Vísir - 16.08.1979, Blaðsíða 17

Vísir - 16.08.1979, Blaðsíða 17
17 VÍSIR Fimmtudagur 16. ágúst 1979 VÍSIS-RALL - VÍSIS-RALL - VÍSIS-RALL - VISIS-RALL - VISIS-RALL - VISIS-RALL - HAFA HALDH SEX RÖLL FRA RYRJUH Sigurvegarar í rðllum bíkr frá upphafi VÍSISRALL 16-19.ágúst 1979 3. Halldór Olfarsson og Tryggvi Aðalsteinsson á Toyotu. 4. Birgir Þ. Bragason og Hafþór Guðmundsson á Datsun. 5. Sigurður Grétarsson og Sig- björn Björnsson á Escort. Þetta eru þau röll sem BÍKR hefur staðið fyrir. Siðan BIKR tók til starfa hafa þrir aðrir bifreiöa- Það eru hvorki fleiri né færri en sex röll sem Bifreiðaiþróttaklúbbur Reykjavikur hefur staðið fyrir frá þvi að hann var stofnaður, haustið 1976, og þó eru ekki taldar með sparaksturskeppnir, is- akstrar eða rallikrosskeppnir. Hér skulu nú talin upp þau röll sem BÍKR hefur staðið fyrir og leið þeirra rakin i mjög stuttu máli. Páskarallið ■ Það var haldið hinn 9. april 1977 og var það um 350 km að lengd. Fjöldi bila tók þátt i rallinu, eða 23 og luku sex þeirra ekki keppni. 1 fimm efstu sætunum urðu: 1. Ómar Þ. Ragnarsson og Jón R. Ragnarsson á Simca. 2. Vilmar Þ. Kristinsson og Jón R. Ragnarsson á VW Golf. 3. Jón R. Sigmundsson og Dröfn Björnsdóttir á Fiat 128. 4. Halldór Jónsson og Úlfar Hauksson á Fiat 128. 5. Ólafur Benediktsson og Þórólf- ur Halldórsson á Lancer. Næturrallið Það var haldið dagana 1.—2. október 1977. Leiðin var 960 km löng og lögðu 17 bilar af stað en tveir þeirra luku ekki keppni. Ekið var allt austur fyrir Mýr- dalsjökul, Fjallabaksleið, aö Gullfossi, Kaldadal og Borgar- fjörð. Fimm fyrstu i þessu ralli voru: 1. Ómar Þ. Ragnarsson og Jón R. Ragnarsson, Simca. 2. Sigurður Grétarsson og Björn Ólsen, Escort. 3. Clfar Hinriksson og Sigurður Sigurösson, Escort. 4. Vilmar Þ. Kristinsson og Sigurður Ingi Olafsson, VW Golf. 5. Birgir Guðmundsson og Birgir Halldórsson, Escort. Skeifurallið Þessi keppni var haldin dagana 18.—19. mars 1978. Til keppni mættu 28 bilar en fimm þeirra luku ekki keppni. Ekið var frá Reykjavik, um Þrengslin, undir Ingólfsfjall, að Sogsvirkjun, niður að Selfossi, um Gaulver jabæjarhrepp, Skeiðin, Landeyjar, Landsveit, aö Búrfelli, um Flúðir og að Laugar- vatni.þaðan aftur út á Reykjanes, um Krýsuvík og til Reykjavikur. í fimm efstu sætunum urðu: 1. Halldór (Jlfarsson og Jóhannes Jóhannesson á Vauxhall Chevette. 2. Jón R. Sigmundsson og Dröfn Björnsdóttir á Alfa Romeo. 3. —4. Hafsteinn Aðalsteinsson og Magnús Pálsson á Datsun. 4—5. Sigurður Jóhannsson og Ólafur M. Ásgeirsson á Fiat. 5. Halldór Jónsson og Olfar Hauksson á Fiat. Visisrallið Visisrallið i fyrra var lang- lengsta rall sem þá hafði verið haldið. Ekið var frá Reykjavik um Kaldadal og upp i Borgarf jörð og allt út i Mýrarsýslu, þaðan niður á Akranes og farið með Akraborginni i bæinn. Seinni dag- ur keppninnar var um Reykjanes og Suðurlandsundirlendi. Fimm fyrstu bilarnir urðu: 1. Omar Þ. Ragnarsson og Jón R. Ragnarsson á Simca. 2. Hafsteinn Aðalsteinsson og Magnús Pálsson, á Datsun. 3. Hrafnkell Guðmundsson og Þorvaldur Guðmundsson á Saab 96. 4. Sigurður Grétarsson og Halldór Úlfarsson á Escort. 5. Bragi Þ. Haraldsson og Þor- steinn Friðjónsson á Lada. Haustrall Haustrallið var i fyrrahaust og var ekið um Þingvelli niður Grafning um Suðurland allt aust- ur að Dimon upp aö Næfurholti, um Skálholt og Laugarvatn, Lyngdalsheiði um Þingvelli bg tslandskort meö ieiðinni I Visisrallinu opinberað I fyrsta sinn. Greinilegt er að Sigurjóni Haröarsyni, einum af keppendum, er mikið skemmt: „Ha, ha, ha. Sprengisandur! Ha, ha, ha, ha, ha.” Mosfellsheiöi og út á Reykjanes, Grindavik, um Krýsuvik og i bæ- inn. Þetta rall var um 600 km og i fimm efstu sætunum urðu þessi: 1. Hafsteinn Aðalsteinsson og Magnús Pálsson á BMW. 2. Árni Bjarnason og Sigbjörn Björnsson á Lada. 3. Jóhann Hlööversson og Jóhann Sæberg á Escort. 4. Sigurður Grétarsson og Þor- valdur Guðmundsson á Escort. 5. Þórhallur Asgeirsson og Asgeir Þorsteinsson á Escort. Finluxrallið Fyrsta ralliö á þessu ári var Finluxrallið. Það var haldið i byrjun april. Þá var ekið út á Reykjanes um Grindavik að Sogsvirkjun, Selfoss um Gaulverjabæjarhrepp um Hellisheiði og Heiðmörk og i bæ- inn. Sigurvegarar i þessu ralli voru: 1. Ómar Þ. Ragnarsson og Jón R. Ragnarsson, á Simca. 2. Hafsteinn Aðalsteinsson og Magnús Pálsson á BMW. iþróttaklúbbar veriö stofnaðir. 1 Borgarfirði, Sauðárkróki og Húsavik. Klúbburinn á siöast- nefnda staðnum er þeirra elstur og hefur gengist fyrir þremur röllum en sá i Borgarfirði einu. Klúbburinn á Sauðárkróki hefur enn ekki haldið neina keppni enda stofnaður i vor. Allir þessir klúbbar starfa mjög mikiö að framkvæmd Visisralls- ins sem hefst nú i dag og útvega meðal annars timaveröi og annað starfsfólk. — SS — VISIS-RALL - VISIS-RALL - VISIS-RALL - VISIS-RALL - VISIS-RALL - VISIS-RALL - VÍSISRALLIÐ í TÖLIIM Hér skulu nú nokkrar upplýsingar gefnar i tölum um þetta Visisrall: Eins og komið hefur fram i Visi áður og margir vita, þá er rall nokkurs konar keppni við timann. Keppendur keppa við að ná sem bestum tima hver i sínu lagi. Markmiðið er að ná alltaf uppgefnum tima á hinum ýmsu leiðum. Rall skiptist i sérleiðir og ferju- leiöir. A sérleiðum fer hin eigin- lega keppni fram. Þar er. mjög knappur timi gefinn upp og verða keppendur að skila sér í mark á nákvæmlega uppgefnum tima og má ekki skeika sekúndu. Komi menn of fljótt fá þeir timaskekkj- una tvöfalda I minus, en komi þeir of seint fá þeir einfaldlega timaskekkjuna i mlnus. Aftur á móti má skeika allt að 59 sekúnd- um i nákvæmni á ferjuleiðum, enda eru ferjuleiðir yfirleitt á fjölförnum og ágætum vegum. Þær tengja saman sérleiöirnar sem yfirleitt eru á lélegri vegum, hæðóttum, holóttum, hlykkjóttum og þröngum. Sem fram hefur komið, þá þykir rallökumönnum eftir- sóknarverðast aö fá sem flestar sérleiðir i rallkeppnum. Erlendis er þaö ýmsum vandkvæðum bundiðog þóaðallega vegna þess aö erlendis er yfirleitt um háþró- aö vegakerfi aö ræða, en hér á landi ökum við i hjólförum þess san á undan fer”, eins og einn rall-ökumaöurinn vildi lýsa is- lenska þjóðvegakerfinu. 1 Visisrallinu núna er hlut- fall sérleiða á móti ferjuleiðum hærra en það hefur verið nokkru sinni áður, eða 33.83%. Fimmtudagur: — Fyrsti bill ræstur kl. 16.00 frá Sýningahöllinni. — Komutimi til Sauðárkróks til gistingar 03:38:15. — lengd fyrstu dag- leiðar: 530.760 km.þar af lengd sérleiða 115.730. km — hlutfali sérleiða á móti ferjuleiðum á fyrsta degi: 21.80%. Föstudagur: — Sá rallbiH sem bestan tlma á eftirfyrstadag verður ræstur kl. 09:00— Komutimi til Húsavikur til gistingar 00:07. — Lengd dagleiðar 699.440 km. þar af lengd sérleiða 138.83 km. — hlutfall sérleiöa á móti ferju- I leiðum 19.85%. Laugardagur: — Billinn meðbesta árangurinn ræstur kl 06.00.— Komutimi til Laugarvatns til gistingar 02.29. — Lengd dagleiðar 1072.120 km. þar af lengd sérleiða 441.390 km. — Hlutfall sérleiöa á móti ferju- leiöum 41.39%. Sunnudagur: — Billinnmeö besta árangurinn ræstur kl 08.00.— Komutimi til Reykjavikur, i endamark við Sýningarhöllina, 19.53. — Lengd dagleiðar 594.470 km. þar af lengd sérleiðar 185.890 km. — Hlutfall sérleiða á móti ferju leiðum 33.83%.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.