Vísir - 07.12.1979, Page 4
VÍSIR
Föstudagur 7. desember 1979
4
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 112., 15. og 17. tbl. Lögbirtingablaös 1979 á
Hjallalandi 5, þingl. eign Kára Tyrfingssonar fer fram
eftir kröfu Landsbanka islands, Tryggingast. rfkisins og
Veödeildar Landsbankans á eigninni sjáifri mánudag 10.
desember 1979 kl. 11.00.
Borgarfógetaembœttiö i Reykjavlk.
Nauðungaruppboð
annaö og siöasta á hluta i Þórufelli 16, talinni eign Stein-
dórs Sigurjónssonar, fer fram á eigninni sjálfri mánudag
10. desember 1979 kl. 15.30.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annaö og siöasta á hluta 1 Ferjubakka 12, þingl. eign
Kristins Reynis Kristinssonar, fer fram á eigninni sjálfri
mánudag 10. desember 1979 kl. 16.30.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavlk.
Nauðungaruppboð
Þá veröa seldir eftirtaldir ótollafgreiddir munir. Privileg
frystikista, Privileg kæliskápur, Bosch frystikista og
Sharp hljómflutningstæki. Þessir munir eru nýir og veröa
TIL SÝNIS FRA KL. 13-14 UPPBOÐSDAGINN í TOLL-
VÖRUGEYMSLUNNI t KEFLAVÍK. Uppboösskilmálar
liggja frammi á skrifstofu uppboöshaldara. Greiösla fari
fram viö hamarshögg.
Uppboöshaldarinn I Keflavlk.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 118., 20. og 23. tbl. Lögbirtingablaðs 1979 á
v/b Arnarnesi EA-206, þingl. eign Baldurs Karlssonar, fer
fram eftir kröfu Arnar G. Hinrikssonar hdl. og Benedikts
Ólafssonar hdl. viö skipiö á Bátastöö Jóns Jónassonar
v/Geigjutanga mánudag 10. desember 1979 ki. 17.00.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annaö og siöasta á Flfuseli 8, þingl. eign Jóns Þorsteins-
sonar fer fram á eigninni sjálfri mánudag 10. desember kl.
10.30.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu innheimtumanns rikissjóös I Keflavlk, Jóns G.
Briem hdl., Arna Guöjónssonar hrl., Garöars Garöarsson-
ar hdl., Einars Viöar hrl., Hákons H. Kristjónssonar hdl.,
Hafsteins Sigurössonar hrl., Skarphéöins Þórissonar hdl.,
Agústar Fjeldsted hrl. og Baidvins Jónssonar hrl., veröur
uppboösréttur Kefiavikur settur á skrifstofu embættisins
aö Vatnsnesvegi 33, Kefiavik föstudaginn 14. des. nk. kl.
16.00. Þvl næst veröur rétti framhaidiö I TOLLVÖRU-
GEYMSLUNNI I KEFLAVIK, þar sem tekiö veröur fyrir
aö seija á nauöungaruppboöi bifreiöarnar:
P-1886, Ö-3469, Ö-5482, Ö-1425, 0-5211, Ö-5277, Ö-3945, ö-
1951, Ö-303, Ö-5199, R-43137, Ö-646, Ö-4536, Ö-4872, Ö-3595,
Ö-449, Ö-2095, Ö-749, Ö-3698, Ö-391, Ö-1556, X-1249, 0-1811,
Ö-1423, Ö-2014, Ö-4771, Ö-830, Ö-459, Ö-1226, Ö-432, Ö-3469,
Ö-3970, Ö-4001, Ö-1750, Ö-157, 0-4115, Ö-2008, Ö-5009, Ö-
1308. Ennfremur: Therma tonic örbylgjuofn, Lips hræri-
vél, sófasett, hljómflutningstæki, 2 stóla, Philips iitsjón-
varp, isskápa, Candy þvottavél og vökvapressu og
rafsuöuvél 'af Loke-gerö og handlyftara.
Dlaöburóarfólk
óskast!
-'LINDARGATA
Klapparstigur
AÐALSTRÆTI
Garöastræti
Hávallagata
Kirkjustræti
LANGHOLTSHVERFI
Laugarásvegur
Sunnuvegur
Kommúnista-Kína
hefur lært sína
kapítalísku lexíu
Rauöa-Kina hefur fariö inn á þá
braut aö hagnýta erlenda fjár-
festingu á ýmsan hátt til þess aö
flýta fyrir áætlunum um aö færa
atvinnuhættina til nýtiskulegri og
hagkvæmari vega.
Ein leiöin til þess er aö setja á
stofn fyrirtæki I hlutafélagsformi
meö kinversku og erlendu fjár-
magni og hafa veriö sett sérstök
lög til þess aö vernda fjárfest-
ingu, hagnaö og önnur réttindi,
sem hingaö til hafa fremur þótt
sjálfsögö I kapitallskum rlkjum
en kommúnistiskum.
I lögum, sem sett voru I júnl I
sumar fyrir ferö Hua formanns til
Vestur-Evrópu, var erlendu fjár-
magni greidd gatan inn I Klna.
Þau kveöa þó á um, aö erlend
fjárfesting I fyrirtækjum I Klna
skuli ekki vera minni en 25%, en
megi vel fara upp I 50%, 60% eöa
jafnvel enn hærrra. Starfsttmi
þessara fyrirtækja, sem stofnuö
verða I félagi viö erlenda aöila,
getur veriö tíu ár, tuttugu ár eöa
svo lengi sem um semst.
Þaö er tæknin, vélakosturinn og
hagræðingin, sem Kínverjarnir
eru fyrst og fremst aö sækjast
eftir aö flytja inn og sjá sér leik á
borði til þess aö laöa aö sér inn-
flutning á því sviöi meö þvi aö
greiöa götu aöila i tækniþróuöum
löndum til þess aö taka þátt i
rekstri fyrirtækja I Klna. —
Framleiösluvörur þessara fyrir-
tækja má svo selja á heimsmark-
aönum og heima I Klna.
Auk þess aö hafa „opnaö þann-
ig vesturgluggann” á kaupsýslu-
sviöinu hefur Kína snúiö sér aö
alþjóölegum bankaviöskiptum til
þess aö hagnýta sér einnig I gegn-
um bankana erlent fjármagn I þvi
skyni aö færa atvinnuvegina til
nútimalegri hátta. Klnabanki
hefur fært út kviarnar og sérhæfir
sig I alþjóðlegum fjármálaviö-
skiptum, en þó undir beinni um-
sjón rlkisstjórnarinnar.
Kinabanki hefur nýverið undir-
ritað lánasamninga viö banka I
Bretlandi, Frakklandi, Kanada
og Japan, en lánsfénu er varið til
kaupa á vélbúnaöi og ööru til
þarfa iönaöarins.
í mal voru tveir samningar
gerðir viö japanska banka. Annar
við Útflutnings- og innflutnings-
banka Japans um lán I japönsk-
um gjaldeyri sem samsvarar 2
milljörðum dollara, og á aö verja
þvi til rannsókna á kola- og oliu-
vinnslumöguleikum Kinverja.
Hinn var viö nokkra japanska
einkabanka til aö fjármagna
kaup á japönskum tækjakosti inn-
an hins japansk-kinverska versl-
anasamnings, sem á aö gilda til
langs tlma. Þar var um aö ræöa 6
milljarða dollara lánsfjárhæöir.
Auk þess hefur svo Kinabanki
veitt eins konar rikisábyrgö á
lántökum kinverskra fyrirtækja
varðandi meira en 1.000 viö-
skiptasamninga viö erlend fyrir-
tæki. Meöal þeirra er samningur
um kolavinnslu I Kina, þar sem
útlendingarnir ætla aö leggja til
tækjabúnaö og þiggja kol I staö-
inn. Annar samningur felur I sér
að erlend fyrirtæki leggi kin-
verskri útgerö til fiskiskip og
veiöibúnaö og fái greitt i sjávar-
afurðum. Þaö hafa jafnvel veriö
gerðir samningar á sviöi gisti-
húsarekstrar og feröamannaiön-
aöar.
Engin pólitísk skilyröi eru sett
fyrir þessum rikisábyrgöum eða
lántökumfyrirtækja.Vextir og af-
bcrgunarskilmálar fylgja venjum
á heimsmarkaðnum. Valdhafarn-
ir hafa þó lýst því yfir, aö þessar
erlendu f járfestingar og lántökur
veröi ekki látnar skaöa kinversk-
an sósialisma.
Einkarekstur I venjulegum
skilningi er ekki til I Kina, þvi aö
öll iönfyrirtæki og verslun voru
færö á hendi þess opinbera fyrir
rúmum tveim áratugum. Hinir
erlendu f járfestingaraðilar veröa
þvi aö ganga I félag viö kinverska
rikið I öllum tilvikum, og fyrir-
tækin heyra öll undir kinversk
lög.
Kinverjar telja sig þó hafa
tryggt fullkomlega rétt hinna er-
lendu aðila, svo aö þeir eftir aö
hafa fúllnægt skuldbindingum
geti flutt úr landi hreinan hagnaö
og aðra sjóöi I erlendum gjald-
eyri, sem tilgreindur er I hverjum
samningi.
í skýrslu, sem Hua Guo-feng
flutti þinginu um störf rikis-
stjórnarinnar, gat hann þess, að
tekin heföu veriö upp haganlegri
vinnubrögð I utanrlkisviöskiptum
til þess aö greiöa götu erlends
fjármagns samkvæmt „nýrri og
mikilvægri stefnu kinversku
stjórnarinnar”.
Tiltók hann tlu stefnumiö, sem
Pekingstjórnin ynni nú aö, og
þeirra á meöal var aö flytja inn
tæknikunnáttu, hagnýta vel er-
lent fjármagn og kappkosta aö
auka útflutning til þess aö efla
þjóðarbúskapinn.
Sem heföi getaö verið orörétt
upptekiö úr stefnu rlkisstjórnar
kapltalisks rikis.
BÖRNIN HRYNJA
NKIUR Á RARNA-
ÁRINU
„Aldrei hafa eins mörg börn
dáið og einmitt á þessu ári
barnsins”, sagði Walter
Bargatzky, forseti vestur-þýska
Rauða krossins, við fréttamenn i
Bonn i gær.
Hann nefndi engar tölur til
stuðnings þessari fullyröingu
sinni, en sagði, aö dánartala
flóttamannabarna i Asiu og
Afriku slægi öll fyrri met i barna-
dauða.
SK0ÐUN LURIE
„Hvernig gat yðar hátlgn
afhjúpað mig, listfræðing yðar.
sem sovéskan njósnara?”