Vísir - 16.08.1979, Blaðsíða 1

Vísir - 16.08.1979, Blaðsíða 1
Frfdagaútlekt Loftlelðaflugmanna loklö í Dlll: FLUGLEIBIR AFTURKALLA í REVND UPPSAGNIRNARl „Fridagaúttekt flug- manna i Félagi Loft- leiðaflugmanna er lokið i bili og við væntum þess, að flug verði með eðlilegum hætti um næstu helgar”, sagði Sveinn Sæmundsson, blaða- fulltrúi Flugleiða, þegar Visir innti hann eftir sannleiksgildi þess að samningar hefðu tekist i deilu Loftleiðaflugmanna og Flugleiða. Frá 22. júli hafa flugmenn i F.L.F. haft uppi aðgerðir i þvi skyni að knýja Flugleiðir til að endurskoða uppsagnir 9 flug- manna I F.L.F. og fólust aðgeröirnar i þvi, að flugmenn tóku út um helgar þá fridaga, sem þeir höfðu unnið til. Olli betta margskonar töfum „Gegn þvi að flugmennirnir hættu þessari frídagaúttekt, hafa Flugleiðir ákveöiö að starf þeirra, sem sagt var upp, fram- lengist, svo fremi sem þau viö- bótarverkefni berist, sem leitaö eftir", sagði Sveinn er Sæmundsson ennfremur. Visi tókst ekki i morgun að ná sambandi við stjórnarmenn F.L.F. P.M, „vepö að mæta Karpov aftur” sagðt Vlclor korchnol I vlðtall vio visi ,,É:g er bestur, en margir segja að Karpov sé bestur.þannig að ég hlýt að verða að mæta honum við skákborðið aftur. En þaö verður mér ekki til mikíllar ánægju", sagði skáksníllingurinn Victor Korchnoi I samtali við Vfsi f gær- kvöldi. Korchnoi kom i stutta heimsókn hingað til lands um miðjan dag I gær og fór utan aftur til Þýska- lands snemma I morgun. Siðdegis i gær ræddi hann við Friðrik ólafsson, forseta FIDE. Við hittum Korchnoi i anddyri Hótel Sögu f gærkveidi, en hann snæddi kvöldverö á Grillinu. „Ég myndi ekki kalla Karpov „mister" þvl ég ber ekki nógu mikla virðingu fyrir honum til þess”, sagði Korchnoi, er hann var spurður um andstæðing sinn. — Hvert er erindið til lslands? „Þetta er aðeins vináttuheim- sókn. Ég hef ekki hitt Friðrik ólafsson siðan hann var kosinn forseti FIDE. Okkur fannst timi til kominn að ræða min mál opin- skátt og hreinskilnislega fyrir næsta þing FIDE, sem er aö hefj- ast i Puerto Rico”, sagði Korchnoi. Korchnoi vildi ekki fara nánar út i hvað þeim Friðriki hafði farið á milli, en meðal annars hefðu þeir þó rætt deilur hans og Karpovs vegna einvigis þeirra um heimsmeistaratitilinn á Filippseyjum I fyrra. -KS Ralnbow Warrlor teklnn verðl velðar truflaðar „Við sendum menn um borð i Rainbow Warrior i gær og i framhaldi af þvi var ákveðið að kæra skipverja fyrir brot á tollalögum, brot á lögum um sóttvarnir og á lögum um út- lendingaeftirlit og var skip- stjóranum tilkynnt það. Við munum ekkert aðhafast frekar að svo stöddu/ en ef að þeir Greenpeacemenn fylgja eftir hótun sinni um að trufla hvala- veiöar, munum við að sjálf- sögðu gripa til okkar aðgerða”, sagði Þröstur Sigtryggsson hjá Landhelgisgæslunni i samtali við Visi I morgun. Skipverjar af varðskipinu Tý fóru um borð i Rainbow Warrior um klukkan 11 i gærmorgun, þar sem skipið var statt rétt út af mynni Hvalfjarðar. Var áhafnalisti kannaður og eru þar af niu þeir sömu og voru hér fyrr i sumar. Hins vegar eru leiðangursstjóri og skipstjóri ekki hinir sömu og voru hér i sumar. Friðrik ólafsson, Korchnoi, eiginkona Friðriks og dóttir, koma á Hótel Sögu f gærkvöldi, en þau snæddu kvöldverð á Grillinu eftir viðræður-Korchnois og Friðriks siðdegis I gær. Visismynd ÞG Vísisralllð hefst kl. 161 dag Fyrsti billinn i Visisrallinu verður ræstur i dag við sýningahöllina á Ártúnshöfða klukkan fjögur. Ræst verður með minútu millibili og verður ekið um Suðurlandsveg að Geithálsi og Hafravatns- ieið. Þar gefst fólki ágætt tækifæri að virða bilana fyrir sér á hámarkshraða á sérleið. Mikil vinna hefur verið lögð i þetta rall, bæði af Bifreiða- iþróttaklúbbi Reykjavikur, keppendum og ýmsum bifreiða- umboðum, og má segja að sumarfri flestra þessara aðila hafi farið i undirbúninginn. Biaðamaður og ljósmyndari Visis munu fylgjast með rallbil- unum um landið og senda fréttir i föstudags-og laugardagsblaðið um það, auk þess sem staðan verður birt á hverjum degi. Höfuöstöðvar Visisrallsins verða i Sýningahöllinni á Ar- túnshöföa og stendur þar yfir skemmtun keppnisdagana með margháttuðum skeinmtiatrið- um, auk þess sem þar verður allar upplýsingar að fá um stöð- una i rallinu. 1 Visi i dag eru margvislegar greinar og myndir um ralliö og þar á meðal hópaksturinn I gær- dag. Sjá bls. 13, 14, 15, 16 og 17. -SS- paraiiiTitMMBianftwaitBKaa

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.