Morgunblaðið - 07.12.2001, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 07.12.2001, Blaðsíða 61
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2001 61 Viðskiptavinir athugið! Verslun okkar í Ármúla 21 verður lokuð dagana 6., 7. og 8. desember vegna árshátíðarferðar starfsfólks. Ármúla 21, sími 533-2020 Í Morgunblaðið þann 29. nóvember sl. rita fimm athafnamenn í ferðaþjónustu á Húsavík og í Mývatns- sveit, þeir Hörður Sig- urbjarnarson, Sigurjón Benediktsson, Pétur Snæbjörnsson, Björn Sigurðsson og Leifur Hallgrímsson, óð mik- inn til virkjana í byggð og óbyggð á Íslandi. Þetta eru, a.m.k. að hluta til, menn með mikla reynslu af rekstri ferðaþjónustu- fyrirtækja sem standa framarlega hvert á sínu sviði og er afkoma þeirra al- gjörlega háð hinum ýmsu náttúru- perlum og auðlindum Norðurlands. Fyrirtæki eins þeirra hlaut m.a. um- hverfisverðlaun Ferðamálaráðs Ís- lands fyrir fáum árum síðan. Því kemur það verulega á óvart að sjá hve fastir þessir menn eru í for- tíðinni og heyra hvað þeir sýna litla framsýni og metnað fyrir hönd ferðaþjónustu á Íslandi. Ferðaþjónusta á Íslandi hefur þróast ákaflega hratt undanfarin ár. Ekki eru nema örfá ár síðan almenn- ingur og stjórnvöld á Íslandi fóru að líta á ferðaþjónustu sem alvöruat- vinnugrein. Af þessum sökum hefur hingað til ekki verið hugað að nema allra nauðsynlegustu þáttum í grunngerð ferðaþjónustu og ekki verið til umræðu nema að mjög tak- mörkuðu leyti að leggja sérstaka vegi, eða bæta þá sem fyrir eru, til að auðvelda aðgengi að náttúruperl- um. Ekki sér fyrir endann á aukningu í ferðaþjónustu á Íslandi. Er þá sama hvaða mælikvarði er notaður: Fjöldi ferðamanna, gistinætur, störf eða gjaldeyristekjur. Vert er að geta þess hér að ferðaþjónusta skilar töluvert meiri gjaldeyristekjum til þjóðarbúsins en stóriðja. Menn hafa verið í talnaleikjum og reiknað með að á öðrum áratug þessarar aldar verði erlendir ferðamenn á Íslandi orðnir milljón talsins. Þegar ferða- menn eru orðnir svona margir má reikna með að við óbreyttar aðstæð- ur verði mikil örtröð t.d. á Mývatns- svæðinu; örtröð sem gæti orðið til þess að menn hættu að vilja koma þangað. Þá yrði lítið að gera hjá Pétri í Reynihlíð. Þess vegna er það mikil og ómetanleg auðlind fyrir ferðaþjónustu á Íslandi að eiga til í pokahorninu svæði sem enn eru til- tölulega ósnortin (s.s. miðhálendið og Vestfirði) en munu að sjálfsögðu verða nýtt í ferðaþjónustu í framtíð- inni, þegar barnabörn þingeysku fimmmenninganna eru tekin við rekstrinum. Það er að segja ef ekki verður búið að eyðileggja þessi svæði á einhvern hátt. Fimmmenningarnir setja sama- semmerki á milli virkjana og upp- byggingar ferðaþjónustu. Þeir gefa sér það að ef hinar og þessar virkj- anir hefðu ekki komið til, þá væru ekki til vegir að ýmsum merk- ustu náttúruperlum landsins. Vel má vera að þetta sé rétt. En ekki er þar með sagt að við þurfum að búa við það árið 2001 og hvað þá lengur að ekki sé hægt að leggja eða lag- færa vegi nema ef byggja á virkjun. Niðurstaða þeirra er sú að forsenda upp- byggingar frekari ferðaþjónustu á há- lendi Íslands, s.s. á Kárahnjúkasvæðinu, sé bygging Kárahnjúkavirkjunar eða annarra sambærilegra virkjana. Samkvæmt þessari röksemdafærslu fimmmenninganna verður vegurinn að Dettifossi ekki byggður upp fyrr en fossinn verður virkjaður. Það er eðlileg krafa atvinnugrein- arinnar ferðaþjónustu að að henni sé hlúð og hún hljóti sömu athygli og umhyggju stjórnvalda og aðrar at- vinnugreinar. Það er ljóst að ekkert vex af engu. Því er það algjörlega úr takti við tímann og í raun fáránlegt að sætta sig við það að ekkert sé framkvæmt á forsendum ferðaþjón- ustunnar og að hún þurfi því að hengja sig á aðrar atvinnugreinar, s.s. stóriðju, til að fá málum sínum framgengt. Það er eins og ef ekki væru byggðar hafnir fyrir útgerð nema við álver og járnblendiverk- smiðjur. Allir sem að ferðaþjónustu starfa eru sammála um mikilvægi góðra samgangna s.s. í formi vega og göngustíga, en uppbyggingin verður að eiga sér stað á forsendum ferða- þjónustu, en ekki í tengslum við stóriðju! Til að fyrirbyggja allan misskiln- ing skal þess getið hér, að undirrituð rekur ferðaþjónustufyrirtæki sem byggir afkomu sína m.a. á góðum samgöngum og náttúruperlum Ís- lands. Hverjir láta blekkjast? Bjarnheiður Hallsdóttir Höfundur er ferðamálafræðingur og framkvæmdastjóri ferðaskrifstof- unnar Katla Travel GmbH. Ferðamál Því kemur það verulega á óvart, segir Bjarn- heiður Hallsdóttir, að sjá hve fastir þessir menn eru í fortíðinni og heyra hvað þeir sýna litla framsýni og metnað fyrir hönd ferðaþjón- ustu á Íslandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.