Morgunblaðið - 23.10.2001, Side 2

Morgunblaðið - 23.10.2001, Side 2
FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isPál Viðar Gíslason dreymir ekki landsliðssæti/B5 Ísrael Duranona til liðs við Framara/B1 12 SÍÐUR48 SÍÐUR Sérblöð í dag Á ÞRIÐJUDÖGUM Morgunblað- inu í dag fylgir auglýsingablað frá atvinnumálanefnd Akraness. Blaðinu verður dreift um allt land. ÞRÍR þingmenn úr stjórnmálaflokk- um stjórnarandstöðunnar á Alþingi hafa lagt fram frumvarp um breyt- ingu á lögum um stjórn fiskveiða, þar sem gert er ráð fyrir að smábátasjó- menn verði ekki kvótasettir í öðru en þorskaflahámarkskerfi. Flutnings- menn frumvarpsins eru þeir Guðjón A. Kristjánsson (F), Karl V. Matth- íasson (S) og Árni Steinar Jóhanns- son (Vg). Í greinargerð segir að þess sé freistað að skipa málum þannig að krókaveiðibátar undir 6 brúttótonn- um fái að búa við það veiðikerfi þorsk- aflahámarks og sóknartakmarkana sem sjómenn hafi sætt sig við und- anfarin ár og geti sætt sig við næstu árin. „Ætlað er að koma á þeirri skipan mála til framtíðar að lögfesta veiði- kerfi krókabáta sem næst óbreytt eins og framkvæmd þess var fyrir 1. september sl. Frumvarpið er byggt á þeirri framkvæmd sem gilt hefur um veiðar krókabáta undanfarin þrjú ár og þar af leiðandi fellur krókaafla- hlutdeild eða krókaaflamark niður samkvæmt frumvarpinu. Með því verða smábátasjómenn ekki kvóta- settir í öðru en þorskaflahámarks- kerfi.“ Lágmarksfjöldi sóknardaga verði 23 dagar án takmörkunar Flutningsmenn leggja þó til nokkr- ar breytingar á þeim lögum sem gilt hafa um veiðar krókabáta. Til sókn- arminnkunar er lagt til að veiðar þorskaflahámarksbáta verði tak- markaðar við að róið sé með mest 24 bala með 500 krókum hver á sólar- hring. Einnig að lágmarksfjöldi sókn- ardaga verði 23 dagar án takmörk- unar á heildarafla. Þá er lagt til að setja inn tímamælingu á sjósókn sóknardagabáta sem veiða á hand- færi í 23 daga á hverju fiskveiðiári. Flutningsmenn frumvarpsins benda á að miklar deilur hafi staðið um veiðar krókabáta hér á landi á undanförnum árum, enda sé þeim settur mun þrengri rammi hér á landi en víða annars staðar. „Ófriður hefur ríkt um veiðikerfi smábátanna en undanfarin ár hafa stjórnvöld gengið erinda stórútgerð- armanna gegn hagsmunum smábáta- sjómanna og fólks í hinum dreifðu sjávarbyggðum landsins.“ Kvótasetning smábáta óeðlileg Flutningsmenn telja óeðlilegt að kvótasetja smábátaflotann, enda þjóni það ekki hagsmunum þjóðarinn- ar að hefta veiðar hans. Verðmæti ykjust frekar af auðlindinni ef smá- báta- og strandveiðiflotinn fengi að veiða meira af ýsu, ufsa og steinbít. Sumar þessar tegundir hafi ekki verið fullnýttar af stórútgerðinni á undan- förnum árum og smábátaflotinn hafi bjargað milljörðum króna í afla- og útflutningsverðmætum sem ella hefði ekki verið aflað. „Ljóst er orðið að þann tíma sem nú er liðinn af þessu fiskveiðiári, fram í miðjan október, hefur róðrarlag smábátanna verið með allt öðrum hætti en undanfarin ár. Þetta róðr- arlag, sem stjórnvöld hafa komið á með byggðafjandsamlegum aðgerð- um sínum, hefur orðið til þess að at- vinna við veiðar smábátanna hefur snarminnkað í mörgum sjávarbyggð- um landsins. Þar til viðbótar vantar nýjan fisk af dagróðrarbátum til vinnslu fyrir ferskfisksmarkaði innan lands og utan. Leiguverð á ýsu og þorski fer enn hækkandi og var þó talið allt of hátt fyrir 1. september sl. Stjórnvöld hafa með verkum sínum unnið gegn markmiðum laga um að tryggja trausta atvinnu og byggð í landinu. Í stað þess að gera allt til varnar því að fólk fari af landsbyggð- inni til höfuðborgarsvæðisins stefna aðgerðirnar gegn smábátaútgerðinni og fólkinu í sjávarbyggðum landsins. Nú er mál að snúið verði af þeirri óheillabraut,“ segir í greinargerðinni. Frumvarp stjórnarandstöðuflokka Smábátar ekki kvótasettir nema í þorski LAUNAVÍSITALA Hagstofu Ís- lands hækkaði um 1,69% milli 2. og 3. ársfjórðungs í ár. Laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu um 1,05% á tímabilinu samkvæmt mælingum Hagstofunnar en laun opinberra starfsmanna og bankamanna hækk- uðu um 2,75% á sama tímabili. Þegar hækkun launa í ár sam- kvæmt mælingu launavísitölunnar er skoðuð kemur í ljós að launavísi- talan hefur að meðaltali hækkað um 8,15% það sem af er þessu ári frá 4. ársfjórðungi í fyrra. Þar af hafa laun á almennum markaði hækkað um 6,65% en laun opinberra starfs- manna og bankamanna um 10,37%. Sama er upp á teningnum þegar horft er lengra aftur í tímann, laun opinberra starfsmanna og banka- manna hafa hækkað verulega um- fram laun á almennum markaði, samkvæmt mælingu launavísitölu Hagstofu Íslands. Þannig hefur vísi- talan hækkað að meðaltali um rúm 44% á síðustu fimm árum. Laun á al- mennum vinnumarkaði hafa hækkað um rúm 37% á tímabilinu en laun op- inberra starfsmanna og banka- manna hafa hækkað um 55%. 1,69% hækkun launavísitölunnar milli 2. og 3. ársfjórðungs Laun hækka meira hjá hinu opinbera                                                           BETUR fór en á horfðist er rjúpnaskytta varð fyrir hagla- skoti félaga síns þar sem þeir voru á rjúpnaveiðum í Gjá- stykki á Þeistareykjasvæðinu sl. föstudag. Maðurinn, Sig- urður Hálfdánarson, fékk högl í andlit og líkama, m.a. í annað augað og var hann fluttur með sjúkrabifreið á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri, þar sem gert var að sárum hans. Sigurður bar sig nokkuð vel er blaðamaður Morgunblaðsins heimsótti hann á FSA í gær, skömmu áður en hann var út- skrifaður af spítalanum. „Þetta var vissulega mikil lífsreynsla en ég er ekkert viss um að ég vildi frekar vera í sporum fé- laga míns, sem var mjög brugð- ið.“ Á þessari stundu er alls óvíst hvort Sigurður hljóti varan- legan skaða vegna óhappsins. Hann hefur þó enn ekki fulla sjón á öðru auganu en Sig- urður sagðist hafa von um að ná fullri sjón á ný þegar bólgan í auganu hjaðnar. Sigurður notar gleraugu en hann hafði tekið þau niður rétt áður en slysið varð. Sigurður og félagi hans hafa stundað veiðar saman til fjölda ára en þeir voru tveir á ferð um Þeistareykjasvæðið í sól og blíðu þegar slysið varð. „Það er með þetta eins og önnur slys, það eru ekkert endilega þeir sem eru að aka í fyrsta skipti sem lenda í umferðarslysum.“ Fjarlægðin á milli þeirra félaga um 80–100 metrar Sigurður sagði að félagi sinn hafi verið uppi í hlíð en hann sjálfur þar töluvert fyrir neð- an. Rjúpa hafi flogið upp, sem félagi hans hafi miðað á og skotið þar sem hann hafi ekki orðið sín var. Sigurður sagði að fjarlægðin á milli þeirra fé- laga hafi verið um 80–100 metrar og rjúpan flogið mitt á milli þeirra. Rjúpan lá og hún hefur vafalítið fengið töluvert af höglunum í sig. Sigurður sagðist strax hafa gert sér grein fyrir því hvað hafi gerst en hann féll á hnén við höggið og varð strax al- blóðugur. Hann kallaði til fé- laga síns sem hraðaði sér til hans og hringdi þegar í stað til Húsavíkur eftir aðstoð. Fé- lagarnir héldu strax í átt að bíl sínum um 0,5–1 km leið og óku síðan í um hálfa klukkustund eftir vegslóða á móti sjúkra- bifreiðinni, sem var með lækni innanborðs. Sigurður sagði að lögregla og sjúkraflutningamenn á Húsavík hafi sýnt mjög skjót viðbrögð og verið komnir á svæðið eins fljótt og mögulegt var. Rjúpnaskytta varð fyrir hagla- skoti veiðifélaga í Gjástykki „Hefði ekkert frekar viljað vera í sporum félaga míns“ TVEIR innbrotsþjófar reyndu að komast undan lögreglu með ofsa- akstri um Reykjavík í fyrrinótt og mildi þykir að engin slys hafi orðið, en bifreið mannanna mældist á allt að 130 km hraða á klukkustund. Bif- reiðin var ljóslaus meðan á eftirför- inni stóð og var ítrekað ekið yfir á rangan vegarhelming, gegnt rauðu ljósi og einstefnu. Lögreglan telur að ökumaðurinn hafi alls gerst brotleg- ur við 13 greinar umferðarlaga og al- mennra hegningarlaga. Áður en mennirnir voru loks stöðvaðir hafði lögreglan þrisvar gert tilraun til að stöðva för þeirra. Við gatnamót Suðurlandsbrautar og Reykjavegar og á Holtsgötu lokaði lögreglubíll götunni, en þegar sýnt þótti að mennirnir ætluðu ekki að hægja á sér neyddist lögreglan til að aka bílnum frá til að forða árekstri. Ofarlega á Laugavegi var reynt að stöðva innbrotsþjófana með því að aka lögreglubíl á móti þeim en þar fór allt á sama veg. Tveir lögreglubílar skemmdust í eftirförinni. Bíllinn sem innbrots- þjófarnir óku skemmdist einnig en honum hafði verið stolið nokkru fyrr.  !"#$%& '((                                                                          !  !         !  !           ! !          "! !            $%&   !  ! Ofsaakst- ur um borgina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.