Morgunblaðið - 19.12.2001, Page 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Umhyggja berst fyrir langveik börn
Betur má
ef duga skal
UMHYGGJA ermerkur fé-lagsskapur þar
sem foreldra- og aðstand-
endahópar langveikra
barna hafa tekið höndum
saman til að vinna að sam-
eiginlegum hagsmunamál-
um. Dögg Káradóttir er
framkvæmdastjóri Um-
hyggju og Morgunblaðið
ræddi við hana nýverið.
Hvenær var Umhyggja
stofnuð og hvaða hópar
standa að félaginu?
„Umhyggja var stofnuð
1980 af fagfólki á barna-
deildum Landspítala og
Landakotsspítala. Smám
saman þróaðist starfsemi
félagsins og fleiri og fleiri
foreldrar gengu í félagið.
Stærsta breytingin varð
árið 1996 þegar átta foreldrafélög
gengu í Umhyggju. Í dag eru for-
eldrafélögin orðin þrettán. Þau
eru: Áhugahópur Gigtarfélags Ís-
lands um barnagigt, Breið bros,
samtök aðstandenda barna fædd
með skarð í vör og góm, Einstök
börn, félag til stuðnings börnum
með sjaldgæfa alvarlega sjúk-
dóma, Fimir fætur, samtök for-
eldra barna með klumbufætur,
Foreldrafélag barna með axlak-
lemmu, Foreldrafélag barna með
Tourette-heilkenni, Foreldrafélag
geðsjúkra barna og unglinga,
Foreldrafélag sykursjúkra barna
og unglinga, Hetjur, stuðnings-
félag foreldra og aðstandenda
langveikra barna á Akureyri og
nágrenni, LAUF, foreldrafélag
flogaveikisamtakanna, Neistinn,
styrktarfélag hjartveikra barna,
PKU-félagið á Íslandi og SKB,
styrktarfélag krabbameinssjúkra
barna. Öll börn sem tilheyra of-
annefndum félögum eru langveik.
Sum eru mjög alvarlega veik, önn-
ur minna, en allflest verða þau að
lifa við það að verða aldrei frísk.“
Á hvaða hátt styður Umhyggja
langveik börn og fjölskyldur
þeirra?
„Umhyggja er þverfaglegt fé-
lag sem vinnur að því m.a. að upp-
lýsa stjórnvöld. Tryggingastofnun
ríkisins, skólayfirvöld og almenn-
ing á Íslandi um þarfir langveikra
barna, í því skyni að tryggja að
mannréttindi og félagsleg réttindi
þeirra samkvæmt Barnasáttmála
Sameinuðu þjóðanna séu virt.
Að veita foreldrafélögum stuðn-
ing í störfum þeirra, bæta umönn-
un og hag langveikra barna inni á
sjúkrahúsum, sem og í heimahús-
um. Stefnan er að barn skuli ein-
ungis leggjast inn á sjúkrahús
þegar ekki er hægt að veita því
alla þá meðferð og hjúkrun sem
það hefur þörf fyrir á heilsugæslu-
stöð eða í heimahúsi. Félagsmenn
í aðildarfélögum Umhyggju geta
einnig sótt um fjárstyrk til
Styrktarsjóðs Umhyggju.“
Nýtur félagið stuðnings og vel-
vilja hins opinbera og almenn-
ings?
„Félagið nýtur bæði stuðnings
og mikils velvilja al-
mennings í landinu.
Hvað hið opinbera
varðar, vantar enn tals-
vert á og það er í raun-
inni með ólíkindum
hvað stjórnvöld standa illa við
bakið á þessum hópi. Það er kunn-
ara en frá þurfi að segja að þegar
foreldrar eignast langveikt barn
hrynur veröldin til grunna. Nær
undantekningarlaust verður
a.m.k. annað foreldrið að hætta
atvinnuþátttöku og oftar en ekki
hitt tímabundið, t.d. þegar veika
barnið leggst inn á sjúkrahús og
fleiri börn eru í fjölskyldunni.
Fjárhagslegt öryggi og rekstrar-
grundvöllur fjölskyldunnar hryn-
ur oftar en ekki þar sem hin
dæmigerða íslenska fjölskylda er
oftast nær með miklar skuldbind-
ingar og því má lítið út af bera.
Það er í rauninni enginn sem
tryggir foreldrum þetta tekjutap.
Samkvæmt kjarasamningum eiga
foreldrar rétt á 7–10 vinnudögum
vegna veikinda barna sinna undir
13 ára aldri óháð hversu mörg
börn eru í fjölskyldunni. Nokkur-
verkalýðsfélög gera þó verulega
vel við sína félagsmenn og er það
til fyrirmyndar.“
Hvernig er starfsemin fjár-
mögnuð?
„Starfsemin er fjáramögnuð
með árgjöldum félagsmanna og
foreldrafélaganna sem og gjöfum
og styrkjum frá velunnurum um
land allt, sölu jólakorta og annarri
fjáröflun. Á yfirstandandi ári fékk
félagið 800 þúsund krónu framlag
frá ríkinu.“
Hefur Umhyggja breytt miklu?
„Ég held að óhætt sé að segja
að það starf sem unnið hefur verið
hjá Umhyggju á undangengnum
árum hafi skilað miklu til foreldra
langveikra barna. Þótt ástandið sé
ekki nógu gott í dag hefur það þó
batnað mikið frá því sem áður var.
En betur má ef duga skal. Mark-
mið Umhyggju er að geta opnað
þjónustumiðstöð þar sem foreldr-
um, systkinum og öðrum aðstand-
endum langveikra
barna verði veitt sál-
félagsleg aðstoð og ráð-
gjöf. Undanfarið höfum
við orðið vör við gríð-
arlega þörf fyrir þess
konar stuðning. Fjárskortur hef-
ur hamlað því að ekki hefur enn
tekist að koma á slíkri þjónustu.
Við erum því að vonast til að finna
fjársterkan aðila sem gæti hugsað
sér að leggja þessu málefni lið.
Slík þjónustumiðstöð myndi leysa
mikinn vanda og létta þeim lífið
sem takast á við eitt það óbærileg-
asta í þessu lífi, að berjast með
langveiku barni sínu.“
Dögg Káradóttir
Dögg Káradóttir er fædd í
Hafnarfirði 1954 og alin upp á
Húsavík. Hún lauk prófi í fé-
lagsráðgjöf frá Háskólanum í
Gautaborg 1985 og þriggja anna
rekstrar- og viðskiptanámi frá
Endurmenntunarstofnun HÍ
1997. Hún var nokkur ár hjá Fé-
lagsþjónustunni í Reykjavík, for-
stöðumaður í þjónustumiðstöð
Tryggingastofnunar 1997–2000,
félagsráðgjafi á Landakoti 2000–
2001 og framkvæmdastjóri Um-
hyggju frá sept. 2001. Hún er
gift Þorsteini Geirharðssyni og
eiga þau Geirharð og Arnrúnu,
fædd 1987 og 1989.
...sum þeirra
eru mjög al-
varlega veik
Áttu ekki eitthvert dót, frú? Við erum að safna í tombólu til að styrkja gott málefni.
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um
20 mánaða fangelsi yfir breskum
ríkisborgara, sem var fundinn sek-
ur um fjársvik og skjalafals. Í
þremur heimsóknum sínum hingað
til lands notaði maðurinn í heimild-
arleysi falsaðar eftirgerðir 16
kreditkorta annarra í 47 skipti til
að blekkja með þeim í lögskiptum
við kaup á vöru, þjónustu og til út-
tekta á reiðufé í bönkum. Í 46
skipti falsaði maðurinn undirskrift-
ir á úttektarmiða, en í eitt skipti
gaf hann upp númer greiðslukorts
við kaup á flugfarseðli. Hann hafði
alls rúmar 5,3 milljónir af við-
skiptamönnum sínum með þessum
hætti.
Í dómi Hæstaréttar segir að brot
mannsins séu mörg, stórfelld og
skipulögð. Sé ljóst að hann hafi
komið hingað til lands gagngert í
þessum tilgangi.
Við ákvörðun refsingar var litið
til einbeitts brotavilja mannsins.
Maðurinn var einnig dæmdur til
að greiða Kreditkortum hf. rúma
eina milljón og greiða allan áfrýj-
unarkostnað málsins. Þá var hon-
um gert að sæta upptöku á 15.000
bandaríkjadölum, 30 sterlings-
pundum og 145.000 krónum.
Hlaut 20 mánaða
fangelsi fyrir kortasvik