Morgunblaðið - 19.12.2001, Qupperneq 60
FÓLK Í FRÉTTUM
Miðasölusími: 551 1200. Miðasalan er opin kl. 13-18 mánudaga og þriðjudaga.
Aðra daga kl. 13-20. Símapantanir frá kl. 10 virka daga.
Netfang: midasala@leikhusid.is Veffang: www.leikhusid.is
lau. 22/12 kl. 14:00 nokkur sæti laus og kl. 15:00, lau.29/12 kl.14:00 örfá sæti laus
og kl.15:00 örfá sæti laus, sun. 30/12 kl. 14:00 örfá sæti laus og kl.15:00 nokkur
sæti laus.
KARÍUS OG BAKTUS - Thorbjörn Egner
HVER ER HRÆDDUR VIÐ VIRGINÍU WOOLF? - Edward Albee
Ekki er hægt að hleypa inn í salinn eftir að sýning er hafin!
mið. 2/1, sun. 6/1.
Litla sviðið kl 20.00
VILJI EMMU - David Hare
Aukasýningar fös. 28/12 örfá sæti laus, 29/12 síðasta sýning.
Smíðaverkstæðið kl 20.00
MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI - Marie Jones
Sun. 6/1, fim. 10/1.
SYNGJANDI Í RIGNINGUNNI - Comden/Green/Brown og Freed
Fös. 28/12 örfá sæti laus, lau. 29/12 örfá sæti laus, lau. 5/1.
CYRANO - SKOPLEGUR HETJULEIKUR - Edmond Rostand
Stóra sviðið kl 20.00
Frumsýning annan í jólum-uppselt, 2. sýn. fim. 27/12 örfá sæti laus, 3. sýn. sun.
30/12 örfá sæti laus, 4. sýn. fim. 3/12 örfá sæti laus, 5. sýn. fös. 4/1 örfá sæti laus.
GJAFAKORT Í ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
SKEMMTILEG GJÖF!
! "
!
#
! "
#$ %&
' !( ' )"
*
+ , !+-
. '
$%% &'
(
. / '0!-
!
1
)$ / 2 )
#
)* ++
$, ,
- *+
"
&'
)
%'
!3 21 2! / ' (
#
2 2! / ' (
#
)
0% ! / ' 444
54 2!$ / '24
!3 6 24
#
24
#
)* ++
$, ,
- *+
Hljómsveitarstjóri: Peter Guth
Einsöngvari: Gabriele Fontana
Sinfónían
Háskólabíó við Hagatorg
Sími 545 2500
sinfonia@sinfonia.is
www.sinfonia.is
föstudaginn 4. janúar
kl. 19:30 í Laugardalshöll
AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUNNAR
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Í þau þrjátíu ár sem Sinfónían hefur við-
haldið glæsilegri tónlistarhefð Vínarborgar
hefur oftar en ekki verið uppselt á þessa
vinsælu tónleika. Tryggðu þér miða í tíma!
Ósóttar pantanir skulu sóttar
fyrir laugardaginn 22. desember.
laugardaginn 5. janúar
kl. 17:00 í Laugardalshöll
FJANDMAÐUR FÓLKSINS e. Henrik Ibsen
Fi 27. des kl. 20 - LAUS SÆTI
BLÍÐFINNUR e. Þorvald Þorsteinsson
Su 30. des. kl. 14 - ÖRFÁ SÆTI
KRISTNIHALD UNDIR JÖKLI
e. Halldór Laxness
Fö 28. des kl. 20 - LAUS SÆTI
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Lau 29. des kl 20 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 19. jan kl. 20 - LAUS SÆTI
BEÐIÐ EFTIR GODOT e. Samuel Beckett
Fö 28. des. kl. 20 - LAUS SÆTI
PÍKUSÖGUR e. Eve Ensler
Lau 29. des kl. 20 - LAUS SÆTI
Stóra svið
Nýja sviðið
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
GJAFAKORT Í LEIKHÚSIÐ
HEILL HEIMUR Í EINU UMSLAGI
- FRÁBÆR JÓLAGJÖF -
STUART Adamson, sem best var
þekktur sem leiðtogi skosku rokk-
sveitarinnar Big Country, en hún
naut töluverðra vinsælda á níunda
áratugnum, fannst látinn á hótelher-
bergi í Hawaii síðastliðinn sunnudag.
Adamson var 43 ára gamall.
Á dægurmenningarvefsetri BBC
er skoðað má glögglega sjá að Adam-
son var ekkert venjulegur tónlistar-
maður en um þessar mundir rignir
þar inn samúðarkveðjum víðvegar
að úr veröldinni. Svo virðist sem
hann hafi átt sérstakan stað í hjarta
fjölmargra; er sérstaklega lofaður
fyrir prúðmennsku sína, svo og auð-
vitað tónlistina, en einkanlega er tal-
að um hljómleika Big Country þar
sem sveitin var ávallt með þeim
fremstu á því sviði.
Einstakur gítarleikari
Stuart Adamson (skírður William
Stuart Adamson) hóf feril sinn sem
tónlistarmaður árið 1973 með sveit-
inni Tattoo. Fyrst vakti hann þó at-
hygli sem einn af meðlimum síð-
pönksveitarinnar Skids, og vakti
nýstárlegur gítarleikur hans mikla
eftirtekt. Það var svo árið 1982 sem
ný sveit hans, Big Country, gaf út
sína fyrstu smáskífu („Harvest
Home“) og átti kvartettinn eftir að
njóta mikilla vinsælda. M.a. annars
naut hann þónokkurra vinsælda hér-
lendis og var lagið „East of Eden“, af
annarri plötu þeirra Steeltown, feiki-
vinsælt. Plötur Big Country á níunda
áratugnum; The Crossing (1983),
Steeltown (1984), The Seer (1986) og
Peace in our Time (1989) seldust í yf-
ir tíu milljónum eintaka um allan
heim og af þekktum lögum má nefna
„In a Big Country“, „Fields of Fire“
og „Look Away“. Fyrsta plata sveit-
arinnar var og tilnefnd til tvennra
Grammy-verðlauna. Gítarhljómur
Big Country þótti einstakur og m.a.
sagði Frank Black, fyrrum for-
sprakki The Pixies, að hann hefði all-
an tímann verið að reyna að apa eftir
Stuart, hvað gítartækni varðar.
Á tíunda áratugum fór frægðarsól
Big Country svo að dala nokkuð, þótt
útgáfa á plötum hafi alla tíð haldið
áfram. Sveitin hélt líka áfram tón-
leikaferðum linnulaust og var hún
rómuð tónleikasveit, hitaði m.a. upp
fyrir Rolling Stones árið 1995. Árið
1996 fluttist Adamson svo búferlum
til Nashville og sökkti sér í tónlistar-
menninguna þar en áhugi á banda-
rísku sveitarokki hafði látið á sér
kræla hjá honum við upphaf tíunda
áratugarins, sem m.a. má heyra
glöggt á skífu sveitarinnar frá 1991,
No place like home.
Hamingja, innblástur
Upp úr 1999 gekk Big Country svo
í hálfgildings endurnýjun lífdaga,
var þá aðalsveitin á tónleikum til
styrktar Kosovo. Í kjölfarið kom ný
hljóðversskífa, Driving to Dam-
ascus.
Árið eftir ákvað Adamson þó að nú
væri komið nóg og í maí hélt sveitin
lokatónleika með pompi og pragt.
Adamson hafði duflað við tónlist í
Nashville og starfaði m.a. þar með
sveitinni Raphaels.
Fyrir nokkrum vikum hvarf
Adamson en slíkt gerðist og árið
1999. Vitað er að hann átti við áfeng-
isvandamál að stríða, hafði verið
þurr í tólf ár þar til hann hóf drykkju
á ný fyrir fjórum árum.
Hann lét eftir sig skilaboð til sonar
þíns þar sem hann sagðist myndu
koma aftur á sunnudag. Þetta var
miðvikudaginn 7. nóvember. Ekkert
spurðist síðan til Adamson, fyrr en
hann fannst látinn í áðurnefndu hót-
elherbergi.
Nú hefur komið í ljós að Adamson
hengdi sig, sem gerir þennan sorg-
lega atburð válegri en ella.
„Harmleikurinn liggur í því að
Stuart veitti svo mörgum hamingju
og innblástur en gat ekki fundið það
sama innra með sér sjálfum,“ skrifar
einn aðdáandinn.
Hvíl í friði, Stuart Adamson.
Stuart Adamson (1958–2001)
Sviplegt fráfall
leiðtoga Big Country
Stuart Adamson um miðbik níunda áratugarins, að loknum tónleikum.
arnart@mbl.is
ÁGÆTA sögu heyrði undirritað-
ur um árið er varðaði píanistann og
lækninn Hauk Heiðar Ingólfsson.
Sökum mikilla
vinsælda hljóm-
sveitarinnar Dr.
Hook á danskri
grundu íhugaði ís-
lenskur útgefandi
að skipuleggja
markaðssetningu á Hauki Heiðari í
Danmörku undir listamannsnafninu
Dr. Hawk. Hvort af áformum þeim
varð veit ég ekki. Hitt veit ég held-
ur ekki, hvort nýjasta geislaplata
Hauks og hér um ræðir, Mánaskin,
er eingöngu útgefin hérlendis.
Heldur geri ég þó ráð fyrir því.
Mánaskin er hin huggulegasta
plata. Haukur og félagar eru ekk-
ert að rembast við eitt eða neitt.
Þeir leika einfaldlega frábær dæg-
urlög á hófstemmdan máta og með-
höndla smíðarnar augljóslega af
varfærni og virðingu. Hér er ekk-
ert verið að reyna einhver tísku-
brögð eða uppskrúfuð svalheit.
Lagavalið er yfirleitt með mikl-
um ágætum. Gullsmíð Friðriks
Jónssonar, „Við tvö“, er hér í afar
notalegum búningi og hið sama má
segja um „Hagavagn“ Jónasar Jón-
assonar og meistaraverk á borð við
„When You Wish Upon a Star“,
sem hér er sérdeilis vel leikið.
Mánaskin hefst reyndar á lökustu
smíðinni, „Marsbúa (cha cha cha)“,
en það er eina lagið af fjórtán sem
virðist eilítið draga niður annars
afburða gott val á tónsmíðum.
Haukur Heiðar er enginn af-
burðamaður á slaghörpuna; samt
býr hann yfir augljósu næmi fyrir
laglínum og er einkar smekkvís í
leik sínum. Þá er hann um margt
séðari í flutningi sínum en margur
tæknilega liprari kolleginn, því nót-
ur Hauks eru aldrei of margar. Á
Hauki sannast enn einu sinni að
minna verður oft meira því einfald-
leikinn er svo oft erfiðastur en
flottastur.
Aðrir hljóðfæraleikarar skila
sínu með ágætum. Þeir eru heldur
ekkert að tapa sér í endalausum
skölum eða öðrum íþróttaæfingum.
Eingöngu er leikið af smekkvísi,
virðingu og þegar best lætur, mik-
illi tilfinningu. Þetta er allt at-
vinnumenn fram í fingurgóma og
það er alls ekki sjálfgefið að slíkt
titlaðir standi undir nafni, en hér
gera þeir það tvímælalaust allir
sem einn.
Þótt Mánaskin muni seint teljast
til tónlistarlegra stórvirkja þá inni-
heldur hún fágæt notalegheit.
Þetta er fyrsta flokks bakgrunn-
stónlist, framreidd af fagmennsku
þar sem fyrst og fremst er leikið af
auðmýkt og virðingu fyrir viðfangs-
efninu, en ekki í sjálfumgleði yfir
eigin færni á hljóðfærin.
Tónlist
Minna
er meira
Haukur Heiðar Ingólfsson
Mánaskin
Haukur Heiðar gefur út
Mánaskin, geislaplata Hauks Heiðars
Ingólfssonar og félaga. Haukur Heiðar
leikur á píanó ýmis þekkt dægurlög. Með
honum leika þeir Árni Scheving á bassa,
víbrafón og dragspil, Vilhjálmur Guð-
jónsson á gítar, Einar Valur Scheving á
slagverk, Alfreð Alfreðsson á trommur og
Birkir Freyr Matthíasson á flygelhorn og
trompet. Útsetningar voru í höndum
þeirra Hauks Heiðars og Árna Scheving
sem jafnframt stýrði upptökum. Gunnar
Smári Helgason hljóðritaði og blandaði.
Skífan dreifir.
Orri Harðarson
Morgunblaðið/Þorkell
Haukur Heiðar nýtur m.a. full-
tingis Árna Scheving á Mána-
skini sem Orri Harðarson segir
innihalda „fágæt notalegaheit“.
60 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MARGUMRÆTT hjónaband háðfuglsins Toms Greens og leikkonunnar Drew
Barrymore virðist á enda. Green hefur sótt formlega um skilnað frá konu sinni
og því er útlit fyrir að hjónabandið vari skemur en ár, en parið gekk í það heil-
aga í mars á þessu ári. Formleg skýring á beiðninni um lögskilnað er ósætt-
anlegur ágreiningur og hefur Green sent frá sér tilkynningu til að skýra sína
hlið á málinu: „Drew er yndisleg kona. Ég elska hana heitt og vildi óska þess að
hjónabandið hefði gengið. Ég vona að hamingjan verði henni hliðholl í framtíð-
inni.“ Barrymore hefur ekki viljað tjá sig um skilnaðarbeiðni Greens.
Þau hittust í mars 2000 og giftu sig öllum að óvörum ári síðar. Þau endurnýj-
uðu hjúskaparheitin í viðurvist vina og vandamanna í júlí og allt virtist leika í
lyndi. Þetta var fyrsta hjónaband Kanadamannsins Greens en annað hjá
Barrymore. Hennar fyrsta var á enda eftir 19 daga og virðist henni því eitthvað
fara fram, þrátt fyrir allt.
Tom Green
og Drew
Barrymore.
Tom Green vill skilja
við Drew Barrymore