Morgunblaðið - 09.11.2001, Page 6

Morgunblaðið - 09.11.2001, Page 6
MÁLVERK, sem merkt er Jóhann- esi Kjarval og augljóslega er fölsun, að mati Ólafs Inga Jónssonar for- varðar, barst í hendur hans í gær en myndin var seld í Galleríi Borg í desember 1994. Ólafur segir mynd- ina eftirgerð eftir lítilli vatnslita- mynd Kjarvals sem áður hafði verið seld á uppboði hjá sama fyrirtæki. Fyrirmyndin, sem er vatnslita- mynd, 20 x 15 sentímetrar að stærð, var seld á uppboði hjá Gall- eríi Borg í lok nóvember 1993 fyrir 75 þúsund krónur og má sjá hana á forsíðu bæklings sem gefin var út fyrir uppboðið. Ólafur Ingi Jónsson rannsakar meint falsað Kjarvalsverk sem selt var hjá Galleríi Borg Frummyndin seld hjá galleríinu ári áður Ólafur segir fölsunina ákaflega lé- lega. Ofan í formin sé teiknað með bronstússpenna sem sé algert nú- tímafyrirbrigði og bakpappírinn skín í gegnum myndina hér og þar. Í maí 1994 var stærri myndin, sem í uppboðsskrá er kölluð Abstr- aksjón á pappa og er 58 x 48 að stærð, boðin upp í fyrsta sinn hjá Galleríi Borg og sýna gögn Ólafs að svo virðist sem myndin hafi farið á 250 þúsund krónur. Abstraksjón kemur aftur fyrir á uppboði hjá Galleríi Borg nokkrum mánuðum síðar og virðist nú fara á 260 þús- und krónur. Ólafur segir þetta dæmigert fyrir vinnubrögð fyrir- tækisins. „Einhver maður þeirra situr út í sal og býður í myndina en síðan kemur í ljós að hún er alls ekki keypt þarna því það er alltaf Á bæklingi sem gefinn var út fyrir uppboð í nóvember 1993 má sjá að frummyndin fór í gegnum sama fyrirtæki og seldi fölsunina, þ.e. Gallerí Borg. Frummyndin, sem er merkt númer 62 í uppboðsskránni er vatnslitamynd sem er einungis 20 x 15 sentímetrar að stærð. boðið í hana af fyrirtækinu. Sama myndin fer þrisvar sinnum í sölu og er seld að lokum fyrir 280 þúsund í galleríinu sjálfu en ekki á uppboði.“ Þetta var 20. desember árið 1994. „Mjög hroðvirknislega unnið“ Ólafur segir að eftirmyndin sé sögð olía á pappa. „Fagmenn vita að þetta er ekki olía heldur ein- hvers konar plastmálning en það skiptir kannski ekki öllu máli. Hún er máluð upp á bakpappa, það er pappa sem settur er í bak mynda með gleri, og það gefur þessu svo- lítið brúnan lit sem lætur þetta líta út eins og öldrun,“ segir hann og bendir á hvernig pappírinn kemur ómálaður í gegnum myndina. Hann segir augljóst að Abstrak- sjón sé byggð á minni myndinni og að um mjög lélega eftirgerð sé að ræða. „Þeir búa til formin og setja svo í þau einhverja bronsmálningu sem er teiknuð á með einhvers kon- ar tússpenna, en það er algert nú- tímafyrirbæri. Maður sér alveg hvernig gullið er dregið út og þetta virkar allt saman splunkunýtt. Þetta er mjög augljós fölsun og það er enginn sem breytir því, þetta er mjög hroðvirknislega unnið og það hefur mjög litlum tíma verið varið í þetta.“ Að sögn Ólafs vissi kaupandinn af minni myndinni og spurðist fyrir um það hvernig stæði á því að um tvær svo líkar myndir væri að ræða. Hann hefði fengið þær skýr- ingar að þarna væri sería á ferð- inni. Ólafur segir það fráleitt. „Ég get alveg lofað því að Kjarval hefur aldrei búið til þessa mynd í öðru formi heldur en nákvæmlega svona,“ segir hann og bendir á minni myndina. „Þetta er bara æf- ing með form og búið.“ Ólafur segist halda því fram að falsanirnar hjá Galleríi Borg séu tvenns konar. Annars vegar sé um að ræða verk eftir ókunnuga höf- unda sem merkt séu upp á nýtt með nöfnum þekktra listamanna og hins vegar sé um að ræða eftirgerð- ir af öðrum myndum. „Í þessu dæmi er svo glöggt að fyrirmyndin hefur farið í gegnum hendurnar á fyrirtækinu eins og sést á forsíðu bæklingsins fyrir uppboðið í nóv- ember 1993.“ Hann segir þetta óræka vísbendingu um að Gallerí Borg sé ábyrgt fyrir fölsuninni. Það, og sú staðreynd hversu aug- ljós fölsunin sé, geri málið nokkuð einstakt því þarna sé hægt að rekja fyrirmyndina til uppboðshússins. Bað um eiganda- sögu en fékk ekki KAUPANDI verksins, sem ekki vill láta nafns síns getið, sagðist í sam- tali við Morgunblaðið ekki vera mik- ill listaverkasafnari en umrædd mynd er ein af þremur sem hann hefur keypt um ævina. „Þetta voru einhverjar grillur, mig langaði bara í mynd með þessari merkingu,“ seg- ir hann og bætir því við að segja megi að þetta hafi verið jólagjöfin til sjálfs sín þegar myndin var keypt laust fyrir jól 1994. Hann segist hafa spurst fyrir hjá Galleríi Borg um fyrri eiganda myndarinnar en ekki fengið þær upplýsingar. „Ég spurði að því hver hefði átt myndina áður og þá var mér sagt að viðkomandi eigandi vildi hafa það fyrir sig eða eitthvað slíkt.“ Með myndinni fékk kaupandinn skrá yfir listmunauppboðið sem var rúmu ári áður en kaupin áttu sér stað en þá var frummyndin boðin upp. Hann segir að myndin á forsíðu bæklingsins hafi vakið athygli sína fyrir það hversu lík hún væri mynd- inni sem hann keypti. „Ég fór að tala um að þetta væri ekki myndin en þá fékk ég þær upplýsingar að þetta væri í seríu. Ég tók það gott og gilt þó að mér hafi þótt það skrýtið að vera að kaupa þarna mynd og það væri önnur mynd í gangi sem væri mjög svipuð þó þær væru ekki eins.“ Hafði lengi grun um fölsun Inntur eftir því hvers vegna hann ákvað að fara með myndina til Ólafs Jónssonar, forvarðar, segir hann að umræðan um listaverkafalsanirnar hafi ýtt við honum. „Ég er búinn að spá mikið í þessa mynd af því að hún er mikið fyrir framan mig heima. Smám saman þegar þessi umræða var að byrja fór ég að fá einhverja tilfinningu fyrir því að hún gæti ver- ið fölsuð og hef meira að segja orðað það við gesti hjá mér. Sérstaklega í seinni tíð fannst mér að merkingin eða undirskriftin væri ekki nógu Kjarvalsleg miðað við það sem ég hef séð á myndum af verkum hans,“ og segir hann niðurstöðu Ólafs ekki hafa komið á óvart þótt hann hafi vonað að þetta væri frummynd. FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ FRÁ því um miðjan síðasta mánuð hafa verið tilkynnt hérlendis sjö til- vik torkennilegra póstsendinga, sem grunur hefur leikið á að væru sýklaárás. Allar tilkynningarnar hafa komið af höfuðborgarsvæðinu, þar af fjórar frá opinberum stofn- unum en þrjár frá einstaklingum. Mikill viðbúnaður hefur verið hafð- ur vegna tilkynninganna, sending- arnar, sem hafa innihaldið ein- kennilegt duft, sendar í rannsókn og á þriðja tug manna fengið lyfja- og/eða læknismeðferð vegna gruns um mögulega miltisbrandssýkingu. Rannsóknir á sýklafræðideild Landspítalans á dufti í póstsend- ingunum hafa leitt í ljós að ekki fannst miltisbrandsgró í neinu til- vikanna. Ekki er gerð frekari greining á efni sem rannsakað er, þegar miltisbrandur hefur verið úti- lokaður. Þrjú tilvik í október Fyrsta hrinan hófst 15. október þegar Ríkisútvarpið fékk tor- kennilegt bréf en síðan kom til- kynning frá Borgarendurskoðun um torkennilegt efni viku síðar, eða 22. október. Þar hafði erlent tímarit verið rifið upp úr umbúðum og þurrkefni umbúðanna komið í ljós. Það var hins vegar vegna prakk- araskaps tveggja pilta að duftbréf barst Davíð Oddssyni forsætisráð- herra 25. október. Piltarnir við- urkenndu athæfið og sögðust ekki hafa gert sér grein fyrir alvarleika málsins. Ekkert varð vart við tor- kennilegar póstsendingar næstu vikurnar á eftir, en í þessari viku hófst önnur hrina, enn kröftugri en sú fyrri. Tilvikin orðin fjögur í þessum mánuði Sjötta nóvember var viðbúnaður við Landsbankann í Austurstræti vegna dufts í bréfi og 10 starfs- menn voru settir í fyrirbyggjandi lyfjameðferð. Daginn eftir komu þrjár tilkynningar um duft í póst- sendingum. Póstmiðstöð Íslands- pósts var lokað 7. nóvember vegna dufts í bréfi frá Íran. 13 starfsmenn voru sendir í læknisrannsókn og í lyfjameðferð gegn hugsanlegu milt- isbrandssmiti. Sama dag bárust tvær tilkynningar frá einstakling- um, annars vegar frá manni í blokk í Reykjavík og hins vegar frá hjón- um í blokk í Hafnarfirði. Allt fólkið var sent í læknisrannsókn. Tilkynnt um sjö duftsendingar á þremur vikum landspósts bjóst þó við töfum á póstburði í gær vegna málsins. Hann sagði að ekki hefði verið metið hvort fyrirtækið hefði orðið fyrir fjárhagslegu tjóni vegna málsins, en heilsa og hagur starfs- fólks hefðu verið höfð í fyrirrúmi. Duft úr ábyrgðarsendingu Málið kom upp með þeim hætti að þegar starfsmenn póstflokkun- arstöðvarinnar voru að meðhöndla PÓSTMIÐSTÖÐ Íslandspósts við Stórhöfða, sem lokað var á mið- vikudag vegna torkennilegs dufts, sem fannst í ábyrgðarpóstsend- ingu frá Íran, var opnuð á ný í gærmorgun og voru starfsmenn og bréfberar kallaðir til vinnu á ný. Ekki reyndist um miltisbrandsgró að ræða í sendingunni samkvæmt rannsókn á sýklafræðideild Land- spítalans. Einar Þorsteinsson forstjóri Ís- póst sáldraðist hvítt duft út úr ábyrgðarsendingu. Við það var viðvörunaráætlun Íslandspósts sett í gang, lögreglu og slökkviliði gert viðvart og í kjölfarið var póst- flokkunarstöðinni lokað. Þá benti rannsókn á dufti sem tilkynnt var um frá einstaklingum, annars vegar úr íbúðablokk í Hafnarfirði og hins vegar í Reykjavík, að ekki hefði verið um smitefni að ræða. Hvíta duftið hjá Íslandspósti ekki miltisbrandur Starfsmenn og bréfberar kallaðir til vinnu á ný GUÐRÚN Sigmundsóttir settur sóttvarnarlæknir hjá landlækni telur að tími sé kominn til að róa almenn- ing vegna þeirrar hræðslu sem grip- ið hefur um sig vegna möguleika á sýklaárás með miltisbrandsgróum. Landlæknisembættið og lögregluyf- irvöld eru um þessar mundir að hefja kerfisbundnar aðgerðir til að minnka ótta almennings við miltisbrand. „Þrátt fyrir mikla leit í bréfum víðs- vegar í heiminum hefur ekki fundist miltisbrandur utan Bandaríkjanna,“ segir Guðrún. Illa merkt bréf frá útlöndum helst varasöm Hún segir að fólk eigi almennt ekki að þurfa að óttast önnur bréf en illa merkt bréf sem koma frá útlönd- um þar sem sendanda sé í engu get- ið. Hún segir fulla ástæðu til að benda almenningi á hve litlar líkur séu á raunverulegum hryðjuverka- bréfum í ljósi þess að miltis- brandsgró hafi ekki fundist í neinum grunsamlegum bréfum utan Banda- ríkjanna. Það duft sem tekið hefur verið til rannsóknar á Íslandi undanfarnar vikur hefur ekki reynst vera miltis- brandsgró. Ekki hefur verið greint hverskonar duft var þá um að ræða enda ekki gerð frekari greining þeg- ar miltisbrandur hefur verið útilok- aður. Landlæknisembættið og lögregla gegn miltisbrandsótta Mál til að róa almenning Morgunblaðið/Ásdís

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.