Morgunblaðið - 09.11.2001, Síða 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Lykillinn að velgengni á vinnumarkaði
Bæklingurinn
talar til kvenna
NÝVERIÐ kom útbæklingurinn„Lykillinn að vel-
gengni á vinnumarkaði“.
Rósa Erlingsdóttir bar
hitan og þungann af útgáf-
unni. Hún er í forsvari fyr-
ir bæklinginn og Morgun-
blaðið sló á þráðinn í
vikunni.
Hvernig er ritið upp-
byggt, hverjir rita í það og
hver er tilurð þess?
„Bæklingurinn „Lykill-
inn að velgengni á vinnu-
markaði“ er gefinn út af
jafnréttisátaki Háskóla Ís-
lands, Jafnréttisstofu og
Verslunarmannafélagi
Reykjavíkur í samvinnu
við Eimskipafélag Íslands,
Þekkingarsmiðju IMG og
ráðstefnuna Konur og lýð-
ræði við árþúsundamót. Fulltrúar
þessara fyrirtækja og stofnana
voru skipaðir í ritstjórn sem síðan
sá um að taka saman efni og
semja texta bæklingsins. Höfund-
ar efnis eru, auk mín, Inga Björg
Hjaltadóttir, Ingrid Kuhlman og
Margrét S. Björnsdóttir.
Í fyrsta kafla bæklingsins eru
dregnar saman niðurstöður
kjarakannana síðustu ára og
fjallað er um tölulegar upplýs-
ingar um kynjahlutföll og kyn-
bundinn launamun á vinnumark-
aði. Þekkingarsmiðja IMG hefur
veg og vanda af öðrum kafla
bæklingsins. Hann fjallar um
fyrstu skrefin á vinnumarkaði og í
honum eru leiðbeiningar um at-
vinnuleit, starfsviðtöl, gerð at-
vinnuumsókna og starfsferilsskrá
svo einhver dæmi séu nefnd. Þá
er fjallað um laun, mat á launa-
tilboðum og samsetningu kjara.
Lokakafli bæklingsins fjallar um
velgengni í starfi, mikilvægi sí-
menntunar og gerð persónulegra
starfsframa- og starfsþróunar-
áætlana. Við þetta efni bætast við
heilræði nokkurra kvenna sem
eru í ábyrgðarstöðum á ýmsum
sviðum atvinnulífsins. Bæklingur-
inn er þannig hvatning til kvenna
að búa sig vel undir framtíðar-
störf sín og starfsframa.
Markmið jafnréttisátaks Há-
skóla Íslands og Jafnréttisstofu
er meðal annars að fjölga konum í
ábyrgðar- og stjórnunarstöðum á
íslenskum vinnumarkaði. Jafn-
réttisátakið heldur námskeið fyr-
ir kvennemendur HÍ, stjórnunar-
og starfsframanámskeið í sam-
vinnu við Þekkingarsmiðju IMG
og námskeið um gerð viðskipta-
áætlana og stofnun fyrirtækja í
samvinnu við Impru. Útgáfa
bæklingsins tengist þessum nám-
skeiðum og verður hann í framtíð-
inni nýttur sem kennsluefni þar.
Hugmyndin að útgáfunni vakn-
aði hjá aðstandendum jafnréttis-
átaks Háskóla Íslands og Jafn-
réttisstofu. Fyrirmyndin var í
byrjun sótt til háskólastofnana
vestanhafs en þar tíðkast að gefa
út sambærilega bæklinga. Verk-
efnið þróaðist síðan sjálfstætt og
segja má að útkoman
sé alveg einstök, að
hún eigi sér enga fyr-
irmynd.“
Hvernig verður
bæklingnum komið á
framfæri... og höfðar
hann til einhverra
hópa kvenna öðrum fremur?
„Bæklingurinn hefur þegar
verið sendur til kvennemenda
sem brautskráðust frá Háskóla
Íslands síðastliðinn laugardag en
hann verður einnig nýttur sem
kennsluefni á námskeiðum Jafn-
réttisátaksins, Verslunarmanna-
félags Reykjavíkur og Þekking-
arsmiðju IMG. Þá mun Jafn-
réttisstofa dreifa bæklingnum og
er það liður í jafnréttisfræðslu
stofunnar.“
Hvers vegna höfðar bæklingur-
inn einungis til kvenna... er endi-
lega meiri þörf á svona fræðsluriti
fyrir konur en karla?
„Til grundvallar útgáfunni ligg-
ur sú staðreynd að þrátt fyrir
aukna menntun kvenna og fjöl-
breyttara námsval þeirra er
náms- og starfsval enn mjög kyn-
bundið og kynbundinn launamun-
ur mikill. Kynskiptur vinnumark-
aður endurspeglar kynbundið
námsval en það er afar mikilvægt
að kynin verði jafningjar í starfi
og þjóðfélagið nýti mannauð
kvenna betur en gert er í dag. Á
þeim námsbrautum þar sem kon-
ur eru fjölmennar vantar oft
fræðslu um atvinnulífið sem er
sjálfsagður þáttur náms þar sem
karlmenn eru í meirihluta. Konur
eru fáar í stjórnunarstöðum og
hvers kyns ábyrgðarstörfum á
öllum sviðum atvinnulífsins. Sem
dæmi má nefna að aðeins ein kona
gegnir starfi forstjóra 100
stærstu fyrirtækja landsins og
konur eru aðeins 10% stjórnar-
manna sömu fyrirtækja. Með út-
gáfu ritsins viljum við bregðast
við þessum staðreyndum. Bækl-
ingurinn talar til kvenna og er
skrifaður í kvenkyni en karl-
mönnum er að sjálfsögðu velkom-
ið að nálgast hann, t.d. á skrif-
stofu jafnréttisnefndar Háskóla
Íslands eða vefútgáfu hans sem
verður birt innan skamms á
heimasíðum samstarfs-
aðila verkefnisins.“
Hvernig verður því
átaki sem felst í útgáfu
ritsins fylgt eftir?
„Fimmtudaginn 15.
nóvember verður hald-
inn kynningarfundur
um bæklinginn í hátíðarsal Há-
skóla Íslands klukkan 15–18. Á
fundinum verður bæklingurinn
kynntur auk þess sem sérfræð-
ingar Þekkingarsmiðju IMG
munu fara yfir þau hagnýtu atriði
sem nefnd voru hér að framan.
Fundurinn verður auglýstur nán-
ar síðar.“
Rósa Erlingsdóttir
Rósa Erlingsdóttir fæddist 28.
júní 1970 á Egilsstöðum. Hún
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum við Hamrahlíð árið
1991 og MA-gráðu í stjórn-
málafræði frá Freie Universitat í
Berlín árið 1998. Rósa er verk-
efnisstjóri jafnréttisátaks Há-
skóla Íslands og Jafnréttisstofu.
Hún starfaði áður sem blaðamað-
ur. Rósa á eina dóttur, Rebekku
Rún Rósudóttur, en sambýlis-
maður hennar er Otti Hólm
Elínarson verkfræðingur.
Fyrirmyndin
sótt til
háskóla-
stofnana
vestanhafs
Mottó tuttugustu og fyrstu aldarinnar „að drepa eða vera drepinn“?