Morgunblaðið - 19.12.2001, Síða 43
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 43
SÉRFRÆÐIÞEKKING og fram-
farir í heilbrigðismálum firra ekki
fólk því að taka ábyrgð á eigin
heilsu. Við skiljum mik-
ilvægi reglulegrar
hreyfingar, rétts mat-
aræðis, reglulegs
svefns og streitustjórn-
unar fyrir heilsuna.
Geðræktin snýst hins
vegar um hugann.
Væntingar, tilfinningar
og hugsanir hafa áhrif
á heilbrigði. Vellíðan er
sú tilfinning sem þú
finnur þegar þú hugsar
jákvætt um sjálfan þig
og aðra. Rannsóknir
renna sífellt styrkari
stoðum undir það að
hugsun hefur áhrif á
líðan og heilsufar. Heil-
inn er alveg ótrúlegt
líffæri og við eigum langt í land með
að komast að því hvers hann er
megnugur. Hugsanir og tilfinningar
ráða því hvers konar samskipti heil-
inn á við líkamann. Heilinn á í stöð-
ugum „samræðum“ við líkamann
með hormónum sem ferðast með
blóðrásinni. Heilinn getur sent skila-
boð sem ýmist hafa slæm eða góð
áhrif á heilsuna.
Geðræktarkassinn á að vera jafn-
sjálfsagður á hverju heimili og
sjúkrakassinn. Innihald kassans er
afar einstaklingsbundið og því ekki
hægt að kaupa hann tilbúinn, fylltan
eftir ákveðinni uppskrift. Geðrækt-
arkassann á að leita í þegar nei-
kvæðar hugsanir skjóta upp kollin-
um. Með því að fara í kassann og
draga upp hluti sem við vitum af
reynslunni að hafa jákvæð áhrif á
hugsun, getum við stýrt hugarfari
okkar í jákvæðari farveg. Geðrækt-
arkassinn notast líkt og sjúkrakass-
inn, við minniháttar áföll t.d. eftir
erfiðan vinnudag, rifrildi eða
skammir. Hann má líka nota ef við
erum undir miklu álagi, okkur leið-
ist, erum einmana og vantar stuðn-
ing. Hugann er hægt að þjálfa eins
og líkamann. Það tekur tíma og því
æfðari sem við verðum í að ná tökum
á eigin hugsunum þeim mun meiri
árangri náum við. Því
er upplagt að byrja á
því að aðstoða ungviðið
við að útbúa sinn eigin
geðræktarkassa. Ræða
það sem hefur áhrif á
hugsun, viðbrögð við
neikvæðum hugsunum
og hvað við getum gert
til að hafa jákvæð áhrif
á hugsun. Það sama á
við um geðræktina og
líkamsræktina, það er
aldrei of seint að byrja.
Til þess að gefa hug-
mynd að innihaldi slíks
kassa má t.d. nefna
góða bók, disk með
tónlist sem hefur já-
kvæð áhrif, gömul ást-
arbréf, myndbandsspólu sem fær
okkur til að hlæja, símanúmer hjá
vini eða ættingja sem gott er að tala
við, ljóð, myndir sem vekja upp já-
kvæðar minningar og blað og blýant
til að skrifa okkur frá neikvæðum
hugsunum.
Geðræktarkassanum verðum við
að taka ábyrgð á, útbúa sjálf og setja
hluti í. Geðræktin á í harðri sam-
keppni við þaulhugsaða sölu-
mennsku í alls konar útgáfum, þar
sem sérfræðingar í þeim geira vinna
markvisst að því að villa um fyrir
heila okkar. Því yngri sem við erum
þeim mun móttækilegri erum við
fyrir slíkum skilaboðum. Hver eru
svo þessi skilaboð sem berast með
óteljandi miðlum? Jú, að ýmsir
drykkir, matur, tæki og tól muni
auka vellíðan og hafa áhrif á hugsun.
Lítum nú í eigin barm og athugum
hvað við gerum til að hafa áhrif á
hugsun og hvort það er þá heilsuefl-
andi eða ekki.
Í dag, 19. desember, mun Geð-
rækt sem er samstarfsverkefni
Landlæknisembættisins, geðsviðs
Landspítala, háskólasjúkrahúss,
Heilsugæslunnar í Reykjavík og
Geðhjálpar skrifa undir nýja kost-
unarsamninga við Eimskipafélag Ís-
lands, Skeljung hf. og Háskóla Ís-
lands og mun undirritun fara fram í
Borgarbókasafninu í Grófinni klukk-
an 16.30. Viðstaddir verða heilbrigð-
isráðherra og landlæknir, aðstand-
endur verkefnisins, ásamt kost-
unaraðilum. Upphaflegir kostunar-
aðilar eru Delta, Landsbankinn,
Íslensk erfðagreining og íslenska
ríkið. Á sama tíma verður opnað
streitupróf á heimasíðu Geðræktar,
www.ged.is, í fartölvum sem Ís-
landsbanki færir verkefninu að gjöf.
Að undirskrift lokinni verður kynnt
jólagjöf Geðræktar til landsmanna,
geðræktarkassinn.
Geðræktarkassinn jafnsjálf-
sagður og sjúkrakassinn
Elín Ebba
Ásmundsdóttir
Geðrækt
Jólagjöf Geðræktar til
landsmanna, segir Elín
Ebba Ásmundsdóttir,
er geðræktarkassinn.
Höfundur er forstöðuiðjuþjálfi
geðdeilda Landspítala –
háskólasjúkrahúss.
Velkomin
í Hólagarð