Morgunblaðið - 26.09.2001, Síða 37
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2001 37
Reiðfatnaður í
miklu úrvali frá
FREMSTIR FYRIR GÆÐI
SPENNAN er tvíþætt þegarhryssur eru ómskoðaðar úrstóðhestagirðingum, annars
vegar er það eftirvænting og von
hryssueigandans um fyljun hryss-
unnar og svo hins vegar spurningin
hvernig stóðhesturinn stendur sig,
m.ö.o. hver verður fyljunarprósentan.
Þessi nýi spennuþáttur er tilkominn
með ómskoðunartækninni og hefur
valdið straumhvörfum í hrossarækt-
inni. Sérstaklega á það við um þegar
hryssum er haldið í maí eða júní en þá
er hægt að fá upplýsingar í tíma um
hvort hryssan hefur fengið eður ei og
þá hægt að gera ráðstafanir til að
koma henni aftur undir hest.
Það voru hestamenn víða að sem
voru samankomnir í girðingunni í
Fellsöxl við norðanvert Akrafjall á
sunnudagsmorgun. Voru hryssurnar
teknar á kerrur og þeim ekið upp í
Leirársveit að Vestri-Leirárgörðum
þar sem ómskoðunin var framkvæmd
af Hildi Eddu Þórarinsdóttur dýra-
lækni en Marteinn Njálsson og Dóra
Líndal, bændur á staðnum, sáu um
pappírsvinnuna sem orðin er allnokk-
ur í kringum hið mikla skýrsluhald
sem fylgir metnaðarfullri hrossarækt
í dag. Marteinn er gjaldkeri Hrossa-
ræktarsambands Vesturlands en
bæði Oddur og Kolfinnur eru að hluta
í eign sambandsins.
Það var í hesthúsinu að Vestri-Leir-
árgörðum sem spennan ríkti og hver
hryssan á fætur annarri fór í básinn til
Hildar Eddu. Vel mátti sjá að talsverð
eftirvænting ríkti þegar ómmúsin var
komin inn í hryssurnar. Þegar skoð-
unin var komin vel af stað voru báðir
klárarnir í 50% en Marteinn tók fram
að illa hefði gengið með Odd síðustu
árin, hann hefði alltaf verið í kringum
helmingsfyljun, alveg sama hversu fá-
ar hryssur hefðu verið hjá honum. Nú
voru þær aðeins sjö í seinna gangmáli
og sagðist Marteinn sáttur ef fjórar
reyndust með fyli.
Halldór Gunnarsson, bóndi í Gils-
fjarðarmúla, var með jarpskjótta
hryssu, Upplyftingu undan Sörla frá
Sauðárkróki, hún hafði verið hjá Kol-
finni og augnabliki áður en röðin kom
að henni sagðist Halldór ekki í vafa
um að hún væri með fyli. „Hryssur
sem ekki eru með folald með sér eiga
alltaf betri möguleika en hinar og þar
fyrir utan hefur hún aldrei klikkað,“
sagði Halldór með heimspekilegri ró
um leið og hann teymdi Upplyftingu
yfir í skoðunarbásinn. Og ekki var að
sökum að spyrja, fylið á réttum stað,
og Halldór skaut inn í að hér kæmi
vel ættað folald því ekki væri amalegt
að eiga Hrafn frá Holtsmúla og Sörla
frá Sauðárkróki fyrir afa, þessa miklu
ættfeður.
Næst í básinn kom Sóla frá Lýt-
ingsstöðum í Holtum en sú er undan
Fáki frá Akureyri. Hún var í sinni
jómfrúrferð til stóðhests enda aðeins
fjögurra vetra gömul. Hún er í eigu
Guðrúnar Eiríksdóttur og Helga
Óskarssonar sem bæði voru viðstödd
og glöddust mjög að lokinni skoðun.
Og þegar hér var komið við sögu var
Kolfinnur farinn að rétta nokkuð við í
fyljunarhlutfalli. Marteinn gat þess
að hann hefði alltaf verið með um og
yfir 70% fyljunarhlutfall. Á fyrra
gangmáli skilaði hann 75% hlutfalli
og vonaðist hann til að það stæði svip-
að nú að loknu seinna gangmáli.
Styrkjum rýmið með Kolfinni
Guðjón Sigurðsson frá Kirkjubæ
var sjálfur með eina hryssu, að vísu
ekki rauðblesótta af Kirkjubæjarkyni
heldur brúna hryssu, Sylgju frá Ból-
stað. Halldór sonur hans hafði keypt
hana þaðan en Guðjón segist að sjálf-
sögðu hafa keypt hana af stráknum
þegar hann sá hversu góð hún var.
Þegar Guðjón var spurður hvað
Kirkjubær væri að sækja til Kolfinns
setti hann upp sakleysissvip og sagð-
ist ekki vita það. „En svona í alvöru,
ætli það sé ekki rýmið. Við höfum
hinsvegar nóg af því í Kirkjubæjar-
hrossunum en eigum við ekki að
segja að við séum að styrkja það?
Hinsvegar hefur okkur fundist Hrafn
frá Holtsmúla blandast vel í hrossin
okkar. En auðvitað hrífst maður af
þessum ógnarkrafti og tilþrifum sem
Kolfinnsafkvæmi hafa sýnt, saman-
ber Flygill frá honum Marteini, og
ætli það sé ekki það sem freistar okk-
ar,“ segir Guðjón og á þar við stóð-
hestinn Flygil frá Vestri-Leirárgörð-
um sem sló svo eftirminnilega í gegn
á landsmótinu í fyrra. Hann segist
hafa farið með Sylgju til Kolfinns í
fyrra en fengið hana tóma svo nú væri
að reyna aftur og auðvitað lukkaðist
það að þessu sinni. Einnig var
rauðblesóttri Kirkjubæjarhryssu,
Brellu, haldið undir hann í fyrra og
gaf hún rauðblesótt folald í sumar.
Í ár kostaði 40 þúsund krónur undir
Kolfinn en ef hryssurnar voru tómar
þurfti aðeins að greiða 10 þúsund
krónur sem var ómskoðun og girð-
ingagjaldið. Einn aðili greiddi þó hærri
upphæð því einn tollur var seldur á
uppboði til styrktar íslenska landslið-
inu sem keppti á heimsmeistara-
mótinu í sumar. Jakob S. Þórarinsson
hafði með þá hryssu að gera þótt ekki
ætti hann hryssuna heldur var það vin-
ur hans sem hafði lagt svo drjúgan
skerf til landsliðsins. „Gott málefni að
styrkja,“ sagði Jakob sem var mjög
létt fyrir hönd vinar síns en ekki eins
ánægður með að tvær aðrar hryssur
sem hann sótti voru báðar geldar og
þótti honum það heldur lélegt að
sækja þrjár hryssur með einu fyli.
Guðný Ívarsdóttir frá Flekkudal í
Kjós var með tvær hryssur hjá Kol-
finni og óttaðist ekki fyrirfram að
fara erindisleysu. „Hef alltaf verið
heppin í þessum efnum,“ sagði hún og
brosti enda fór hún með 100% heimt-
ur heim ef svo má að orði komast og
var hún að vonum ánægð með ferðina
í Leirársveitina.
Kolfinnur var tekinn úr hryssunum
átján dögum fyrir skoðunina en það
er gert til að tryggja betra öryggi óm-
skoðunarinnar, að sögn Hildar Eddu
dýralæknis. Hún sagði fóstrin vel
greinanleg þegar þau væru orðin
átján daga gömul og því ætti niður-
staðan að vera örugg. Ef hestarnir
eru hafðir í hryssunum fram að skoð-
un er greining á þeim hryssum sem fá
innan þessa tíma ekki örugg.
Kringla með fyl að lokum
Kolfinnur var ekki alveg verkefna-
laus þótt formlega hafi hann lokið
störfum þetta árið því hjá honum
voru ennþá fjórar hryssur í túninu í
Vestri-Leirárgörðum og þar á meðal
var sú fræga hryssa Kringla frá
Kringlumýri sem var hjá honum
fyrra gangmál en reyndist fyllaus og
fékk hún að vera áfram hjá honum
seinna gangmál. Og víst er að mörg-
um hefur létt þegar Kringla var skoð-
uð því hún reyndist með fyli. Það er
alltaf meiri skaði þegar þekktar úr-
valshryssur reynast geldar og því
verða þessi tíðindi að teljast mikið
gleðiefni, ekki hvað síst fyrir Sigurð
Sigurðarson, annan eiganda Kringlu
sem á leikinn þetta árið. Fylið reynd-
ist að sögn Hildar Eddu átján daga
gamalt sem þýðir að hún hefur fengið
daginn sem Kolfinnur var tekinn úr
hryssunum. Og þá vita hestamenn
það að innan sex ára ætti að vera
kominn fram á sjónarsviðið vonandi
mikill gæðingur undan Kolfinni og
Kringlu. Undir Kringlu gengur
hestfolald undan Orra frá Þúfu sem
er í eigu Ernis Snorrasonar þannig að
innan fimm ára ætti sá að vera kom-
inn fram á sjónarsviðið en svona
ganga nú hlutirnir seint fyrir sig í
hrossaræktinni. Lokastaðan hjá þeim
Oddi og Kolfinni var sem sagt sú að
fjórar af þeim sjö hryssum sem hjá
Oddi voru reyndust fyljaðar og skilar
hann þar með 75% fyljun sem þykir
gott, að sögn Marteins. Kolfinnur var
aftur heldur lægri en hann hefur ver-
ið, var með 65% fyljun sem er heldur
lægra en verið hefur undanfarin ár.
Hjá honum voru eins og áður sagði 28
hryssur sem er heldur fleira en fyr-
irhugað hafði verið.
Ómur af gæð-
ingum fram-
tíðarinnar
Spennuaugnablik hestamennskunnar eru
allnokkur. Hið nýjasta í þeim efnum er það
sem kalla má ómskoðunarspennu þegar
hryssueigendur sækja hryssur sínar eftir að
þær hafa dvalið hjá eðalbornum stóðhestum.
Ómskoðunin úrskurðar um hvort menn hafa
fengið fyl í hryssu sína eða farið bónleiðir til
búðar. Valdimar Kristinsson fylgdist með
þegar hryssur frá Kolfinni frá Kjarnholtum
og Oddi frá Selfossi voru skoðaðar.
Jakob Þórarinsson réttir gjaldkeranum Mar-
teini pappír sem er ígildi greiðslu fyrir dýrasta
tollinn hjá Kolfinni þetta árið og sem betur fer
reyndist hryssan með fyli.
Skyldustörfum hjá Kolfinni er ekki alveg lokið þótt komið sé haust og má sjá í Kringlu frá Kringlumýri sem
reyndist komin með 18 daga gamalt fyl þegar myndin var tekin.
„Hér sérðu eina með 130 í bluppi undan Orra frá Þúfu og
folaldið sem gægist á bak við móðurina er undan Suðra
frá Holtsmúla,“ sagði sérlegur fulltrúi Holtsmúlabúsins,
Viðar Sæmundsson.
Hildur Edda Þórarinsdóttir dýralæknir leitar grannt eftir
folaldi í einni af hryssunum sem voru hjá Kolfinni.
„Efast ekki eitt augnablik um að báðar séu fylfullar,“ sagði
Guðný í Flekkudal og það reyndist rétt.
Brosið lét ekki á sér standa hjá Helga og Guðrúnu þegar
Edda dýralæknir flutti þeim gleðitíðindin.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson