Morgunblaðið - 19.12.2001, Page 1

Morgunblaðið - 19.12.2001, Page 1
291. TBL. 89. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 19. DESEMBER 2001 JEMENSKT herlið, stutt skriðdrek- um og þyrlum, réðist í gær á þorp austur af höfuðborginni, Sanaa, en talið er, að félagar í al-Qaeda, hryðju- verkasamtökum Osama bin Ladens, hafi hafst þar við. Lágu að minnsta kosti 12 manns í valnum eftir hörð átök. Jemenskir hermenn og sérsveit lögreglunnar settust í gærmorgun um þorpið Al-Hosun í Marib-héraði og létu sprengjum rigna yfir það. Kom þá til snarpra átaka við menn úr Abeideh-ættbálknum, sem ráða þorpinu, en þeir höfðu áður neitað að framselja nokkra menn, sem ný- komnir eru frá Afganistan og eru taldir vera félagar í al-Qaeda. Sagt er, að 12 menn hafi fallið og 22 særst áður en hermennirnir lögðu þorpið undir sig. Al-Qaeda-mennirn- ir fundust ekki en herliðið handtók nokkra menn, sem eru sakaðir um að hafa skotið skjólshúsi yfir þá. Liðsmanna al-Qaeda víða leitað Hefur herinn leitað skipulega að jemenskum liðsmönnum al-Qaeda í ýmsum héruðum landsins en þeir hafa verið að tínast heim að undan- förnu eftir fall talibanastjórnarinnar í Afganistan. Fjölskylda bin Ladens kom upp- haflega frá Jemen og þar hefur hann átt marga stuðningsmenn. Eru þeir og bin Laden taldir hafa skipulagt til- raun til að sprengja upp bandaríska herskipið Cole í höfninni í Aden í Suður-Jemen en þá létu 17 banda- rískir sjóliðar lífið. Um 25 manns hafa verið handteknir vegna þess til- ræðis. Paul Wolfowitz, aðstoðarvarnar- málaráðherra Bandaríkjanna, sagði að bandarísk stjórnvöld hefðu hvatt Jemena til að herða leitina að fé- lögum í al-Qaeda. Heimildarmenn fréttastofunnar AFP í bandaríska ut- anríkisráðuneytinu sögðu að það hefði sent jemenskum yfirvöldum lista yfir menn, sem tengdust bin Laden og taka þyrfti höndum. Leitað í hellum Tora Bora Leitinni að Osama bin Laden var haldið áfram í Afganistan í gær. Bandaríkjastjórn tilkynnti að gert hefði verið hlé á sprengjuárásum á hellasvæðið í Tora Bora í austurhluta landsins til að gera afgönskum her- mönnum kleift að leita að hundruð- um liðsmanna al-Qaeda, sem talið er að séu á flótta á svæðinu. Um 50 al- Qaeda-menn voru handteknir. Wolfowitz sagði að bin Laden kynni að hafa beðið bana og lík hans væri ef til vill í einhverjum af hellum Tora Bora. „Hann gæti einnig verið á flótta.“ Embættismenn í Washington sögðu að bandarískir sérsveitarmenn myndu aðstoða afgönsku hermenn- ina við að leita í öllum hellunum. Her Jemens leitar al- Qaeda-liða Tólf manns bíða bana í árás á þorp Sanaa, Tora Bora. AFP, AP.  Fyrstu lotu/28 DONALD Rumsfeld, varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna, hvatti í gær aðildarríki Atlantshafsbanda- lagsins til að takast á við hættuna á því að hryðjuverkamenn gerðu fleiri árásir á stórborgir, hugsanlega með kjarna-, efna- og sýklavopnum. „Við þurfum að viðurkenna þá staðreynd að árásirnar 11. septem- ber – jafn skelfilegar og þær voru – eru ef til vill aðeins forsmekkur þess sem vofir yfir ef við búum okk- ur ekki strax undir að vernda fólkið okkar fyrir óvinum sem hafa yfir æ öflugri og fjölbreyttari vopnum að ráða,“ sagði Rumsfeld á tveggja daga fundi varnarmálaráðherra NATO-ríkjanna sem hófst í Brussel í gær. Rumsfeld sagði að mörg þeirra ríkja, sem styddu hryðjuverkasam- tök, væru einnig á lista yfir þau ríki sem talin eru reyna að komast yfir kjarna-, efna- og sýklavopn. „Hryðjuverkamennirnir og ráða- menn þeirra ríkja sem styðja þá hafa sýnt að þeir eru hugvitssamir, svífast einskis og bera enga virð- ingu fyrir mannslífinu. Þegar við skoðum eyðilegginguna í Banda- ríkjunum ættum við að hugleiða tor- tíminguna sem þeir geta valdið í New York, London, París eða Berl- ín með kjarna-, efna- eða sýklavopn- um.“ NATO-ríkin verði við öllu búin Rumsfeld varaði einnig við hætt- unni á því að hryðjuverkamenn gerðu árásir á tölvukerfi og gervi- hnetti til að valda usla út um allan heim eða beittu hefðbundnum vopn- um eins og stýriflaugum og eld- flaugum. Varnarmálaráðherrann lagði áherslu á að Afganistan væri ekki eina landið þar sem hryðjuverka- menn störfuðu og að samtök Osama bin Ladens, al-Qaeda, væru ekki einu hryðjuverkasamtök heims. Hann sagði þó ekkert um hvort gripið yrði til hernaðaraðgerða í öðrum löndum en Afganistan. Embættismaður í höfuðstöðvum NATO sagði að Rumsfeld hefði ekki lagt fram neinar tillögur um aðgerð- ir gegn hryðjuverkamönnum á fundinum heldur brýnt fyrir aðild- arríkjunum að vera við öllu búin. Rumsfeld hvatti til þess að frið- argæsluliðum NATO í Bosníu yrði fækkað um að minnsta kosti 6.000, en þeir eru nú 18.000. Hann lagði til að vopnaðar lögreglusveitir undir forystu Evrópusambandsins yrðu sendar þangað til að létta undir með friðargæsluliðinu. Varað við skæðari hryðjuverkum Brussel. AFP, AP. SLÖKKVILIÐSMÖNNUM í New York tókst í gær að slökkva eld í dómkirkju heilags Jóhannesar á Manhattan, einni af stærstu kirkjum heims í gotneskum stíl. Miklar skemmdir urðu á hliðar- byggingu, sem hýsir minjagripa- verslun, og hluti þaks hennar hrundi. Nokkrar skemmdir urðu vegna reyks og vatns í kirkjunni. AP Eldur í dómkirkju ÓEIRÐIR hafa blossað upp við stórmarkaði í nokkrum borgum Argentínu síðustu daga vegna efnahagskreppunnar í landinu. Lögreglumenn handtaka hér ung- an mann eftir að hundruð manna réðust inn í stórmarkað í borg- inni Mendoza til að ræna mat- vælum. Meira en 18% Argentínu- manna eru án atvinnu og vaxandi fátækt, skattahækkanir og sparn- aðaraðgerðir stjórnarinnar hafa vakið mikla ólgu meðal lands- manna. Óeirðir í Argentínu Reuters Bretland Um 1.100 dauðsföll rakin til mistaka London. AFP. DAUÐSFÖLLUM vegna rangrar lyfjagjafar á sjúkra- húsum í Englandi og Wales hefur fjölgað um 500% á ára- tug, að því er fram kemur í skýrslu sem bresk yfirvöld birtu í gær. Dauðsföllin vegna rangrar lyfjagjafar voru um 200 í byrj- un síðasta áratugar, 950 árið 1999, og í fyrra fjölgaði þeim í meira en 1.100. Dauðsföllin voru ýmist rakin til mistaka lækna og hjúkr- unarfræðinga eða hastarlegra viðbragða sjúklinga við lyfj- unum. Í skýrslunni segir að hægt hefði verið að koma í veg fyrir mörg dauðsfallanna þar sem þau hefðu orðið vegna þess að læknarnir hefðu ekki haft fullnægjandi upplýsingar um sjúklingana, meðal annars vegna þess að þær voru ólæsi- legar. Allt að 10.000 alvarleg mistök á ári Höfundur skýrslunnar, Nick Mapstone, segir að þótt hafa beri í huga að sjúklingunum hafi fjölgað sé ljóst að mistök á sjúkrahúsum kosti mörg mannslíf. „Í skýrslunni segir að líklega verði starfsfólki sjúkrahúsanna á allt að 10.000 alvarleg mistök á ári og það er alltof mikið,“ sagði Trevor Pickersgill, formaður lækna- nefndar bresku læknasamtak- anna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.