Morgunblaðið - 19.12.2001, Qupperneq 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 31
TUTTUGUSTU og þriðju jóla-
söngvar Kórs Langholtskirkju verða
haldnir fimmtudaginn 20. desember
kl. 20 og föstudaginn 21. desember
og laugardaginn 22. desember kl. 23.
Auk Kórs Langholtskirkju syngur
Gradualekór kirkjunnar á tónleikun-
um. Einsöngvarar með kórunum
verða Ólafur Kjartan Sigurðarson
og Ólöf Kolbrún Harðardóttir. Einn-
ig koma fram einsöngvarar úr röð-
um kórfélaga: Halldór Torfason úr
Kór Langholtskirkju og Ragnheiður
Helgadóttir og Þóra Sif Friðriks-
dóttir úr Gradualekórnum. Hljóð-
færaleikarar verða Bernharður
Wilkinson og Hallfríður Ólafsdóttir
flautuleikarar, Monika Abendroth
hörpuleikari, Jón Sigurðsson bassa-
leikari, Lára Bryndís Eggertsdóttir
orgelleikari, Kjartan Valdimarsson
píanóleikari og Pétur Grétarsson
slagverksleikari.
Jón Stefánsson er stjórnandi kór-
anna í Langholtinu. „Efnisskrá jóla-
söngvanna breytist ekki mikið frá
ári til árs, enda vill fólk gjarnan
heyra sömu lögin ár frá ári. Við
breytum þó alltaf einhverju, og í ár
vorum við svo heppin að fá að gjöf
frá Jóni Sigurðssyni bassaleikara
mjög fallega útsetningu af lagi hans
Jólin alls staðar, við texta eftir konu
Jóns, Jóhönnu Erlingsson. En svo
er það sonarsonur þeirra, Ólafur
Kjartan sem syngur með okkur,
þannig að þetta verður sérstakt og
mjög gaman. Núorðið höfum við allt-
af nokkur djössuð lög á jólasöngv-
unum; eins og Heilög stund á hátíð-
ar um jólin sem á ensku heitir Have
Yourself a Merry Little Christmas;
jólalagið hennar Ingibjargar Þor-
bergs og eitt eftir kórfélaga okkar.
Jólin alls staðar verða með í þessum
flokki laga og þar leikur lítið djass-
kombó með okkur, Kjartan, Pétur
og Jón sjálfur, en í lagi hans er að
auki leikið á hörpu og flautu.“
Fólk fastheldið á jólalögin sín
Annað nýtt á efnisskrá kórsins
verður lag Atla Heimis Sveinssonar,
Jól, við ljóð Davíðs Oddssonar;
sænskt jólalag, jólalag Ríkisútvarps-
ins frá í fyrra sem Snorri Sigfús
Birgisson samdi. „Við förum hægt í
breytingar á efnisskránni og þær
sjást varla nema þegar litið er að
minnsta kosti fimm ár aftur í tím-
ann. Fólk er fastheldið á sín jólalög
rétt eins það heldur fast í matarsiði
um jólin. Mér finnst það gott þegar
fólk vill halda fast í þessar hefðir, en
það má alltaf lauma einhverju nýju
með. Það getur tekið góð lög nokkur
ár að festast í sessi, þau sem ekki
virka gleymast. Jólalagið hennar
Jórunnar Viðar, sem hún samdi sem
Jólalag Ríkisútvarpsins er dæmi um
lag sem sló í gegn og það er einhver
sú yndislegasta jóla-
gjöf sem þjóðin hefur
eignast; við syngjum
það auðvitað.“
Meðal þess sem
hefðbundið er á jóla-
söngvum Kórs Lang-
holtskirkju er söngur
Ólafar Kolbrúnar
Harðardóttur með
stóra kórnum á
sænska jólalaginu Ó
helga nótt, en auk
þess syngur hún með
Gradualekórnum
Ave Maria eftir Sig-
valda Kaldalóns.
Þetta er fjórða efnis-
skráin sem Jón Stef-
ánsson stjórnar frá lofgjörðardjas-
stónleikum kórsins í lok nóvember.
Stúlknakórinn Graduale nobili og
Gradualekórinn hafa báðir sungið
heila tónleika, og auk þess eru Grad-
ualekórinn og litlu krakkarnir í kór-
skólakórnum búnir að syngja í upp-
töku á jólamessu Ríkisútvarpsins.
Fyrstu jólasöngvarnir voru haldn-
ir í Landakotskirkju 1978 og var það
í raun í fyrsta skipti sem slíkir tón-
leikar voru haldnir. Fyrstu tónleik-
arnir í Langholtskirkju voru haldnir
í kirkjuskipinu 1980 áður en gler var
komið í kirkjuna, í tíu stiga frosti og
ganga þeir í minningunni undir heit-
inu „vettlingatónleikarnir.“ Þá skap-
aðist sú hefð að gefa tónleikagestum
heitt súkkulaði í hléi til að hlýja sér.
Enn í dag býður kórinn tónleika-
gestum upp á jólasúkkulaði og pip-
arkökur í hléi og finnst mörgum gott
að koma í Langholtskirkju og hlusta
á falleg jólalög eftir búðaráp kvölds-
ins.
Súkkulaði í boði, allt frá
„vettlingatónleikunum“
Ólafur Kjartan
Sigurðarson
Ólöf Kolbrún
Harðardóttir
KAMMERHÓPURINN Camer-
arctica hefur haldið kertaljósa-
tónleika sína frá árinu 1993. Þau
leika tónlist eftir Mozart í nokkr-
um kirkjum rétt fyrir jól og lýsa
þær eingöngu upp með kerta-
ljósum. Að þessu sinni verða tón-
leikar í Hafnarfjarðarkirkju í
kvöld, í Kópavogskirkju föstu-
dagskvöld 21. desember og í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík að kvöldi
laugardagsins 22. desember. Tón-
leikarnir eru um klukkustund-
arlangir og hefjast klukkan 21.
Verkin sem hópurinn hefur val-
ið að þessu sinni eru Kvartett í A-
dúr fyrir flautu og strengi K. 298,
Divertimento í D-dúr fyrir
strengjakvartett og Kvartett fyrir
klarinett og strengi í Es-dúr K.
374f eftir W.A. Mozart. Í lokin
verður að venju leikinn jólasálm-
urinn Í dag er glatt í döprum
hjörtum sem einnig er eftir Moz-
art.
Camerarctica skipa þau Hall-
fríður Ólafsdóttir flautuleikari,
Ármann Helgason klarinettuleik-
ari, Hildigunnur Halldórsdóttir og
Sigurlaug Eðvaldsdóttir fiðluleik-
arar, Guðmundur Kristmundsson
víóluleikari og Sigurður Hall-
dórsson sellóleikari.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn, eldri borgarar og
námsmenn fá helmings afslátt og
ókeypis aðgangur er fyrir börn.
Morgunblaðið/Sverrir
Sönghópurinn Camerarctica á æfingu í Dómkirkjunni.
Mozart við kertaljós
Hásalir Hafnarfjarðarkirkju Kór
Flensborgarskólans í Hafnarfirði
heldur aðventutónleika kl. 20:30
undir yfirskriftinni Vinakvöld á að-
ventu.
Miðaverð er 1.000 krónur en frítt er
fyrir alla 15 ára og yngri svo og
nemendur Flensborgarskólans.
Miðar eru seldir við innganginn.
Stjórnandi kórsins er Hrafnhildur
Blomsterberg.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is