Morgunblaðið - 19.12.2001, Side 40

Morgunblaðið - 19.12.2001, Side 40
LISTIR 40 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ er alltaf gaman þegar brydd- að er upp á einhverju nýju og öðruvísi í tónlistinni. Selkórinn á Seltjarnar- nesi hefur að undanförnu sungið ný- stárlega dagskrá, þar sem eingöngu er flutt tónlist sem á einhvern hátt tengist Suður-Ameríku, með íslensku ívafi þó. Kórinn hefur fengið til liðs við sig heimamenn af Nesinu, þá Bubba Morthens og Jóhann Helga- son og sungið tónlist úr suðrinu, lög eftir suður-amerísk tónskáld og lög eftir Jóhann útsett í suðrænum rytma. Bubbi hefur sungið lög af Kúbuplötunni sinni og saman hefur hersingin flutt Misa Criola eftir Ramirez með liðsinni lítillar hljóm- sveitar. Tónleikar kórsins á sunnu- dagskvöld voru vel heppnaðir og skemmtilegir – ekki síst fyrir þessa ágætu blöndu í tónlist og vali tónlist- armanna. Í upphafi söng kórinn án undir- leiks, lög frá Perú og Venesúela og tókst þar á við hefðbundna suðuram- eríska rytma, þar sem tvískiptum og þrískiptum takti er teflt saman. Þessi hrynjandi getur verið þrælsnúin og erfið þeim sem ekki hafa hana í blóð- inu. Selkórinn fór þó létt með þetta og fleytti sér í gegnum synkópur eins og ekkert væri. Það sem að má finna var það að sópraninn var dálítið flat- ur og söng ekki nógu hátt upp í tón- inn, þannig að jaðraði við að vera óhreint. Þegar hljómsveitin bættist við rættist úr þessum vanda; auð- veldara að syngja með hljóðfærum; og kórinn söng þá lög eftir Escalada og Piazzolla. Fyrra lagið, Cand- omblé, einfalt lag með endurteknum stefjum, var prýðilega sungið, en nokkuð vantaði á að Otoño Porteno, lag tangókóngsins Piazzollas kæmist vel til skila, það var einfaldlega of erf- itt fyrir kórinn. Tvö lög eftir Jóhann Helgason, Meðan dagur er og Heiðló, hljómuðu mjög fallega í ágætum út- setningum eins kórfélaga, og ekki sakaði hvað þau féllu vel að svipmóti kvöldsins í rúmbu- og sömbutakti. Þetta eru prýðisgóðar tónsmíðar sem henta mjög vel í kórsöng. Bubbi Morthens tók salinn með trompi þeg- ar hann steig einn fram á sviðið og söng þrjú lög. Hann byrjaði á gamla kreppuslagaranum Brother, Can You Spare Me a Dime, sem hann lék og söng af einstakri innlifun. Þá komu tvö lög af Kúbuplötunni; Myrk- ur, sjór og sandur og Borgarbarn, góð lög og bæði gríðarvel flutt af Bubba. Á milli laga sagði Bubbi sög- ur á sinn einstaka hátt, og rakti tilurð laganna og uppruna, samskipti við Kúbumennina og fleira. Stærsta verkið á efnisskránni, Misa Criolla eftir Ariel Ramírez var haft síðast á efnisskránni, en þar sungu Bubbi og Jóhann Helgason einsöng með kórnum og hljómsveit- inni. Það má segja að þessi alþýðlega messa hafi notið sín sérdeilis vel í þessum flutningi og Jóhann og Bubbi voru virkilega góðir og öruggir í ein- söng og samsöng. Raddir þeirra féllu vel saman í samsöngsatriðum og suð- urameríski rytminn og innkomur sem oft voru flóknar, reyndust þeim leikur einn. Hljómsveitin var skín- andi góð. Þar voru Kjartan Valdi- marsson á píanó, Magnús R. Einars- son á mandólín, Gunnar Hrafnsson á bassa, Árni Scheving á harmónikku og slagverk, Jón Árni Þórisson á gít- ar og Þorvaldur Þór Þorvaldsson á slagverk. Kórinn bar þó hitann og þungann af flutningi verksins og var mjög fínn, og greinilegt að verkið hef- ur verið æft bæði vel og lengi. Margi kórfélaga sungu nótnalaust og voru komnir með hnykk í mjaðmir áður en yfir lauk. Jón Karl Einarsson, kór- stjóri Selkórsins, sýndi mikið hug- rekki með því að tefla saman lista- mönnum úr ólíkum kimum tón- listarinnar. Þetta er allt of sjaldan gert, og því miður virðast þeir enn þann dag í dag nokkuð margir sem vilja reisa múra á milli þess sem kall- ast klassískt og hins sem kallað er létt. En þessi skil eru sem betur fer óðum að hverfa enda engin ástæða til að flokka tónlist í annað en mesta lagi góða og vonda, og þar eru engin samasemmerki við ákveðnar tegund- ir. Jón Karl stjórnaði tónleikunum af reisn; músíkin varð lifandi og fjörug í höndum hans og söngur kórsins með ágætum þrátt fyrir svolitla hnökra hjá sópran. Þetta voru óvenjulegir tónleikar og bráðskemmtileg til- breyting mitt í hefðbundnum helgi- söng aðventunnar. Ameríslensk helgisveifla TÓNLIST Kórtónleikar Selkórinn og hljómsveit fluttu söngva frá Suður-Ameríku, og tvö lög eftir Jóhann Helgason. Bubbi Morthens söng þrjú lög, og kórinn, hljómsveitin og einsöngv- ararnir Bubbi Morthens og Jóhann Helga- son fluttu Misa Criolla eftir Ariel Ram- írez. Stjórnandi var Jón Karl Einarsson SELTJARNARNESKIRKJA Bergþóra Jónsdóttir ÞRÁTT fyrir að J.S. Bach hafi kynnt sér konsertana eftir Antonio Vivaldi og umritað nokkra þeirra fyr- ir orgel þýðir það ekki að Bach hafi í raun verið hrifinn af vinnuaðferðum Vivaldis, því varla er hægt að hugsa sér ólíkari vinnubrögð en hjá þessum tveimur snillingum. Þennan mun hafa margir túlkað með því að kalla Vivaldi „poppara“ og vísa til þess hve ritháttur hans er einfaldur. Hann hefur verið sagður tónskáld „þriggja hljóma“, þeirra sem nefnast aðal- hljómar, auk þess sem bassaferlið sé að mestu leyti byggt á grunnstöðu- tónum hljómanna og vanti nær allt lagrænt ferli, sé að miklu leyti aðeins trommandi endurtekningar. Þá er hin tematíska endurtekning innan stefjanna og úrvinnsla þeirra mjög einföld og augljós og mörg hljóm- skipti á milli tóntegunda ofin í form „sekvensa“. Þrátt fyrir þennan ein- faldleika tekst Vivaldi að gæða verk sín þeim sérkennilega tæra tónaleik er heldur hlustendum föngnum og hafa margir fræðimenn haldið því fram, að því valdi hin leikræna ein- lægni og gleði, sem einkennir tónlist þessa sérstæða snillings. Á tónleikum Kammersveitar Reykjavíkur í Áskirkju sl. sunnu- dagskvöld voru fluttir fjórir konsert- ar eftir Antonio Vivaldi, sem einu nafni eru nefndir Árstíðirnar og eru meðal vinsælustu verka hans. Nokkrir kaflar hafa orðið sérlega vinsælir, eins og t.d. í konsertinum sem ber nafnið Vorið eru bæði fyrsti og síðasti kafli sérlega vinsælir fyrir lagræn og syngjandi aðalstefin. Ein- leikari í Vorinu var ungur fiðlari, Hrafnhildur Atladóttir, sem lék konsertinn af öryggi, sérstaklega í þrumukaflanum. Fuglasöngurinn var að vísu svolítið órólegur en þrum- urnar og eldingarnar voru áhrifa- miklar. Dansskemmtunin í lokakafl- anum er sá kafli þar sem mest er umleikis í bassaröddunum, sem á köflum voru einum of hljómfrekar. Annar konsertinn er Sumarið, sem nýtur minnstra vinsælda af konsert- unum fjórum, enda er þar ekki að hafa jafn lagrænar tónhendingar og í hinum konsertunum en aftur er þar meira umleikis í tónferli og tæknileik hljóðfæranna. Einleikari var Una Sveinbjörnsdóttir, er átti ýmsa góða spretti, en það skemmdi nokkuð að samleikur hennar við sellóið var ekki í góðu jafnvægi og sellóið allt of hljómfrekt, t.d. í gaukskaflanum og stuttum tvíleikskafla undir lokin í þriðja þætti. Haustið skartar sérlega skemmti- legum tónlínum enda er þar dansað og haustið er tími uppskerunnar og veiðiferðanna. Sigurbjörn Bern- harðsson lék einleikinn með miklum „bravúr“ en eins og í viðkvæmum einleiksköflum vantaði nokkuð á að gætt væri jafnvægis í hljómstyrk og undirleikurinn var ekki markviss í hryn og styrk. Veiðikaflinn var að mörgu leyti skemmtilega lifandi tví- gripaleikur og flóttalínurnar voru glæsilega mótaðar af Sigurbirni. Miðþátturinn, „svefninn“, er ein- kennilegur leikur með hljóma, er stingur í stúf við við leikandi lagferli annarra þátta. Síðasti konsertinn nefnist Vetur- inn, er skartar hinum fræga mið- þætti. Þessi konsert er sérlega leik- rænn og hefst á túlkun á kuldahrolli en síðan taka við tónlínur sem eiga að túlka það er fólk ber sér til hita, Hægi kaflinn á að túlka hve notalegt er að sitja inni við hlýjan arineld en loka- kaflinn er lýsing á ferð yfir ísi lagða á. Veturinn var leikinn af Sif Tulinius, sem lék konsertinn af glæsibrag, sér- staklega þar sem kuldahrollur og tannaglamur er túlkað með endur- teknum nótum innan sama hljómsins. Hægi kaflinn og ísgangan, sérstak- lega þegar ísinn á endanum brotnar, var glæsilega leikin. Í heild voru þetta skemmtilegir tónleikar og lék kammersveitin oft mjög vel, þótt á köflum væri hægt að finna fyrir því, að ekki væri gætt jafnvægis í styrk, einkum á móti ein- leikurum, sem æfingastjóri hefði haft betri tök á að leiðrétta en samleik- arar, sem eiga nóg með sitt hverju sinni. Tónskáld einlægni og einfaldleika TÓNLIST Áskirkja ásamt Hrafnhildi Atladóttur, Unu Sveinbjarnardóttur, Sigurbirni Bernharðssyni og Sif Tulinius flutti Árstíðirnar eftir Antonio Vivaldi. Sunnudaginn 16. desember. KAMMERSVEIT REYKJAVÍKUR Jón Ásgeirsson Í TUTTUGU og sjö ár hefur Hljómeyki verið fastur punktur í ís- lensku tónlistarlífi og er það enn, en það sem vakti athygli undirritaðs á tónleikum þeim sem Hljómeyki efndi til sl. laugardagskvöld í Há- teigskirkju var að mjög mikil end- urnýjun söngkrafta hafði átt sér stað, svo að í raun er um nýjan kór að ræða. Hljómur kórsins er tær en vantar ennþá dýpt og þéttleika, sem fyrrum var aðal hans. Tónleikarnir hófust á nýju kór- verki eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, samið við latneska textann Canita tuba. Það er ljóst að ungu tónskáld- in eru að færast nær tónölum rit- hætti og í stað þess að yrkja ann- aðhvort algerlega „ótónalt“ eða „tónalt“ er að koma upp samspil þessara þátta, sem hugsanlegt er að verði tónmál 21. aldarinnar. Canita tuba er vel samið kórverk og er Hildigunnur vaxandi höfundur og hefur þegar haslað sér völl sem eitt af eftirtektarverðustu tónskáldum yngri kynslóðarinnar. Næstu fimm lög voru hefðbundin jólalög; Það aldin út er sprungið, Kemur hvað mælt var, Borið er oss barn í nótt, Nú gjalla klukkur og Quem pastores laudavere. Útsetn- ing Praetoriusar á laginu Það aldin út er sprungið var mjög fallega sungin. Grunnur hljómur kórsins var nokkuð áberandi í lögunum eftir William Byrd, Thomas Tallis og sér- staklega í Susanni eftir Richard Rodney Bennett, sem er fjörlegt og þarf að flytja með þéttum hljómi. Tvö lög eftir Herbert Howell féllu mjög vel að fíngerðum hljómi kórs- ins, sérstaklega kvenraddanna, og voru lög Howells með því best sungna á þessum tónleikum. Sér- kennilegt lag, Dormi Jesu eftir Christopher Brown, var ekki sann- færandi í flutningi og vantaði eitt- hvað í dulúð þessarar einkennilegu vögguvísu. Jólagjöfin eftir Hörð Áskelsson er þokkafullt lag og mættu söngstjórar leggja sig eftir að semja fyrir kór- ana sína, þótt ekki væri til annars en að öðlast þá reynslu að það er ekki einfalt mál að búa til lög. Hirðarar sjá og heyrðu, eftir Hildigunni, við texta eftir síra Einar í Heydölum, er vel gerður sálmur sem trúlega verð- ur til að auka lagaval kirkjukóra og sungið um öll jól. Fallegt þjóðlag frá Katalóníu, Á leið til Betlehem, var hér sungið í útsetningu Jóns Nordals og síðan ís- lenska þjóðlagið Hátíð fer að hönd- um ein, í útsetningu undirritaðs, sem kórinn söng mjög fallega og af töluverðri innlifun. Næstu þrjú jóla- lögin eru klassík en það voru Þá ný- fæddur Jesús, Ó, jesúbarn blítt og Hringi klukkurnar í kvöld, sem öll voru vel flutt. Hodie Christus natus est eftir Jan P. Sweelinck var ekki fyllilega í jafnvægi, enda hratt og nokkuð kröfuhart í hljóman, sem kórinn hefur ekki full tök á enn sem komið er. Tónleikunum lauk svo með því að Canite tuba eftir Hildi- gunni var endurtekið og gerði kór- inn verkinu góð skil. Eins og fyrr segir er hljómur kórsins enn nokkuð grunnur en hann syngur hreint og fallega, svo að vonir standa til að Hljómeyki muni ná sér á strik undir markvissri stjórn Bernharðs Wilk- insonar. Jón Ásgeirsson Grunn- ur en hreinn hljómur TÓNLIST Háteigskirkja Hljómeyki undir stjórn Bernharðs Wilk- insonar flutti aðventusöngva. Laugardag- inn 15. desember. KÓRSÖNGUR SÝNING á verkum ljósmyndarans Ásgeirs Long stendur nú yfir í Hafnarborg undir yfirskriftinni Svona var Fjörðurinn og fólkið. Á sýningunni eru milli 280 og 290 myndir, all- ar svart/hvítar. Þær elstu eru frá 1943–5. Að sögn Ásgeirs verður að líta á sýninguna frá heimildarsjónarmiði fyrst og fremst, þar sem hugað er að atburðum og framkvæmdum, bjástri fólks í dagsins önn við að afla sér viðurværis og eins við tómstundagaman. Árið 1966 stofnaði Ásgeir kvikmyndagerð og framleiddi aðallega sjónvarpsauglýsingar en 1974 stofnaði hann, ásamt Páli Steingrímssyni og Ernst Kettler, kvikmyndagerðina Kvik s/f og ráku þeir hana til 1978. Sýningin stendur fram yfir áramót. Fram að jólum verður hún opin alla daga frá kl. 11 til 17. Safnið er lokað á þriðjudögum. Svona var Fjörðurinn og fólkið Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.