Morgunblaðið - 19.12.2001, Page 38
LISTIR
38 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
M
ussolini vildi ger-
ast hinn nýi Ses-
ar en hafði auk
þess áhyggjur af
mannfjölgun í
landinu. Hann sagði að frábær
þjóð eins og Ítalir yrði að fá ný-
lendur til að færa út kvíarnar og
takmörk væru fyrir því hve
marga landið gæti brauðfætt. Nú
fækkar hins vegar Ítölum eins og
mörgum öðrum auðugum Evr-
ópuþjóðum og mannfjölgun í
heiminum virðist ætla að stöðvast
einhvern tíma í lok þessarar ald-
ar. En sums staðar er hún enn
geigvænleg og aragrúi af atvinnu-
lausum og örvæntingarfullum
ungmennum í Mið-Austurlöndum
og Afríku er
sennilega
undir niðri ein
helsta orsök
stanslausra
átaka þar um
slóðir. Þar eru
uppeld-
isstöðvar stríðsmanna framtíð-
arinnar í fátækrahverfum stór-
borganna, væntanlegra nýliða
al-Qaeda og annarra slíkra. Al-
gert vonleysið er bærilegra ef
maður á byssu og stundum borga
stríðsherrar ágætlega þeim sem
berjast fyrir þá. Þetta er líka
vinna.
Eitt er það sem allir voru nokk-
urn veginn sammála um á ráð-
stefnu friðarverðlaunahafa og
fræðimanna nýlega í Ósló: hættan
á stórstyrjöld milli voldugra ríkja
eða ríkjabandalaga er ekki lengur
það sem ógnar heimsfriðnum
heldur „stríð“ þeirra sem synda
eins og fiskar í hafi hnattvæðing-
arinnar, nafnlausir og nú land-
lausir. Árásir þeirra sem mynda
með sér lausleg samtök um hatur,
dyljast, skipta sér í litla hópa þar
sem einstakir félagar þekkja að-
eins örfáa samherja, lokatak-
markið er þokukennt. Búum okk-
ur því undir langan ófrið.
Mannskæð átök hafa alltaf
fylgt manninum en eitt hefur ger-
breyst á síðustu áratugum. Að-
eins um 5% þeirra sem féllu í
heimsstyrjöldinni fyrri 1914–1918
voru óbreyttir borgarar. Hlut-
fallið var á hinn bóginn yfir 60% í
seinni heimsstyrjöld og í átökum
sem víða geisa í þriðja heiminum
er það oft mun hærra. Enginn
getur almennilega útskýrt hvað
veldur þessari þróun. Ástæðurnar
eru vafalaust margar og flóknar
en þeir sem eru vissir um að for-
tíðin geti ekki kennt okkur nú-
tímamönnum neitt ættu að velta
fyrir sér hvað flestir hermenn hafi
eitt sinn kunnað sem bannaði
þeim að drepa vopnlausa borgara,
misþyrma þeim eða hrekja þá á
flótta. Kannski höfum við týnt
einhverju niður.
Vandinn eykst þegar menn
reyna að skilgreina hvað séu
varnarviðbrögð og hvað árás. Og
eru hryðjuverkamenn sem leita
skjóls innan um óbreytta borgara
í Afganistan hættir að vera skot-
mark? Stríðsmenn bin Ladens
klæddust ekki einkennisbúningi
og skýldu sér á bak við saklaust
fólk í trausti þess að andstæðing-
unum hrysi hugur við því að taka
áhættuna og skjóta.
Er hægt að tryggja frið milli
manna með því að koma á lýð-
ræði? Lýðræðissinnar, alveg frá
tímum heimspekingsins Imm-
anuels Kants fyrir tveim öldum
og til okkar daga, hafa margir
fullyrt að lýðræðið ráði úrslitum
um sigur friðarins, lýðræðisríki
ráðist ekki á annað lýðræðisríki.
Ef almenningur hafi lokaorðið sé
aldrei hægt að fá samþykkt að
hafið skuli árásarstríð. Kant ritaði
skömmu fyrir aldamótin 1800 um
„frið án enda“ sem komið yrði á
þegar öll ríki Evrópu hefðu sam-
einast í bandalagi lýðræðisins og
tækju saman höndum í öryggis-
málum til að verja hvert annað.
Líklega var það hann sem lagði
fyrstu drögin að Atlantshafs-
bandalaginu.
Stjórnmálafræðingurinn Mich-
ael Doyle, sem starfar við Prince-
ton-háskóla í Bandaríkjunum,
rifjar upp að þótt kosningaréttur
væri almennur þar vestra á 19.
öldinni kom það ekki í veg fyrir að
beitt væri hervaldi til að hrifsa til
sín landsvæði af indíánum. Land-
nemaþjóðin var sátt við stefnuna,
indíánarnir voru reknir af svæð-
um sem hvítir Bandaríkjamenn
þurftu að fá til ræktunar og loks
holað niður á svonefndum vernd-
arsvæðum. Notaðar voru sömu
aðferðir til að stækka ríkið og aðr-
ar stórþjóðir höfðu ávallt beitt í
sögunni, hvort sem það voru
Rússar, Mongólar, Kínverjar eða
Rómverjar, undir forystu ein-
valda. Lýðræði er betra en ein-
ræðið en gerir áfram kleift að
höfða til augljósra eiginhagsmuna
og þjóðrembu, æsa upp andúð og
búa til óvinarímynd.
Doyle segir að vissulega leysi
lýðræðisþjóðir almennt deilur sín-
ar við aðrar slíkar með frið-
samlegum hætti en þau virðist þó
ekki endilega hafa hemil á sér
þegar kemur að samskiptum við
veikburða andstæðinga eða ein-
ræðisríki. Þá gilda önnur lögmál
ef þau telja hagsmunum sínum
borgið með því.
Frakkar og Bretar háðu líka
árásarstríð og unnu nýlendur eft-
ir að þjóðirnar tóku upp lýðræði.
Upplýst Evrópufólk á 19. öld taldi
að markmiðið með nýlendustríð-
unum væri að friða og kristna ók-
unn lönd og draga þau inn í sjálfa
Menninguna, breiða út buxna-
tísku og fleira gott og siðlegt.
Þetta hljómar undarlega núna.
Flestir taka undir með þeim sem
segja nýlendustefnuna hafa verið
hreina græðgi. Sókn eftir flota-
stöðvum, hráefnum og mörkuðum
hafi drifið menn af stað en ekki
göfug áform. En er það öruggt,
voru ástæðurnar ekki margar?
Fjölmargir heimsveldissinnar í
Evrópuríkjunum vildu af einlægni
útrýma þrælahaldi í Afríku og
upp úr 1830 fór breski flotinn að
taka skip þrælasalanna á heims-
höfunum. Höfðingjar á vest-
urströnd Afríku sendu þá nefnd
til London og grátbáðu stjórn
hans hátignar um að hætta við
áformin; þrælaverslunin væri
undirstaða hagsældar í löndum
þeirra. Þeim fannst þetta óþol-
andi valdbeiting en hvað með
þrælana? Kannski fannst þeim
þetta gott stríð hjá Bretum.
Enn langt
í friðinn
„Ég trúi ekki á eilífan frið, mér finnst
tilhugsunin þungbær og í andstöðu
við grundvallarkosti mannsins sem
aðeins geta öðlast kraftbirtingu
sína í blóðugum átökum.“
VIÐHORF
Eftir
Kristján
Jónsson
kjon@mbl.is
Benito Mussolini
EFNI þessarar bókar er að nokkru
leyti það sama og doktorsritgerð höf-
undar, Från väckelse till Samfund,
sem út kom árið 1990. Þar er fjallað
um tilurð og þróun hvítasunnuhreyf-
ingarinnar á Íslandi, Færeyjum og
Grænlandi. Í bókinni sem hér er til
umfjöllunar er saga hvítasunnuhreyf-
ingarinnar skrifuð öðrum þræði sem
ævisaga Einars J. Gíslasonar, sem
var forstöðumaður hvítasunnusafnað-
arins Betel í Vestmannaeyjum um 22
ára skeið (1948–1970) og Fíladelfíu í
Reykjavík í tæpa tvo áratugi. Þessari
aðferð er beitt í þeirri von að með
þeim hætti verði komist nær innvið-
um hvítasunnuhreyfingarinnar en
með hefðbundinni stofnanasögu því
að ævi Einars er svo samtvinnuð sögu
hreyfingarinnar að þroskasaga hans
og þroskasaga hreyfingarinnar falla
að miklu leyti saman að mati höfund-
ar. Þegar hann var forstöðumaður
Fíladelfíu í Reykjavík breyttist söfn-
uðurinn úr því sem höfundur kallar
sérstrúarsöfnuð (sect) og í kirkjudeild
(bls. 92, 95) og varð að mótandi afli í
trúarsögu Íslands. Þessi aðferð er svo
kölluð einsaga í sagnfræði (microh-
istory, bls. 12 og 124). Sem leiðtogi
sameinaði Einar að mati
höfundar á einstakan
hátt náðarvald sem
byggir á persónuleika
hans (karisma) og hefð-
arvald sem byggist á
sögu, venjum og emb-
ættinu sem stofnun (s.
11, 28, 37). Hann var
„strangur, skipulagður
og óhagganlegur eins og
siðaboðin sem hreyfingin
byggðist á en hins vegar
var hann óútreiknanleg-
ur og frumlegur eins og
andinn sem enginn veit
hvert blæs“ (bls. 11).
Bókin skiptist í tvo
hluta. Í fyrri hlutanum er rakin saga
hvítasunnuhreyfingarinnar almennt
og helstu kenningar hennar, saga
hreyfingarinnar á Íslandi og helstu
einkenni, fyrst og fremst í Vest-
mannaeyjum og Reykjavík, og tengsl
og hlutverk Einars í þeirri sögu. Í
seinni hlutanum eru ræður og prédik-
anir eftir Einar, en hann þótti mjög
sérstakur og kraftmikill prédikari.
Bókin er ekki fræðirit í þröngri
merkingu og höfundur getur þess að
nákvæma heimildaskrá sé að finna í
Från väckelse til samfunn. Hún er
mjög læsileg og aðgengileg almenn-
ingi. Sums staðar er frásögnin brotin
upp með innskotsrömmum til upplýs-
ingar megintextanum. Ekki er um
eiginlega ævisögu að ræða og kemur
Einar ekki fyrir í
löngum köflum í bók-
inni, enda er vísað í
sjálfsævisögu hans frá
árinu 1985. Lífi hans
sem persónu, aðskildri
frá leiðtoganum í
hvítasunnuhreyfing-
unni, eru lítil skil gerð
og hvorki er mynd af
fjölskyldu hans né er
allra barna hans getið.
Sparlega er farið með
ártöl í textanum og
þarf að leita vel til að
finna t.d. hvaða ár
hann varð forstöðu-
maður Fíladelfíu og
undirrituðum tókst ekki að finna hve-
nær hann hætti. Forstöðumanna sem
tóku við af honum er hvorki getið né
er fjallað um tímann eftir að hann lét
af embætti. Þó að textinn sé leikandi
og léttur hefði mátt lesa lokapróförk
betur. Efnistök höfundar eru athygl-
isverð og honum tekst að draga fram
mörg persónueinkenni Einars sem
var þjóðsagnapersóna þegar í lifanda
lífi. Margar myndir prýða bókina. Það
er mikill fengur að henni og hún er
mikilvægt framlag til kirkjusögu Ís-
lands á nýliðinni öld. Það er gott að
hluti af efni doktorsritgerðar Péturs
birtist nú á íslensku í aðgengilegu
formi.
Kirkjuhöfðingi
BÆKUR
Kirkjusaga
Eftir Pétur Pétursson. Útgefandi: Há-
skólaútgáfan 2001. Stærð: 224 blaðsíð-
ur.
KALLARI ORÐSINS
Pétur Pétursson
Kjartan Jónsson
ÞAÐ er ekki á hverjum degi sem
bók er gefin út með nýju efni eftir ní-
ræðan mann. En það hefur gerst
með þessari bók sem hefur að geyma
prédikanir, greinar, erindi og tvö
ljóð eftir dr. Sigurbjörn Einarsson
biskup. Ekki eru nema tvö ár síðan
síðasta bók hans kom út, Sárið og
perlan. Sú sem hér er til umfjöllunar
er gefin út að frumkvæði Presta-
félags Íslands í tilefni af 90 ára af-
mælis hans sem þakklætisvottur
„fyrir hans mikla starf fyrir kristni
og kirkju á Íslandi í áratugi“ (s. 9).
Mest af efninu hefur orðið til á síð-
ustu þremur árum þó að nokkrar
ræður séu eldri.
Bókin hefst á ljóði um kristnitök-
una er „Kristur helgaði land og lýð“
(s. 11) og undir lok hennar er kafli
með hugleiðingum höfundar um
samleið kirkju og þjóðar á Íslandi,
„Kirkja og þjóð, Þankar á þúsald-
armorgni.“ Þar birtist ást hans bæði
á landi og þjóð en einnig boðskapur
eins af núlifandi feðrum þjóðarinnar
til samtímans. Honum er mikið í
mun að Íslendingar gleymi ekki að
menningararfur þeirra er kristinn
sem birtist til dæmis í
þjóðsöngnum „Ó, Guð
vors lands“. Hann segir:
„Þú getur varla metið
þann þjóðararf, sem er
grunnur og lífsbrunnur
sjálfstæðrar, íslenskrar
þjóðartilveru, ef þú met-
ur ekki þá kirkju ald-
anna, sem var og er hið
íslenskasta af öllu ís-
lensku“ (s. 237). Hug-
leiðingar af tilefni nýlið-
inna aldamóta eru í
nokkrum prédikunum
og höfundi er mjög í mun
af því tilefni að brýna
fyrir upprennandi kyn-
slóðum að þær glati ekki
þeim dýrmæta arfi sem kynslóðirnar
hafa skapað og skilað þeim í hendur,
annars muni það hafa ófyrirséðar og
alvarlegar afleiðingar.
Bjargföst trú höfundar skín hvar-
vetna í gegnum mál hans. Honum
liggur á hjarta að miðla því að Guð sé
lifandi, veruleikinn á bak við til-
veruna, sem er nálægur hverjum
manni og vill í eilífum kærleika fá að
taka þátt í lífi allra manna og vera
stoð þeirra í lífsbaráttunni. Hann
spyr grundvallarspurninga um lífið
og tilveruna og reynir að fá lesand-
ann til að velta fyrir sér hvað skipti
mestu máli í lífinu. Ræðurnar skína
af sannfæringarkrafti en um leið af
hógværð. Höfundur
hefur efnið á valdi
sínu, þekkir boðskap
Biblíunnar og gerir
hann skiljanlegan
hverjum sem les en er
jafnframt víðlesinn og
vel heima í umræðu
líðandi stundar.
Málfar bókarinnar
er þess eðlis að hún
hentar ekki til hrað-
lestrar heldur ber að
lesa hana hægt og
njóta málfars og boð-
skapar eins og góðrar
máltíðar. Dýpt þess
boðskapar sem Sigur-
björn Einarsson hef-
ur fram að færa eykst með árunum.
Ýmsar reglur gilda um gerð pré-
dikunar sem mótast þó ávallt af per-
sónu prédikarans, prédikunartext-
anum, áheyrendum og aðstæðum
hverju sinni. Þótt henni sé ætlað að
miðla ákveðnum boðskap er hún öðr-
um þræði listgrein. Engir tveir pré-
dikarar prédika eins. Flestir eru
sammála um að enginn núlifandi Ís-
lendingur hafi náð eyrum íslensku
þjóðarinnar eins vel og Sigurbjörn
Einarsson. Þessi bók er enn ein stað-
festing á því. Þess vegna munu
margir fagna henni.
Ausið af viskubrunni
BÆKUR
Trúarrit
Eftir Sigurbjörn Einarsson. Útgefandi:
Skálholtsútgáfan 2001. Stærð: 260
blaðsíður.
UM LANDIÐ HÉR
Sigurbjörn
Einarsson
Kjartan Jónsson
STEINAR er dáinn er falleg, lítil
saga móður sem skráir niður hug-
renningar sínar um son sem hefur
svipt sig lífi. Hún rekur líf hans, sem
var að mörgu leyti óvenjulegt. Það
var ljóst frá því í upphafi að Steinar
var ekki alveg venjulegur. Hann svaf
minna en börn gera almennt og stutt í
einu, var óvær og þurfti lítið til að
hann hrykki upp. Óróinn magnaðist
eftir að Steinar fór að geta hreyft sig.
Þá varð hann duglegri en gengur og
gerist, svo duglegur að það varð að
fjarlægja lausamuni og koma þeim
fyrir þar sem hann náði ekki í þá og
það var ekki hægt að fara með hann í
heimsóknir. Það var hins vegar ekki
fyrr en löngu síðar að hann var
greindur ofvirkur. En þá var það um
seinan. Hann var orðinn of fastur í
sínum óróleikaskorðum. Þótt hann
væri alltaf glaðlyndur var spennu-
þörfin og ævintýraþráin orðin of rík
og hann byrjaði ungur að stíga stór
skref út á braut sjálfseyðingar og af-
brota og nokkrum dögum fyrir tví-
tugsafmælið svipti hann sig lífi þar
sem hann sat innilokaður í fangelsi.
Frásögn móðurinnar er vægast
sagt áhrifarík. Fyrir utan frásögn af
uppeldinu lýsir hún úrræðaleysinu í
heilbrigðiskerfinu, svart/hvítu dóms-
kerfinu og ruglingslegu sambandi
þessara tveggja kerfa. Það er ljóst að
hún hefur býsna margt til að áfellast
kerfið fyrir, þótt hún taki það fram að
kannski hafi eitthvað lagast á þeim
árum sem liðin eru frá því að sonur
hennar féll fyrir eigin hendi. Það er þó
síður en svo að hér sé á ferðinni bók
þar sem verið er að leita að sökudólgi
eða firra sig ábyrgð. Til þess spannar
hún of stórt svið. Hún gefur heildar-
mynd af lífi einstaklings sem ekki
passar inn í það samfélagsmynstur
sem við búum við og er kannski þörf
ábending um það hversu hættulegt
getur verið – og dýrt – að skera niður í
heilbrigðisþjónustu. Auk samfélags-
legu þáttanna fær lesandinn góða inn-
sýn í líf fjölskyldunnar. Sá þáttur er
afar vel skrifaður. Lesandinn sér fjöl-
skylduna ekki í hlutverki fórnar-
lamba, heldur fær innsýn í þá kvöl
sem fylgir því að elska einstakling
sem ekki myndi vera skilgreindur
þeirrar ástar virði; allir þessir von-
arneistar sem hafa kviknað í gegnum
árin, til þess eins að slokkna aftur.
Þetta er vel skrifuð frásögn, falleg
og sársaukafull, án þess að verða
nokkurn tímann væmin eða of tilfinn-
ingaþrungin. Holl lesning fyrir alla,
einkum ráðamenn.
Holl lesning
BÆKUR
Stuðningsbók
Eftir Vigdísi Stefánsdóttur. Útgefandi:
Stoð og styrkur. 104 bls.
STEINAR ER DÁINN
Súsanna Svavarsdóttir