Morgunblaðið - 19.12.2001, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 19.12.2001, Qupperneq 14
FRÉTTIR 14 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ SEGÐU „JÁ“ H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA LAUGAVEGI 49 S: 551-7742 ÖGMUNDUR Jónasson, for- maður BSRB, segir að öll þjóð- in hljóti að vera því sammála að það sé brýnt hagsmunamál að markmið samkomulags ASÍ, Samtaka atvinnulífsins og rík- isstjórnarinnar um lækkun verðbólgu og styrkingu krón- unnar nái fram að ganga. „Enda þarf á samstilltu átaki að halda í þjóðfélaginu til að svo verði.“ „Þegar verðbólgan var færð úr 20 til 30 prósentustigum nið- ur í lága eins stafs tölu fyrir rúmum tíu árum var það ein- mitt gert með mjög samstilltu átaki í þjóðfélaginu. Sú hugsun hefur hins vegar ekki átt upp á pallborðið hjá stjórnvöldum síð- ustu ár, heldur hafa menn viljað reiða sig á óheftan markað. Ég vona að þetta sé einhver vísir að hugarfarsbreytingu í þessu efni. Það væri vel ef svo væri,“ segir Ögmundur. Ýmislegt mótsagnakennt í yfirlýsingu ríkisstjórnar Hann segir að BSRB hafi átt beina aðild að þeim hluta máls- ins sem varðar afnám tolla og lækkanir á verði á grænmeti en fulltúi samtakanna átti sæti í vinnunefnd landbúnaðarráð- herra, sem skóp það samkomu- lag, að hans sögn. „Ég vona að það verði til þess að færa niður verðlag jafnframt því sem staða innlendra framleiðenda er tryggð en hvorttveggja er í samræmi við stefnu og áherslur BSRB,“ segir Ögmundur. Hann segist á hinn bóginn telja ýmislegt mótsagnakennt í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, sem gefin var út í tengslum við samkomulag aðila vinnumark- aðarins. „Þar er til dæmis ann- ars vegar talað um að sýna ráð- deild og aðhald, en jafnframt er sagt að það eigi að halda áfram á þeirri braut að selja ríkiseign- ir og einkavæða. Mér hefur aldrei þótt það mikil búhygg- indi að selja gullkýrnar eins og hér er verið að gera. Bæði það og einkavæðingin og einka- framkvæmdin eins og við höf- um fengið að kynnast henni síð- ustu ár er mjög dýr fyrir skatt- borgarann,“ segir hann. „Í yfirlýsingunni er látið að því liggja að aðilar þessa sam- komulags komi að undirbúningi fyrir fjárlög næsta árs og mér finnst mjög brýnt að þar komi heildarsamtök opinberra starfsmanna einnig að borði. Ef verið er að stofna til víðtæks samráðs finnst mér nauðsyn- legt að BSRB eigi hlut að slíkri vinnu, annað væri raunar frá- leitt,“ segir Ögmundur. Munum innheimta fyrirheit um viðræður við okkur Aðspurður hvort ákvörðun launþegasamtaka á almenna vinnumarkaðinum um frestun á uppsagnarákvæðum kjara- samninga snertu á einhvern hátt forsendur kjarasamninga opinberra starfsmanna sagði Ögmundur að ekki væri upp- sagnarákvæði í kjarasamning- um opinberra starfsmanna með sama hætti og hjá ASÍ. „Hins vegar voru fyrirheit um að eiga viðræður við okkur ef til kæmi. Að sjálfsögðu munum við inn- heimta þau fyrirheit.“ Þörf á samstilltu átaki í þjóðfé- laginu Ögmundur Jónasson, for- maður BSRB ÁLEITNAR spurningar um öryggi barna á barnadeild Landspítalans – háskólasjúkrahúss hafa vaknað eftir dóm Héraðsdóms Reykjavíkur, sem dæmdi nýlega 25 ára mann í 12 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot m.a. gegn 13 ára stúlku, sem lá á barnadeild Landspítala – háskóla- sjúkrahúss í Fossvogi á síðasta ári. Maðurinn var ákærður fyrir þrjú kynferðisbrot gegn stúlkunni, þ.a. tvö skipti innan veggja spítalans. Þær spurningar sem hér um ræð- ir og voru bornar undir Árna V. Þórsson yfirlækni á barnadeild lúta einkum að því hvernig staðið geti á því að brotið sé gegn börnum, sem liggja á barnadeild spítalans og hvort til standi að grípa til ráðstaf- ana á deildinni til að fyrirbyggja að slíkt gerist á ný. Árni segir, viðvíkj- andi seinni spurningunni, að ekki standi til að breyta eftirliti með sjúklingum á barnadeildinni, enda sé mál þetta einstakt í sögu barna- deildarinnar og þar að auki hafi brotin ekki átt sér stað inni á deild- inni sjálfri, heldur utan hennar. Ákærði hafi m.ö.o. komið á spítalann í heimsókn til stúlkunnar, þau farið saman út af deildinni og þar muni kynferðislegt samneyti hafa átt sér stað. Í niðurstöðu héraðsdóms er ekki talið að ákærði hefði þvingað stúlkuna til kynmaka með nauðung eða hótunum, þótt hann hefði verið ýtinn við hana. Ákærði játaði kyn- mök við stúlkuna samkvæmt ákæru, þar sem ákært var fyrir þrjú skipti, þ.a. tvö á salernum sjúkrahússins. Í annað skiptið var um að ræða sal- erni á 2. hæð spítalans en í hitt skiptið á salerni 5. hæðar, á sömu hæð og barnadeildin. Árni segir að þótt barnadeildin sé opin deild, sé eftirliti með sjúklingum engu að síð- ur þannig háttað að útilokað væri að fremja kynferðisbrot gegn sjúkling- um þar. „Hér var um að ræða unglings- stúlku sem átti í kynferðislegu sam- bandi við þennan fullorðna mann [ákærða] löngu áður en hún var lögð inn,“ segir Árni. „Það vissum við ekki þegar hún var lögð inn, en það kom hins vegar upp í innlögninni og þá tilkynntum við það til barna- verndarnefndar sem lagði fram kæru. Við vissum heldur ekki að ein- hver maður, sem kom hingað í heim- sókn til hennar, væri í þessum er- indagjörðum. Það eru ýmsir sem heimsækja börn og unglinga hingað á deildina og við höfum ekki dyra- vörð hér sem krefur hvern gest um skilríki.“ Sjúklingar ekki kyrrsettir Auður Ragnarsdóttir deildarstjóri barnadeildarinnar bendir í þessu sambandi á, að sjúklingar á deildinni séu ekki kyrrsettir á henni, með því að þeim sé með öllu óheimilt að skreppa út af deildinni ef þeir hafa heilsu til. Árni segir að ekki komi til greina að læsa barnadeildinni, enda væri það stórt skref afturábak, til þeirra tíma er aðgengi foreldra að veikum börnum sínum var torveld- að. „En auðvitað er þetta mál mjög óskemmtilegt fyrir alla aðila. Það átti hins vegar engan veginn upphaf sitt hér á deildinni, heldur kom upp í innlögn, sem var ein tilraun af mörg- um til að hjálpa unglingi með lang- varandi vandamál.“ Yfirlæknir segir ekki ástæðu til að herða eftirlit á barnadeild Kynferðisbrotin framin utan barnadeildarinnar Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson ALBIN E. Acapulco, vélstjóri frá Fil- ippseyjum, sem missti báða fætur sína í slysi um borð í skipinu m/s Madredeus, en skipið lá þá við bryggju í Grundarfjarðarhöfn, verð- ur á Íslandi þar til sjúkraþjálfun hans er lokið. Hann hefur fengið gervifæt- ur frá Össuri og er núna að læra að nota þá. Alþjóðaflutningaverka- mannasambandið (ITF) vinnur nú að því að tryggja réttindi hans, en sú slysatrygging sem hann hefur er ekki í samræmi við kjarasamning ITF. Albin hefur enn ekki fengið neinar greiðslur frá útgerð skipsins eða tryggingafélagi þess þrátt fyrir að mánuður sé liðinn frá slysinu. Sam- kvæmt kjarasamningi ITF eiga sjó- menn sem veikjast eða lenda í slysi rétt á dagpeningum í 112 daga. Auk þess eiga yfirmenn rétt á 80 þúsund bandarískra dollara eingreiðslu í slysabætur, en hásetar eiga rétt á 60 þúsund dollara eingreiðslu. Albin er vélstjóri og ætti því að fá 80 þúsund dollara. Jafnframt er í samningnum ákvæði um barnalífeyri. Samkvæmt bréfi sem stjórnvöld á Filippseyjum gáfu út um starfskjör Albins á hann rétt á 60 þúsund króna eingreiðslu í slysabætur. Ekkert er í bréfinu hins vegar að finna um sjúkradagpeninga eða barnalífeyri. Raunar eru mánaðarlaun sem getið er um í bréfinu ekki í samræmi við kjarasamning ITF. Á vegum ITF er unnið að því að tryggja Albin fullar slysabætur, en hann á fjögur börn á Filippseyjum á aldrinum 11–21 árs. Skólakerfið þar í landi tryggir börnum ekki ókeypis skólagöngu nema upp að 12 ára aldri og þarf Albin að greiða 8–10 þúsund bandaríska dollara samtals í skóla- gjöld vegna menntun barna sinna. Eins og fram kom í Morgunblaðinu fyrir helgi hefur Össur gefið Albin gervifætur sem kosta um 1,3 milljónir króna. Þá hefur Vélstjórafélagið veitt honum stuðning. Unnið að því að tryggja vélstjóra fullar slysabæturMAGNÚS Norðdahl, lögfræðingurAlþýðusambands Íslands, vill ekki tjá sig um hvaða þýðingu það hefur að framhaldsaðalfundur Verkalýðs- félags Akraness hefur samþykkt vantraust á meirihluta stjórnar fé- lagsins. Hann segir að ekki hafi verið óskað eftir því að miðstjórn ASÍ taki málið upp til skoðunar. Samkvæmt 10. grein laga Alþýðu- sambandsins fjallar miðstjórn sam- bandsins um ágreiningsefni sem fé- lögum innan þess tekst ekki að leysa á sínum vettvangi. Úrskurðir mið- stjórnar í slíkum málum eru endan- legir. Magnús sagði að þessu máli hefði ekki verið vísað til miðstjórnar og vildi ekki tjá sig um það efnislega. Ekki vísað til miðstjórnar ASÍ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.