Morgunblaðið - 23.10.2001, Síða 50

Morgunblaðið - 23.10.2001, Síða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. MIÐVIKUDAGINN 17. október 2001, lauk öðru þriggja daga verk- falli hjá sjúkraliðum. Næsti samn- ingafundur var ekki boðaður fyrr en 18. október 2001 kl. 13:00. Ekk- ert hefur þokast í samningsátt, og hefur ekki gert lengi. Sjúkraliðum er kennt þar um, af því þeir vilja ekki þiggja það sem rétt hefur verið að sjúkraliðum í öðrum félögum. Sjúkraliðum í SLFÍ finnst ansi hart að 70 sjúkraliðar í öðrum félögum geti stjórnað samningsrétti stéttar- félags þar sem fjöldinn er yfir 1.500. Ríkið gerði vel við lögreglu- menn í nýgerðum samningi, svo dæmi sé tekið, þannig að fordæmi er fyrir hendi. Og eru lögreglu- menn vel að þessum samningi komnir. Ríkið segist ekki geta sæst á kröfur sjúkraliða en með því eru þeir að útrýma stétt sjúkraliða, því æ fleiri fara til annarra starfa þar sem laun eru betri. 1. nóvember nk. er ár liðið síðan samningar voru lausir. Nú þegar hafa meir en 100 sjúkraliðar hætt og sagt upp. Sjúkraliðastéttin í dag er frekar fámenn og má alls ekki við meiri fækkun. Fækkun á sjúkraliðum kemur fyrst og fremst niður á öldrunarheimilum, þar sem æ fleiri ófaglærðir og jafnvel ótal- andi á íslenskri tungu hlúa að hin- um öldruðu síðustu ævikvöld þeirra. Ástæðurnar fyrir því hvers vegna sjúkraliðar eru mikilvægir innan heilbrigðisþjónustunnar, eru mjög margar en það sem fyrst kemur upp í hugann er þetta nána sam- band sem þeir hafa við skjólstæð- inga sína. Sjúkraliðar sjá oft fyrstir allra, ef einhverjar breytingar verða á heilsu skjólstæðingsins. Því svo vel þekkir sjúkraliðinn þá sem hann annast. Sjúkraliðanámið er 3 ár og 5 mánuðir. Eftir þessi 3 ár er sjúkraliðum ætlað að geta brugðist við mismun- andi sjúkdómstilfellum. Þeir eiga að geta aðstoðað hjúkrunarfræð- inginn hvenær sem hann þarf á að- stoð að halda. Sjúkraliðar geta unn- ið sjálfstætt og borið ábyrgð á deild, ef hjúkrunarfræðingurinn er upptekinn, t.d. að aðstoða við fæð- ingu. Sjúkraliðum finnst því krafan um 150 þúsund lágmarkslaun í lok samningstímabilsins vera mjög sanngjarna kröfu. Tökum dæmi: Sjúkraliði sem unnið hefur frá 1977, hefur 116.000.- þúsund kr. í fastakaup á mánuði miðað við 100% vinnu. Ófaglærður einstaklingur sem vinnur við ræstingar hefur 102.000.- í fastakaup á mánuði mið- að við 100% vinnu Er ekki eitthvað bogið við þetta dæmi? Jú, þrif á gólfum og borðum er meira metið en hjúkrun á fólki. Við erum alls ekki að tala um að hinn ófaglærði eigi að hafa minni laun en þarna er, heldur erum við að biðja um hækkun launa til sjúkraliða í samræmi við nám og ábyrgð. Eru ráðamenn þjóðarinnar í dag tilbúnir að láta foreldra sína og jafnvel sjálfa sig, vera á stofnun þar sem enginn getur rætt við þá um daginn og veginn vegna tungumála- örðugleika? Ef ekki nást samningar við sjúkraliða er þetta það sem sjúkra- liðar sjá í framtíðinni fyrir þetta gamla fólk. Og það er langt frá því að vera framtíðarsýn sjúkraliðans um heilbrigðisþjónustuna í framtíð- inni. Því umhyggja okkar fyrir skjólstæðingum okkar sem og okk- ur sjálfum, er miklu meiri en svo að við viljum sjá þetta verða að veru- leika allsstaðar á landinu. Þetta er því miður að byrja aðeins í Reykja- vík þar sem nokkur hjúkrunar- heimili hafa fáa sem enga sjúkraliða í vinnu. Til þess að sjúkraliðar geti starf- að ánægðir verða ráðamenn þjóð- arinnar að ganga til samninga við sjúkraliða sem fyrst. Einnig verða þeir að opna augu sín fyrir því að kröfur okkar um hækkun launa er miklu minna vandamál, heldur en það vandamál sem skapast mun er sjúkraliðum verður útrýmt. Það gæti kostað íslensku þjóðina það, að Íslendingum mun fækka allveru- lega. Og ástæðan gæti verið léleg heilbrigðisþjónusta fyrir aldraða. Í velferðarþjóðfélaginu hér á Ís- landi er verið að hvetja alla til náms. Fólk leggur jafnvel í langt nám og safnar skuldum á meðan. Eftir útskrift er þetta nám oft lítið metið í launum, og sá sem lagði þetta nám á sig sér sig knúinn til að fara á annan starfsvettvang. Til þess að geta séð sómasamlega fyrir fjölskyldu sinni. Þetta er hlutur sem við eigum alls ekki að sætta okkur við. Við eigum að uppskera samkvæmt sáningu. Sáning sjúkra- liðanna er 3 ára nám sem enn í dag er ekki metið rétt til launa. Sjúkraliðar munið að „samstaða er afl sem ekkert fær staðist“. MARGRÉT ÞÓRA ÓLADÓTTIR, sjúkraliði á Ísafirði. Sanngjarnar kröfur sjúkraliða Frá Margréti Þóru Óladóttur: Gjafavara – matar- og kaffistell . All ir verðflokkar. - Gæðavara Heimsfrægir hönnuðir m.a. Gianni Versace. VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.