Morgunblaðið - 07.12.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Er nýr Tiger Woods
að fæðast? /C2
Íslendingaliðin úr leik
í UEFA-bikarnum /C2
8 SÍÐUR 4 SÍÐUR
KFUM og KFUK – félagsstarf
á hjólum Húla hopp
Myndasögur – vanmetin
bókmenntagrein?
Óttast ekki hið dulræna
Handlagin húsmóðir
Auðlesið efni
Sérblöð í dag
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
Morgunblaðinu í dag fylgir
auglýsingablað frá Tali.
Blaðinu verður dreift um allt
land.
Morgunblaðinu í dag fylgir aug-
lýsingabæklingur frá Lancome,
„Jólin 2001“. Blaðinu verður
dreift um allt land.
Í LESBÓK Morgunblaðsins sl. laug-
ardag birtist grein eftir Stefán
Snævarr í greinaflokknum Ísland –
Útlönd. Með greininni birtist mynd
af tveimur mönnum með húðflúr.
Það er augljóst, að birting þess-
arar myndar með umræddum texta
og í þessu samhengi gefur ranga
mynd af lífsviðhorfi og skoðunum
þeirra einstaklinga, sem á myndinni
eru, og snerta ekkert þjóðernis-
stefnu eða rasisma.
Morgunblaðið biður þá Snorra
Barón Jónsson og Fjölni Geir Braga-
son afsökunar á birtingu þessarar
myndar. Það var skilningur þeirra
að myndin væri tekin til birtingar
með umfjöllun um húðflúr sem já-
kvæð erlend menningaráhrif.
Ritstj.
Morgunblaðið/Golli
Afsökunarbeiðni
SAMKEPPNISRÁÐ hefur úr-
skurðað að ekki séu lagaleg skil-
yrði fyrir því að Samkeppnisstofn-
un íhlutist vegna samkeppnisstöðu
leyfisbundins útvarpsrekstrar
einkaaðila gagnvart Ríkisútvarp-
inu að kröfu Norðurljósa sam-
skiptafélags hf.
Krafðist félagið þess að Sam-
keppnisstofnun bannaði Ríkisút-
varpinu að selja auglýsingar á
öðru verði en fram kemur í auglýs-
ingatöxtum þess.
Var það álit Norðurljósa að Rík-
isútvarpið stundaði undirboð á
auglýsingum, þrátt fyrir stórfellt
tap á rekstri þess og þannig vægi
það að rekstrargrundvelli leyfis-
bundinna útvarpsstöðva. Benti fé-
lagið á að með afnotagjaldi, sem
bundið væri í lög, væru Ríkisút-
varpinu tryggð markaðsyfirráð á
ljósvakanum.
Í niðurstöðu samkeppnisráðs
segir að það telji ekki unnt að fall-
ast á kröfu Norðurljósa á þeirri
forsendu einni að auglýsingar Rík-
isútvarpsins séu seldar á verði sem
sé lægra en fram kemur í gjald-
skrá enda geti það ekki eitt og sér
falið í sér brot á samkeppnislög-
um. Telur samkeppnisráð að Rík-
isútvarpið hafi ekki stundað það
sem kallað er skaðleg undirverð-
lagning, en það felur í sér að
markaðsráðandi fyrirtæki verð-
leggi vöru eða þjónustu sína undir
meðaltali breytilegs kostnaðar. Er
það niðurstaða samkeppnisráðs að
svo hafi ekki verið í þessu tilfelli.
Ekki lagaskilyrði
Í öðru lagi kröfðust Norðurljós
þess að samkeppnisyfirvöld hlut-
uðust til um fjárhagslegan aðskiln-
að, þannig að tekjum af útvarps-
gjaldi verði haldið aðgreindum frá
öðrum rekstrartekjum Ríkisút-
varpsins, enda hljóti þær að eiga
fyrst og fremst að standa undir
lögboðnum skyldum stofnunarinn-
ar „en ekki notast ásamt ótak-
markaðri ríkisábyrgð til niður-
greiðslu á verði auglýsinga í
miðlum Ríkisútvarpsins eða til yf-
irboða við innkaup á dagskrár-
efni“. Loks var þess krafist að
samkeppnisyfirvöld gripu til ann-
arra þeirra aðgerða sem þau teldu
nauðsynleg, til að tryggja eðlileg-
an samkeppnisgrundvöll leyfis-
bundinna útvarpsstöðva annars
vegar og Ríkisútvarpsins hins veg-
ar, sbr. 17. grein samkeppnislaga.
Í niðurstöðu samkeppnisráðs
segir að það sjái sér ekki unnt að
greina á milli annars vegar út-
varps í almannaþágu, þ.e. útvarps-
og sjónvarpsþjónustu sem ætla
mætti að markaðurinn mundi ekki
tryggja án opinberra afskipta, og
hins vegar starfsemi í óheftri sam-
keppni við aðra aðila. „Í þessu ljósi
eru ekki talin vera lagaskilyrði til
að beita fjárhagslegum aðskiln-
aði,“ segir í niðurstöðunni. „Á
sama hátt er talið að lagaákvæði
um Ríkisútvarpið útiloki að sam-
keppnisráð geti gripið til íhlutunar
á grundvelli 17. gr. samkeppnis-
laga.“
Loks er á það bent í niðurstöðu
samkeppnisráðs að því sé lögum
samkvæmt skylt að vekja athygli
ráðherra á því með áliti, telji ráðið
að ákvæði laga og stjórnvaldsfyr-
irmæla stríði gegn markmiði lag-
anna og torveldi frjálsa sam-
keppni. Telur ráðið ekki ástæðu til
slíkra tilmæla en bendir á að
Norðurljós geti beint umkvörtun-
um sínum til Eftirlitsstofnunar
EFTA.
Samkeppnisráð um kvörtun Norðurljósa
Ástæða til íhlutun-
ar ekki fyrir hendi
VINNUSTOFA fatlaðra í Lækjar-
botnum við Suðurlandsveg varð
alelda á skömmum tíma eftir að eldur
kom þar upp í gærkvöldi. Engan sak-
aði en húsið gereyðilagðist í brunan-
um. Ekki er vitað um eldsupptök.
Um 19:40 í gærkvöldi barst
slökkviliðinu tilkynning um eld í tré-
smíðaverkstæði við Lækjarbotna en
það var maður sem býr í grenndinni
sem varð eldsins var. Aðstæður á
slökkvistað voru erfiðar því nokkuð
hvasst var og ekkert vatn var á staðn-
um. Þurftu bílar því að skiptast á að
sækja vatn til slökkvistarfsins. Eng-
inn var í húsinu þegar eldurinn kom
upp og urðu því engin slys á fólki.
Að sögn slökkviliðs var fram-
kvæmd svokölluð lítil úthringing
vegna brunans sem hafði í för með sér
að öll vaktin frá þremur slökkvistöð-
um, Tunguhálsi, Skógarhlíð og Flug-
vellinum, voru á staðnum en varalið
var til taks á stöðvunum. Tók slökkvi-
starfið um þrjá og hálfan tíma og voru
menn á vakt á staðnum eftir það.
Mikið var um eldfimt efni á staðn-
um þar sem um trésmíðaverkstæði
var að ræða auk þess sem húsið sjálft
var úr timbri. Varð það því eldinum
auðveld bráð og brann til grunna.
Ekki er vitað um eldsupptök.
Morgunblaðið/Golli
Erfitt var um vik vegna hvassviðris og ekkert vatn var á staðnum.
Vinnustofa fatlaðra
brann til grunna
SKIPVERJINN af Ófeigi II VE 325,
sem saknað hefur verið síðan aðfara-
nótt miðvikudags, þegar Ófeigur
sökk skammt undan Vík í Mýrdal, er
enn ófundinn. Hann heitir Rune
Verner Sigurðsson, til heimilis að
Kirkjubraut 43, Vestmannaeyjum.
Hann er fæddur 27. apríl 1961,
kvæntur og tveggja barna faðir.
Leit að Rune hélt áfram í gær á
landi þegar björgunarsveitir Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar leituðu
í fjörum á Mýrdalssandi og Meðal-
landssandi. Vestast á Skarðsfjöru við
Kúðafljótsósa fundu björgunarsveit-
armenn 2 fiskikör og einn björgunar-
hring úr Ófeigi. Gert er ráð fyrir að
halda áfram leit á landi í dag, föstu-
dag.
Rune Verner
Sigurðsson
Saknað af
Ófeigi VE
SJÓVÁ-Almennar kærðu í gær
starfsmann á fjármálasviði fyrir-
tækisins til lögreglu en grunur
leikur á að hann hafi dregið að sér
rúmlega 14 milljónir. Talið er að
fjárdrátturinn hafi staðið yfir um
árabil.
Einar Sveinsson, framkvæmda-
stjóri Sjóvár-Almennra, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
viðkomandi starfsmaður hefði
gengist við brotunum og hefði end-
urgreitt liðlega helming upphæð-
arinnar.
Að sögn Einars var um að ræða
starfsmann sem unnið hafði hjá
fyrirtækinu í um aldarfjórðung og
höfðu starfsmanninum verið falin
margvísleg ábyrgðarstörf og gat í
krafti þess komið fjármununum
undan.
Við innri endurskoðun á bók-
haldi fyrirtækisins fyrir nokkru
vöknuðu grunsemdir um að ekki
væri allt með felldu varðandi um-
sýslu konunnar. Henni var í fram-
haldinu vikið frá störfum og end-
urskoðendum falið að kanna málið
nánar.
Einar segir að málið teljist upp-
lýst af hálfu fyrirtækisins en frek-
ari rannsókn sé í höndum lögreglu.
Grunur um fjórtán
milljóna fjárdrátt
BRESKA útvarpsstöðin BBC
verður með beina útsendingu úr
miðbæ Reykjavíkur að kvöldi 22.
og 23. desember nk. þar sem hug-
myndin er að fjalla um land og
þjóð frá ýmsum hliðum.
Útsendingarnar verða á BBC
Life 5 frá klukkan 22 til 24 bæði
kvöldin og verður þátturinn send-
ur út bæði frá Reykjavík og
London. Stjórnandi þáttarins
verður Edwina Curry, heilbrigð-
isráðherra í ríkisstjórn Margaret
Thatchers, sem gerðist síðar rit-
höfundur og er nú útvarpskona.
BBC valdi Reykjavík þar sem
borgin er mikið í umræðunni í
Englandi sem mikil gleðiborg, en
m.a. verður fjallað um skemmt-
analífið, álfatrú og fleira.
Útsending BBC frá
jólaundirbúningi hér