Morgunblaðið - 26.09.2001, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 26.09.2001, Qupperneq 10
NIÐURSTAÐA ENDURSKOÐUNARNEFNDAR 10 MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Nefnd um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða skilaði áliti í gær og klofnaði hún í áliti sínu. Hér á eftir og á miðopnu blaðsins eru birt álit meirihluta og minnihluta svo og viðbrögð við niðurstöðum nefndarinnar. ÁRNI Steinar Jóhannsson, fulltrúiVinstrihreyfingarinnar – græns fram-boðs, í nefnd um endurskoðun fisk- veiðistjórnunarkerfisins, leggur m.a. til í sér- áliti sínu, að gerðar verði grundvallar- breytingar á núverandi fiskveiðistjórnunar- kerfi sem komi til framkvæmda í áföngum á næstu 20 árum. Árni Steinar vill að farin verði fyrningarleið og eru megintillögur hans eftirfarandi: ,,Hafin verði fyrning veiðiréttar (aflahlutdeildar) um 5% á ári (línuleg fyrning). Til þess að auðvelda útgerðinni aðlögun að breyttum aðstæðum verði henni gert mögu- legt að halda eftir 3% af þeim 5% sem árlega eru fyrnd fyrstu 6 árin. Þessum 3% aflaheim- ilda ræður útgerðin sem einskonar „biðkvóta“ sem greitt er fyrir með sérstökum afnota- samningi við ríkið til sex ára. Að sex árum liðnum bætast þessi 3% aflaheimilda ár frá ári við þær sem fyrndar eru árlega (þ.e. 5%). Fyrstu sex ár tímabilsins losna þannig 2% á ári til ráðstöfunar en 3% stofna til „biðkvóta“. Að sex árum liðnum yrði þá búið að fyrna 12% en 18% væru í „biðhólfi“ núverandi útgerða ef þeim sýndist svo. Að tólf árum liðnum yrði þannig búið að fyrna 60% aflaheimildanna og ,,biðkvótinn“ að fullu fyrndur. Fyrningin held- ur áfram með 5% á ári og yrði að fullu lokið á tuttugu árum,“ segir í séráliti hans. Fiskvinnslum gefist kostur á að bjóða í veiðiheimildir Árni Steinar segist byggja álitsgerð sína á meginmarkmiðum sjávarútvegsstefnu Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs og leggur til eftirfarandi meðferð fyrndra veiðiréttinda: ,,1. Þriðjungur þeirra aflaheimilda sem fyrn- ast á hverju ári verði boðinn upp á landsmark- aði og útgerðum gefinn kostur á að leigja þær til allt að sex ára í senn. Fiskvinnslum sem stunda frumvinnslu sjávarafurða gefist einnig kostur á að bjóða í veiðiheimildir í hlutfalli við raunverulega vinnslu þeirra undangengin ár samkvæmt nánari reglum. Leigutekjum vegna þessara aflaheimilda skal skipt milli rík- is og sveitarfélaga eftir nánari reglum sem settar verði. 2. Annar þriðjungur þeirra aflaheimilda sem fyrnast á hverju ári verði til byggða- tengdrar ráðstöfunar fyrir sjávarbyggðir um- hverfis landið. Við skiptingu veiðiréttindanna milli sveitarfélaga verði byggt á vægi sjávar- útvegs, veiða og/eða vinnslu í atvinnulífi við- komandi sjávarbyggða og hlutfallslegu um- fangi innan greinarinnar að meðaltali sl. tuttugu ár. Um þessa skiptingu verði settar nánari reglur að viðhöfðu víðtæku samráði þeirra sem hagsmuna eiga að gæta. Hlut- aðeigandi sveitarfélög ráðstafa þessum þriðj- ungi veiðiheimildanna fyrir hönd þeirra sjáv- arbyggða sem þeim tilheyra. Sveitarfélögin geta leigt út veiðiheimildir eða ráðstafað með öðrum almennum hætti á grundvelli jafnræðis en þeim er einnig heimilt að verja hluta veiði- heimildanna tímabundið til að styrkja hráefn- isöflun og efla fiskvinnslu innan viðkomandi byggðarlaga. Þannig öðlast þau tækifæri til að efla vistvænar veiðar, styrkja staðbundna báta og dagróðraútgerð, gæta hagsmuna sjáv- arjarða og auðvelda nýliðun og kynslóðaskipti í sjávarútvegi. Óheimilt er að framselja byggðatengd veiðiréttindi varanlega frá sveit- arfélagi. Kjósi sveitarfélögin að innheimta leigugjald fyrir aflaheimildirnar, renna tekj- urnar til viðkomandi sveitarfélags. 3. Síðasti þriðjungur fyrndra aflaheimilda á ári hverju verði boðinn þeim handhöfum veiði- réttarins sem fyrnt er frá til endurleigu gegn hóflegu kostnaðargjaldi á grundvelli sérstaks afnotasamnings til sex ára í senn. Samn- ingnum fylgi sú kvöð að réttindin verði aðeins nýtt af viðkomandi aðila. Ráðstöfun þessa hluta aflaheimilda verði tekin til endurskoð- unar áður en 20 ára fyrningartímabilinu lýk- ur,“ segir í séráliti Árna Steinars. Álit Árna Steinars Jóhannssonar Aflaheimildir fyrndar um 5% á hverju ári JÓHANN Ársælsson, fulltrúi Samfylking-arinnar í endurskoðunarnefndinni umfiskveiðistjórnunarkerfið, leggur til í séráliti sínu, að hluti veiðiheimilda verði inn- kallaður árlega og þeim breytt í hlutdeild- arsamninga. Jafnframt verði öllum gefinn jafn réttur til að keppa um þessi réttindi á mark- aði og opna þannig fyrir nýliðun í greininni. Tillaga Jóhanns er svohljóðandi: „Til nýt- ingar á tímabili fiskveiðiáranna 2002-2003 til og með 2007-2008 verði gefnir út og seldir á opnum almennum markaði samningar um aflahlutdeild sem svarar til 5% allra afla- hlutdeilda hvert ár. Lagt er til að samningarnir verði til 5 ára og að meirihluti nefndarinnar falli frá þeim hugmyndum um veiðigjald sem nú liggja fyr- ir. Á fyrrnefndu tímabili fái handhafar þeirra aflahlutdeilda sem ekki hafa áður verið gerðir samningar um til sín andvirði samninganna en andvirði endurseldra samninga falli til rík- issjóðs.“ Fyrirætlun stjórnvalda að festa einokunina í sessi Í greinargerð Jóhanns vegna lokanið- urstöðu nefndarinnar segir hann að þverklofin sáttanefnd færi þjóðinni ekki friðsamlega lausn á miklu deilumáli. ,,Eftir hin miklu lof- orð til kjósenda um sættir í þessu stórmáli eru þær fyrirætlanir stjórnvalda að festa einok- unina í sessi og gefa handhöfum kvótans enn meira frelsi til að fara með auðlind þjóð- arinnar sem sína eign orðin ljós. Þær eru ótrúlegar, jafnvel frá þeim sem nú fara með völdin, og munu enn auka þær hatrömmu deil- ur sem staðið hafa um þetta mál. Það eru mikil vonbrigði að sjá starf þess- arar nefndar bíða skipbrot vegna þess að ekki reyndust innistæður fyrir þeim loforðum um sættir sem forystumenn stjórnarflokkanna gáfu í aðdraganda síðustu kosninga. Þegar upp er staðið frá þessu starfi er ljóst að meiri- hlutinn hefur leitað sátta sem forystumenn LÍÚ vildu una við en ekki þjóðin,“ segir í greinargerð Jóhanns. Hann segir ennfremur að nefndin hafi rætti ítarlega um aðferð við innköllun veiðiheimilda sem felist í gerð aflahlutdeildarsamninga sem yrðu skilgreindir í magni, umfangi og tíma og skilyrtir ákveðnum reglum. Breið samstaða hafi virst í nefndinni um að þetta væri vænleg leið til að leysa mörg vandamál sem fylgja þeim óljósu réttindum sem útgerðarmenn sem nýtendur auðlindarinnar og þjóðin sem eig- andi hafi í núgildandi fyrirkomulagi. En einn- ig gefi slík breyting færi á að taka skref til að koma á jafnrétti til aðgangs að þessari auðlind í framtíðinni. Tilraun til sátta „Þegar á átti að herða kom það í ljós að meirihlutinn vildi afhenda handhöfum kvótans þessa samninga og viðhalda þeim einok- unarrétti til framtíðar sem þeir hafa nú. Þeg- ar því var hafnað hljóp meirihlutinn frá um- ræðunni um hlutdeildarsamningana. Allar umræður um innköllun veiðiheimilda sem jafn réttur yrði til að nýta í framtíðinni strönduðu á þeirri afstöðu meirihlutans að líta beri á þá breytingu sem skatt á útgerðina sem hún þoli ekki. Undirritaður gerði úrslitatilraun til sátta með því að bera fram meðfylgjandi tillögu á síðasta fundi nefndarinnar. Tillagan er um að farin verði leið aflahlutdeildarsamninga og fel- ur það í sér til viðbótar að útgerðarmenn fengju alla þá fjármuni til sín sem inn kæmu fyrir fyrstu sölu slíkra samninga á næstu 6 ár- um. Þessi leið, innköllun veiðiheimilda og breyting þeirra í aflahlutdeildar- samninga sem yrðu seldir á markaði þar sem jafnræði ríkir, fellur vel að tillögum Samfylkingar til breytinga á lögunum um stjórn fiskveiða,“ segir í greinargerð Jóhanns. Álit Jóhanns Ársælssonar Hluti veiðiheimilda verði innkallaður árlega ÁRNI Mathiesen sjávarútvegsráð- herra segist vonast eftir að tillögur meirihluta endurskoðunarnefndar- innar njóti stuðn- ings meirihluta Alþingis. Hann stefnir að því að leggja fram frum- varp um breyt- ingar á lögum um stjórn fiskveiða á haustþinginu og að það verði af- greitt fyrir ára- mót. „Álit meirihlutans er í öllum meg- inatriðum í samræmi við skýrslu auð- lindanefndar og aðra þeirra tveggja leiða sem auðlindanefnd náði sam- eiginlegri niðurstöðu um að mæla með. Það finnst mér mjög jákvætt og mun auðvitað leiða til þess að unnið verði í þeim farvegi. Það voru allir nefndarmenn að vinna að tillögum til ráðherrans og því ástæðulaust að fullyrða um það fyrirfram að það verði ekki eitthvað tekið tillit til sjón- armið þeirra sem voru í minnihluta. Ég geri hins vegar ráð fyrir að það frumvarp sem ég kem til með að leggja fram í haust verði í meginat- riðum í samræmi við það sem auð- lindanefnd og meirihluti endurskoð- unarnefndar lagði til.“ Auðlindanefnd lagði til að sjávar- útvegurinn greiddi allan kostnað við rannsóknir og eftirlit. Kristinn H. Gunnarsson hélt því fram í gær að þessi kostnaður væri 3,3 milljarðar, en endurskoðunarnefndin er að leggja til lægra gjald. Árni var spurður hvort þarna væri ekki ósam- ræmi. „Það hefur víða komið fram að það er hægt að skilgreina þennan kostn- að á marga vegu. Ég tel að þessi skil- greining sem meirihlutinn er með sé skynsamleg og réttlát. Ef við færum í einhverja víðari skilgreiningu vær- um við að leggja til meiri gjöld á sjáv- arútveginn en á aðrar atvinnugrein- ar. Það má jafnvel færa rök fyrir því að við séum að gera það ef við förum eftir þessum tillögum. Í þeim er gert ráð fyrir að gjaldið dekki eftirlits- kostnaðinn hjá Fiskistofu og rann- sóknarkostnaðinn hjá Hafrann- sóknastofnun, auk fjárfestinga sem stofnanirnar þurfa að ráðast í. Til viðbótar kemur til afkomutengt gjald sem er þá sýnilegur hluti í auðlinda- rentunni þó að hún sé illskilgreinan- leg eins og kom fram í skýrslu auð- lindanefndar. Það er hins vegar verið að reyna að nálgast þennan þátt sem ég held að sé rétt. Ég á von á því að greinin geti í framtíðinni staðið undir þessu. En auðvitað þarf hún aðlög- unartíma. Við vitum að staða sjáv- arútvegsins í dag er ekkert sérstak- lega góð þó að svo virðist miðað við framlegðina á fyrri hluta ársins að gjaldið hefði verið ríflega tveir millj- arðar ef það hefði verið lagt á í ár.“ Gjaldtaka kallar á hagræðingu og fækkun starfa Endurskoðunarnefndin leggur til að svigrúm til framsals verði aukið, en sjómenn hafa lagt áherslu á að þrengja það til að koma í veg fyrir það sem þeir kalla kvótabrask. Árni sagðist gera sér grein fyrir að þetta væri umdeilt. „Meirihlutinn leggur þetta til til þess að auðvelda greininni að hag- ræða og auðvelda henni að vera í stakk búin að greiða gjaldið. Jafn- framt telur nefndin að þessar hömlur hafi leitt til þess að það væri erfiðara en ella fyrir nýja aðila að koma inn í greinina. Nefndin telur að þetta skref gæti orðið til þess að auðvelda mönnum það. Ég held hins vegar að það verði alltaf erfitt að búa þannig um hnútana að nýliðun geti gengið hratt fyrir sig í grein þar sem við er- um að reyna að minnka afköstin ef svo má segja.“ Nefndin leggur til að fjármagn verði lagt til atvinnuuppbyggingar á landsbyggðinni. Árni sagði að ákvörðun um þetta yrði tekin á fjár- lögum hverju sinni. „Ég geri ráð fyrir að þessi niður- staða verði stefnumarkandi fyrir framtíðina hvað þetta varðar. Þetta sýnir þá hugsun að það beri að gæta hagsmuna byggðanna þegar svona miklar breytingar eru gerðar. Það að leggja gjald á sjávarútveginn kallar á hagræðingu og leiðir til þess að störf- um mun fækka. Sjávarútvegurinn er atvinnugrein byggðanna og þess vegna verðum við að koma með ein- hverjar aðgerðir sem vega þar upp á móti,“ sagði Árni. Vonast eftir að þingmeiri- hluti sé fyrir tillögunum Árni Mathiesen HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra segir að veruleg andstaða hafi komið fram við fyrningarleið í nefnd sem vinnur að endurskoðun á sjávarútvegs- stefnu Framsókn- arflokksins. Hann segist hafa gengið opnum huga til þessarar umræðu og alls ekki hafa útilokað fyrning- arleið. Það gangi hins vegar ekki að láta sjávarútveginn greiða skatta sem engin leið sé að hann geti staðið und- ir. „Á flokksþingi Framsóknarflokks- ins í vor var ekki gert upp á milli þess að fara veiðigjaldsleið eða fyrningar- leið. Sérstakri nefnd var falið að vinna að málinu innan flokksins og hún hef- ur nú þegar unnið mikið starf undir forystu Jóns Sigurðssonar. Mín af- staða hefur verið sú að það komi til álita að fara báðar þessar leiðir svo lengi sem rekstrargrundvöllur sjáv- Veruleg and- staða við fyrn- ingarleið innan flokksins Halldór Ásgrímsson Halldór Ásgrímsson Árni Mathiesen

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.