Morgunblaðið - 09.11.2001, Side 41
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2001 41
✝ Ketill Jónssonfæddist í Hvammi
í Höfnum 27. ágúst
1921. Hann lést á
hjúkrunarheimilinu
Víðihlíð í Grindavík
5. nóvember síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Jón Jónsson,
barnakennari, sím-
stöðvarstjóri og odd-
viti í Höfnum, f. 5.5.
1883, d. 12.12. 1956,
og kona hans Sigríð-
ur Magnúsdóttir hús-
freyja, f. 1.1. 1891, d.
15.7. 1946. Systkini
Ketils eru tvö, Magnús, f. 17.9.
1913, d. 28.2. 1994, og Ingibjörg, f.
6.7. 1930. Á Jónsmessu árið 1950
kvæntist Ketill Heiðrúnu Guð-
laugsdóttur frá Þverá í Norðurár-
dal í A-Hún, f. 5. nóvember 1922.
Dætur þeirra eru: Rakel, f. 27.12.
1949, gift Guðmundi Björnssyni, f.
20.6. 1949, börn þeirra eru Ketill
Heiðar, kvæntur Sæunni Marinós-
dóttur, Jón Elvar og
Birna; og Bergþóra
Karen, f. 20.6. 1954,
gift Þorsteini I. Sig-
fússyni, f. 4.6. 1954,
börn þeirra eru Dav-
íð Þór, Dagrún Inga
og Þorkell Viktor.
Ketill bjó í Höfn-
um og stundaði sjó-
sókn frá unga aldri
og fékk skipstjórnar-
réttindi 1945. Þau
Heiðrún hófu búskap
sinn í Keflavík og
hafa búið þar alla tíð
síðan. Ketill vann
lengstum við bifreiðaakstur og
síðan verslunarstörf hjá Aðalstöð-
inni í Keflavík og sat um árabil í
stjórn félagsins. Hann var formað-
ur stjórnar bifreiðastjórafélagsins
Fylkis og sat þrisvar þing Alþýðu-
sambands Íslands.
Útför Ketils fer fram frá Kefla-
víkurkirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 14.
Nú hefur Ketill Jónsson lokið lífs-
hlaupi sínu á áttugasta og fyrsta ald-
ursári. Þar hefur góður maður gengið
götuna til enda og kvatt þennan
heim.
Margs er að minnast frá því ég
kynntist honum. Það er mér ofarlega
í minni þegar ég fyrst kom á heimili
þeirra Ketils og Heiðu að Sóltúni 3,
um haustkvöld 1969. Ungur maður
og kannski heldur óöruggur með sig
því að erindið var að spyrja um dótt-
urina Rakel sem ég hafði verið í sam-
bandi við um nokkurt skeið. Ég man
ekki glögglega hvort þeirra hjóna
kom til dyra, en ég bar upp erindið og
fékk þau svör að dóttirin hefði
skroppið út en kæmi fljótlega heim
aftur. Mér var boðið inn og spurt
hvort ég vildi ekki bara bíða eftir
henni. Ég þáði boðið og dvaldi dágóða
stund í góðu yfirlæti hjá þeim hjónum
áður en „ungfrúnni minni“ þóknaðist
að koma heim. Þetta hlýja viðmót við
fyrstu kynni mín af Katli hafa verið
einkennandi fyrir samskiptin við
þann sómamann á lífsleiðinni.
Við nutum velvildar hans og hjálp-
semi á fyrstu búskaparárum okkar
þegar við fengum að dvelja á neðri
hæðinni á Sóltúninu meðan við
byggðum húsið okkar á Baldurs-
garði. Við þá framkvæmd gaf hann
bæði góð ráð og hjálparhönd svo um
munaði. Það var gott að ígrunda ýmis
málefni við Ketil og þótt hann hefði
ákveðnar skoðanir á mörgum hlutum
var hann ávallt tilbúinn að skoða mál-
in í víðu samhengi og taka fullt tillit
til skoðana annarra.
Ketill var athafnamaður, vinnu-
samur og ötull við það sem hann tók
sér fyrir hendur. Þegar árin liðu og
fjölskyldan okkar stækkaði áttum við
fjölmargar góðar og uppbyggilegar
stundir með honum, ekki síst börnin
sem öll hændust mjög að afa sínum
og sóttu til hans bæði visku og
þroska. Hann var glaðlyndur og átti
auðvelt með samskipti við fólk, hvort
sem var á vinnudegi eða í góðra vina
hópi.
Svo vel bar til að við Ketill áttum
sameiginlegt áhugamál sem var lax-
veiði. Við fórum marga ógleymanlega
laxveiðitúra saman og upplifðum
saman mörg ævintýri við fallegar
veiðiár í dásamlegri náttúru landsins
okkar, sem hann hafði svo miklar
mætur á. Þessar ferðir þróuðust svo
uppí fjölskylduferðir með börnunum
og góðum vinum og voru árviss við-
burður meðan hann treysti sér til að
taka þátt í þeim. Þótt minnið hans
rúmaði ekki mikið undir það síðasta
rifjaði hann oft upp atburði úr þess-
um ferðum og yljaði sér og okkur öll-
um við þær endurminningar á erf-
iðum tímum.
Ketill var lífsglaður maður og
gerði oft að gamni sínu við ýmis tæki-
færi. Líklega voru það þau persónu-
einkenni sem entust honum lengst og
léttu honum erfitt líf undir lokin.
Nú er komið að leiðarlokum, Ketill
minn. Við biðjum þér Guðs blessunar
og þökkum þér allt sem þú hefur gert
fyrir okkur, við munum búa að því
ævilangt. Ég tel mig ríkari og mjög
svo lánsaman mann að hafa fengið að
eiga þig fyrir tengdaföður og vin.
Guð geymi þig,
Guðmundur Björnsson.
Undir brúnni þar sem breiðan
kvarnast tekur laxinn best í öldufald-
inum. Leikinn veiðimaður fer eins og
í anda í áttina og lætur agnið renna
ofan faldinn beint í hvítfyssandi
brúnina. Einu sinni horfði ég á hvar
þú settir í einn þarna í kvörninni og
hann tók á rás niður ána; niður í gilið
og langt niður eftir. Svo langt að lín-
an beygði á bjargbrún. Þú stóðst
þarna í veiðivestinu með spenntan
fingur á línunni, hver taug þanin, og
þér tókst að landa laxinum eftir
hundruð metra á rás niður og upp
ána næstum tveimur tímum síðar. Ég
stóð álengdar og naut þess að fylgjast
með þér í þinni einstöku paradísar-
heimt.
Ég var ungur þegar ég kynntist
þér fyrst í Sóltúninu í Keflavík. Við
Bergþóra fórum til Kaupmannahafn-
ar strax eftir stúdentsprófið og áttum
þar okkar fyrsta heimili. Vikulega
bárust bréfin frá þér, vandlega skrif-
uð með fjaðurpenna, nákvæm krón-
íka þess sem gerðist heima á Fróni.
Þessi bréf eigum við nú í stóru safni
sem eflaust verður merkileg heimild
síðar. Ég skynjaði hversu mjög annt
þér var um dætur þínar. Bergþóra
sagði mér síðar að þið feðginin hefðuð
róið á litlum árabát og lagt og dregið
hrognkelsanet úti í Ósabotnum í
Höfnum sem hefur verið dásamlegt
samband föður og dóttur. Ég upplifði
með börnunum okkar hve mikill afi
þú varst. Við faðmlag þitt fundu þau
styrk og umhyggju sem voru aðals-
merki þín.
Gaman var að fara með þér í
gönguferðir um fjörurnar við Hafnir
eða út á Krísuvíkurbjarg og hlusta á
frásagnir af liðnum tímum, atvinnu-
háttum og landshögum. Þú varst með
eindæmum talnaglöggur og heilmik-
ill meistari í hugarreikningi og hafðir
yndi af að spá í veðrið.
Allan veturinn varstu að búa þig
undir veiðiferðirnar. Veiðisögurnar
mögnuðust og það passaði að þegar
vorið var á enda voru þær orðnar svo
ótrúlegar að nauðsynlegt var að fara
að sanna þær í raun. Þú eignaðist frá-
bæra veiðifélaga í Mumma tengda-
syni þínum og Rakel dóttur þinni og
saman skiluðuð þið sumar eftir sum-
ar landburði af fiski úr Flókadalsá.
Eiginlega var allt sem þú gerðir
svona vel gert. Hvort sem það var
veiði eða hvers kyns lífsins kúnst.
Ekkert raus, ekkert mas. Æðrulaus
þegar á reyndi og æðrulaus þegar
hugurinn dapraðist. Kjarkmikið karl-
menni.
Þá tókstu jafnvel lífinu sem húm-
oresku, komst auga á skondnar hlið-
ar þess. Og þannig varstu þangað til
hugurinn fór sjálfur og einn inn á nýj-
ar veiðilendur þegar heilkenni ellinn-
ar næstum buguðu þig. Sterkasti
minningarþátturinn í lífi þínu undir
lokin var tengdur útsænum.
Þú kvaddir þennan heim á afmæl-
isdegi Heiðu, konu þinnar, og víst er
að þú hefur verið henni hin besta gjöf
sem hugsast getur. Hún endurgalt
þér gjöfina með einstakri umönnun
hin síðari ár og hélt ykkur fallegt
heimili til hinstu stundar.
Gæfan birtist okkur með ýmsum
myndum. Það er gæfa hvers manns
að hafa átt tengdaföður sem þig og
gæfa barnanna okkar að eiga minn-
ingar um þig sem verða þeim var-
anlegt veganesti í lífinu.
Og nú þegar kvarnir ánna taka að
hljóðna, kveð ég þig nú á fyrstu nótt-
um vetrar. Um leið bið ég góðan Guð
að blessa minningu þína um alla ei-
lífð.
Þorsteinn Ingi Sigfússon.
Jæja, elsku besti afi minn, þá er
komið að kveðjustund og þú búinn að
fá hvíldina. Þó að alltaf sé erfitt að
horfa á eftir einhverjum sem maður
elskar er ég á vissan hátt þakklát fyr-
ir að þessu sé lokið. Þar sem það var
ólýsanlega sárt að þurfa að horfa á
þig hverfa smá saman frá okkur.
Þegar ég fór aftur út í haust vissi
ég innra með mér að ég væri að
kveðja þig í seinasta sinn. Ég man
þegar ég tók utan um þig að ég hugs-
aði með mér að þetta væri örugglega
seinasta faðmlagið sem ég mundi
nokkurn tíma fá frá þér. Ég beit á
jaxlinn til að gráta ekki og kvaddi þig
eins og ég myndi sjá þig daginn eftir
og ákvað að það væri bara best að
vera ekkert að reyna að útskýra fyrir
þér að ég væri að fara aftur í skólann.
Það gekk, ég grét ekki meðan ég
kvaddi þig en þegar ég horfði á eftir
þér labba út um dyrnar runnu tárin.
Eins mikið og það tók á að hafa
ekki getað verið heima og haldið í
höndina á þér seinustu dagana þína
hérna á jörðinni er ég fegin að hafa
fengið að kyssa þig og knúsa bless og
fengið koss tilbaka.
Ég gleymi því samt aldrei þegar ég
kom heim og Erla sagði mér að
mamma hefði hringt. Ég vissi alveg
hverjar fréttirnar væru og tárin byrj-
uðu strax að streyma, ég vildi ekki að
þetta væri satt. Samt vissi ég alveg
að það væri þér fyrir bestu og fá að
losna og verða frjáls.
Elsku gullið mitt, ég er svo þakklát
fyrir allan þann tíma sem við höfum
átt saman og lít á það sem forréttindi
að hafa fengið að alast upp með ykk-
ur ömmu eins mikið og ég gerði. Von-
andi hefurðu það sem allra best núna
og getur litið tilbaka og hlegið að öll-
um sögunum þínum, sem ég ætla að
varðveita alltaf.
Elsku hjartans afi minn, ég elska
þig rosalega mikið og skal gera allt til
að halda áfram að gera þig stoltan af
mér. Sama hversu áttavilltur þú áttir
til að vera skein alltaf í gegn þegar þú
talaðir við mig hversu mikið þú elsk-
aðir ömmu og hversu þakklátur þú
varst fyrir að eiga svona góða konu.
Ég skal lofa þér því að ég mun gera
allt sem í mínu valdi stendur til að
vera henni til halds og trausts.
Hvíldu í friði.
Þín
Birna.
Það tók að snjóa eftir að afi minn
dó. Líkt og heimurinn hefði kólnað
þegar svo hlýtt hjarta hætti að slá.
Nú er hann frjáls úr viðjum sjúk-
dómsins sem hrjáði hann. Hann var
svo friðsæll daginn áður en hann lést.
Hann lá með hálfopin augun og horfði
á kerti sem kveikt hafði verið á fyrir
hann og myndirnar af okkur barna-
börnunum sem stillt hafði verið upp í
seilingarfjarlægð. Þannig lá hann
tímunum saman meðan stóra hjartað
hans neitaði að gefast upp. Mér
fannst stundum eins og hann horfði í
gegnum myndirnar og grænu vegg-
ina á hjúkrunarheimilinu. Á eitthvað
sem í fjarskanum augu mín fengu
ekki séð, svo mikil var einbeiting
augna hans. Stöku sinni þóttist ég
finna fyrir hreyfingu þegar amma
kom til hans. Þá greiddi hún hvítt
hárið með svörtu greiðunni hans afa,
beygði sig yfir hann og kyssti á kinn-
ina. Þá bærðust varir afa og hann í
máttleysi sínu fann kraft til að loka
munninum og endurgjalda kossinn.
Þegar ég hugsa um þig koma mér
fyrst í hug sterku hendurnar sem
tóku um mig og föðmuðu að sér.
Stundum náði ég ekki andanum, svo
kröftugt var faðmlag þitt. Og brosið.
Alltaf brostir þú og hlóst þegar ein-
hver kom í heimsókn. Jafnvel þegar
þú varst ekki alveg viss um hvað ég
héti eða hver ég væri þá kreistirðu
mig að þér, eins og þú vissir það þrátt
fyrir allt. Þegar ég heimsótti þig á
hjúkrunarheimilið kynnti amma okk-
ur. „Þetta er hann Davíð sonur henn-
ar Bergþóru,“ sagði hún. „Nú já“ hló í
þér og með blíðlegu brosi tókstu í
hönd mína og slepptir ekki fyrr en ég
þurfti að fara. Þetta var í síðasta sinn
sem ég fann fyrir sterkum höndum
þínum og heyrði glaðværan róminn
þegar gest bar að garði.
Það er svo margt sem mig langar
að segja þér afi minn. Manstu þegar
þú varst að mála húsið og ég hjálpaði
þér með því að mála gangstéttarhell-
urnar gular? Yfir kakói og kleinunum
hennar ömmu hrósaðir þú mér fyrir
hversu laginn ég væri með málning-
arburstann. Manstu þegar við sátum
saman og þú sagðir mér frá því þegar
þú varst á sjónum? Eða fjöruferðirn-
ar niður á Hafnir þar sem við fundum
sannar gersemar sem rekið hafði á
land? Eða þegar ég reyndi að stökkva
upp í ljósakrónuna en náði aldrei fyrr
en þú lyftir mér að ljósinu? Þegar við
komum til ykkar í heimsókn komst
þú oft út þegar bíllinn rann í hlaðið og
ég hljóp á undan hinum til að verða
fyrstur að faðma þig. Ég finn enn fyr-
ir þessari tilfinningu þegar ég sé hús-
ið ykkar ömmu. Nú ætla ég að faðma
ömmu tvöfalt lengur fyrir þig afi
næst þegar ég kem. Og þegar við för-
um aftur til Reykjavíkur mun ég sjá
þig fyrir mér. Amma stendur í dyra-
gættinni og veifar. Þú gengur nokkur
skref á eftir okkur og stöðvar ferðina
ofan á gangstéttarhellunum sem ég
málaði forðum gular. Pabbi spilar
metsölulagið „saltkjöt og baunir, tú-
kall“ með bílflautunni.
Þannig kvaddir þú líka í þetta sinn.
Gekkst með okkur áleiðis og veifaðir
okkur, umvafinn ást og hlýju, uns
hjarta þitt hægði ferðina og stöðv-
aðist. Og það snjóaði úti.
Þangað til við hittumst aftur elsku
afi minn, ég sakna þín,
Davíð Þór Þorsteinsson.
KETILL
JÓNSSON
Fleiri minningargreinar um Ketil
Jónsson bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
2
&-.
0G
& "& 6?#+
% '&A(
% $
$ &
$& #
% $ %* ))
$
0
6$ &'
+& "&>6 7 5##
'& 5" "4@? " !" ! &@? " 5##
"& "4@? " 5## C&# $
/!-&
& "/' 5/&"" 5## >&'6& 9 ""& !"
4& "&4? "!64& "&4& "&4? ".
!"
CF03
9 #B
8@&A(
* $ $ &
7
$ &
% $ % ))
9-" 9-" !"
7'&6"& 9-" !" 6 (9 7 #& 5##
"& 3 9-" !" 5 ""5" 5##
9-" & "9-" !"
9 ?""9-" 5## 4 /& "6-&""
4& "&4? "!64& "&4& "&4? ".