Vísir - 07.12.1979, Blaðsíða 3
•*>*•■* fv * f ♦ •
vísm
Föstudagur 7. desember 1979
3
Fjölvi teflir fram íslenskum úrvalsritum
myndskreytingu Sigrúnar Eldjárn
FJOLVI
FJÓLVI
Bílabullur eftir Þorstein \
Antonsson. \
Samfélagiö í borg og sjávar-
plássum lagt á skurðarborðið og
krufið. Það var ekkert meiral!
Síðustu fréttir:
i Hin langþráða Nútíma-listasaga
■ Fjölva er á leiöinni til landsins, kemur í
höfn um helgina. Kemur seint því hún
hefur lent í vegvillum í Alpafjöllum á
leiöinni frá Ítalíu, þar sem hún var
prentuð. Um tíma var hún með öllu
týnd, vissi enginn hvar hún var. Hún
kom í leitirnar, en virðist sem aðeins
brot af upplaginu komi til skila fyrir jól.
Tími fer nú í að skipa Nútíma-lista-
sögunni upp, ganga frá skjölum og
leysa hana út. Við biðjum fólk aö sýna
þolinmæöi og vera ekki alltaf að
hringja. Við gerum hvað við getum til
aö dreifa bókinni og mylgra henni
réttlátlega til útsölumanna.
Eftir sem áöur veröur hún á
lægra kynningarverði fram
til áramóta, um 28 þús. kr.
en hækkar síðan upp í
sennilega 34 þús. kr. i
Nútíma-listasagan rekur alla þróun !
og stefnur í myndlist á vorum dögum.
Kápumynd eftir Erró. Lang stærsta og
fegursta bók,sem Fjölvi hefur gefið út.
Öll glæsílega litprentuö spjaldanna
milli, svo slíkt hefur vart sést áöur.
Ferð undir fjögur augu eftir
Aðalstein Ásberg Sigurðsson.
Ungt og ferskt skáld í leit að tilver-
unni. Einhver sagði: Þetta er eins
og fegursti fuglasöngur.
FJÓLVI
FJOLVI
Týndir snillingar eftir Jón Óskar.
Átakanleg og hreinskilin frásögn
skálds af vegferð um villustíga og
pokuheióar stjórnmálanna.
Vorið hlær — Dætur Reykjavíkur
eftir Þórunni Elfu.
Skrautútgáfa á frægri sígildri ,
skáldsögu. Æskuminning frá M
Alþingishátíð, þegar afi og j'M
amma voru ung. /W
Fjölva-bækur eru í sérflokki
að gæðum og efnisinnihaldi
Vökunætur eftir séra Jakob.
Hér sameinast á undursamlegan
hátt nútímaljóðagerð og Ijóða-
háttur Biblíunnar.
FJOLVI
FJÓLVI
Döggslóð eftir Gylfa Gröndal.
Nýasta Ijóðabók vaxandi skálds
Ferskur og Ijóðrænn blær.
FJOLVI
Klapparstíg 16
Sími 26659
Með natni og þrotlausu starfi hefur Fjölvaútgáfan unnið sér sess sem ein vandvirkasta útgáfa
landsins. Fram til þessa einkum haslað sér völl á sviði fróðleiksrita og þekkingar.
Mikil ritverk Fjölva á sviði sögu, náttúrufræði, mannfræði og listaverkabækur, eru þjóðkunn.
En Fjölvi elur með sér ósk að þjóna skáldgyðjunni. Því hefur hann fyrir þessi jól færst meira í
fang og teflir nú fram 6 nýjum bókum eftir ísienska höfunda, skáldsögur, endurminningar,
Ijóðabækur. Forvitnileg verk ungra höfunda og skrautútgáfa Þórunnar Elfu með fagurri