Morgunblaðið - 19.12.2001, Qupperneq 41
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 41
TAKTU LÍFINU LÉTT
Rauðarárstíg 14,
sími 551 0400
Kringlunni,
sími 568 0400
Smáralind,
535 0400
www.myndlist.is
— Sossa —
OD
DI
HF
H7
97
9
73.900 kr. stgr.
Kæli- og frystiskápur
KG 31V420
Nýr glæsilegur skápur.
190 l kælir, 90 l frystir.
H x b x d = 175 x 60 x 64 sm.
79.900 kr. stgr.
Eldavél
HL 54023
Keramíkhelluborð, fjórar hellur,
fjölvirkur ofn, létthreinsun.
64.900 kr. stgr.
Bakstursofn
HB 28024
Fjölvirkur bakstursofn með létthreinsikerfi.
Sannkallaður gæðaofn frá Siemens.
14.700 kr. stgr.
Nýr þráðlaus sími
Gigaset 4010 Classic
Númerabirtir. DECT/GAP-staðall.
Einstök talgæði. Siemens færir þér draumasímann.
49.900 kr. stgr.
Helluborð
ET 72654EU
Keramíkhelluborð með áföstum rofum.
Flott helluborð á fínu verði.
59.900 kr. stgr.
Þvottavél
WXB 1060BY
Frábær ný rafeindastýrð þvottavél
á kostakjörum. 1000 sn./mín.
9.900 kr. stgr.
Ryksuga
VS 51B22
Kraftmikil 1400 W ryksuga,
létt og lipur, stiglaus sogkraftsstilling.
64.900 kr. stgr.
Uppþvottavél
SE 34234
Ný uppþvottavél.
Einstaklega hljóðlát
og sparneytin.
Fjögur þvottakerfi,
tvö hitastig.
Umboðsmenn um land allt.
Á EFNISSKRÁNNI voru fyrir hlé
verk eftir Bach, Verdi, Pryor, Tsjak-
ovsky, Händel og Sigfús Halldórsson.
Á seinni hluta tónleikanna voru verk-
efnin sótt til írskra þjóðlaga, þekktra
söngleikja og söngva bæði úr heimi
djass og dægurlaga.
Valmar Väljaots fiðluleikari með
fleiru var einnig kynnir og lýsti ágæt-
lega tilgangi þessara tónleika sem
væru fyrst og fremst hugsaðir til
skemmtunar og gamans fyrir tónlist-
armenn og gesti. Og þetta ætlunar-
verk tókst mjög vel og smitaði leik-
gleði og gamansemi eistneska tónlist-
arfólksins áheyrendur með glaðbeitt-
um flutningi frá upphafi til loka
tónleikanna. Þetta markmið með tón-
leikum að gleðja og skemmta er í
sjálfu sér fullgilt og mikilvægt.
Mér var hugsað til viðtals í síðustu
viku í ríkisútvarpinu við Sigríði Þor-
geirsdóttur, heimspeking, þar sem
hún talaði um kenningar heimspek-
ingsins Schopenhauer um tónlistina
og tímann. Þar sem hann gerði tón-
listinni þann sess að hún væri full-
komnasta tjáningartæki okkar og
með henni væri unnt að fá fólk til að
losna undan tímanum, þ.e. að tónlistin
geti stuðlað að algleymi á tímann. Ég
held að þeir tveir tímar sem tónleikar
eistnesku tónlistarmannanna tóku
hafi ekki verið mældir hjá neinum í
mínútum, en breyst í flæði vellíðunar
sem ekki var bundin við stund eða
stað. Fjölbreytnin í efnisskránni var
ótrúleg og eins og fram kemur í upp-
talningu flytjenda voru allir með tvö
til fimm hlutverk á tónleikunum.
Flutningur með söng og píanói,
strengjatríói, strengjakvartett, írskri
þjóðlagahljómsveit, salonhljómsveit
og djasshljómsveit. Þegar tónlistar-
menn takast á við jafn mörg hlutverk
og hér varð raunin, þá hefur það bæði
veikleika og styrkleika í senn. Veik-
leikinn felst í því að erfitt er að vera
jafn góður á mörg hljóðfæri og söng,
og einnig er erfitt að setja saman
heildstæða efnisskrá, svo ekki hljómi
sem sitt lítið úr hverri áttinni, sem
ekki nái að tengjast.
Styrkleikinn aftur á móti felst í
hversu fjölbreytt val tónlistar er unnt
að bjóða. Þessi fjölhæfni eistnesku
tónlistarmannanna er mikið lán fyrir
þau byggðarlög allt frá Þórshöfn til
Svalbarðsstrandar í Þingeyjarsýslum
þar sem þeir starfa sem tónlistarmenn
og kennarar og reyndar gerir þá hæf-
ari til að sinna þeim óhemju fjöl-
breyttu kröfum sem lítil samfélög gera
til sinna tónlistarmanna. Það er úti-
lokað fyrir mig að skrifa hér um
frammistöðu fólksins og flutning í ein-
stökum atriðum. Auðvitað kom fram
allmikill kunnáttu- og gæðamunur
milli einstakra flytjenda. Mér fannst í
strengjaspili í Bach að ekki væru gerð-
ar nægilega miklar styrkleikabreyt-
ingar og til dæmis í „Vakna Síons
verðir kalla“ hefði laglínan, cantus
firmus, þurft að hljóma sterkar og með
meiri tóni. Af hljóðfæraleikurum sýndi
Kaldo Kiis á básúnu mikla leikni með
fallegum tóni, sama gerði Valmar Välj-
ots á fiðlu og lágfiðlu. Jaan Alavere
sýndi hvað mest jafnvægi í færni á
mörg hljóðfæri, sérstaklega virtist
vandalítið fyrir hann að leika jöfnum
höndum á píanó og fiðlu. Stóri söngv-
arinn með stóru bassaröddina söng ar-
íu Philippo úr Don Carlo eftir Verdi
sannfærandi, en þó stundum full-
hrjúft, en bætti það svo upp með nær-
færnum og mjúkum söng írska lagsins
„Leaving of Liverpool“.
Margot Kiis fór á kostum í nokkr-
um djass- og dægurlögum. Einstak-
lega sannfærandi var söngur hennar í
dúettinum „All I Ask of You“ á móti
Mark Twait ásamt strengjasveit og
píanói, sem var hvað áhrifamest á tón-
leikunum.
Ekki má gleyma undrun minni
þegar Tarvo Nömm sem leikið hafði á
bassa lék einkar fallega einleik á
trompet í dansinum um Mexíkana-
hattinn. Einnig heillaði Lauri Toom
mig oft með sínum fallega, mikla og
mjúka sellótóni og ágætri tækni. Í
þremur síðustu lögunum var komið
við í smiðju Ellington, Gibson og Pet-
ers þar sem allir níu tónlistarmenn-
irnir tóku virkan þátt. Þar tókst þeim
vissulega að hrífa fólk með í algleymi
blágeimsins og kalla fram mikil fagn-
aðarlæti og verðskuldað lof.
Frá Bach til
reggae
TÓNLIST
Deiglan, Akureyri
Jaan Alavere, fiðla, píanó, gítar, trommur
og söngur; Kaldo Kiis, básúna, píanó og
söngur; Külliki Matson, mezzosópran;
Lauri Toom, selló og söngur; Mait Trink
bassarödd og tromma; Margot Kiis
djasssöngkona; Marika Alavere, fiðla og
söngur; Tarvo Nömm trompet og raf-
bassi; Valmar Väljaots, fiðla, píanó og
harmonika. Föstudagur 14. desember.
EISTNESKIR TÓNLISTARMENN BÚSETTIR
Á NORÐURLANDI
Jón Hlöðver Áskelsson
LJÓSMYNDARINN Orri Jónsson
sýndi nýlega verk sín í Galleri
Image-sýningarsalnum í Árósum,
einu elsta starfandi ljósmynda-
galleríi á Norðurlöndunum, við
góðar viðtökur danska dagblaðs-
ins Århus Stiftstidende. En Orri
er fyrsti íslenski ljósmyndarinn
sem sýnir verk sín í galleríinu.
Sagði gagnrýnandi blaðsins
verk Orra á sýningunni Eyðibýli
búa yfir allt að því „yfirnátt-
úrlegum samhljómi“ eyðilegra
bygginganna og sterkrar dags-
birtunnar. Ólíkt öðrum ljós-
myndum af svipuðum viðfangs-
efnum leituðust verk Orra ekki
við að skrásetja né heldur að ná
að túlka sálfræðilega og fé-
lagslega undirtóna auðnarinnar.
„Þess í stað einkennast myndir
Orra af fínlegri litröð pasteltóna
sem virka hér allt að því þurrar á
yfirborðinu og sem valda því að
andrúmsloftið býr yfir svölum
hreinleika þar sem næstum því yf-
irnáttúrulegur samhljómur mynd-
ast milli auðnarinnar og skærrar
dagsbirtunnar, sem skellur á
veggflötum herbergjanna á und-
arlegan, allt að því áþreifanlegan
máta,“ segir gagnrýnandi blaðsins
og telur nám ljósmyndarans í New
York hér eiga sinn hlut að máli.
Yfirnáttúrlegur samhljómur