Morgunblaðið - 09.11.2001, Síða 53
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2001 53
Moulin Rouge
Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit: Baz
Luhrman. Aðalleikendur: Nicole Kidman, Ew-
an McGregor, Jim Broadbent. Sannkölluð
himnasending í skammdeginu. Stórfengleg af-
þreying sem er allt í senn: Söng- og dansa-
mynd, poppópera, gleðileikur, harmleikur,
nefndu það. Baz Luhrman er einn athyglis-
verðasti kvikmyndagerðarmaður samtímans
sem sættir sig ekki við neinar málamiðlanir og
uppsker einsog hann sáir; fullt hús stiga.
Smárabíó, Regnboginn.
The Others
Spænsk/frönsk/bandarísk 2001. Leikstjórn
og handrit: Alejandro Amenábar. Nicole Kid-
man, Fionula Flanagan, Christopher Ecclest-
on, Alakina Mann, Eric Sykes. Meistaralega
gerð hrollvekja sem þarf á engum milljóndala-
brellum að halda, en styðst við einfalt, magn-
að handrit, styrkan leik, kvikmyndatöku og
leikstjórn. Umgerðin afskekktur herragarður,
persónurnar dularfullar, efnið pottþétt, gam-
aldags draugasaga með nýju, snjöllu ívafi.
Háskólabíó, Sambíóin.
Italiensk for begyndere /
Ítalska fyrir byrjendur
Dönsk. 2001. Leikstjórn og handrit: Lone
Scherfig. Aðalleikendur: Anders W. Berthelsen,
Anette Stövebæk, Ann Eleonora Jörgensen. Ný
kvikmynd unnin eftir Dogme 95-forskriftinni,
frá dönsku leikstýrunni Scherfig. Frábær saga,
rómantísk og alvöruþrungin í senn, sem fram-
reidd er af dönskum úrvalsleikurum. Regnboginn.
Mávahlátur
Ísl. 2001. Leikstjórn og handrit: Ágúst Guð-
mundsson. Aðalpersónur: Ugla Egilsdóttir.
Margrét Viljhjálmsdóttir. Tilkomumikil kvik-
mynd Ágústs Guðmundssonar byggð á sam-
nefndri skáldsögu Kristínar Marju Baldursdótt-
ur. Þar skapar leikstjórinn söguheim sem er
lifandi og heillandi og hefur náð sterkum tök-
um á kvikmyndalegum frásagnarmáta.
Frammistaða Margrétar Vilhjálmsdóttur og
Uglu Egilsdóttur er frábær. Háskólabíó, Sambíóin.
Sexy Beast
Bresk/spönsk. 2000. Leikstjóri: Jonathan
Glazier. Handrit: Aðalleikendur: Ben Kingsley,
Ray Winstone. Fersk mynd og frumleg frá nýj-
um leikstjóra, um sálarkreppu fyrrverandi
krimma sem reynt er að draga aftur til fortíðar.
Stórkostlegur leikur hjá Ben Kingsley og Ray
Winstone. Háskólabíó, Sambíóin.
AI
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Steven Spielberg.
Handrit: Spielberg o.fl. Aðalleikendur: Haley
Joel Osment, Jude Law, Frances O’Connor,
William Hurt. Mjög spennandi og áhrifarík
kvikmynd með sterkri ádeilu. Endinum er þó
algerlega ofaukið. Sambíóin.
America’s Sweethearts
Ástsælu turtildúfurnar. Bandarísk. 2001. Leik-
stjóri: Joe Roth. Handrit: Billy Crystal. Aðalleik-
endur: Julie Roberts, Billy Crystal, Catherine
Zeta-Jones. Bráðskemmtileg ádeila á ímynda-
mótun og fjölmiðlasýki í Hollywood-bransan-
um, skrifuð og leikstýrt af mönnum sem vita
hvað þeir eru að tala um. Frábærum leikurum
er raðað af kostgæfni allt niður í smæstu hlut-
verk. Laugarásbíó, Stjörnubíó.
American Pie 2
Bandarísk. 2001. Leikstjóri J.B. Rodgers.
Handrit: Adam Herz. Aðalleikendur: Jason
Biggs, Shannon Elizabeth, Chris Klein. Bein
framhaldslýsing á kynórum menntaskólanema
er fyrri myndinni sleppir. Græskulaus aula- og
neðanmittisfyndni flutt af sama góða ungleik-
aragenginu. Sambíóin.
Bridget Jones’s Diary
Bresk. 2001. Leikstjóri: Sharom Maguire.
Handrit: Helen Fielding. Aðalhlutverk: Renée
Zellweger, Hugh Grant, Colin Firth, Jim Broad-
bent. Sagan um ástamál Bridget verður að
hæfilega fyndinni, rómantískri gamanmynd.
Zellweger gerir margt gott í titilhlutverkinu.
Háskólabíó.
Captain Corelli’s Mandolin
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: John Madden.
Handrit: Shawn Slovo. Aðalleikendur: Nicolas
Cage, Penelope Cruz, John Hurt. Falleg og
gamaldags mynd með sérstaka sýn á seinni
heimsstyrjöldina, auk ástarsögunnar. Frábærir
leikarar sem standa sig vel, en það má deila
um Nicolas Cage. Sambíóin.
Small Times Crooks
Bandarísk. 2000. Leikstjórn og handrit:
Woody Allen. Aðalleikendur: Allen, Tracey Ull-
man, Elaine May. Þetta er bráðfyndin mynd
meistara Allens. Grínið ræður ríkjum, en sagan
hefði mátt vera skemmtilegri og kannski að-
eins dýpri. Frábærir leikarar. Sambíóin.
Joy Ride
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: John Dahl. Hand-
rit: Clay Tarver. Aðalleikendur: Steve Zahn, Paul
Walker, Leele Sobieski. Spennumynd um þrjá
félaga á ferðalagi. Ágætir leikarar, frekar metn-
aðarlaus, en virkar þó sem spennumynd.
Smárabíó, Regnboginn.
Pétur og kötturinn Brandur
Sænsk. 2000. Leikstjóri: Albert Hanan Kam-
insky. Handrit: Torbjörn Janson. Teiknimynd.
Aðalraddir: Guðmundur Ólafsson, Arngunnur
Árnadóttir, Sigurður Sigurjónsson, Sigrún
Waage. Ekkert stórvirki en ágætis skemmtun
fyrir litla krakka. Pétur og Brandur eru viðkunn-
anlegir og uppátektarsamir. Smárabíó, Laugarásbíó.
Final Fantasy
Japönsk. 2001. Leikstjórn: Hironobu Sakag-
uchi. Handrit: Al Reinert. Aðalraddir: Alec
Baldwin, Ming Na, Donald Sutherland, James
Woods. Frábærlega unnin tölvugrafíkmynd um
framtíðarátök á Móður Jörð. Skortir meira líf og
lit og þó ekki væri nema örlítinn húmor. Smárabíó.
Rugrats in Paris
Bandarísk. 2000. Leikstjórn: Stig Bergquist,
Paul Demyer. Handrit: J. David Stem o.fl. Ísl.
leikraddir: Edda Heiðrún Backmann, Inga
María Valdimarsdóttir, Rósa Guðný Þórsdóttir,
Dofri Hermannsson o.fl. Skemmtileg en fullfyr-
irsjáanleg mynd um káta krakkaorma í leit að
mömmu handa vini sínum. Sambíóin, Háskólabíó.
Cats & Dogs
Bandarísk. 2001. Leikstjórn: Lawrence Gut-
erman. Handrit: John Rena. Aðalraddir: Alec
Baldwin, Sean Hayes, Susan Sarandon. Ein-
föld saga og spennandi fyrir krakka. Annars
ósköp klisjukennd og illa leikstýrð. Sambíóin.
Osmosis Jones
Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit: Farr-
ellybræður o.fl. Aðalleikendur og raddir: Chris
Rock, Bill Murray. Frumleg blanda teikni- og
leikinnar myndar, gerist á framandi slóðum
mannslíkamans. Hér stendur baráttan á milli
vondra síkla og góðra lyfja og hvítra blóðkorna.
Kemst ekki í fluggír. Sambíóin.
Lucky Numbers
Bresk. 2001. Leikstjórn: Nora Ephron. Hand-
rit: Adam Resnick. Aðalleikendur: John Trav-
olta, Lisa Kudrow. Svört grínmynd sem gengur
ekki upp; lélegir brandarar, morð og græðgi.
Travolta og Kudrow skiljanlega ekki nógu
skemmtileg. Háskólabíó.
3000 Miles to Graceland
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Demian Lichten-
stein. Handrit: Bruno Corsica. Aðalleikendur:
Kurt Russell, Kevin Costner, Courtney Cox. Af-
káraleg, yfirmáta blóðidrifin vegamynd um rán
í Las Vegas og undankomuna. Lengdin drepur
spennuna. Sambíóin.
Evil Woman
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: . Handrit: Aðal-
leikarar: Amanda Peet, Steve Zahn, Jason
Biggs, Jack Black. Lapþunn aulamynd um þrjá
bjálfa og kvenskratta. Af myndinni að dæma
stefna aulabrandarabankar í gjaldþrot.
Smárabíó.
The Musketeer
Bandarísk. Leikstjórn: Peter Hyams. Aðalleik-
endur: Justin Chambers, Tim, Roth, Stephen
Rea, Catherine Deneuve. Þessi enn ein útgáfa
af sögunni um Skytturnar þrjár eftir Dumas er
flöt, fyrirsjánleg og hreinlega leiðinleg. Ágætis
leikarar fá engu áorkað.
Laugarásbíó.
The Others: „... pottþétt gamaldags draugasaga með nýju, snjöllu ívafi“.
BÍÓIN Í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/Arnaldur Indriðason Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð Tímasóun 0 Botninn
3
% 5
G $ )45678%
%: 5 %% $ %/9:',78%
%/ 5
%: $ )45678%
%H 5 %/ $ %G45678%
;<686=/%/)5:
58+>?
D. % #%G
5 5 + %)#%G$ @ "##
af öllum yfirhöfnum
í dag og á morgun
Velkomin um borð!
15% afsláttur
Laugavegi 1