Vísir - 16.08.1979, Blaðsíða 15

Vísir - 16.08.1979, Blaðsíða 15
14 15 VtSIR FimmtudaKur 16. ágúst 1979 VÍSIR Fimmtudagur 16. ágúst 1979 VISIS-RALL - VISIS-RALL - VISIS-RALL - VISIS-RALL - VISIS-RALL - VISIS-RALL - VISIS-RALL - VISIS-RALL -VISIS-RALL -VÍSIS-RALL -VISIS-RALL - VISIS-RALL - VISIS-RALL Hallbllarnir fóru i hópakstur um Heykjavikurborg sibdegis i gær, en i dag, fimmtudag, tekur aivaran við: þá hefst rallið kl. 16. Visismynd: Þ.G. BIKR gefur rall- og tralláráttu landsmanna úlrðs: l Islendingar hafa löngum veriö mikið fyrir rall og trall, en mestu rallarar hérlendis eru eflaust félagar i Bifreiðaiþróttaklúbbi Reykjavikur. Þeir efna þvi til Visisralls. Hér má ekki hallast á, og þeir BÍKR menn eru vel meðvitandi um rall- og tralláráttu landans og þvi efna þeir lika til tralls. Þeir sameina rall og trall i eitt allsherjar (T)RALL á meðan á Visisrallinu stendur og fer þessi uppákoma fram i Sýningahöllinni á Artúns- höfða. 1 gær hófst (T)RALLIÐ meö RALL-ROKK tónleikum Bruna- liösins, sem keyröi á útopnuöu i Sýningahöilinni og i kvöld og næstu kvöld veröur eitthvaö fyr- ir alla, hvort sem þeir vilja rall og trall eitt sér eöa hvortveggja. Sýningahöllin ó Artúnshöföa veröur aöalstöö keppnisstjórnar Vísisrallsins, en eins og allir vita aka rallbilarnir frá Reykja- vík i dag klukkan fjögur og noröur i land, til Sauöárkróks, þar sem þeir veröa i nótt, til Húsavikur þar sem þeir veröa næstu nótt. Þaöan aka þeir suö- ur Sprengisand og þvers og kruss um Suöurland, gista aö Laugarvatniog koma svo aftur i bæinn á sunnudaginn. Staða keppenda Þaö eru margir sem áhuga hafa á bílasporti, ralli, og fyrir þá veröur stööugt upplýsinga- streymi frá keppninni og i Sýn- ingahöllina og mun þar veröa unniö úr þeim upplýsingum 1 tölvu og staöan birt jafnóöum. Einnig veröur sérstakur myndatökumaöur meö mynd- segulband úti á landi og sendir hann jafnóöum spólur meö lit- myndum af keppninni til Reykjavikur. Þessar myndir veröa svo sýndar f sérstöku inn- anhússjónvarpskerfi, Video, jafnóöum og þær berast. Hér og þar um húsiö veröur komiö fyrir sjónvarpstækjum og þar birtist jafnt staöa keppenda og rall- myndir frá keppninni. Sýning, tónleikar og disco Fyrir Trallarana er þess viröi aö leggja leiö sina upp i Sýn- ingahöll. A staönum veröa ýms- ir aöilar meö sýningu á vörum sinum, þjónustu og munum. Þarna veröur til dæmis feröafé- lagiö Otivist meö kynningu ó feröalögum og feröaútbúnaöi, ýmis bflaumboð kynna þarna nýja árgerö af bilum sinum, Samtök áhugamanna um áfeng- isvandann munu kynna starf- semi sina, og fleiri og fleiri. Annað kvöld veröa siöan miklir tónleikar. Þar munu Ljósin i bænum,. þessi vinsæia hljómsveit, halda tónleika. Þessi uppákoma er annar há- punktur skemmtunarinnar fyrir trallarana. Hinn aðal-punktur- inn veröur á laugardagskvöldiö en þá gengst óöal fyrir sérstöku diskókvöldi. A diskókvöldinu ralla diskó- plötur á fóninum og fjölda- margir listamenn koma fram. Módel ’79 mun sýna tiskuklæön- aö, þrjár diskódisir munu sýna diskódans og Ljósin i bænum munu koma aftur fram og leika fyrir áheyrendur um stund. Magnús og Jóhann þekkja ef- laust flestir og þeirra tónlist. Þeir ætla aö hafa ofan af fyrir áheyrendum um stund. Magnús Sigmundsson er nú i þann veg- inn að gefa út sólóplötu og verö- ur hún kynnt þarna i fyrsta sinn opinberlega. Óhætt mun vera að segja að þessi plata sé ólik mörgu þvi sem Magnús hefur áöur látiö fara frá sér. Mark A laugardeginum sjálfum veröur margt sér til gamans gert og margvislegar uppákom- ur innan hallar sem utan. A sunnudeginum lýkur skemmtuninni eftir aö rallbil- arnir hafa skilaö sér I mark, en þaö veröur eflaust um sjö leytiö. Aðgangseyrir Aögangseyri veröur mjög i hóf stillt og kostar aögöngumiö- inn fyrir alla fjóra dagana aöeins 1500krónur. þ.e. sama og tæplega tvisvar i bió! -SS- VÍSIS-RALL - VÍSIS-RALL - VÍSIS-RALL - VÍSIS-RALL - VÍSIS-RALL - VÍSIS-RALL - VÍSIS-RALL - VÍSIS-RAU - VÍSIS-RALL - Iliisi Liiilxió: Eldborg sf sirni 2.)(S18 Klapparstig 2,1-27 verð og gæði eru miðud við ra

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.