Morgunblaðið - 26.09.2001, Síða 15

Morgunblaðið - 26.09.2001, Síða 15
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2001 15 Ingibjartur Jóhannesson keypti síðastliðið vor eignir í Eyrarvík, en þar var í eina tíð m.a. síldarverk- smiðja. Þar hefur hann komið sér fyrir og smíðar einbýlishús innan- dyra, en húsið sem flutt var í vik- unni er annað húsið sem þar er smíðað. Ingibjartur sagði að bygging- artíminn á húsunum væri um 6 vik- ur, en alls vinna fjórir menn við NÍTÍU fermetra íbúðarhús var á dögunum flutt í tvennu lagi frá Eyrarvík í Hörgárbyggð þar sem það var smíðað og til Sauðárkróks. Þar verður húsið sett niður, en það var smíðað fyrir Búhöld, félag aldraðra á Sauðárkróki. Um er að ræða annan helming parhúss en hinn var smíðaður í Búðardal. Á milli húsanna er svo fyrirhugað að reisa bílskúra. smíðina auk þess sem rafvirkjar og fleiri iðnaðarmenn leggja sitt af mörkum. „Húsin eru nánast fullfrágengin þegar við afhendum þau, en þessi skammi bygging- artími er mikill kostur að margra áliti,“ sagði Ingibjartur. Frá því menn taka ákvörðun um kaup á húsi af þessu tagi sagði hann að einungis liðu tveir mánuðir þar til það stæði fullbúið. Annar góður kostur við umrædd hús er að hans sögn sá að unnt er að flytja húsin með sér hvert sem er. „Við teljum að þessi hús henti sérlega vel fyrir þá sem eru ekki alveg ákveðnir í að setjast að á til- teknum stöðum. Kjósi þeir að flytja sig um set er lítið mál að taka hús- ið upp og færa milli staða. Svona hús eru til að mynda upplögð til sveita.“ Ingibjartur er í samvinnu við Parhús í Búðardal um smíði þess- ara húsa, en alls hafa 8 slík verið smíðuð. Verksmiðjan í Eyrarvík er um 900 fermetrar og er hátt til lofts og vítt til veggja. Ingibjartur sagði möguleika á margvíslegri starf- semi tengdri smíðunum vera þar fyrir hendi. Þannig ætlar hann síð- ar að koma sér upp vélum til smíði innréttinga en þær bíða í gámum utandyra. Nýtt líf í gömlu síldarverksmiðjunni í Eyrarvík Morgunblaðið/Kristján Það þurfti mikla lagni við að koma einingunum út enda hurðagatið litlu stærra en þær. Hús smíðuð innandyra MENNINGARMÁLANEFND samþykkti á síðasta fundi sínum að skipa vinnuhóp til að vinna upp til- lögur um uppbyggingu og staðsetn- ingu Náttúrugripasafnsins á Akur- eyri. Á fundinum var rætt um hús- næðisvanda safnsins en bæjarráð hafði vísað málinu aftur til menn- ingarmálanefndar til frekari vinnslu. Í byrjun ágúst á næsta ári eru 50 ár liðin frá því Náttúrugripasafnið var opnað. Í um eitt ár hefur safnið hins vegar verið geymt í pappa- kössum og í geymslu úti í bæ, eða frá því að safnið fór úr Hafnar- stræti 81, þar sem Tónlistarskólinn þurfti það húsnæði. Vel var gengið frá munum safnsins og m.a. voru uppstoppaðir fuglar saumaðir niður í pappakassa. Til stóð að flytja safnið í Krónuna í göngugötunni árið 1996 og færa það til nútímalegra horfs en það húsnæði var þá ekki tilbúið. Náttúrufræðistofnun hefur ann- ast daglegan rekstur Náttúrugripa- safnsins fyrir hönd bæjarsins und- anfarin ár, samkvæmt samningi ríkisins og Akureyrarbæjar og er stefnt að því að svo verði áfram. Heldur er farið að þrengja að Nátt- úrufræðistofnun í Krónunni. Stefnt er að því að stofnunin flytji í vænt- anlegt rannsóknarhús Háskólans á Akureyri en hvenær af því verður er óljóst á þessari stundu. Hins vegar er það talið æskilegt, sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins, að Nátturgripasafnið verði í sama húsnæði í framtíðinni og Ak- ureyrarsetur Náttúrufræðistofnun- ar. Á fundi menningarmálanefndar var jafnframt lagt fram bréf frá safnstjóra Minjasafnsins um hús- næðismál Atvinnuminjasafns. Þar kom m.a. fram eindreginn vilji stjórnar safnsins fyrir því að At- vinnuminjasafni á Akureyri verði úthlutað verkstæðishúsi umhverfis- deildar á Krókeyri þegar það losn- ar. Menningarmálanefnd tekur und- ir óskir safnstjórnar og beinir þeim tilmælum til bæjarráðs að Atvinnu- minjasafni verði úthlutað verkstæð- ishúsi umhverfisdeildar á Krókeyri ásamt lóð undir útisýningar þar. Húsnæðismál Náttúrugripasafns til umfjöllunar í nefnd Safnið geymt í pappa- kössum í heilt ár AKUREYRINGAR eiga tvö lið, Þór og KA, í efstu deild Íslands- mótsins í handknattleik en keppni í deildinni hófst einmitt í gær- kvöld. Í bikarkeppni HSÍ munu Akureyringar hins vegar tefla fram þremur liðum í karlaflokki, því handboltafélagið Peran hefur sent inn þátttökutilkynningu í bik- arkeppnina. Eigandi og aðalstjórnandi Per- unnar er Gestur Einarsson en hann gaf út blað með samnefndu nafni á sínum framhaldsskólaár- um og fannst nafnið einnig hæfa handboltaliði sínu vel. Gestur sagði að markmið félagsins væri að hafa gaman af hlutunum, auk þess að vinna hvern leik. Hann sagði að óskamótherji liðsins í 1. umferð bikarkeppninnar væru Ís- lands- og bikarmeistarar Hauka úr Hafnarfirði. 180 kg leikmaður í liðinu Um 20 manns æfa með félaginu, aðallega vinnufélagar og hafa þeir flestir leikið handbolta áður. Þekktasti leikmaður liðsins er trú- lega kraftakarlinn Torfi Ólafsson, sem staðið hefur á verðlaunapalli í fjölmörgum kraftakeppnum í gegnum tíðina og bar m.a. titilinn Sterkasti maður Íslands árið 1998. Nafn hans var jafnframt það eina sem blaðamaður Morgunblaðsins mátti nefna og eða mynda á æf- ingu, þar sem aðrir leikmenn liðs- ins væru leynivopn. Torfi, sem er stór og stæðilegur og rétt 180 kg að þyngd, sagði að það hefði vant- að einhvern jaxl í vörnina og því hafi hann slegið til. Hann hefur þó ekki leikið handbolta síðan í þriðja aldursflokki með Leikni í Breið- holti fyrir rúmum 20 árum. „Mað- ur er nú þannig í vextinum að geta leikið flestar stöður á vellinum.“ Heimta alltaf á mig ruðning Torfi sagði að það yrði tekið hraustlega á því í komandi bikar- leik og að sér kæmi ekki á óvart þótt eitthvað yrði um að hann væri rekinn út af í 2 mínútur. „Strák- arnir hafa verið að kvarta undan mér á æfingu og heimta alltaf ruðning á mig. Þeir vita ekki hversu þungur ég er og auðvitað þarf eitthvað til að stöðva þessi 180 kg. Ég hef líka bent þeim á að færa sig frá í vörninni þegar ég sæki að þeim í stað að vera alltaf að heimta ruðning.“ Gestur sagði að handknattleiks- íþróttin hafi átt undir högg að sækja síðustu ár en að það væri ekki síður gaman að leika sér í handbolta og t.d. fótbolta. Peran æfir þrisvar í viku, bæði í Íþrótta- höllinni og KA-heimilinu en æf- ingarnar eru mjög seint á kvöldin og þá í tímum sem aðrir íþrótta- menn hafa lítinn áhuga á. Morgunblaðið/Kristján Torfi Ólafsson, leikmaður Perunnar, gerir sig líklegan til að skjóta að marki á æfingu í vikunni. Handknattleiksliðið Peran tekur þátt í bikarkeppni HSÍ Haukar óskamótherji í 1. umferð SÍÐASTI stórleikurinn í knatt- spyrnu á þessu keppnistímabili er bikarúrslitaleikur KA og Fylkis, sem fram fer á Laugardalsvellin- um laugardaginn 29. september nk. kl. 14.00. KA-menn hafa ákveðið að efna til hópferða frá Akureyri á leikinn, bæði í flugi og á hópferðabílum. Rútur frá SBA-Norðurleið fara frá KA-heimilinu föstudaginn 28. september kl. 16.00 og norður aft- ur strax að leik loknum. Verð er 3.500 krónur og fer skráning fram í KA-heimilinu. Einnig er hægt að panta flug hjá Flugfélagi Íslands vegna leiksins og kostar flugmiðinn fram og til baka 10.030 krónur og þarf að taka fram að flug sé pantað vegna leiksins. Stuðningsmenn KA ætla að hita upp fyrir leikinn og hittast á veitingastaðnum Öl- veri í Glæsibæ á laugardaginn kl. 11.00 en þaðan verður haldið í skrúðgöngu niður á Laugardals- völl kl. 12.45. Forsala á leikinn er í Veganesti og KA-heimilinu á Akureyri og á Esso-stöðvum í Reykjavík. Hópferðir á bikarúr- slitaleik KA og Fylkis

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.