Morgunblaðið - 19.12.2001, Qupperneq 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
TUGIR manna á vegum Samkeppn-
isstofnunar gerðu í gærmorgun hús-
leit samtímis í höfðuðstöðvum olíufé-
laganna þriggja, Olíufélagsins hf.,
Olíuverslunar Íslands hf. og Skelj-
ungs hf. Að sögn Georgs Ólafssonar,
forstjóra Samkeppnisstofnunar, var
ráðist í aðgerðirnar vegna gruns um
ólöglegt verðsamráð olíufélaganna.
Samkvæmt 40. grein samkeppnis-
laga getur Samkeppnisstofnun við
rannsókn máls gert nauðsynlegar at-
huganir á starfsstað fyrirtækis og
lagt hald á gögn þegar ríkar ástæður
eru til að ætla að brotið hafi verið
gegn samkeppnislögum eða ákvörð-
unum samkeppnisyfirvalda.
Ljóst er að aðgerðir Samkeppn-
isstofnunar í gær voru vandlega und-
irbúnar og virtust þær koma starfs-
fólki olíufélaganna í opna skjöldu.
Starfsmenn Samkeppnisstofnunar
réðust til inngöngu á skrifstofur olíu-
félaganna um tíuleytið í gærmorgun,
einkum skrifstofur yfirmanna sem
var gert að víkja af skrifstofum sín-
um á meðan rannsókn fór fram. Alls
fóru um 20 manns á vegum Sam-
keppnisstofnunar í hvert félaganna
þriggja og voru þeir fram eftir degi
að safna gögnum sem síðan voru
flutt í húsakynni stofnunarinnar. Er
um mikinn fjölda gagna að ræða en
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins munu olíufélögin fá til baka
fyrir helgi þau gögn sem Samkeppn-
isstofnun telur sig ekki hafa gagn af
en önnur verða afrituð áður en þeim
verður skilað.
Georg Ólafsson segir að með þess-
um aðgerðum Samkeppnisstofnunar
sé ekki verið að segja að olíufélögin
hafi brotið af sér. Þær séu hins vegar
liður í því að ganga úr skugga um
hvort svo hefur verið eða ekki, út frá
þeim vísbendingum sem stofnuninni
hafa borist. „Við gerðum þetta vegna
ákveðinna vísbendinga um ólöglegt
samráð olíufélaganna um verð,
skiptingu markaðar og ef til vill eitt-
hvað fleira,“ sagði Georg í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Forsvarsmenn olíufélaganna
sögðust í gær ekki vita nákvæmlega
hvað Samkeppnisstofnun væri að
rannsaka með þessum aðgerðum.
Það hafi komið þeim á óvart til hve
harkalegra aðgerða stofnunin greip.
Í ljósi þjóðfélagsumræðunnar að
undanförnu hafi hinsvegar mátt bú-
ast við einhverskonar rannsókn af
hálfu stofnunarinnar.
Íslensku olíufélögin hafa mátt
sæta verulegri gagnrýni undanfarið
og hafa samtök eins og Landssam-
band íslenskra útvegsmanna og
Samtök iðnaðarins m.a. krafist op-
inberrar rannsóknar á verðlagningu
félaganna.
Þá hefur félag íslenskra bifreiða-
eigenda, FÍB, sent Samkeppnis-
stofnun útreikninga þar sem því er
haldið fram að olíufélögin hafi aukið
álagningu sína að undanförnu um-
fram það sem eðlilegt geti talist, sér í
lagi frá júnímánuði sl. Forsvars-
menn LÍÚ og FÍB fagna því að olíu-
verðsmál séu nú til athugunar hjá
samkeppnisyfirvöldum.
Samkeppnisstofnun gerði húsleit hjá olíufélögunum þremur í gærmorgun
Segir vísbendingar um
ólöglegt verðsamráð
Morgunblaðið/Ásdís
Starfsmenn Samkeppnisstofnunar bera gögn frá olíufélögunum inn í húsakynni stofnunarinnar.
Lögðu hald á/26
(
HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað karl
af kröfu fyrrverandi eiginkonu hans,
sem vildi fá andvirði helmings lífeyr-
issjóðsinneignar hans í sinn hlut þeg-
ar hjónabandinu lauk. Hæstiréttur
vísar m.a. til þess, að hjónin höfðu
ekki gert með sér samkomulag um
skiptingu lífeyrisgreiðslna, svo sem
þeim var heimilt samkvæmt lögum
um skyldutryggingu lífeyrisréttinda
og starfsemi lífeyrissjóða.
Hjónin höfðu verið tæp 34 ár í hjú-
skap er þau slitu samvistir. Konan
vann ekki utan heimilis, en annaðist
það og uppeldi tveggja dætra þeirra
hjóna. Maðurinn vann verka- og
vélamannavinnu og greiddi í lífeyr-
issjóð. Samkvæmt skilnaðarsamn-
ingi var hjúskapareignum þeirra
skipt til helminga milli þeirra, en
ágreiningur reis um lífeyrisréttindin.
Konan krafðist andvirðis helmings
lífeyrissjóðsinneignarinnar í sinn
hlut með vísan til hjúskaparlaga, en
hann neitaði með vísan til sömu laga.
Ákvæðið sem maðurinn byggði á
kveður á um að maki geti krafist
þess, að tiltekin verðmæti komi ekki
undir skiptin, þar með talin réttindi í
opinberum lífeyrissjóðum eða einka-
lífeyrissjóðum. Konan byggði hins
vegar á næstu málsgrein, þar sem
segir, að þyki ósanngjarnt gagnvart
hinum makanum að réttindum sé
haldið utan skipta, sé heimilt að bæta
honum það með fjárgreiðslum.
Sérstakar aðstæður þarf til
Hæstiréttur segir að líta verði
heildstætt á allar aðstæður aðila við
úrlausn málsins. Í dóminum er vísað
til þess, að bæði karlinn og konan búi
nú í eigin íbúðum. Hann fær um 92
þúsund krónur á mánuði í lífeyri eftir
skatta, en hún um 74 þúsund krónur
á mánuði í örorkubætur. Hæstirétt-
ur bendir á að í athugasemdum við
umrædd ákvæði í hjúskaparlögunum
sé tekið fram, að í einstaka tilviki
kunni að reynast ósanngjarnt að
halda persónubundnum réttindum
utan skipta. „Verður að telja, að sér-
stakar aðstæður þurfi að vera fyrir
hendi til þess, að þau komi undir
skiptin. Þótt tekið sé undir það með
héraðsdómi, að hlutur áfrýjanda í
myndun lífeyrisréttinda stefnda hafi
verið umtalsverður, þykir þó ekki,
eins og þar greinir, hafa verið sýnt
fram á, að það sé ósanngjarnt að
halda þeim utan skipta,“ segir
Hæstiréttur og sýknar karlinn af
kröfu konunnar.
Húsmóður synjað
um helming lífeyris HARALDUR Örn Ólafssonnáði í gærkvöldi tindi Vinson
Massif-fjalls eftir átta tíma
göngu, ásamt ferðafélaga sínum
Bruce Goodlad. Tindurinn er
hæsti tindur Suðurskautslands-
ins, 4.897 metra hár, og er þetta
í fyrsta skipti sem Íslendingur
stendur á toppi fjallsins.
Ferðin gekk vel, sérstaklega
framan af, en varð erfiðari þeg-
ar nálgaðist tindinn, enda er þar
mikill bratti og ís. Þá gáfu þeir
félagar sér ekki mikinn tíma til
að aðlagast hæðinni og klifu
1.250 metra í síðasta áfangan-
um, að sögn Halls Hallssonar,
sem ræddi við Harald skömmu
eftir að hann náði tindinum um
hálf átta-leytið í gærkvöldi, að
staðartíma. Haraldur hefur nú
komist á fimm tinda af sjö og
mun næst reyna að klífa hæsta
tind Suður-Ameríku.
Haraldur á
toppi Vinson
Massif
Í KVÖLD og á föstudag mun Björk
Guðmundsdóttir halda tónleika hér-
lendis í Laugardalshöll og í Háskóla-
bíói. Í viðtali við söngkonuna kemur
m.a. fram að hún telji það mikilvægt
að enda tónleikaferðalög sín hér á
landi. Einnig segir hún nýja plötu í
smíðum – en vinnan fari þó eingöngu
fram í kollinum sem stendur.
Björk með nýja
plötu í smíðum
„Vönust því...“/32
NÝTT met var slegið í raforku-
notkun á höfuðborgarsvæðinu í
fyrradag þegar orkunotkun fór í
163,1 megavattsstund, en í fyrra var
einnig slegið met þegar notkunin fór
mest í 155,5 MW fyrir jólin. Til við-
miðunar er meðalorkunotkun á
haustin um 140 MW. Raforkunotkun
landsmanna nær nú hámarki vikuna
fyrir jól en áður var hún mest á sjálf-
an aðfangadag.
Að sögn Gunnars Aðalsteinssonar,
framkvæmdastjóra kerfisstjórnunar
hjá Orkuveitunni, má draga þá
ályktun að matarvenjur Íslendinga
hafi breyst og haft þessi áhrif en auk
þess hefur álag aukist hjá fyr-
irtækjum síðustu virku dagana fyrir
jólin. Þá hafa sífellt fleiri jólaskreyt-
ingar einnig áhrif en þó ekki veruleg
þar sem sparneytnari jólaseríur
hafa komið á markað. Gunnar segir
að þessi notkun haldist væntanlega
út vikuna og von sé á nýju meti ef
veður kólnar, þar sem dælurnar fyr-
ir heita vatnið noti talsverða orku.
Morgunblaðið/Þorkell
Nýtt met
slegið í
orkunotkun
höfuðborg-
arsvæðisins
Lífgað upp/6
♦ ♦ ♦