Morgunblaðið - 26.09.2001, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2001 39
Ævintýri ofar veruleika
Framhalds -ferðasaga frá Thailandi
Við vorum ekki sein á okkur að grípa tækifærið, þegar
Ingólfur í Heimsklúbbnum auglýsti ferð um Thailand með
nýju sniði, sem veitir innsýn í allt landið frá höfuðborginni
Bangkok, norður um hrísgrjónadalinn, Flotmarkaðinn
stóra í Damnern Saduak, til brúnnar frægu yfir RIVER
KWAI, um yndisfögur héruð full af gróðri, fornminjum
og fagurri list. Margt af því sem fyrir augu hefur borið
þessa síðustu daga er svo ótrúlegt að aldrei gleymist.
Fyrstu 3 næturnar gistum við í Bangkok á frábæru 5
stjörnu hóteli, Montien á bakka sjálfs Kóngsfljótsins, í
gær í litlu heillandi sveitaþorpi við Kwai fljótið, en núna
búum við alveg konunglega á Thani hótelinu í fallegri
borg, sem heitir Phitsanuloke. Hér í kring er margt furðu-
legt og fagurt, sem við kynnumst betur á morgun á leið
okkar í „Sögugarðinn“ fræga í SUKUTAI, sem er sérstakt
verndarsvæði Sameinuðu þjóðanna vegna listgildis og
sögu. Með okkur eru tveir frábærir fararstjórar, Steindór
og kona hans Hulda, en auk þess stórfróður og skemmti-
legur Thailendingur, Sam að nafni, sem er eins og alfræði-
orðabók. Þátttakendurnir í hópnum segja, að þeir hafi
aldrei kynnst öðru eins, nema í Ítalíuferðinni „Listatöfrar
Ítalíu“, þar sem Ingólfur var sjálfur við stjórnvölinn.
Ferðin til Thailands var miklu auðveldari en við höfðum
búist við, flogið með Flugleiðum til Kaupmannahafnar og
næstum beint áfram með THAI-flugfélaginu, þar sem
þjónusta og veitingar voru með meiri ágætum en við höfð-
um áður kynnst. Samkvæmt ráðleggingum fararstjóra
sváfum við mestalla leiðina og vöknuðum hress, snemma
morguns í Bangkok. Flestir voru til í að fara um hádegis-
bil að kynna sér hina fjölbreyttu borg, sem þykir einn
besti verslunarstaður í heimi, að ógleymdum matnum og
skemmtanalífinu. Talað var um að sumir herrarnir hafi
reynt að fara á mat- og skemmtistað, þar sem þeir þurftu
alls ekki að nota hendurnar, þjónustan var slík, að þeir
voru leiddir til borðs og veitt af rausn af hvers kyns krás-
um og drykkjum, án þess að þeir þyrftu að hreyfa legg né
lið! Ekki má heldur gleyma Thai-nuddinu, og hafa nokkur
hjón í hópnum nú þegar reynt það til fullkominnar slök-
unar fyrir svefninn, og mætt með sælubros á vör næsta
morgun! Dagarnir hafa verið viðburðaríkir og stór-
skemmtilegir. Ekki spillir fyrir, hve fararstjórunum hefur
tekist að hrista hópinn saman, svo að ósvikin gleði setur
mark á ferðina. Hjá okkur er fullt fæði innifalið á leiðinni
„norður í land“, og búið er að halda árangursríkt náms-
skeið í að borða með prjónum. Kínverska veislan á Mont-
ien Riverside hótelinu með 10 gómsætum réttum var sann-
kallaður mannfagnaður, þar sem Ingólfur var staddur og
heilsaði upp á hópinn. En segja má, að ferðin öll sé sam-
felld veisla fyrir skilningarvitin. Margir hafa tjáð sig um,
að þeir hafi ekki áður upplifað jafn vel skipulagða og
skemmtilega ferð. Það sem mest kemur á óvart í ferðinni
er ótrúleg fjölbreytni í landslagi, gróðri og listum, en ekki
síður kurteisi og ljúft viðmót fólksins. Hingað til hefur
hver dagurinn verið öðrum betri, svo að farþegar syngja
og leika við hvern sinn fingur. Í rauninni kemur allt hér á
óvart, hreinlætið alls staðar og vegakerfið til fyrirmyndar.
Hvaða hugmyndir hafa Íslendingar svo sem um Thailand?
Við hvetjum ykkur, sem þetta lesið, til að reyna svona
Thailandsferð með Heimsklúbbnum, meðan færi gefst.
F.h. okkar allra 39:
Ásgeir og Anna, Akureyri, Guðmundur og Rannveig,
Húsavík, Kristinn og Kristbjörg, Akranesi, Stefán Haukur
og Ásta, Ísafirði, Haraldur og Ólöf, Mosfellsbæ, Jónas og
Guðrún, Reykjavík, Þorkell og Málmfríður, Vest-
mannaeyjum , Kristján og Guðbjörg, Reykjavík.
Stóra Thailandsferðin II:
Endurtekin með brottför 24. okt. -
8 sæti laus. Síðasta ferð uppseld!
Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564,
netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is
Útnefnd í alþjóðasamtökin
EXCELLENCE IN
TRAVEL
NETWORK
fyrir frábærar ferðir
Suður-Ameríkudraumurinn
RIO DE JANEIRO - BUENOS AIRES- 12 D.-
ÖRFÁ SÆTI 14. NÓV.
INNLENT
HELGINA 28.–30. september verður
fræðslu- og fjölskylduferð í Þórsmörk,
sem skartar sínum fegurstu haustlit-
um þessa dagana.
Þeir sem standa að þessari ferð,
auk Ferðafélags Íslands, eru m.a.
Landgræðsla ríkisins, Skógrækt rík-
isins og Garðyrkjufélag Íslands. Dval-
ið verður í Skagfjörðsskála í Langadal
og hentar dagskrá helgarinnar ekki
síður börnum en fullorðnum, segir í
fréttatilkynningu. Í ferðinni verða sér-
fræðingar á sviði jarðfræði og land-
græðslu og skógræktar.
Í gönguferðum verður hugað að
sögu svæðisins, jarðfræði og lífríki
Þórsmerkur og birkifræi safnað, sem
síðan verður dreift á uppgræðslu-
svæði. Í fræðsluhorninu verður fjallað
um ýmislegt forvitnilegt í náttúrunni
og listasmiðja sett upp, þar sem þátt-
takendur geta tjáð sig í myndlist, telgt
í tré o.fl.
Á laugardagskvöld verður grill-
veisla og síðan kvöldvaka þar sem af-
rakstur dagsins verður ræddur og
ýmislegt gert sér til gamans. Nánari
upplýsingar fást hjá Ferðafélagi Ís-
lands.
Ljósmynd/Hjalti Kristgeirsson
Skagfjörðsskáli í
Langadal, Þórsmörk.
Fræðslu- og
fjölskylduferð
í Þórsmörk
Ráðstefna um
áhættu og
hættuleg efni
ALMANNAVARNIR á höfuðborg-
arsvæðinu efna til ráðstefnu undir
yfirskriftinni Áhætta – hættuleg efni
í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur
fimmtudaginn 27. september kl.
8.30–17.00.
Ráðstefnan er liður í gerð áhættu-
mats fyrir höfuðborgarsvæðið og
mun fjöldi þekktra sérfræðinga
fjalla um viðfangsefnið frá ýmsum
hliðum, segir í fréttatilkynningu.
Meðal annars verður fjallað um
hvernig draga má úr líkum á slysi
vegna geymslu, flutnings og notkun-
ar hættulegra efna og hvernig draga
má úr afleiðingum af slíku slysi.
Jafnframt verður fjallað um hvernig
skilgreina beri áhættu, hver sé við-
unandi áhætta og hvaða aðferðum
megi beita til þess að öðlast betri
vitneskju um áhættu á svæðinu.
Sigrún Árnadóttir, framkvæmda-
stjóri Rauða kross Íslands, stýrir
ráðstefnunni. Ráðstefnugjald er
5.000 krónur.
Fólk sem starfar
við almannatengsl
stofnar félag
STOFNFUNDUR fagfélags fólks
sem starfar við almannatengsl verður
haldinn í Norræna húsinu á fimmtu-
daginn kemur. Á fundinum verða lögð
fram lög félagsins og siðareglur, auk
þess sem stjórn og siðanefnd félags-
ins fyrir næsta ár verður kosin. Fund-
urinn hefst kl. 17:15 og er opinn þeim
sem starfa við almannatengsl. Að-
gangseyrir er 1.500 kr.
Undirbúningsfundur vegna stofn-
unar félagsins var haldinn 3. maí sl.
og var hann vel sóttur. Farið var yfir
markmið félagsins og kosin var 7
manna undirbúningstjórn. Hún hefur
í sumar og haust unnið að ýmsum
málum sem verða borin upp á fund-
inum, segir í fréttatilkynningu.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Barna- og
unglingakór
Víðistaðakirkju
Innritun fer fram í kirkjunni miðvikudaginn
26. og fimmtudaginn 27. september kl. 17—18.
Stjórnandi kórsins er Áslaug Bergsteinsdóttir.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Heiðarvegi
15, Vestmannaeyjum, fimmtudaginn 4. október 2001 kl. 9.30
á eftirfarandi eignum:
Boðaslóð 7, efri hæð, þingl. eig. Hreinn Sigurðsson, gerðarbeiðandi
Íslandsbanki-FBA hf.
Boðaslóð 7, neðri hæð, þingl. eig. Ágúst Ómar Einarsson, gerðarbeið-
andi Íbúðalánasjóður.
Brekastígur 31, kjallari, þingl. eig. Guðni Stefán Thorarensen, gerðar-
beiðandi Íbúðalánasjóður.
Brekkugata 1, rishæð, þingl. eig. Karl James Gunnarsson og Margrét
Birna Þórarinsdóttir, gerðarbeiðandi Vestmannaeyjabær.
Foldahraun 38, 1. hæð H, þingl. eig. Bjarni H. Baldursson, gerðarbeið-
andi Íbúðalánasjóður.
Hábær v/Ofanleitisveg, þingl. eig. Sigrún Harpa Grétarsdóttir og
Sigurður Örn Kristjánsson, gerðarbeiðendur Lýsing hf. og Vest-
mannaeyjabær.
Hólsgata 9, eingarhl. gerðarþola, 50% eignarinnar, þingl. eig. Hlöðver
Árni Guðmundsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn í Vestmannaeyj-
um.
Kirkjubæjarbraut 10, 1. hæð, þingl. eig. Halldóra Svavarsdóttir og
Sigurjón Ingvarsson, gerðarbeiðandi Vestmannaeyjabær.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum,
25. september 2001.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Brekastígur 10 (Hæli) austurhluti, eignarhluti gerðarþola, þingl. eig.
Jóhann Magnússon, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Selfossi, mið-
vikudaginn 3. október 2001 kl. 14.30.
Fjólugata 8, neðri hæð, þingl. eig. Guðmundur Jakob Jónsson, gerð-
arbeiðendur Íbúðalánasjóður og sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum,
miðvikudaginn 3. október 2001 kl. 15.00.
Vesturvogur 25b, kjallari, þingl. eig. Elfa Dögg Ómarsdóttir og Jóhann
Ágúst Tórshamar, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og sýslumaður-
inn í Vestmannaeyjum, miðvikudaginn 3. október 2001 kl. 15.30.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum,
25. september 2001.
Bílar — Útsala
Erum að selja notaða bíla: Toyota Corolla,
Toyota Yaris, Nissan Almera, Nissan Micra,
Suzuki Sidekick, Grand Vitara, Peugeot 106
o.fl. Gerið góð kaup.
Bílarnir eru til sýnis á SH bílaleigunni,
Nýbýlavegi 32, Kópavogi.
BÍLAR
KENNSLA
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 18 1829268 Fr.
GLITNIR 6001092619 I Fjhst.
I.O.O.F. 7 8.0.
I.O.O.F. 9 1829268½ 9.0.
HELGAFELL 6001092619 IV/V
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Háaleitisbraut 58—60.
Samkoma kl. 20.30. Margrét
Baldursdóttir og Haraldur Jó-
hannsson tala. Allir velkomnir.
sik.is .
Lifandi ferða- og félagsstarf:
Haustlitaferð í Bása — Goða-
land, 28.—30. sept.
Gönguferðir við allra hæfi. Besti
tíminn til að sjá haustlitadýrðina.
Góð gisting í Útivistarskálunum.
Pantið og takið miða strax.
Fyrsta myndakvöld vetrarins,
1. okt. í Húnabúð, Skeifunni
11, kl. 20.00.
Minnum á Útivistarræktina.
Sjá heimasíðu: utivist.is .
RAÐAUGLÝSINGAR