Morgunblaðið - 19.12.2001, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 19.12.2001, Blaðsíða 52
KIRKJUSTARF 52 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldraða í dag kl. 13. Handavinna, spil, föndur og gam- anmál. Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyrirbænum í síma 562 2755. Grensáskirkja. Foreldramorgunn kl. 10– 12. Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir foreldra ungra barna kl. 10–12. Starf fyrir 9–10 ára börn kl. 16. Starf fyrir 11–12 ára börn kl. 17.30. Háteigskirkja. Morgunbænir kl. 11. Súpa og brauð kl. 12 á hádegi í Setrinu á neðri hæð safnaðarheimilis. Brids kl. 13 fyrir eldri borgara. Yngri deild barnakórsins æf- ir kl. 16.30 undir stjórn Birnu Björnsdóttur. Kórinn er ætlaður börnum úr 1.–3. bekk. Eldri deild barnakórsins æfir kl. 17.30. Kórinn er ætlaður börnum úr 4.–6. bekk. Kvöldbænir kl. 18. Laugarneskirkja. Gospelkvöld kl. 20 í Há- túni 10 í samvinnu við Laugarneskirkju og ÖBÍ. Guðrún K. Þórsdóttir djákni stýrir samverunni. Þorvaldur Halldórsson syng- ur ásamt Margréti Scheving sálgæslu- þjóni. Bjarni Karlsson sóknarprestur talar og margt fleira fólk stígur á svið með grín og alvöru. Kaffi og smákökur á boðstólum. Neskirkja. Foreldramorgunn kl. 10. Jóla- gleði. Umsjón Elínborg Lárusdóttir. Opið hús kl. 16. Spjallað yfir kaffi og meðlæti. Fræðsla um Davíðssálma kl. 17 í umsjón sr. Franks M. Halldórssonar. Bænamessa kl. 18. Prestur sr. Frank M. Halldórsson. Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Léttur málsverður í safnaðarheimili eftir stundina. Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7–9 ára börn kl. 16.30. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17.30. Grafarvogskirkja. Kyrrðar- stund í hádegi kl. 12 með altarisgöngu og fyrirbænum. Boðið er upp á léttan hádeg- isverð á vægu verði að lokinni stundinni. Allir velkomnir. Kópavogskirkja. Starf með 8–9 ára börn- um í dag kl. 16.45–17.45 í safnaðarheim- ilinu Borgum. Starf með 10–12 ára börn- um, TTT, á sama stað kl. 17.45–18.45. Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir velkomnir. Tekið á móti fyrirbænaefnum í kirkjunni og í síma 567 0110. Bessastaðasókn. Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra ungra barna kl. 10–12. Heitt á könnunni. Fjölmennum. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13–16 í samstarfi við Fé- lag eldri borgara á Álftanesi. Notalegar samverustundir með fræðslu, leik, söng og kaffi. Auður og Erlendur sjá um akstur á undan og eftir. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj- unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljós- broti Strandbergs. Víðistaðakirkja. Foreldramorgnar á fimmtudögum kl. 10–12. Opið hús fyrir eldri borgara í dag kl. 13. Helgistund, spil og kaffiveitingar. Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í Lágafellsskóla á miðvikudögum kl. 13.15–14.30. Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar í dag kl. 10–12. Kletturinn, kristið samfélag. Bænastund kl. 20. Allir velkomnir. SÍK. Samkoma í Kristniboðssalnum, Háa- leitisbraut 58, kl. 20.30. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson talar. Allir velkomnir. Safnaðarstarf HELGIHALD verður með hefð- bundnum hætti í Kirkjubæjar- klaustursprestakalli sem áður, og setur fólk ekki langar vegalengdir fyrir sig þegar sækja skal helgar tíðir aðventu og jóla. Aðventan, með nýju kirkjuári, hefur lýst upp kirkjur með helgum ljósum og söng, helgileikir, tónlist- aruppákomur og fleira hefur dreg- ið söfnuðina saman til kirkna sinna. Helgihald verður á eftirfar- andi stöðum yfir hátíðina: Á afangadagskvöld/jólanótt verður helgistund í Minningarkap- ellu sr. Jóns Steingrímssonar á Kirkjubæjarklaustri kl. 23:30. Á jóladag: Hátíðarguðsþjónusta í Þykkvabæjarklausturskirkju í Álftaveri kl. 11. Hátíðarguðsþjón- usta verður þá í Prestsbakkakirkju á Síðu kl. 14 og helgistund á elli- heimilinu Klausturhólum kl. 15. Annar dagur jóla: Hátíðarguðs- þjónusta í Grafarkirkju í Skaft- ártungu kl. 14 – prestur þar verð- ur sr. Baldur Gautur Baldursson. Sunnudag milli jóla og nýárs, 30. des., verður hátíðarguðsþjónusta í Langholtskirkju í Meðallandi kl. 14. Síðdegis á gamlársdag verður svo hátíðarguðsþjónusta í Prests- bakkakirkju á Síðu kl. 17 en þar prédikar sr. Baldur Gautur Bald- ursson og þjónar fyrir altari ásamt konu sinni. Organisti er Kristófer Sigurðsson sem stjórnar kórum kirkjunnar við allar athafnirnar. Gleðileg jól! Sr. Bryndís Malla Elídóttir. Litlu jólin í Langholtssöfnuði LITLU jól eldri borgara í Lang- holtssöfnuði verða haldin hátíðleg í dag kl. 13–16. Eftir kaffisopa og spjall í safnaðarsalnum göngum við til kirkju til jólastundar. Þar mun séra Jón Helgi Þórarinsson flytja hugvekju, Svala Sigríður Thomsen djákni rifjar upp jólahald liðins tíma, sungin verða jólalög við undirleik Jóns Stefánssonar organista. Góðir gestir koma í heimsókn og syngja fyrir okkur. Að stundinni lokinni verður kaffihlaðborð (krónur 500) á boð- stólum í safnaðarheimilinu. Hver þátttakandi er beðinn að koma með jólapakka (ódýran, má ekki kosta meira en 300 krónur), sem verður settur í gjafakörfu. Þannig fá allir jólagjöf. Verið öll hjartanlega velkomin og takið endilega með ykkur gesti. Eldri borgurum sem komast ekki að öðrum kosti til kirkjunnar er boðið upp á akstur heiman og heim. Hafið samband við Svölu Sigríði Thomsen djákna í síma 520 1314/862 9162. Fimmtudagur 20. desember: Foreldra- og barnamorgunn kl. 10–12. Jólastund í kirkjunni með Svölu djákna, séra Jóni Helga og Jóni organista. Á eftir verður rjúk- andi súkkulaði og foreldrar eru beðnir að koma með smásýnishorn af jólabakstrinum. Gefum okkur tíma frá undirbúningi jólanna og eigum góða stund saman. Spilað fyrir nýju orgeli í Laugarneskirkju SIGURÐUR Flosason saxófónleik- ari og Gunnar Gunnarsson org- anisti leika á sérstökum tónleikum í Laugarneskirkju til styrktar kaupum á nýju orgeli fyrir kirkj- una fimmtudaginn 20. desember kl. 20:30. Það er Björgvin Tómasson, org- elsmiður í Mosfellssveit, sem smíð- ar hið nýja orgel og eftirvæntingin er mikil hjá söfnuðinum. Lista- mennirnir gefa vinnu sína og mun allur ágóði af tónleikunum renna í orgelsjóð Laugarneskirkju. Miða- verð er kr. 1.500 en kr. 1.000 fyrir eldri borgara og öryrkja. Forsala verður í Laugarneskirkju á mið- vikudag og fimmtudag, frá kl. 9:00–14:00. Á tónleikunum munu Gunnar og Sigurður flytja dagskrána Sálma jólanna, en hún hefur nú verið flutt tvisvar fyrir fullri Hallgríms- kirkju og víða um land. Þess má geta að Gunnar er org- anisti í Laugarneskirkju og Sig- urður hefur búið í sókninni und- anfarin sjö ár. Geisladiskur þeirra félaga, Sálmar jólanna, hefur hlot- ið góðar móttökur og einróma lof gagnrýnenda. Notum gott tilefni, gefum okkur tíma og styðjum Laugarneskirkju í leiðinni. Sóknarnefnd og sóknarprestur. Helgihald um jól og áramót í Kirkjubæjar- klausturs- prestakalli Kirkjan í Langholti, herra Sigurbjörn Einarsson biskup í predikunarstól. Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030. Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar  564 1500 20 ára EIGNABORG FASTEIGNASALA Furugrund 83 fm 4ra herb. á 6. hæð, parket á stofu, þvottahús á hæð, suður- svalir, mikið suður- og vesturútsýni, sér- merkt stæði í bílahúsi, laus fljótl. (932) ATVINNUHÚSNÆÐI Langholtsvegur Um 110 fm skrif- stofuhúsnæði með sérinngangi, laust strax. Smiðjuvegur Mjög bjart og gott at- vinnuhúsnæði með stórum innkeyrslu- dyrum, samtals 518 fm. Búið er að innrétta í húsnæðinu skrifstofu, kaffistofu, verk- stjóraherbergi, snyrtingu og milliloft. Skútuvogur Mjög gott skrifstofu-/lag- erhúsnæði, alls 341 fm. Þar af eru skrif- stofur um 80 fm. Hentar sérlega vel fyrir heildsölur. NÝBYGGINGAR Sólarsalir Eigum eftir þrjár 4ra her- bergja íbúðir í 6 íbúða húsi. Íbúðirnar eru 116 fm og 122 fm. Allar íbúðir eru með sér- inngangi og sérþvottahúsi, bílskúr fylgir einni íbúð. Íbúðirnar verða afhentar í vor fullfrágengnar með öllum innréttingum, án gólfefna nema baðherbergi, anddyri og þvottahús verður flísalagt. EINBÝLISHÚS Hraunbraut Glæsilegt 191 fm einbýli á tveimur hæðum, 4 svefnherb., arinn í stofu, nýleg innrétting í eldhúsi, endurnýjuð og flísalögð baðherbergi, 24 fm bílskúr, mikið útsýni. (910) RAÐHÚS OG PARHÚS Fjarðarsel 147 fm mikið endurnýjað endaraðhús, 4 svefnh. 24 fm bílskúr. (929) SÉRHÆÐIR Sogavegur Glæsileg 134 fm sérhæð, 3 svefnh., ný innrétt. í eldhúsi úr beyki, 25 fm bílskúr. Hagstætt 11,3 m. lífeyrissjóðsl. fylgir, ekkert greiðslumat, laus í nóv. (913) 3JA OG 4RA HERB. ÍBÚÐIR Engjasel 83 fm 3ja herb. á 4. hæð, suðursvalir, parket á gólfum, þvottaherb. innaf baði, stæði í lokuðu bílahúsi, laust fljótl. Áhv. viðbótarl. 2,1 m. 4,38% vextir, húsbr. 5,5 m. (940) Gleðilegt jól og farsælt komandi ár þökkum viðskiptin á árinu Viðurkenndir aukahlutir frá Audi og Volkswagen. Hinn eini sanni Elvis fæst í HEKLU núna ! Verð aðeins 1.490 krónur Fótstigin Bjalla fyrir 18 mán til 4 ára Verð aðeins 14.900 krónur MORTÉL Eins og notað er í sjónvarpsþættinum kokkur án klæða Verð frá kr. 4.500 Klapparstíg 44 sími: 562 3614 Súrefnisvörur Karin Herzog Vita-A-Kombi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.