Morgunblaðið - 23.10.2001, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 23.10.2001, Qupperneq 47
minnst með veglegu alþjóðlegu skákmóti í ráðhúsinu í Reykjavík sem hefst í dag, 23. október, og stendur til 1. nóvember, en Jóhann Þórir Jónsson hefði orðið sextugur 21. október. Teflt verður í ráðhúsi Reykjavík- ur og miðast undirbúningur við að umgjörð mótsins verði sem allra veglegust. Áhorfendur eru vel- komnir. Teflt er dag- lega og umferðir hefj- ast klukkan 17. Þó verður frídagur 26. október. Fyrirkomulag mótsins verður þann- ig, að tefldar verða tíu umferðir eftir Mon- rad-kerfi. Umferða- fjöldinn er óvenjuleg- ur, en mun algengara er að tefldar séu níu umferðir. Viðbótarum- ferðin eykur hins veg- ar möguleika á titil- áföngum, en mikill áhugi hefur blossað upp meðal ungra skák- manna á að ná slíkum áföngum. Heildarupp- hæð verðlauna er 7.000 Bandaríkjadalir. Formaður fram- kvæmdanefndar móts- ins er Guðmundur G. Þórarinsson, fyrrver- andi forseti Skáksam- bandsins og bróðir Jó- hanns Þóris, en aðrir nefndarmenn eru Rík- harður Sveinsson, Einar S. Einarsson, Helgi Ólafsson og Hrafn Jökulsson. Jóhann Þórir Jóns- son gaf út og ritstýrði tímaritinu Skák í nær- fellt 35 ár og gaf auk þess út fjölda skák- bóka. Hann var jafn- framt ötulasti móts- haldari sem Íslend- ingar hafa eignast. Hann hélt m.a. 49 helgarskákmót víða um land auk tíu alþjóð- legra skákmóta. Margt fleira mætti telja til, en hann var einn af helstu máttarstólpum skákarinnar hér á landi meðan hans naut við. Hann lést 2. maí 1999. Skákmót á næstunni SÍ. 23.10. Minnm. Jóhanns Þóris SA. 25.10. Hraðskákmót Daði Örn Jónsson FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2001 47 BJARNI Pálmarsson, formaður leigubílstjórafélagsins Átaks, segir að stór hópur leigubílstjóra sé mjög óánægður með lög um leiguakstur og nýtt lagafrumvarp um breytingar á þeim. Í Morgunblaðinu á föstudag sagði Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra að sá hópur sem hefði lýst yfir óánægju með frumvarp til laga um leiguakstur væri „akkúrat hópurinn sem við erum daglega í miklu streði við að fá til þess að fella sig að þeim reglum sem eru í gildi í dag. Ég hef á hinn bóginn ekki orðið var við óánægju meðal þeirra sem hafa hlut- ina í góðu lagi,“ sagði ráðherra. Bjarni segir að það megi skilja ráð- herra svo að það séu bara nokkrir menn sem séu óánægðir. Hann minn- ir á að á annað hundrað manns séu fé- lagar í Átaki og Andvara sem eru tvö af þremur leigubílastjórafélögum í Reykjavík. Þá standi álíka fjölmenn- ur hópur leigubílstjóra utan stéttar- félaga. Stór hluti þessara manna sé mjög óánægður með frumvarp til laga um leiguakstur og raunar líka með núgildandi lög. Þeir hafi hins vegar í öllum meginatriðum farið eftir þeim lögum og reglum sem gilda um leigu- bílaakstur. Bjarni segir að þeir hafi gilda ástæðu til að sætta sig ekki við þau lög sem nú séu í gildi og þaðan af síð- ur lagafrumvarpið sem þrengi enn að starfsemi þeirra. Þessi óánægja ætti ekki að koma ráðherranum á óvart. Bjarni gagnrýnir samgönguráðu- neytið mjög, bæði fyrir þær reglu- gerðir sem þar eru settar og fram- kvæmd þeirra. Samkeppnisstofnun hafi jafnvel áminnt ráðuneytið fyrir starfshætti þess. Þá hafi ráðuneytið aldrei brugðist að fullu við dómi Mannréttindadóm- stóls Evrópu í máli sem Sigurður Sig- urjónsson höfðaði gegn því til viður- kenningar á félagafrelsi. Þannig sé stéttarfélögum leigubílstjóra mis- munað. Sem dæmi um það nefnir Bjarni að leigubílstjórafélagið Frami eigi fulltrúa í umsjónarnefnd leigubíla en hlutverk hennar er m.a. að úthluta atvinnuleyfum fyrir leigubílstjóra. Átak hafi ítrekað óskað eftir að fulltrúi þess fái sæti í nefndinni en því hafi ávallt verið hafnað. Þá séu reglur um útgerð leigubíla í veikindaforföllum bílstjóranna með þeim hætti að það sé nánast ómögu- legt að fara eftir þeim og bílstjórum hafi verið gert erfitt fyrir með að gera út bíla sína þegar þeir hafa þurft að taka sér veikindafrí. „Við förum eftir reglunum í megindráttum en við neit- um því alveg að láta kúga okkur til þess að biðja um leyfi til að fara til út- landa ef við höfum nýlega slasast og erum rólfærir en ekki vinnufærir og mega ekki fara í málaskóla ef maður er veikur. Það sér hver Íslendingur hvers lags kúgun þetta er,“ segir Bjarni. Þegar leigubílstjórar veikjast þurfa þeir að útvega sér svokallaðan veikindapassa vilji þeir að aðrir geri út bíl þeirra á meðan á veikindunum stendur. Bjarni segir að fyrir passann innheimti stéttarfélögin 700 krónur sem eigi samkvæmt lögum að renna í ríkissjóð. Átak hafi innheimt gjaldið en hafi hins vegar aldrei fengið skýr svör um hvert þetta eigi að renna. Bjarni Pálmarsson, formaður leigubílstjórafélagsins Átaks Fjölmargir óánægðir með frumvarpið UM helgina voru 10 öku- menn grunaðir um ölvun við akstur en 28 um of hraðan akstur. Aðfaranótt sunnudags var tilkynnt um að bifreið hefði verið ekið á staur á Laugavegi. Síðan mun ökumaður hafa bakkað hratt frá og ekið niður Laugaveginn. Sá sem tilkynnti um óhappið taldi ökumanninn ölvaðan. Hann reyndist þó ekki vera ölvaður en hafði verið að senda SMS-skilaboð og ekki hugsað um aksturinn. Eftir hádegi á sunnudag var til- kynnt um bílveltu á Nesjavallavegi. Ökumaður og þrjú börn voru flutt á slysadeild með sjúkrabifreið. Þau kvörtuðu um eymsl í höfði, hálsi og baki. Bifreiðin var fjarlægð með kranabíl. Á sunnudagskvöld var bifreið ekið aftan á aðra bifreið á Bústaðavegi við aðrein að Kringlumýrarbraut. Öku- maður annarrar bifreiðarinnar fann til eymsla í hálsi og var fluttur á slysadeild með sjúkrabifreið. Seint á sunnudagskvöld varð bíl- velta í Kollafirði. Þar var bifreið ekið út af veginum og ofan í hitaveitu- skurð. Ökumaður hennar var að af- stýra árekstri við aðra bifreið sem var skyndilega snúið við á veginum. Ökumaður og farþegi í framsæti hlutu minniháttar meiðsl. 200–300 unglingar í samkvæmi Á föstudag var tilkynnt um inn- brot í nokkrar bifreiðar. Úr þeim var stolið hljómtækjum, peningum og fleiru. Ástæða er til að ítreka það enn einu sinni að menn taki öll verðmæti sem hægt er úr bílum sínum. Síðdegis á föstudag efndu Húm- anistar til göngu gegn stríði og of- beldi. Gengið var frá Hljómskálanum og að Lækjartorgi. Talið er að um 150 manns hafi verið þar saman- komnir. Drengur skarst á hendi þegar hann féll í Skautahöllinni í Laugar- dal. Hann var fluttur á slysadeild með sjúkrabifreið. Á föstudagskvöld var tilkynnt um sprengingu í spennistöð við Garðs- enda. Sprengingin varð innan dyra en enginn eldur kviknaði. Þá kom ábending um að maður væri að bera vín út af veitingahúsi og til unglinga sem ekki hefðu aldur til að kaupa áfengi. Lögreglan ræddi við manninn og ungu mennina sem viðurkenndu að hafa keypt af honum áfengi. Maðurinn viðurkenndi einnig að hafa selt þeim áfengi. Kvartað var undan hávaða í húsi við Laugaveg. Þar voru um 200–300 unglingar í óleyfilegu samkvæmi. Þeim var vísað úr húsinu og tveir færðir á lögreglustöð. Fulltrúi eig- anda hússins kom á vettvang og lok- aði því. Líkamsárásir á veitingahúsum Aðfaranótt laugardags var til- kynnt um líkamsárás við veitingahús í miðborginni. Þar hafði maður verið skallaður í andlitið og laminn og gler- augu hans brotin. Þá var tilkynnt um líkamsárás frá öðru veitingahúsi. Þar var maður slasaður í andliti. Hann var fluttur á slysadeild til skoðunar. Tilkynnt var nokkrum sinnum um slagsmál um nóttina en meiðsli voru minniháttar. Þá var tilkynnt um mikla reykj- arlykt í veitingahúsi við Banka- stræti. Lögregla og slökkvilið komu á staðinn. Þarna hafði kerti fallið á bak við arin og brunnið. Engar skemmdir urðu. Seint á laugardagskvöld datt kona í Höfðatúni og slasaðist. Hún reynd- ist vera með áverka á mjöðm og skurð á hnakka. Hún var flutt með sjúkrabifreið á slysadeild. Aðfaranótt sunnudags var fremur rólegt í miðborginni. Maður var sleg- inn á veitingastað, tvær konur á öðr- um veitingastöðum og voru þau öll flutt á slysadeild. Kona barði dyra- vörð á enn einum veitingastaðnum en hann meiddist ekki. Á sunnudag var tilkynnt um inn- brot í bílskúr í Norðurmýri. Þar hafði verið farið inn í ólæstan bílskúr, í frystikistu og úr henni stolið tals- verðu magni af ýmsum fisktegund- um. Frystikistan var skilin eftir opin og því er hugsanlegt tjón á öðrum vörum. Á sunnudagskvöld var bifreið stol- ið við Eyjabakka. Pitsusendill hafði hlaupið inn í hús við götuna og skilið lyklana eftir í hólfi í bifreiðinni. Þeg- ar hann kom út aftur eftir u.þ.b. tvær mínútur var bifreiðin horfin. Hún fannst nokkrum mínútum síðar í ná- grenninu. Úr dagbók lögreglu – 19.–22. október Sendi SMS-skilaboð og ók á staur ÍSHESTAR ferðaþjónustufyrirtæki hlutu að þessu sinni umhverfis- verðlaun Ferðamálaráðs en þau af- henti samgönguráðherra, Sturla Böðvarsson, á ferðamálaráðstefn- unni sem haldin var á Hvolsvelli dagana 18. og 19. október. Einar Bollason framkvæmdastjóri fyr- irtækisins veitti verðlaununum við- töku. Fram kom í máli ráðherra að Ís- hestar væru í farabroddi afþreying- arfyrirtækja í umhverfismálum en Einar Bollason er jafnframt formað- ur umhverfisnefndar samtaka ferðaþjónustunnar. Íshestar hafa sett sér umhverf- isstefnu og frætt starfsfólk sitt um hvernig best má ná markmiðum þeirrar stefnu. Fyrirtækið hefur átt gott samstarf við Náttúruvernd rík- isins og Landgræðsluna og fylgt leiðbeiningum þessara stofnana í hvívetna við skipulagningu ferða. Íshestar hafa haft hátt í 1300 hesta á sínum snærum og þjónustað um 20 þúsund ferðamenn í gegnum tíðina svo það gefur auga leið að miklu máli skiptir að fyrirtækið sé með- vitað um umhverfismál. Í máli Einars Bollasonar kom fram að hann vildi þakka konu sinni, Sigrúnu Ingólfsdóttur, það sér- staklega að hafa vakið athygli sína á mikilvægi umhverfisverndar. Einn- ig vildi hann þakka dóttur sinni, Bryndísi, sem er aðstoðarfram- kvæmdastjóri fyrirtækisins og sam- starfsfólki fyrir þeirra þátt í að fyr- irtækið hlaut þessa viðurkenningu. Ferðamálaráðstefnan sem er sú fjölmennasta sem haldin hefur verið þótti takast mjög vel í alla staði. Ráðstefnustjórar voru þau Halldóra Magnúsdóttir aðstoðarskólastjóri í Hvolsskóla og Guðmundur Svav- arsson framkvæmdastjóri Slátur- félags Suðurlands á Hvolsvelli. Um uppihald ráðstefnugesta sá Hótel Hvolsvöllur með prýði en á þriðja hundrað manns sat ráðstefnuna. Morgunblaðið/Steinunn Sturla Böðvarsson afhendir Einari Bollasyni, framkvæmdastjóra Íshesta, umhverfisverðlaun Ferðamálaráðs 2001. Á milli þeirra standa Sigrún Ingólfsdóttir, eiginkona Einars, og dóttir þeirra Bryndís sem er aðstoðar- framkvæmdastjóri Íshesta. Íshestar hlutu umhverfis- verðlaun Ferðamálaráðs Hvolsvelli. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.