krossins, söngur
veislukaffi.
Hana-nú Kópavogi
Farið verður til berja
föstudag 7. september.
Lagt af stað frá Gull-
smára kl. 13 og Gjá-
bakka kl. kl 13:10.
Hvert farið verður er
leyndarmál fram að
brottför. Hafið með
ykkur nesti.
Íslenska bútasaums-
félagið. Tilkynning um
breyttan fundarstað í
kvöld, fimmtudag 6/9 kl.
19:30. Félagsfundurinn
flyst yfir í Stýrimanna-
skólann v/Háteigsveg,
næsta hús við Safn-
aðarheimili Háteigs-
kirkju. Gengið inn um
aðaldyr.
Í dag er fimmtudagur 6. septem-
ber, 249. dagur ársins 2001.
Réttir byrja. Orð dagsins: Sá sem
leitar góðs, stundar það, sem
velþóknanlegt er, en sá sem sækist
eftir illu, verður fyrir því.
(Orðskv. 11, 27.)
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16