Morgunblaðið - 19.12.2001, Side 30
ERLENT
30 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
DONALD Rumsfeld, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, varði í gær
þá ákvörðun Bandaríkjastjórnar að
segja upp Gagneldflaugasáttmálan-
um frá 1972 (ABM) og sagði, að hún
væri ekki reiðubúin að ræða nýja af-
vopnunarsamninga vegna þeirrar
óvissu, sem nú ríkti. Þótt Rússar hafi
verið andvígir uppsögn ABM leggja
þeir mikla áherslu á viðræður við
Bandaríkjastjórn um fækkun kjarn-
orkuvopna.
Rumsfeld sagði á fundi með varn-
armálaráðherrum NATO í Brussel,
að einhliða ákvörðun Bandaríkja-
stjórnar um að segja upp ABM með
sex mánaða fyrirvara ætti ekki að
standa í veginum fyrir aukinni sam-
vinnu við Rússa. Minnti hann á, að
Rússar og Bandaríkjamenn hefðu
orðið sammála um að fækka kjarna-
vopnum sínum og sagði unnið að því
að tryggja, að hvorir um sig gætu
gengið úr skugga um fækkunina.
Ekki ógnun við Rússa
Rumsfeld sagði hins vegar, að í
þeirri endurskoðun, sem nú væri að
ljúka á kjarnorkuvígbúnaðarstefnu
Bandaríkjanna, væri lögð áhersla á,
að unnt væri að mæta nýjum ógnum
við nýjar og breyttar aðstæður. Með
það í huga vildi Bandaríkjastjórn
bíða með frekari afvopnunarsamn-
inga. Sagði hann, að mesta áhyggju-
efnið væri tilraunir hryðjuverkasam-
taka og hryðjuverkaríkja til að
komast yfir gjöreyðingarvopn og
tæki til að beita þeim.
Rumsfeld átti í gær fund með
Sergei Ívanov, varnarmálaráðherra
Rússlands, sem ítrekaði, að Rússar
væru andvígir uppsögn ABM-sátt-
málans og teldu hana geta ýtt undir
nýtt vígbúnaðarkapphlaup. Hann
lagði þó áherslu á, að Rússar litu
ekki á uppsögnina sem ógnun við sig.
Mikilvægt væri hins vegar, að Rúss-
ar og Bandaríkjamenn stæðu við
fyrri yfirlýsingar um fækkun kjarn-
orkuvopna en fyrstu viðræður um
það verða í janúar.
Rumsfeld segir varnarstefnu Bandaríkjanna mótast af hryðjuverkaógninni
Engir nýir afvopnunar-
samningar á næstunni
Brussel. AP, AFP.
Reuters
Donald Rumsfeld (t.h.) ræðir við rússneskan starfsbróður sinn, Sergei Ívanov, á fundi varnarmálaráðherra
NATO-ríkja í Brussel í gær. Fyrir framan þá stendur bandaríski herforinginn R. B. Myer.
Indverjar
saka Pakist-
ana um aðild
að árás
Nýja Delhí. AFP, AP.
INDVERJAR sökuðu Pakistana í
gær um að hafa átt aðild að tilraun til
að ráða helstu ráðamenn Indlands af
dögum með því að styðja við bakið á
hryðjuverkamönnum sem gerðu
árás á þinghúsið í Nýju Delhí á
fimmtudag í síðustu viku.
Innanríkisráðherra Indlands, Lal
K. Advani, fullyrti í ræðu á ind-
verska þinginu í gær að samtök að-
skilnaðarsinna í Kasmír, sem hefðu
bækistöðvar í Pakistan og nytu
stuðnings pakistanskra stjórnvalda,
bæru ábyrgð á tilræðinu. „Árásin á
þingið í síðustu viku er án efa ósvífn-
asta og alvarlegasta tilræðið í
tveggja áratuga sögu hryðjuverka að
undirlagi Pakistana í Indlandi,“
sagði Advani í ræðu sinni. „Þessari
hræðilegu árás … á vöggu lýðræðis-
ins var greinilega ætlað að þurrka
indversku stjórnmálaforystuna út,“
hélt hann áfram.
Hafna boði Pakistana um
aðstoð við rannsókn málsins
Pakistönsk stjórnvöld vísuðu full-
yrðingum Advanis á bug og sökuðu
Indverja um að hliðra sér hjá því að
ræða af alvöru um framtíð Kasmír-
héraðs, sem verið hefur bitbein
ríkjanna í áratugi. Talsmaður her-
foringjastjórnarinnar í Islamabad
sagði pakistönsku þjóðina fordæma
slík hryðjuverk og bauð Indverjum
aðstoð við rannsókn málsins. For-
sætisráðherra Indlands, Atal Behari
Vajpayee, hafnaði boðinu og kvað
Indverja staðráðna í að koma sjálfir
höndum yfir þá sem skipulagt hefðu
tilræðið.
Þrettán manns féllu í árásinni á
þinghúsið í Nýju Delhí á fimmtudag,
þar á meðal tilræðismennirnir fimm.
Engan þingmann sakaði.
RÁÐHERRAR sjávarútvegs-
mála í aðildarríkjum Evrópu-
sambandsins, ESB, náðu í gær-
morgun eftir langt þóf
samkomulagi um fiskveiði-
kvóta. Einnig var samið um
þróunaráætlun þar sem reynt
verður að tryggja að veiðigeta
fiskiskipa í sambandinu verði
ekki svo mikil að hún ógni fiski-
stofnunum. Formaður danska
sjómannasambandsins, Bent
Rulle, sagðist vera ánægður og
samkomulagið væri miklu betra
en hann hefði gert ráð fyrir.
Heildarveiðikvótar á rækju í
Biskajaflóa verða skornir niður,
einnig ýsukvótar við Írland og
möskvastærð minnkuð.
ETA-liðar
handteknir
á Spáni
LÖGREGLA á Spáni handtók í
gær sjö manns og lagði hald á
vopn í atlögu gegn samtökum
aðskilnaðarsinna Baska, ETA,
á norðurhluta Spánar. Lögregla
handtók fólkið í tveimur þorp-
um nærri San Sebastian en talið
er að það tengist tilraun til að
sprengja bílsprengju í Malaga
og sprengjuárás á Madríd-flug-
velli. Lögregla lagði einnig hald
á um 50 kílógrömm af dýnamíti,
hvellhettur og vopn.
Sprengjan í Malaga í júlí sl. var
aftengd en sprengjan við flug-
völlinn í Madríd í sama mánuði
sprakk. Enginn slasaðist í
sprengingunni, sem olli nokkr-
um skemmdum.
Kennsl borin
á lík í Kúrsk
BÚIÐ er að finna þrjú lík til við-
bótar úr áhöfn rússneska kjarn-
orkukafbátsins Kúrsk, sem
fórst á Barentshafi í ágúst í
fyrra. Búið er að bera kennsl á
65 lík sem hafa fundist í flaki
kafbátsins, en honum var lyft af
hafsbotni í október á þessu ári.
12 lík fundust í björgunarað-
gerðum í fyrra og hægt var að
bera kennsl á þau öll. Talið er
að tundurskeyti hafi sprungið
og valdið því að kafbáturinn
sökk með 118 manna áhöfn.
Hvelfingunni
breytt í
íþróttahöll
Þúsaldarhvelfingunni í London
verður breytt í íþrótta- og
skemmtanamiðstöð en samn-
ingar hafa náðst við fyrirtækið
Meridian Delta um að leigja
bygginguna og er samningur-
inn til 999 ára. Fyrirtækið mun
breyta hvelfingunni í samvinnu
við opinbera stofnun en ekki er
ljóst hvort Meridian mun reiða
af hendi peninga fyrir að taka
við mannvirkinu. Stephen
Byers samgöngumálaráðherra
segir að leggja þurfi fram um
200 milljónir punda, um 30
milljarða króna, til að breyta
hvelfingunni og nánasta um-
hverfi hennar. Talsmenn
Íhaldsflokksins gagnrýndu
leynd sem ríkt hefði við samn-
ingsgerðina og sögðust óttast
að skattgreiðendur ættu eftir
að bera enn sem fyrr þunga
bagga vegna hvelfingarinnar.
STUTT
Samkomu-
lag um
veiðikvóta
ESB-landa
HUGO Chavez, forseti Venesúela,
sagði í gær á fundi með tugþúsundum
stuðningsmanna sinna, að fámenn
„klíka“ væri að reyna að steypa sér af
stóli og hótaði þeim fangelsi, sem
kyntu undir ólgu. Var tilefnið eins
dags allsherjarverkfall, sem frammá-
menn í atvinnulífinu og verkalýðs-
félögin efndu til í síðustu viku.
„Hafið Yare-fangelsið tilbúið. Þeir,
sem kynda undir ólgu í landinu, verða
kannski settir þar inn,“ hrópaði Cha-
vez til stuðningsmanna sinna en sjálf-
ur sat hann í viðkomandi fangelsi í
tvö ár fyrir að hafa reynt að ræna
völdum í landinu fyrir níu árum.
Mikil upplausn er í efnahagsmál-
unum í Venesúela og stuðningur við
Chavez meðal landsmanna er nú inn-
an við 50%. Kenna margir honum um
efnahagsóreiðuna og hann hefur ekki
staðið við loforð sín um aukna at-
vinnu og aðgerðir til að fækka glæp-
um.
Á fundinum í gær hótaði Chavez að
þjóðnýta þá banka, sem neituðu að
fara eftir nýjum lögum, en sam-
kvæmt þeim eru þeir skyldir til að
lána 15% af útlánafénu til lítilla fyr-
irtækja. Fjármálasérfræðingar eru
hins vegar sammála um, að bankarn-
ir muni heldur sætta sig við sektir en
að lána út meira fé við núverandi að-
stæður.
Allsherjarverkfallið í síðustu viku
varð líka til að stappa stálinu í stuðn-
ingsmenn Chavez, sem eru einkum
fátækt fólk, og kom það víða að af
landinu til fundarins í Caracas.
Alþýðudómstólar að
kúbverskri fyrirmynd
Á honum vígði Chavez nýja hreyf-
ingu sjálfum sér til stuðnings, „Bylt-
ingarhreyfingu Bólivars“, og einnig
þúsundir svokallaðra „Bólivar-
nefnda“. Eiga þær að koma áhyggju-
efnum almennings á framfæri við
stjórnvöld og ennfremur að boða
stefnu Chavez um sósíalisma og bar-
áttu gegn heimsvaldasinnum.
Andstæðingar Chavez segja, að
með þessum nefndum sé hann í raun
að koma á fót nokkurs konar alþýðu-
dómstólum eða opinberum eftirlits-
nefndum í líkingu við „varnarnefndir
byltingarinnar“ hjá kommúnistum á
Kúbu.
Í Venesúela hefur verið uppi þrá-
látur orðrómur um, að herinn hygðist
steypa Chavez af stóli, en Lucas
Rincon, yfirmaður heraflans, sagði í
gær, að fyrir honum væri enginn fót-
ur.
Chavez hótar fjand-
mönnum sínum fangelsi
Vaxandi ólga í
Venesúela vegna
óreiðunnar í
efnahagsmálum
Hugo Chavez, forseti Venesúela, umkringdur lífvörðum sínum á fund-
inum í höfuðborginni Caracas í gær. Þar vígði hann þúsundir svokall-
aðra „Bólivarnefnda“, sem eiga að halda á loft sósíalískum skoðunum
hans og stunda baráttu gegn heimsvaldasinnum.
Caracas. AP, AFP.
AP