Morgunblaðið - 19.12.2001, Page 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 33
Yfir 27.000 sjúkraþjálfarar,
kírópraktorar og læknar um heim
allan mæla með Tempur Pedic.
H
ön
nu
n
&
u
m
b
ro
t
eh
f.
©
1
99
9
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
2
00
1
Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 588 8477 • betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
Glæsilegt jólatilboð
á stillanlegum rúmum
Opið: mán. - fös. frá kl. 10-18
Laugardaga frá kl. 11-15
Takmarkaðmagn!!!
Spring Air Never Turn, nýja heilsudýan sem farið
hefur sigurför um Bandaríkin á þessu ári á ótrúlegu
jólatilboði í Betra Bak.
Spring Air jólatilboð
Jólagjöf
sem lætur þér og þínum líða betur
Yfir 32.000
sjúkraþjálfarar,
kírópraktorar og
læknar um
heim allan mæla
með Tempur Pedic,
þ.á.m. á Íslandi.
CE-MERKING
TEMPUR-vörur eru CE-merktar sem
læknatæki, gerð 1, Viðauki Vll, sem
merkir að vörurnar standast
heilbrigðisreglur í reglum 93/42 EEC.
-HEILSUKODDAR
Röng höfuðlega er erfið fyrir háls, herðar og bak og leiðir til meiðsla og verkja.
TEMPUR heilsukoddinn veitir stuðning og þægindi þannig að þú getur sofnað án
allrar spennu. Einstök hönnun og þrýstijöfnunareiginleiki TEMPUR efnisins veitir
algjöra vöðvaslökun þannig að þú sem ert slæm(ur) í hálsi, herðum eða baki nærð
betri og dýpri svefni. Tempur heilsukoddinn er svo þekktur fyrir þennan eiginleika
að hann er notaður af flest öllum sjúkraþjálfunarstöðvum um heim allan, m.a. hér
á Íslandi.
VARISTeftirlíkingar!!!
I
i lí i
!!!
Mesta
úrval
landsins!
Vertu viss um að næst þegar
þú kaupir heilsudýnu sé hún
Spring Air Never Turn frá
Betra Bak
HÆTT er við að myndi rugla
ókunnugan í ríminu að komast að
því að nafn Léttsveitar Reykjavík-
ur, er hélt aðventutónleika fyrir
þétt setinni Bústaðakirkju á laug-
ardaginn, næði yfir fullan 100
kvenna kór á móti tveggja manna
hrynsveit píanós og kontrabassa. Í
fljótu bragði ætti slíkur grúi að
duga í 5–7 rytmíska kóra. En til
varnar LR má alveg segja strax,
að þó að lítt bólaði á eiginlegri
sveiflu í djassrænum skilningi, var
söngur kórsins samt ótrúlega sam-
taka miðað við stærð. Hvað þá með
tilliti til þess, að í aðeins þriggja
raða uppröðun þeirri sem staðar-
kostir buðu upp á varð hálfgert
ginnungagap á milli yztu vængja
kórsins. Hitt er spurning hvort
veitti af þriðja manni í undirleik,
annaðhvort á gítar eða trommu-
sett, til að draga betur fram auka-
slögin („off beat“). Enda freistaðist
kontrabassinn oftar til að fylla inn
aukanótu en gott var, með heldur
þunglamalegum afleiðingum – ekki
sízt á 3. slagi í þrískiptri taktteg-
und. Styrkjafnvægi hljóðfæranna
var annars mjög gott, en bassinn
varð stundum fullframarlega í
hrynjandi.
Þrátt fyrir oftast stutt lög var
dagskráin í lengsta lagi (tæp hálf
önnur klst. án hlés) og hefði
kannski mátt sleppa 3–4 af þvæld-
ustu jólalummum, þó að þeir tón-
leikagestir er létu þetta eina kvöld
duga fyrir aðventuinntöku í ár
kynnu að vera ósammála. Svo tæpt
sé fyrst á sérverkefnum kórsins,
þá hljómaði hann hreinast og frísk-
legast í fyrsta hluta, þ.e. Hátíð í
bæ (Christmas Wonderland(?)),
þjóðlaginu Það á að gefa börnum
brauð (bæði ágætlega útsett af
„Skarpa“, líkast til dulnefni Skarp-
héðins Hjartarsonar úr söngkvart-
ettinum Rúdolf, er alls var ábyrg-
ur fyrir 4 raddsetningum). Kórinn
dofnaði svolítið í Þá nýfæddur
Jesú (Kirkpatrick) en hresstist aft-
ur í litlu perlu Ingibjargar Þor-
bergs, Hin fyrstu jól, í raddsetn-
ingu píanista kórsins, Aðalheiðar
Þorsteinsdóttur, er átti fjórar aðr-
ar á prógramminu. Í Yfir fannhvíta
jörð (Miller, Wells; radds. AÞ) var
kórinn aftur farinn að dofna og
jafnvel lafa, en náði sér þó síðan
aftur á strik með millibilum.
Einna bezt komu út Það heyrast
jólabjöllur (betur þekkt sem
hljómsveitarlag Leroys Andersons
„Sleigh Ride“; úts. SH), Jóla-
stjarnan (úr sálmasafninu Piae
cantiones í fjölbreyttri raddsetn-
ingu SH). Syng barnahjörð (Joy to
the World Händels) skemmdist
svolítið af afkáralegum bæjara-
slætti kontrabassans, en franska
lagið Jólaklukkur (viðlag „Gloria,
hosanna in excelsis“) og þó sér-
staklega hið frábæra lag Jórunnar
Viðar, Jól (skelfilega óeftirminni-
legur titill!) stóðu upp úr seinni
hlutanum, enda þótt inntónunin í
lagi Jórunnar hefði mátt vera
hreinni. Annars var söngur kórsins
í heild samtaka og glaðlegur, þótt
sumir hefðu vænst kraftmeiri
hljóms af öðrum eins fjölda.
Í síðasttalda laginu söng gestur
kórsins, Sigurjón Jóhannesson ten-
ór, í 3. erindi. Þar að auki söng
hann einn við oftast þokkafullan
píanóundirleik Aðalheiðar (burtséð
frá smáfipi í Caccini) Hátíð fer að
höndum ein (ísl. þjóðlag), er vakti
athygli fyrir sérkennilega og ekki
með öllu óumdeilanlega hljóma-
framvindu í raddsetningu Hildi-
gunnar Rúnarsdóttur. Einnig söng
hann „Ave Maríaen“ [sic?] eftir
Caccini, Pieta signore eftir Strad-
ella og með kórnum Ó, Jesúbarn
(Eyþór Stefánsson) og Panis Ang-
elicus (Franck). Þrátt fyrir snoturt
raddfæri virtist tenórrödd Sigur-
jóns enn í mótun; fókusinn var
mistraustur (síztur í Jól), tónstað-
an stundum hniggjörn og mótunin
almennt frekar dauf, þrátt fyrir
ágætar undirtektir. Kvartettinn
fjórar klassískar, söngkonurnar
Signý Sæmundsdóttir (S), Björk
Jónsdóttir (MS), stjórnandinn (A)
og píanistinn, sem „hitaði upp“ fyr-
ir kórinn í byrjun utan dagskrár,
kom hins vegar ljómandi vel út í
glampandi samstilltri túlkun á
Valsi í As eftir Brahms Op. 39,15
og Ritorno a Sorrento. (Hvorugt
verk var tilgreint í kynningu og
því háð skeikulu minni undirr.)
Bjöllukór Bústaðakirkju – 16
krómatískar bjöllur í höndum 8
ungmeyja með jólasveinahúfur –
setti skemmtilegan aukasvip á
miðhluta dagskrár frá lagi And-
ersons til Jólaklukkna, auk loka-
lagsins.
Nokkurrar ónákvæmni gætti í
tónleikaskrá, er t.d. eignaði Ingi-
björgu Þorbergs heiðurinn af texta
Kristjáns frá Djúpalæk í Hin
fyrstu jól. Þótt varla væri viðlit að
prenta 22 söngtexta, hefði aftur á
móti mátt geta frumheita erlendu
laganna, enda oft fleiri en ein þýð-
ing til á hverju, auk þess sem nýrri
engilsaxnesk jólalög eru iðulega
þekktari af enskum titlum sínum
en íslenzkum.
Aðventulögin á
laufléttum nótum
TÓNLIST
Bústaðakirkja
Aðventutónleikar Léttsveitar Reykjavík-
ur. Stjórnandi: Jóhanna V. Þórhallsdóttir.
Aðalheiður Þorsteinsdóttir, píanó; Tómas
R. Einarsson, kontrabassi. Gestir: Sig-
urjón Jóhannesson tenór og Bjöllukór Bú-
staðakirkju. Laugardaginn 15. desember
kl. 17.
KÓRTÓNLEIKAR
Ríkarður Ö. Pálsson