Morgunblaðið - 19.12.2001, Qupperneq 55
O
D
D
IH
F
H
63
81 Nóatúni 4 • 105 Reykjavík
Sími 520 3000
www.sminor.is
Ljós í miklu
úrvali fyrir
heimilið.
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 55
Morgunblaðið/Ásdís
Trúarhópar
sameinast í
bæn um frið
FRIÐARSAMKOMA var haldin í
Kaplakrika á laugardag þar sem
meðlimir átta mismunandi trúar-
hópa sameinuðust í bæn um frið, en
alls mættu um 7–800 manns á sam-
komuna. Anna Pálína Árnadóttir
söngkona setti samkomuna og
Anna Sigríður Helgadóttir söng
einsöng. Þá komu leiðtogar trúar-
bragða fram og fluttu hver um sig
stutt ávarp og sungu friðarbæn. Að
hverri bæn lokinni tónaði Esther
Helga Guðmundsdótttir, söngkona
og kórstjórnandi, fram inntakið úr
hverri bæn og leiddi viðstadda í
söng um friðarbænina. Að lokum
sungu allir saman friðarsöngva
undir stjórn Estherar við undirleik
Hreiðars Inga Þorsteinssonar.
Hólmfríður Árnadóttir stóð að
samkomunni, ásamt þeim Esther
Helgu og Sigurlaugu Guðmunds-
dóttur, en kveikjan að samkomunni
eru hörmungarnar sem dunið hafa
yfir heimsbyggðina á síðustu mán-
uðum og var markmiðið að sýna
samstöðu með þeim sem mest hafa
þjáðst og að fólk gæti fundið fyrir
því að geta lagt eitthvað af mörk-
um. Að sögn Hólmfríðar voru þær
stöllur mjög sáttar við þann fjölda
fólks sem mætti á samkomuna, mið-
að við hversu annasöm síðasta helgi
fyrir jól gjarna er. „Það var óskap-
lega gaman að sjá allt þetta ólíka
fólk standa saman og flytja bæn um
frið,“ sagði Hólmfríður. Á myndinni
eru Esther Helga Guðmundsdótttir,
til hægri, ásamt Önnu Sigríði
Helgadóttur, til vinstri, stjórnuðu
fjöldasöng. Á milli þeirra má m.a.
sjá Önnu Pálínu Árnadóttur, Dorr-
itt Moussaieff og forseta Íslands,
Ólaf Ragnar Grímsson, taka lagið.
BÍLABÚÐ Benna stendur fyrir
jólaleik fyrir börn í samvinnu við
Hjálparsveit skáta í Reykjavík og
Íslandspóst. Börnum er boðið að
lita mynd af Musso-jeppa, sem
birtist í dagblöðunum fram til jóla,
og senda til Bílabúðar Benna.
Úr innsendum myndum verða
dregnir út 200 „ listamenn„. Verð-
launin verða ,,Goliat flugelda-
pakki“ frá Hjálparsveit skáta í
Reykjavík.
Tilkynningar til verðlaunahafa
verða póstlagðar 27. desember.
Jafnframt var ákveðið að gefa
Mæðrastyrksnefnd gjafabréf fyrir
50 flugeldapökkum og komu
fulltrúar fyrirtækjanna saman hjá
Bílabúð Benna á Vagnhöfða 23 ný-
lega af því tilefni en þeir voru Ás-
gerður Jóna Flosadóttir og Bryn-
dís Guðmundsdóttir frá
Mæðrastyrksnefnd, Kristinn
Ólafsson frá Hjálparsveit skáta í
Reykjavík og Jón Kr. Stefánsson
frá Bílabúð Benna.
Mæðrastyrks-
nefnd fær gjafir