Morgunblaðið - 19.12.2001, Síða 25
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 25
BRILLIANT
F A N G A Ð U A U G N A B L I K I Ð
S: 564-4120
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
VÆNTINGAVÍSITALA Gallup
hækkar um 12,6 stig í nóvember, eða
úr 61,8 stigum í 74,4 stig, og er þetta
mesta hækkun milli mánaða frá því
mælingar hófust í mars á þessu ári.
Væntingavísitalan mælir tiltrú al-
mennings á efnahagslífið og vænt-
ingar hans til þróunar efnahagsmála
og er, að því er fram kemur í frétt frá
Gallup, talin hafa gott forspárgildi
um þróun einkaneyslu. Vísitalan er
þannig upp byggð að hún getur legið
á bilinu 0–200 og er yfir 100 ef meiri-
hluti svarenda telur útlitið í efna-
hagsmálum jákvætt, en undir 100 ef
meirihlutinn telur útlitið neikvætt.
Að sögn Guðna Rafns Gunnars-
sonar hjá Gallup tekur tvær vikur að
mæla vísitöluna hverju sinni og
hækkaði vísitalan báðar vikurnar, en
marktækur munur var á fyrri vik-
unni og þeirri seinni þar sem vísital-
an hækkaði mun meira í seinni vik-
unni. Í fréttum Kaupþings og
Íslandsbanka segir að líklegt sé að
samkomulag Samtaka atvinnulífsins
og Alþýðusambands Íslands, auk
styrkingar krónunnar, ráði mestu
um aukna bjartsýni í seinni vikunni.
Aukin trú
á efna-
hagslífið
GJALDEYRISMÁL, sem Ráðgjöf
og efnahagsspár ehf. gefa út, hafa
birt nýja verðbólguspá sem gerð
er í ljósi vísitölu neysluverðs sem
birt var í síðustu viku og með hlið-
sjón af samningi SA og ASÍ frá í
síðustu viku. Hækkun vísitölu
neysluverðs í nóvember reyndist í
takt við spá Gjaldeyrismála frá 26.
nóvember síðastliðnum eða 0,5%
samanborið við spá um 0,2–0,6%
hækkun.
Vísitala neysluverðs án húsnæð-
is hækkaði um hið sama. Umtals-
verðan hluta hækkunarinnar nú
virðist mega skýra með verðhækk-
un innflutts varnings í kjölfar
gengislækkunar krónunnar.
Í janúar gera Gjaldeyrismál ráð
fyrir að vísitala neysluverðs verði
nær óbreytt, eða breytist um á
bilinu -0,1% til +0,2%. Frá upphafi
til loka þessa árs er gert ráð fyrir
um 8,4% verðbólgu.
Árið 2002 er spáð rösklega 5%
verðbólgu á milli ársmeðaltala vísi-
tölu neysluverðs.
Í Gjaldeyrismálum segir að ljóst
sé að eigi spá þessi að ganga eftir
megi lítið út af bera hvað varðar
helstu forsendur, s.s. laun og
gengi en spáin er nokkru lægri en
nýlegar spár annarra aðila, t.d.
spá Seðlabanka Íslands frá í nóv-
ember síðastliðnum.
„Eins og undanfarna mánuði eru
margir óvissuþættir í verðlagsmál-
um bæði um hækkanir og tíma-
setningar. Þar standa upp úr þró-
un olíuverðs og gengis og staða
kjaramála. Í maí gerir spáin ráð
fyrir að vísitala neysluverðs verði
um 1 stigi fyrir neðan rautt strik
samkomulags SA og ASÍ frá í síð-
ustu viku.
Spáin gerir ráð fyrir stöðugu
gengi krónunnar næstu mánuði,“
segir í Gjaldeyrismálum.
Ráðgjöf og efnahagsspár spá 3,5%
verðbólgu frá byrjun til loka næsta árs
Telja vísitöluna
verða fyrir neðan
rautt strik í maí
SAMKVÆMT upplýsingum sem
Morgunblaðið hefur aflað sér
átti Providence Equity Partn-
ers, sem gert hefur tilboð í kjöl-
festuhlut Landssíma Íslands,
innan við 1% í Western Wireless
Corporation í apríl síðastliðnum.
Western Wireless Corporation
er móðurfélag Western Wire-
less International, sem á um
58% hlut í Tali.
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu bárust tvö tilboð
í svonefndan kjölfestuhlut í
Landssíma Íslands hf. Annars
vegar barst tilboð frá TDC, sem
áður hét TeleDanmark, og hins
vegar frá bandaríska fjárfest-
ingarsjóðnum Providence
Equity Partners, sem er meðal
annars stærsti hluthafinn í Eir-
com á Írlandi.
Á innan við 1% í
Western Wireless