Morgunblaðið - 19.12.2001, Page 64
64 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16. Vit 314
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit 316 Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Vit 299
Frábær gamanmynd með Mark Wahlberg
(Planet of the Apes, Perfect Storm) og Jennifer
Aniston (Friends) með dúndur rokki sem
rokkunnendur mega ekki alls ekki missa af.
Fæstir fá
tækifæri til
þess að VERÐA
uppáhaldsstjarnan sín!
3% LÍKAMSFITA. 1% HEILASTARFSEMI
Hinn nautheimski Derek Zoolander fær ekki borgað fyrir að hugsa!
Nýjasta mynd Ben Stiller´s sem fór á kostum í hinum frábæru
grínsmellum Meet The Parents og There´s Something About Mary.
Kvikmyndir.is
DV
Strik.is
ÓHT Rás 2
Sýnd í Lúxus VIP kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16. Vit nr. 296
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.Vit 307
1/2
RadíóX
1/2
Kvikmyndir.is
1/2
Kvikmyndir.com
strik.is
Allur heimurinn
mun þekkja
nafn hans
ÓHT Rás 2 MBL
H O L E
THE
DV
SV Mbl
Sýnd kl. 8. B. i. 16.
1/2
Kvikmyndir.com
1/2
Kvikmyndir.is
ÞÞ Strik.is
ÓHT Rás 2
HL Mbl
SG DV
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 6 og 8.
HJ Mbl ÓHT RÚV
Allur heimurinn
mun þekkja
nafn hans
strik.is
ÓHT Rás 2
MBL
Edduverðlaun6
BROTHERHOOD
OF THE WOLF
Ó.H.T Rás2
Strik.is
Sýnd kl. 6 og 9.
Jólamynd
1/2
RadíóX
Sýnd kl. 6. B.i.14.Sýnd kl. 10.30. B. i. 16. Sýnd kl. 10.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
4 evrópsk kvikmyndaverðlaun. M.a. Besta mynd
Evrópu, Besta leikstjórn og Besta kvikmyndataka.
Kvikmyndir.co
Ein persóna getur
breytt lífi þínu
að eilífu.
Frá leikstjóra
Delicatessen
HAM er og
verður goðsögn í
íslensku rokki
HK DV
SAGA Anthonys Bourdains af lífinu
í eldhúsinu á nokkrum helstu veit-
ingahúsum heims, Kitchen Confid-
ential, er svo krassandi að vísast
leggja margir lesendur hennar af
heimsóknir í slík fíkniefna- og kyn-
svallsbæli. Eins og Bourdain lýsir
því velst varla til starfa í eldhúsum
veitingahúsa nema verulega
skemmt fólk og ekki eru eigendur
staðanna síður sérkennilegir. Hann
er þó ekki að segja hryllingssögu;
hvarvetna skín í gegn að hann er
stoltur af að hafa kynnst þessum
heimi sem hann elskar og finnst
greinilega fátt skemmtilegra en að
vera á kafi í eldamennsku innan um
dóphausa og geðsjúklinga. Bráð-
skemmtileg og fyndin bók uppfull
með fróðleik um mat og matreiðslu.
Harry Potter er á allra vörum,
enda gengur fyrsta kvikmyndin
fyrir fullum húsum og skammt síð-
an fjórða og besta bókin kom út á
íslensku. Þeir sem ekki hafa lesið
Harry Potter ættu að gera það
strax, hvort sem að er á ensku eða
íslensku, og síðan eiga allir að lesa
þríleik Phillips Pullmans, sem er
reyndar verið að snara á íslensku
einnig. Saga hans af Lýru Silf-
urtungu og ævintýrum hennar, The
Golden Compass, The Subtle Knife
og The Amber Spyglass, er með
helstu stórvirkjum ævintýrasagn-
anna og ekki bara fyrir börn eða
stálpaða unglinga; því má halda
fram að fullorðnir njóti hennar
einna best og því betur sem þeir
eru betur að sér í menningar- og
trúarbragðasögu. Mönnum er ráð-
lagt að kaupa allar bækurnar í einu
til að forðast óþægindi af því að
hafa ekki framhaldið við hendina
þegar lokið er fyrsta eða öðru
bindi.
Ein skemmtilegasta skáldsaga
síðasta árs vestan hafs var The
Amazing Adventures of Kavalier
and Clay eftir Michael Chabon.
Bókin segir frá frændunum Josef
Cavalier og Samuel Klayman, sem
tóku sér nöfnin Joe Kavalier og
Sammy Clay, en sagan gerist á
millistríðsárunum þegar teikni-
myndaiðnaðurinn er að verða til
vestanhafs og nær fram á okkar
daga. Fyrir stuttu kom bókin út á
kilju, er því á skaplegu verði og
vert að vekja enn athygli á henni,
en þess má geta að Chabon fékk
Pulitzer-verðlaunin í vor fyrir bók-
ina og það verðskuldað. Sagan er
ævintýraleg og í senn átakanlega
sorgleg og bráðfyndin; mikið meist-
araverk.
Jasper Fforde sendi frá sér sína
fyrstu skáldsögu á árinu og kallast
hún The Eyre Affair. Söguhetja
hennar er bókmenntalögreglukonan
Thursday Next sem fæst við fant-
inn Acheron Styx, en meðal ill-
virkja hans er að ræna og myrða
persónur úr þekktum bókmennta-
verkum. Þegar hann rænir sjálfri
Jane Eyre og heldur henni fanginni
dregur til tíðinda og Next eltir
hann inn í bókina til að greiða úr
málinu. Bráðskemmtileg og fyndin
bók sem gerist í skemmtilega
geggjuðum heimi þar sem menn
berjast upp á líf og dauða um bók-
mennta- og listastefnur. Bók-
menntakunnátta ekki áskilin en
eykur ánægjuna ef hún er fyrir
hendi.
Frægasti bálkur ævintýrasagna
er Discworld-sagnirnar eftir Terry
Patchett en um þrjátíu bækur hafa
komið út í þeirri röð, þeirra nýjast-
ar The Last Hero og Amazing
Maurice and His Educated Rod-
ents. Ekki þarf að hvetja Pratchett-
vini til að lesa hann, en ástæða til
að benda þeim sem ekki hafa
heillast af Discworld-bókunum á
söguna um köttinn talandi (og
hugsandi) Maurice og rotturnar
vini hans, sem einnig geta talað. Sú
bók er skrifuð fyrir yngri lesendur,
eins konar barnaævintýrasaga, sem
stálpaðir og fullorðnir geta haft
mikið gaman af. Ekki koma nema
tvær Discworld-persónur fyrir í
bókinni, Dauðinn og The Grim
Squeaker, en greinilegt að hún ger-
ist í þeim undur furðulega æv-
intýraheimi. Spennandi saga og
ógnvænleg á köflum, en umfram
allt bráðfyndin.
Fáir höfundar standa John
Grisham á sporði í vinsældum, enda
er hann með mest seldu glæpa-
sagnahöfunum síðustu áratuga.
Fyrir þessi jól sendir Grisham hins
vegar frá sér bók sem stingur í stúf
við fyrri verk, eins konar jólaæv-
intýri. Í bókinni Skipping Christ-
mas segir Grisham frá miðstétt-
arhjónum sem ákveða að sleppa
jólunum og fara frekar í Karíba-
hafssiglingu fyrir peninginn sem
þau spara með því móti. Einkadótt-
irin er við störf í fjarlægu landi og
þar sem þau eru ein finnst þeim
sem það verði hægðarleikur að
sneiða hjá æsingnum, kaupæðinu
og látunum ... en það er öðru nær.
Grisham hefði mátt stytta bók sína
verulega, en hún er þó ágæt lesn-
ing með boðskap og ádeilubroddi.
Glæpasagnaunnendur þekkja ef-
laust flestir Minette Walters sem
er með fremstu höfundum slíkra
bókmennta; lipur penni og ristir
býsna djúpt. Í nýjustu skáldsögu
hennar, Acid Row, sem kom út inn-
bundin fyrir stuttu, tekur hún fyrir
viðkvæm mál eins og svo oft áður,
og segir meðal annars frá óeirðum
sem brjótast út eftir að íbúar í hálf-
gerðu fátækrahverfi komast á snoð-
ir um að þar búi dæmdur barnaníð-
ingur. Söguþráðurinn er snúinn og
flæktur og atburðarásin ævin-
týraleg svo spennan verður nánast
óbærileg.
Alan Furst hefur vakið athygli
fyrir listavel skrifaðar njósnasögur
sem gerast á tímum seinni heims-
styrjaldarinnar, nánar tiltekið á ár-
unum 1939 til 1941, þegar mörgum
sýndust Möndulveldin hafa sigur.
Söguhetjur hans er venjulegt fólk
við óvenjulegar aðstæður eins og til
að mynda í The Polish Officer sem
segir frá kapteini í pólska hernum
sem þarf að gerast leyniþjón-
ustumaður í snatri er Pólland fellur
í hendur Þjóðverjum. Margir hafa
líkt Furst við John LeCarré, en
hann stendur þó nær Eric Ambler,
gefur meiri innsýn í hugarheim
skjólstæðinga sinna en Carré, þó
hann sé álíka meistari fléttunnar og
LeCarré.
Inspector Banks þekkja eflaust
margir, enda hefur hann verið að-
alsöguhetja glæpasagna Peters
Robinsons í ein fjórtán ár. Banks
er að mörgu leyti dæmigerð sögu-
hetja slíkra bókmennta, á í vand-
ræðum með kvenfólk, glímir við
óvin(i) innan lögreglunnar og beitir
óhefðbundum aðferðum til að leysa
flókin sakamál sem aðrir ráða ekki
við. Robinson hefur þó tekist að
gæða Banks það miklu lífi að les-
andinn getur samsamað sig honum
að einhverju leyti og stendur ekki á
sama um persónuna sem er lyk-
ilatriði í sannfærandi glæpasögu.
Cold is the Grave er nýjasta bók
Robinsons, kom í í kilju fyrir
stuttu, og hæfilega þykk til að lesa
á einu kvöldi og fram á nótt, rúmar
400 síður, enda viðbúið að menn
leggi hana ekki frá sér fyrr en sag-
an er öll.
Einn helsti öndvegishöfundur
evrópskra bókmennta er Gunther
Grass sem hefur sérstakt lag á að
stuða landa sína Þjóðverja; sam-
viska þeirra og refsivöndur. Fyrir
stuttu kom út á ensku síðasta
skáldsaga hans og kallast Too Far
Afield. Hún segir frá tveimur fé-
lögum sem ráfa um Berlín nýrra
tíma; annar fyrrverandi embætt-
ismaður þýska alþýðulýðveldisins
sáluga og hinn lágtsettur njósnari.
Á röltinu ræða þeir og rifja upp
sitthvað úr þýskri sögu og velta
fyrir sér lykilspurningum um hvað
felist í því að vera þýskur. Fáir
hafa annað eins lag á því að vaða úr
einu í annað og Grass en þó að
hann fari ekki eins víða í tíma og
rúmi og oft áður er hann með full-
mikið undir og nær ekki að vinna
úr því á sannfærandi hátt. Bókin er
samt meistaraverk, eins og hans er
von og vísa, þó að ekki sé gott fyrir
þá sem þekkja hann ekki að byrja á
þessum stað.
Bækurnar fást í Pennanum-
Eymundssyni og/eða Máli og menn-
ingu.
Um jólin gefst loks tími til að lesa að
mati Árna Matthíassonar sem mælir
með nokkrum forvitnilegum erlendum
bókum ólíkrar gerðar.
Forvitnileg
jólalesning