Vísir - 07.12.1979, Síða 5
OPIÐ
730"
Shellstöðinni
v/Miklubraut.
VÍSIR
Föstudagur 7. desember 1979
ijGuömundur |i
iiPétursson
ilskrifar
Rísa gegn Khomelnl
Herskáir andstæöingar Khom-
einis viröast hafa náö á sitt vald
bænum Tabriz í norövesturhluta
Irans.
Þar eru á feröinni stuönings-
menn Kazem Shariat-Madari
æöstaprests, helsta keppinautar
Khomeinis um trúarleiösögn Ir-
ana.
Tóku þeir meö áhlaupi i gær-
kvöldi útvarps- og sjónvarpsstöö
héraösins og hófu þegar útsend-
ingar á yfirlýsingum, þar sem
sagöi, aö þeir gætu ekki sætt sig
viö stjórnanda, sem skipaöur
væri af Teheran. Þeir tækju enga
gilda nema þá, sem trúarleiötogi
þeirra skipaöi.
Landstjórinn, sem Khomeini
haföi sett yfir AzerbaijanTiéraö,
fór huldu höföi i gærkvöldi, meö-
an upphlaupsmennirnir leituöu
hans.
Dátar úr flugher, landher og
lögreglu gengu i liö meö þessum
uppreisnarmönnum, sem neyddu
byltingarvaröliöa á snærum
Khomeinis til þess aö vikja úr
opinberum byggingum.
Khomeini og Mehdi Bazargan,
fyrrum forsætisráöherra, sem er
sjálfur frá Azerbaijan, hvöttu
fólk i héraðinu til þess aö sýna
stillingu, en oröum þeirra viröist
ekki hafa ver® mikill gaumur
gefinn. — Shariat — Madari
æöstiprestur hefur ekkert látiö
frá sér heyra i t ilefni uppþotanna.
Frá þvi aö byltingin var gerö i
Iran I febrúar, er þetta einhver
alvarlegasta andstaöan, sem
sýndhefur veriö Khomeini. I öör-
um tilvikum hefur hlotist af
mannfall, eins og I átökum i
Kúrdistan, en andstaðan í Azer-
baijan þykir þó alvarlegri. Þær
átta milljónir Azerbaijana, sem
héraöiö búa, hafa sýnt sig óá-
nægða meö þjóömálin fremur en
stjórn héraösmála.
Þeir eru mótfallnir þvi, að
Khomeini fái slikt alræðisvald og
nýja stjórnarskráin felur í sér.
Margir héraösbúar sátu heima I
þjóöaratkvæöagteiöslunni.
Khomeini hefur mætt gagnrýni
á stjórnarskránni meö áskorun-
um til allra múhammeöstrúar-
manna um aö sameinast gegn
hinum „mikla fjandmanni”
(Bandarikjunum). Rennir þaö
stoðum undir þá fullyröingu Ir-
anskeisara, aö taka bandariska
sendiráðsins i Teheran hafi veriö
liöur I þvi aö beina athygli lands-
manna burt frá innanlandsmál-
um aö útlendum fjandmanni.
Vantar þig eina flösku,
tíu flöskur
eða heilan kassa?
ALLT GOS ÍSKALT
SALT-ll freslað
fram yflr jðla-
hlé pingslns
I öldungadeild Bandarikjaþings
hafa menn gefiö upp allar vonir
um, að þingiö tald til umræöu
fyrir jól SALT-II-samninginn.
Þykiraú meiri óvissa um, hverja
afgreiöslu hann fái I þinginu, þar
sem hann kemur til umræðu á
kosningaári.
Fylgjendur samkomulagsins
höfðu vonaö, aö þaö yröi tekiö til
umræöu og afgreitt I þinginu, áð-
ur en forkosningarnar i Banda-
rlkjunum 1980 færu aö setja svip á
þingstörfin.
Þeir kviðu þvi, aö kosninga-
skjálfti mundi flækja máli enn
meir, og þótti þeim ærinn vandi
samt að ná tveim þriöju meiri-
hluta I þinginu, eins og þarf til
þess aö SALT-samningurinn næöi
fram að ganga.
Hins vegar er ljóst oröið, aö
þingdeildin nær i besta falli að
taka máliö fyrir, en aldrei aö
ljúka umræöum, áöur en mánaö-
arhlé veröur gert á þingstörfum
21. des.
I öldungadeildinni er nú til um-
ræðu umdeilt lagafrumvarp, sem
felur í sér skattlagningu á hagn-
að oliufélaga, en næst liggur
fyrir að ræða um frumvarp, sem
litur aö fjárhagsaöstoö viö hiö
nauöstadda Chrysler-bilafyrir-
tæki.
Moðir'
Teresa
Þessi mynd var tekin af
móður Teresu á flugvelli
Rómar i gær, en hún er á
leiðinni frá Kalkútta tii
óslóar til þess aö veita viö-
töku friöarverölaunum
Nóbels.
Tvo munaöarleysingja tók
hiin meö sér til þess aö
leyfa þeim aö sjá heiminn.
— Fyrir hennar beiöni hef-
ur veriö hætt viö kvöld-
veröarveisluna, sem fylgir
jafnan afhendingu verö-
iaunanna, og andviröi
veislunnar hefur veriö bætt
viö verölaunaféö, sem hdn
ætlar aö láta renna til
munaöarlausra I Kalkútta.
' TtöTiensKaTtilngíö
gegn eidflauga-
áællunum NATO
Hollenska stjórnin kemst nú i
töluveröa úlfakreppu, eftir aö
þingiö greiddi atkvæöi gegn
NATO-áætlunum um nýjar eld-
flaugaskotstöövar I V-Evrópu.
Tiu þingmenn stjórnarflokks
kristilegra demókrata neituöu aö
lúta aga þingflokksins og greiddu
atkvæöi meö tillögum stjórnar-
andstööu Verkamannaflokksins.
Tillagan, sem samþykkt var
með eins atkvæðis meirihluta i
gærkvöldi, lagöi aö stjórninni aö
samþykkja ekki ákvörðun NATO
um aö koma fyrir 572 Persh-
ing-2-eldflaugum og flugskeytum
i dimm V-Evrópulöndum, þar á
meðal Hollandi.
Varnarmála- og utanrikisráö-
herrar NATO-rikjanna fimmtán
koma saman i Brussel í næstu
viku til þess að taka lokaákvörö-
un um þessar áætlanir.
Hollenska stjórnin er nú til-
neydd til þess aö segja félögum
sinum i NATO, aö hún getí ekki
stutt þessar áætlanir, og haföi
hún þó áöurstutt þær óformlega.
Atkvæöagreiöslan I þinginu I
gær þykir hafa grafið undan
trausti stjórnarinnar og eru nú
uppi vangaveltur um, hvort
stjórnin standi þá sautján mán-
uöi, sem eftír er af kjörtímabil-
inu.
Van der Klaauw, utanrikisráö-
herra, sagöi I umræðunum I gær,
aö stjórnin væri ekki bundin til
þess aö fara aö þessari ályktun,
en hinsvegar gáeti hún ekki stutt
neina ákvörðun NATO, sem nyti
ekki stuðnings meirihluta
hollenska þingsins. . •
150 fulltrúar sitja I neðri mál-
stofu hollenska þingsins og
greiddu 76 þeirra atkvæði meðtil-
lögunni, sem jafnframt skoraði á
NATO aö hefja eins fljótt og auöiö
yrði afvopnunarviðræöur viö
Kreml. —69 voru á móti og 5fjar-
verandi.