Morgunblaðið - 19.12.2001, Page 61
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 61
www.sminor.is/
tolvubun.htm
Áður slógu hendur landans létt á Olivetti ritvél-
arnar en nú eru það bleksprautuprentarar og
geislaprentarar frá Olivetti sem allir vilja hafa
undir höndum.
Hér eru á ferðinni fjölhæfir og velvirkir gæða-
prentarar á góðu verði sem sómi er að á heimili
og skrifstofu.
Prentarar
Nánar á Netinu!
Láttu prentara frá
Olivetti sjá um skriftirnar!
OD
DI
HF
G8
27
8
SÖNGKONAN Hjördís Geirsdóttir á að baki ein fjöru-
tíu ár í tónlistinni og hefur sungið með ýmsum dans-
leikjahljómsveitum í gegnum tíðina, síðustu árin með
sinni eigin hljómsveit. Á þessari plötu fær hún til liðs við
sig fjöldann allan af hljóðfæraleikurum úr gömlu-
dansafylkingunni og velur bæði gömul
lög og ný til flutnings, lög sem hún
þekkir út og inn eftir að hafa sungið
þau á böllunum í gegnum árin. Harm-
ónikkulögin skipa stóran sess en ann-
ars er lagavalið fjölbreytt blanda af
gömlum standördum og nýrri lögum,
eftir erlenda og íslenska höfunda, alls 14 lög. Þar af er ein
skemmtileg samsuðusyrpa af þremur þekktum dægur-
flugum, „Hello Dolly“, „Flickorna í Småland“ og
„Kántrýbæ“ þar sem Friðrik Theódórsson „skattsyng-
ur“ í kringum Hjördísi. Upphafslag disksins er hið
þekkta lag Fred Spielman „Paper Roses“ (sem margir
þekkja sem „Jólin koma“) og er hér sungið við vel lukk-
aðan texta Jóns Sigurðssonar, „Gular rósir“ en Hjördís
fékk Jón sérstaklega til að gera textann fyrir sig. Hérna
má líka finna lög eins og „Hreðavatnsvalsinn“, „Í Eyj-
um“, „As Time Goes By“ og leikin lög, polka og vals, fyrir
harmonikkuna. Þetta eru sem sagt lög sem henta fyrir
gömlu dansana og höfða líklegast einkum til þeirra sem
hafa gaman af því að hringsnúast um gólfið við harm-
onikkuleik. Með plötunni fylgir fróðleg textabók með for-
mála Hjördísar um tilurð plötunnar, athugasemdum við
hvert lag auk mynda, sem gaman er að fletta í gegnum en
lesa hefði mátt ensku textana betur yfir, þar morar allt í
villum. Hljóðfæraleikurinn er allur mjög fagmannlegur
enda vanir menn í áhöfninni, og útsetningarnar vandaður
og góður heildarsvipur yfir lögunum.
Rödd Hjördísar hæfir vel harmónikkusveiflunni, er
hressileg og lífleg. Hún býr hins vegar ekki yfir miklum
blæbrigðum og er heldur stirðleg í rólegri lögunum, þar
mættu áherslurnar vera mýkri. Sérstaklega verður hið
sígilda „As Time Goes By“ hjákátlegt í flutningi. Svo
margir góðir söngvarar hafa farið um það höndum að það
er erfitt að standast slíkan samanburð. Hærri nóturnar
valda líka nokkrum vandræðum í söngnum, eins og í
„Long Long Live Love“ og „Næturljóð – Gleymdu því
aldrei góði“ og þegar sungið er á ensku skín íslenski
framburðurinn í gegn. Yfirleitt er þó söngurinn ágætur
og stemmningin lifandi og heilbrigður ungmennafélags-
andi svífur yfir vötnum.
Kosturinn við þessa plötu er að lagavalið er fjölbreytt
og fjörlegt og söng- og spilagleðin augljós. Fyrir þá sem
kunna sporin og vilja bregða upp gömludansastemmn-
ingunni heima í stofu, er diskurinn tilvalinn.
Tónlist
Harmonikkufjör
Hjördís Geirsdóttir
Hjördís Geirsdóttir ásamt gömlum og glöðum
félögum.
Hjördís Geirsdóttir gefur út
HJÖRDÍS Geirsdóttir ásamt gömlum og glöðum félögum.
Hjördís gefur út, Skífan dreifir.
Lög og textar á plötu Hjördísar eru úr ýmsum áttum en um út-
setningar sáu Ragnar Páll Einarsson, Karl Adolfsson, Sigurgeir
Björgvinsson og Hjördís Geirsdóttir. Auk Hjördísar koma einnig
við sögu í söngnum dóttir Hjördísar, Hera Björk Þórhallsdóttir,
Ólafur Bachmann og Friðrik Theódórsson. Alls koma 17 hljóð-
færarleikarar að spilamennskunni, allt menn sem hafa langa
reynslu úr dansleikjabransanum og má þar nefna Karl Adolfsson
og Sigurgeir Björgvinsson á harmonikku, Ragnar Pál Einarsson
á gítar og hljómborð, Svein Óla Jónsson, Ólaf Backmann og
Guðmund Steingrímsson á trommur, Guðmund Hauk Jónsson og
Árna Elvar á flygil o.fl. Ólafur Þórarinsson sá um hljóðblöndun og
frágang.
Að mati Steinunnar Haraldsdóttur er „söng- og
spilagleðin augljós“ á plötu Hjördísar Geirs.
Steinunn Haraldsdóttir