Morgunblaðið - 23.10.2001, Síða 53

Morgunblaðið - 23.10.2001, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2001 53 DAGBÓK NÝ SENDING Sloppar, náttföt og náttkjólar fyrir dömur og herra Sendum í póstkröfuNóatúni 17, sími 562 4217Gullbrá, STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake SPORÐDREKI Afmælisbarn dagsins: Þú ert raunsær og ráðagóð- ur en þarft að temja skap þitt betur þegar eitthvað blæs á móti. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú ættir að setjast niður með þínum nánustu og fara í gegn um málin, sérstaklega hvaða væntingar þið hafið hvert um annað. Lykilorðið er skiln- ingur. Naut (20. apríl - 20. maí)  Nú getur þú ekki lengur vik- ist undan því að ganga í þau mál, sem þú hefur látið danka að undanförnu. Þú ert vel upplagður til stórra átaka. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú lendir í þeirri aðstöðu að þurfa að útskýra þitt mál fyr- ir ungu fólki. Reyndu ekki að slá ryki í augu þess, talaðu bara hreint út. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú ættir að setjast niður með þínum nánustu og fara í gegn um þau plön sem þið hafið um framtíðina. Slíkir fundir eru bæði til gagns og gamans. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú ættir að hlusta á ráð þér eldri manna. Þeir geta kennt þér ýmislegt, þó ekki væri nema að forðast afdrifarík mistök, sem öllum verða á. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú ættir að segja samstarfs- mönnum þínum hvaða hug- myndir þú hefur um starf ykkar. Orð þín munu falla í frjóan jarðveg ef þú bara ert sannur. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú ættir að láta það eftir þér að sækja aukna menntun á ákveðnu sviði. Það skiptir engu þótt tengsl þess og starfsins liggi ekki í augum uppi. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú þarft að sjá til þess að fjölskyldan deili ábyrgðinni, en þú sitjir ekki uppi með all- an höfuðverkinn. Talaðu æs- ingalaust um hlutina. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú hittir óvænt gamlan vin sem getur komið þér til hjálpar í erfiðu persónulegu máli. Láttu hann samt ekki taka öll völdin í sínar hendur. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú þarft að staldra við og taka þér tíma til þess að fara í gegn um þau mál sem bíða á borðinu þínu. Taktu ekki fleiri að þér fyrr en þessi eru búin. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Gleymdu því ekki að það sem þú gerir nú hefur áhrif á framtíðina. Flýttu þér því ekki að neinu heldur ígrund- aðu vel hvað þú tekur til bragðs. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þótt þér finnist þú hafa í mörg horn að líta máttu ekki missa sjónar á stóra tak- markinu. Hvað sem þú gerir láttu það beina þér rétta leið. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Árnað heilla 60 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 23. október, er sextug Margrét S. Jóhannsdóttir, Hagamel, Grenivík. Eiginmaður henn- ar er Oddgeir Ísaksson. Þau taka á móti gestum á æsku- heimili Margrétar, Miðgörð- um, nk. laugardag, 27. októ- ber, frá kl. 18–22. 80 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 23. október, verður áttræð Sig- ríður Guðmundsdóttir frá Sæbóli í Aðalvík, Sunnu- braut 1b, Kópavogi, áður Eskihlíð 22. Sigríður tekur á móti gestum, vinum og vandamönnum í félagsheim- ilinu Gjábakka, Fannborg 8, Kópavogi (ekið inn frá Hamraborg), laugardaginn 27. október frá kl. 16-19. Heimsmeistaramótið í sveitakeppni hófst í París á sunnudaginn, í opnum flokki, kvennaflokki og flokki öldunga, sem er ný keppni. Átján þjóðir berj- ast um Bermúdaskálina – verðlaunagrip opna flokksins – sextán sveitir keppa í kvennaflokki, en tíu í flokki öldunga. Nú- verandi heimsmeistarar Bandaríkjanna eru á meðal keppenda opna flokksins, nákvæmlega sama lið og vann Brasilíu í Bermúda fyrir tæpum tveimur árum. Sú sveit er vissulega sigurstrangleg, en þó er ljóst að Ítalir, Pólverjar og Norðmenn ætla sér líka stóra hluti. Spil eru ekki farin að berast frá mótinu, en við skulum hita upp með því að skoða eitt frá síðasta úrslitaleik: Austur gefur; NS á hættu. Norður ♠ D7 ♥ KD9864 ♦ K85 ♣D5 Vestur Austur ♠ KG10653 ♠ Á42 ♥ 752 ♥ 10 ♦ 3 ♦ D9642 ♣G32 ♣Á876 Suður ♠ 98 ♥ ÁG3 ♦ ÁG107 ♣K1094 Fjögur hjörtu vinnast í NS, en hins vegar eiga AV ódýra fórn í fjóra spaða. Í opna salnum komust Brasilíumennirn- ir ekki inn í sagnir eftir veika grandopnun Rod- wells í suður: Vestur Norður Austur Suður Campos Meckstr. Villas-Boas Rodwell – – Pass 1 grand Pass 4 tíglar Dobl 4 hjörtu Allir pass Fjórir tíglar Meckstr- oths er yfirfærsla í hjarta og dobl Villas-Boas virð- ist eiga að sýna tígul. Vestur kom út með tíg- ulþristinn og Rodwell fékk því ellefu slagi: 650. Í lokaða salnum sýndi Hamman á sér unglega hlið þegar hann vakti í austur á tíu punkta: Vestur Norður Austur Suður Soloway Janz Hamman Mello – – 1 tígull Pass 1 spaði 2 hjörtu 2 spaðar 4 hjörtu 4 spaðar Pass Pass Dobl Allir pass Fyrir bragðið gat Solo- way komið spaðanum á framfæri og þegar Hamman studdi litinn var leiðin í fjóra spaða greið. Út kom hjarta- kóngur, sem suður yfir- tók til að trompa út. Soloway tók með kóngi heima og spilaði tígli að blindum. Norður fór upp með kónginn og reyndi laufdrottningu. Það kost- aði slag, því nú gat Solo- way tekið trompásinn og spilað laufi að gosanum: einn niður, 100 í NS og 11 IMPar til Bandaríkja- manna. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson LJÓÐABROT LILJA Almáttugr guð, allra stétta yfirbjóðandi engla og þjóða, ei þurfandi stað né stundir, staði haldandi í kyrrleiks valdi, senn verandi úti og inni, uppi og niðri og þar í miðju, lof sé þér um aldr og ævi, eining sönn í þrennum greinum. – – – Fyrri menn, er fræðin kunnu forn og klók af heiðnum bókum, slungin mjúkt af sínum kongum sungu lof með danskri tungu. Í þvílíku móðurmáli meir skyldumst eg en nokkur þeirra hrærðan dikt með ástarorðum allsvaldanda kongi að gjalda. – – – Eysteinn munkur Ásgrímsson STAÐAN kom upp í A- flokki Haustmóts Tafl- félags Reykjavíkur. Ingvar Þór Jóhannesson (2055) hafði hvítt gegn sigurveg- ara mótsins, Sigurbirni Björnssyni (2320). 32. Hxd5! De6 32...cxd5 gekk ekki upp vegna 33. Bxd5+ Kf8 34. Dh8#. 33. Hd2 Hb8 34. He2?! Mun sterkara var að leika 34. Dd4 þar sem eftir t.d. 34...Rf6 35. He2 er mun einfaldara fyrir hvítan að inn- byrða vinninginn en eftir textaleikinn. Framhaldið varð: 34...Df6 35. Dxf6 Rxf6 36. He6 Kf7 37. Hxc6 Re8 38. Bd5+ Kf8 39. Ha6 Hxb4 40. Ha8 Ke7 41. Bc6 Hb2+ 42. Kh3 Rg7 43. Hc8 Re6 44. Bh1 Kf6 45. Bd5 Rxc5 46. Hxc7 Rd3 47. Hf7#. Þetta var eina tapskák Sigur- björns í mótinu en lokastað- an varð þessi: 1. Sigurbjörn Björnsson (2320) 9 vinninga af 11 mögulegum 2. Björn Þorsteinsson (2240) 8½ v. 3. Ingvar Þór Jóhannesson (2055) 8 v. 4. Arnar Gunn- arsson (2270) 7 v. 5. Davíð Kjartansson (2130) 6½ v. 6.–7. Dagur Arngrímsson (1980) og Sævar Bjarnason (2320) 5 v. 8. Jón Árni Hall- dórsson (2130) 4 ½ v. 9.–10. Júlíus Friðjónsson (2220) og Guðjón Heiðar Val- garðsson (1985). 11. Guðni Stefán Pétursson (1945) 3 v. 12. Einar Kr. Einarsson (2070). SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. 50 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 23. október, er fimmtug Hanna Sigríður Jósafatsdóttir hjúkrunarfræðingur, Loga- sölum 12, Kópavogi. Hún og eiginmaður hennar, Hannes Fr. Guðmundsson, sem varð fimmtugur 16. júlí sl., taka á móti fjölskyldu og vinum á heimili sínu laugardaginn 27. október kl. 17. Já, en mamma, heilsuræktin er meira en kílómeter í burtu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.