Vísir - 07.12.1979, Qupperneq 1
17 dagar
til jóla
„EKKI AUÐ-
VELTAD
HNÝTA SAMAN
KJARA-
SAMNINGA”
,,Það liggur I augum uppi að
það verður ekki auðvelt verk
að hnýta saman kjarasamn-
inga, þegar veröbólgan er
svona mikil”, sagði Þorsteinn
Pálsson, framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambands
tslands.
Allir kjarasamningar verða
lausir frá og meö áramótum
og Þorsteinn var spurður,
hvort hann byggist við striði á
vinnumarkaðnum.
„Ég vona, að það verði ekk-
ert strið og aö átökin verði i
lágmarki. En ég get litlu spáð
þar um því ASÍ hefur ekki sett
fram sinar kröfur endanlega,
en mun liklega gera það um
helgina. Atökin fara eftir þvi
með hvaða hugarfari gengið
er til samninga. Hvort menn
vilja vera samtaka um að ná
fram skynsamlegum samn-
ingum, sem ekki magna verö-
bólguna, eða hvort menn vilja
halda áfram á sömu braut og
hingaö til.
En þangaö til ASl hefur sett
fram sinar tillögur, þá biðum
viö bara átekta”. —ATA
FISKHEYSLA
f BANDARÍKJUNUM
Hefur ekkl enn komið niður á sölu flsks frá fslandi
■ Vart hefur orðið sölutregðu á freðfiski i Banda-
■ rikjunum undanfarið. Þessi tregða hefur enn ekki
komið niður á sölu freðfisks frá íslandi eftir þvi
sem Visir kemst næst. Ekki er talið að þetta muni
leiða til verðlækkunar á Bandarikjamarkaði en
litlar likur eru á verðhækkun i bráð.
Hjalti Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna sagði viö
Vísi i morgun að ekki hefði orðið
vart birgöasöfnunar hjá Cold-
water Seafood, dótturfyrirtæki
SH i Bandarikjunum.
Litlar birgðir væru af þorski
en meiri af karfa og ufsa. Hjalti
sagöi að alltþetta ár hefðu veriö
nokkru meiri birgðir af freöfiski
en I fyrra sem stafaði af stór-
aukinni framleiðslu.
Um siöustu mánaðamót haföi
SH flutt út yfir 100 þúsund tonn
af freðfiski en á öllu siðasta ári
voru flutt út um 85 þúsund tonn.
Orsakir þessarar sölutregðu
eru raktar til oliukreppunnar.
Fiskurinn er yfirleitt seldur I
motuneyti og veitingastaði en
litiö borðaöur i heimahúsum.
Minni umferð og bensinsparn-
aður hefur leitt til þess að fólk
fer sjaldnar út aö borða.
Þá er einnig meira framboö
nú en áður I Bandarfkjunum af
kjúklingakjöti og svinakjöti sem
kemur niður á fiskneyslu.
— KS
Glæsilegar kápur, jakkar, kjólar og dragtir ilr islenskri uil voru sýndar á Hótei Sögu I gær. Það voru uliarvöruútflytjendur sem kynntu vörur sin-
ar fyrir næsta ár. Þárna mátti sjá fallegar og vandaðar vörur, sem gefa ekkert eftir erlendum tiskuvörum og sanna þær ótrúlegu framfarir, sem
hafa orðið siðustu tiu árin i þessum iðnaði. Á myndinni sýna stúlkurnar úr Módel 79 dragtir frá Aiafossi hf. Vfsismynd JA.
SAMANBURÐURINN VIB SÓLSTÖDUSAMNINGANA:
KAUPMÁTTUR NÚ 6 PRÚSENTUM LÆGRI
,,A ráöstefnu I október, sem
haldin var til undirbúnings
kjaramálaráðstefnu ASl, var
það samþykkt að stefna að þvi
að altt launafólk sitji við sama
borð, hvað varöar félagsleg,
kjaraleg réttindi. Einnig var
samþykkt, að sameiginlega
skyldi gengið til samninga um
sameiginlegar kröfur”, sagði
Asmundur Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðusambands
islands, i samtali við Visi um
kjaramálaráöstefnu samtak-
anna sem haldin verður á
laugardag. Ráðstefnuna sækja
um hundrað manns.
1 samþykkt októberráöstefn-
unnar segir, að áhersla skuli
lögð á það að ná fram sama
kaupmætti og samið var um i
sólstöðusamningunum í júnl
1977. Verkalýðssamtökin Itreka
það, að krónutöluhækkun launa
er ekkert markmiö I sjálfu sér,
heldur kaupmátturinn. Kaup-
máttartrygging og atvinnu-
öryggi eru forgangskröfur, sem
hreyfingin mun fylgja fram af
fullri hörku.
Þá er lögö áhersla á hækkun
lægstu launa og aukin félagsleg
réttindi með samningum og
lagasetningu, m.a. breytingu á
lögum um atvinnuleysistrygg-
ingar.
Siðan októberráðstefnunni
lauk hafa nefndir unnið að
undirbúningi ýmissa mála-
flokka.
Umræöur hafa m.a. verið um
fyrirkomulag á verötryggingu
launa, þar sem farið hefur verið
yfir áhrif mismunandi aöferða.
Vísir aflaði sér upplýsinga um
breytingar á kaupmætti kaup-
taxta hjá verkamönnum frá þvi
I júni 1977 til siöasta árs-
fjórðungs I ár.
Kaupmátturinn er talinn um 6
prósent. lægri nú en 1977. Þá skal
ekki teklö tillit til „félagsmála-
pakkans”, en aöeins teknir
kauptaxtar eins og þeir liggja
fyrir og verðlagiö eins og þaö er
mælt 1 framfærsluvisitölu.
Ótal leiðir eru til, ef reikna á
út kaupmáttinn, en þetta dæmi
er aðeins tekið til að gefa ein-
hverja visbendingu. -KP